Helgarpósturinn - 22.12.1983, Side 7
Laddi
eftir Egil Helgason teikning Ingólfur Margeirsson
Nú um jólahelgina verður frumsýnt nýtt íslenskt leikrit í sjónvarpinu. Það heitir Hver
er? Þetta leikverk er kveikjan að þeirri nærmynd sem hér fer á eftir. Aðalleikarinn heitir
nefnilega Þórhallur Sigurðsson. Þórhallur hvað? Þessi litli í Þjóðleikhúsinu? Nei, hinn. Sá
sem allir þekkja undir nafninu Laddi. En hann hefur svosem leikið áður og það ekki sjald-
an. Nei, en þetta er svolítið öðruvísi. Hann á ekkert að sprella, hann á að vera alvarlegur.
Þetta er alvöruleikrit. Ha? Hann Laddi!!! En hann er bara sprelligosi og grínkall! Trúður!
Ertu ekki að rugla saman jólaleikritinu og áramótaskaupinu? Nei, nei, það segja margir
að hann sé meiriháttar talent, fæddur kvikmyndaleikari...
Laddi stendur sumsé berskjaldaður fyrir framan þjóðina á mánudaginn og biður fólk að
gleyma þeirri spaugaraímynd sem loðir svo fast við hann — að minnsta kosti í bili. Á sama
tíma fer hann vítt og breitt og treður upp í hinum ýmsu gervum sínum — rullum Þórðar
húsvarðar, Eiríks Fjalars, Björgúlfs og ekki síst Súpermanns. Eða var það Súper-Laddi?
Súperleikari? Nærmyndin er af Þórhalli Sigurðssyni, þekktasta skemmtikrafti á Fróni síð-
asta áratuginn.
NÆRMYND
Laddi?
Hvurslags nafn er það eigin-
lega?
Jú. Sem kornabarn, hérumbil
ómálga, var snáðinn að berjast við
að segja sitt stóra nafn. Sú heiðar-
lega tilraun tókst ekki betur en
svo að útúr munni hans valt ó-
nefnið Laddiddi. Það var auðvitað
alltof langt og óþjált f annst skyldu-
liðinu, en Laddi — það hijómaði
hins vegar prýðilega, alténd þótti
það ágætt nafn á svona lítinn
grallaraspóa.
Síðan hefur Þórhallur Sigurðs-
son oftar en ekki þurft að gegna
nafninu Laddi.
Við byrjum á upphafinu, sem er
20asta janúar 1947 suðrí Hafnar-
firði. Þar fæðist drengurinn, sem
ekki var enn búinn að fá Ladda-
nafnið, sonur hjónanna Sigurðar
Haraldssonar austan úr Rangár-
þingi og Unu Huldar Guðmunds-
dóttur, sem er af vestfirskum upp-
runa. Hann var kominn í heiminn
yngstur fjögurra bræðra, þann
elsta þekkja flestir undir nafninu
Halli. Laddi er Gaflari í húð og hár,
en það hlutskipti átti þó ekki eftir
að liggja fyrir allri fjölskyldunni.
Sigurður, sem oft er kenndur við
Kirkjubæ, sleit samvistum við
konu sína og flutti austur á Rang-
árvelli og gerðist þar hrossabóndi
og ágætur hagyrðingur að því er
sagt er. Leiðir þeirra Ladda og
föðurins hafa því ekki legið mikið
saman í lífinu, ogþá ekki fyrr en
hin síðustu ár. A skemmtun á
Þingvöllum fyrir nokkrum árum
riðu þeir til dæmis á vettvang
Sigurður og bræðurnir Halli og
Laddi. Sigurður reið fyrir, hnar-
reistur í hnakknum, en á eftir
komu bræðurnir — öfugir í
hnakknum og héldu í taglið. „Nei,
við erum ekki eins góðir hesta-
menn og hann,“ segir Laddi.
