Helgarpósturinn - 22.12.1983, Page 11
þar álitlega stúlku, gengur til
hennar og segist vera með frá-
bæra bók handa henni, kínversk
ljóð. Þetta var ófyrirgefanlega
klaufalegt. Honum átti að vera
ljós sú staðreynd að konur þora
ekki fyrir sitt litla líf að líta á þá
karlmenn, sem standa við lestur í
bókaverslunum, af ótta við að þar
séu þeir að upplifa sínar villtustu
ástríður — á prenti.
Að lokum vil ég skora á ein-
hvern lífsreyndan, íslenskan karl-
mann (lukkulega sjálflærðan í
fræðunum hérlendis) að skrifa
leiðbeiningahandbók pipar-
sveinsins, með raunhæfum ís-
lenskum aðferðum t.d. líkt og
þessi gamla góða: (Sagt um leið og
Hann hefur þrifið Hana út á dans-
gólfið) „Kemurðu oft hingað? —
Æðislega er heitt hérna, komum
bara út!“ Og að sjálfsögðu verður
verðandi rithöfundur að muna að
fjalla hlýlega um konuna sem
kyntákn — kynveru eingöngu. Og
fyrir alla muni að forðast að fara
út í þá deild að væla um konuna
sem félaga, hvað þá jafningja karl-
mannsins. Og enga uppgerðar-
slepju um að íslenski karlmaður-
inn sé einhver vemmileg tilfinn-
ingavera. Hann er „hörkutól og
karlmenni" eins og blaðamaður-
inn rataði réttilega á í greininni,
en mun þó sennilega fremur vera
komið frá erlendættaða vini hans,
sem hann vitnaði aðeins í og hefði
betur tekið mark á.
Guðrún Alfreðsdóttir
Deilurnar
um HSÍ
Herra ritstjóri.
í síðasta blaði Helgarpóstsins er
látið að því liggja að blað það sem
Amundi Amundason gaf út og
fjallaði um Í.A. — liðið í knatt-
spyrnu sé gefið út á vegum H.S.Í.
I þessu sambandi vil ég taka fram
að umrætt blað var ekki gefið út á
vegum HSÍ og firrum við okkur
allri ábyrgð á útgáfu umrædds
blaðs.
Þá er í blaðinu leiðinleg glósa
um mig sem formann HSÍ og sagt
að einu afskipti mín af handknatt-
leik hafi verið er ég var video-
maður landsliðsins.
I þessu sambandi vil ég benda á
eftirfarandi:
Árið 1973 stofnaði ég og var for-
maður í handknattleiksdeild
Leiknis í Breiðholti og var ég þar
formaður í þrjú ár. Frá sama tíma
og alls í fjögur ár sat ég í stjórn
Handknattleiksráðs Reykjavíkur
en formaður þar var þá Júlíus
Hafstein.
Þá sat ég eitt ár í mótanefnd HSÍ
en var hvergi í stjórn en varamað-
ur í Handknattleiksráði Reykja-
víkur. Á árinu 1978 var ég kjörinn
í stjórn HSÍ og hef verið í stjórn
þar síðan.
Af störfum mínum innan stjórn-
ar HSÍ hef ég verið formaður
unglingalandsliðsnefndar í eitt
tímabil, formaður mótanefndar
tvö tímabil og aðstoðarmaður
Iandsliðsþjálfarans tvö tímabil.
Það er rétt að ég hefi einnig
annast video-upptökur fyrir HSI
og kom það einfaldlega til af því
4750
BÓKATITLAR
MESTA ÚRVAL
ÍSLENSKRA BÓKA
í BORGINNI
Bækur í öllum
verðflokkum
MARKAÐSHÚS
BÓKHLÖÐUNNAR
Laugavegi 39
Sími16180
að ég er tæknimenntaður í raf-
eindavirkjun og því lá beinast við
að ég gerði slíkt. Tíu ára starf inn-
an handknattleikshreyfingarinn-
ar og með þá málaflokka sem ég
hefi nefnt hér að framan hlýtur að
teljast góður undirbúningur fyrir
starf formanns HSÍ.
Skrif ykkar þjóna því engum
öðrum tilgangi en gera mér for-
mannsstarfið erfitt.
Fer ég því fram á að þessi skrif
verði leiðrétt.
Reykjavík, 21. desember 1983.
Friðrik Guðmundsson formaður
HSÍ
HP þakkar þessa athugasemd,
en verður aö ítreka að blaðið hef-
ur óyggjandi upplýsingar um að
fyrrnefnt blað var kynnt sem
stuðningsblað við HSÍ, m.a. gagn-
vart þeim auglýsendum sem leitað
var til. Auk þess stóð hvergi íblað-
inu að ,,einu afskipti" formanns
HSÍaf handboltamálum hafi verið
„vídeómennska - Ritstj.
w
FÉLAG JÁRNIÐNAÐARMANNA
sendir félagsmönnum sínum og ödrum velunn-
urum félagsins bestu óskir um gledilegjól og far-
sœlt komandi ár.
Sérstakar þakkir senda aldraöir félagsmenn,
ekkjur og börn látinna félaga, fyrir rœktarsemi
og glaöning um hver jól í áratugi.
i.
5 Stjórn Félags járniönaöarmanna
l
cottylene fabnc
9 9
__ w
‘Jrminjih
Fullkomið
samræmi
vÆm
TANGA MINI MIDI MAXI
Q
stepy luxe
reveN
reen
tton
sphinx ts
reve cotton
cottylene fabric
doreen
one size
plusN
cotton stretch fabnc
ÁGÚST ÁRMANN hf. Jík
UMBOÐS-OG HEILDVERSLUN #U\
SUNDABORG 24 SÍMI 86677