En þeim mun nákomnari varð
þessi ungi Hafnfirðingur móður
sinni, sem vann fyrir honum og
öðrum bróður með ýmislegri
verkamannavinnu. „Ég held að
Laddi fjalli miklu meira um sig og
sitt tilfinningalíf en flestir gera sér
grein fyrir," segir Bjarni Dagur
Jónsson, auglýsingateiknari og
vinur Ladda um langt árabil. „Mér
finnst til dæmis áberandi hvað
hann syngur oft um mömmur í
textum sínum — ,,ég og mamma“,
„hún mamma mín...“ og svo fram-
vegis. Ég held líka að Laddi eigi
ekkert sérstaklega góðar minn-
ingar frá árunum í Hafnarfirði, að
minnsta kosti talar hann ekki oft
um þau.“
En grínkarlinn, spaugar-
inn.var hann alltaf til
staðar?
„Mamma sagði oft að
ég yrði dansari," segir Laddi. „Ég
var með ýmis tilþrif í þá áttina. En
hins vegar var ég mjög feiminn og
þjáðist talsvert fyrir það á tímabili.
Það hefur blessunarlega skólast
eitthvað af mér með árunum."
„Ég ólst upp í Miðey í Austur-
Landeyjum hjá afa okkar og
ömmu, sem ég kalla reyndar
pabba og mömmu, og þangað
kom Laddi alltaf í sveit á sumrin,"
sagði Haraldur Sigurðsson, Halli
bróðir. „Það var alltaf greinilegt
að hann hafði þennan hæfileika til
að bregða sér í allra kvikinda líki.
Amma okkar tók eftir þessu og
sagði að þessi drengur ætti að
verða leikari og ekkert annað. Þá
var hann bara pínupeð. Á þessum
árum í sveitinni vorum við allir í
rokkinu, Presley, Tommy Steele
og öllum þessum gæjum sem þá
voru hvað vinsælastir. Við sung-
um og hermdum eftir þessum
náungum og sprelluðum mikið
saman, þótt aldursmunurinn á
okkur væri talsverður. Ég var
kominn undir fermingu en hann
var þetta sjö-átta-níu ára. Svo
hætti hann að koma austur eins og
gengur og við áttum ekki samleið
aftur fyrr en nokkuð mörgum ár-
'um síðar, og þá fyrir hálfgerða til-
viljun."
I Hafnarfirði lýkur Laddi skyld-
unni, eins og það er kallað, og læt-
ur þar við sitja á hinni rykugu
braut bóknámsins. Menn eru líka
mismunandi lengi að finna sitt
upplag og í leit að því slæmist
hann inn í Iðnskólann í Hafnar-
firði og ætlar að læra trésmíði.
Það er heldur ekki alveg óviðeig-
andi, því tengdafaðir hans er líka
trésmiður og tekur hann í læri inn
á verkstæðið til sín. „Ég fór lang-
leiðina með að klára trésmíða-
námið," segir Laddi, „en svo hætti
ég áður en ég fékk nokkur rétt-
indi. Mér fannst það satt að segja
ansi leiðinlegt." Tengdafaðirinn
var væntanlega ekki ánægður
með það, en eiginkonan unga al-
sæl með makann, ef dæma má af
ummælum kunningjanna. Sigur-
rós Marteinsdóttir heitir hún og
þau voru sextán og sautján þegar
þau kynntust. Þáu gíftust árið 1967
og um leið var fyrsti sonurinn,
Marteinn, ' vatni ausinn. -Tveir
strákar hafa síðar bæst í hópinn,
ívar Örn og svo glænýr smástrák-
ur, Þórhallur í höfuðið á föðurnum
— „en það má alls ekki kalla hann
Ladda," segir móðirin ábúðarfull.
*
þessum árum var bítlið
í fullum gangi og aliir
strákar með bein í
nefinu að berja húðir
eða plokka strengi í bílskúrum.
Laddi:
„Ég var eitthvað að fikta við að
spila á gítar og kunningi minn var
ekki seinn á sér að tilkynna ein-
hverjum hljómsveitargæjum í
Reykjavík að hann þekkti alveg
frábæran gítarleikara. Þá kunni
ég ekki eitt einasta grip. Ég fór á
æfingu með hljómsveitinni og þar
var mér rétt bók með 2000 gítar-
gripum og sagt að koma aftur eftir
viku. Ég mætti á tilsettum tíma og
var þá búinn að læra þrjú grip.
Það gekk auðvitað ekki, en samt
var ég ekki alveg á þeim buxun-
um að gefast upp og spurði hvort
ég mætti ekki prófa að spila á
trommur. Það var allt í lagi með
það og næstu árin trommaði ég og
söng með hljómsveitinni Föxum."
Það var svo eitt kvöldið að ung-
ur sölumaður hjá Sambandinu
kemur á æfingu hjá Föxunum og
hefur frétt að það vanti söngvara.
Halli:
„Kunningi minn spurði hvort ég
væri ekki til í að koma á æfingu
hjá hljómsveit sem væri að byrja
að æfa suðrí Kópavogi. Ég sló til
og þegar ég kom suðreftir var ég
ekki lítið undrandi að sjá engan
annan en Ladda sitja bak við
trommurnar, ég hafði ekki haft
nokkurn grun um að hann væri
þarna. Uppúr þessu fórum við að
kynnast aftur.“
>
g byrja hjá Sjónvarpinu
haustið 1968 og kom því
til leiðar að Laddi var
ráðinn þangað líka árið
1970," segir Halli. „Þá var hann
búinn að vera í hinum og þessum
hljómsveitum í Reykjavík og hafði
verið að vinna eitthvað í Kassa-
gerðinni líka. Það var frískt fólk
sem vann hjá Sjónvarpinu og
vinnan skapandi og mér fannst að
hann myndi passa ágætlega inn í
andrúmsloftið. Það var líka eins
og við manninn mælt að við vor-
um strax byrjaðir með sama böl-
vaða fíflaskapinn og í gamla daga
og uppfrá því fóru þær að gerast
allar þessar tilviljanir sem ýttu
okkur að lokum útí skemmti-
bransann."
Sagan segir að sjónvarpsmenn
hafi fyrst orðið varir við hæfileika
þeirra bræðra þegar þeir heyrðu á
léttúðarfullt tal þeirra í gegnum
kallkerfið.
„Ég og fleiri tókum fljótt eftir
því að þarna fór maður með
óvenjulega hæfileika til að koma
öllum í kringum sig í gott skap,"
segir Andrés Indriðason dagskrár-
gerðarmaður, sem sagt er að hafi
„uppgötvað" þá bræðurna. „Ég
var þá að byrja með fígúrur í
barnatímanum sem hétu Glámur
og Skrámur og fékk þá bræðurna
til að ljá þeim raddir, sem þeir
gerðu mjög skemmtilega."
„Það var strax mjög áberandi
hvað Laddi hafði góð tök á sjón-
varpinu," segir Bjarni Dagur Jons-
son. „Ég varð vitni að því þegar
hann fór að leika í myndakross-
gátunni hjá Andrési Indriðasyni
og þá gat engum dulist hvað hann
var fljótur að átta sig á því sem
þurfti að gera fyrir framan
myndavélarnar. Hann þurfti held-
ur ekki að þjást af sviðsskrekk, all-
ir í kring voru kunningjar hans og
stúdíóið næstum hans annað
heimili."
Eins og sjónvarpsáhorfendur
kannski muna rak hver skemmti-
þátturinn annan á þessum árum,
enda mikið af ungu og frísku fólki
sem vann hjá Sjónvarpinu á þeim
tíma, hvað sem síðar hefur orðið.
Halli og Laddi voru þar sjaldnast
víðs fjarri — hver man ekki eftir
Ladda í hlutverki Saxa læknis og
Alfredós hins ítalska? Framhaldið
Framhald. á næstu síðu
HELGARPÓSTURINN 7