Helgarpósturinn - 22.12.1983, Side 12
íslenskaI
La ÓPERANl
Traviata
Föstudag, 30 des. kl. 20.00.
Frumsýning:
Rakarinn í Sevilla
Frumsýning föstudag 6. jan
kl. 20.00.
Tekið við pöntunum ( sima
27033 frá kl. 13-17.
Muniö gjafakortin okkar —
Tilvalin jólagjöf.
VANTAR ÞIG
JÓLAGJÖF?
ÞAÐ ERU 4750
BÓKATITLAR í
MARKAÐSHÚSI
BÓKHLÖÐ UNNAR
Laugavegi 39 Sími 16180
OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 8.
SENDUM í PÓSTKRÖFU UM
ALLTLAND
abriel
HÖGGDEYFAR
75 ÁR í FARARBRODDI
75ÁRA TRYGGING
FYRIR GÆÐUM
Bremsuklossar
fyrir flestar
gerðir.
DRATTAR-
BEISLI
fyrir Volvo
og fleiri gerðir.
Verð kr. 3400,-
TRW
Stýrisendar
og spindilkúlur.
BENSINDÆLUR
FYRIR
Gotf, Passat /100—1300
Votvo 144, 244
VW 12-13,
1302—15—1600
Vauxhall Viva
M. Benz 200-280
Fiat 125—7—8—
31-32
Simca 1100-1307
Ford Cortina,
Taunus, Escort,
Fiesta
Skoda —
Citrotfn G.S.
PÓSTSENDUM
ÚS
varahlutir
Hamarshöfða 1
simar: 83744
og 36510
tími
u
WÓÐLEIKHÚSIfi
Tyrkja-Gudda
eftir Jakob Jónsson frá
Hrauni. Leikmynd og búning
ar: Sigurjón Jóhannsson
Ljós: Asmundur Karlsson
Tónlist: Leifur Þórarinsson
Leikstjóri: Benedikt Árna
son. Leikarar: Andri Clausen,
Árni Tryggvason, Baldvin
Halldórsson, Briet Héðins-
dóttir, Bryndís Pétursdóttir,
Erlingur Gíslason, Flosi Ól-
afsson, Guðmundur Ólafs-
son, Hákon Waage, Helgi
Skúiason, Hrannar Sigurðs-
son, Jón Gunnarsson, Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir, Mar-
grét Guðmundsdóttir, Rand-
ver Þorláksson, Rúrik Har-
aldsson, Sigmundur Örn
Arngrímsson, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Sigurður Karls-
son, Sigurveig Jónsdóttir,
Steinunn Jóhannesdóttir,
Tinna Gunnlaugsdóttir, Vil-
borg Halldórsdóttir, Þórhall-
ur Sigurðsson, Þórunn
Magnea Magnúsdóttir, Örn
Árnason og fl.
Frumsýning: 2. jólad. kl. 20.
2. sýn. miðvikud. 28. des. kl.
20.
3. sýn. fimmtud. 29. des. kl.
20.
4. sýn. föstud. 30. des. kl. 20.
Lína 'langsokkur
Fimmtud. 29. des. kl. 15
Fáar sýningar eftir
Miðasala kl. 13.15-20.00. Sími
1-1200.
OjO
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
. _ SÍM116620
Guð gaf mér eyra
Þriðjudag 27. des. kl. 20.30.
Föstudag 30. des. kl. 20.30.
Hart í bak
Fimmtudag 29. des. kl. 20.30.
Miðasala í Iðnó kl. 14-16.
Við
byggjum
leikhús
Platan,
kassettan
°g
leikhúsmiðagjafakort
seld í miðasölunni.
Kátt.í
koti
dagur ó barnaheimili
Falleg bók
ó lágu verði
- fyrir börn
fulloíðna
HRINGBORÐIÐ
í dag skrifar Sigríður Halldórsdóttir
Ljósið hennar nöfnu minnar
Jólin eru svo tengd bernsku-
minningum, að rifji maður þau
upp, verður að gera það hratt og
örugglega svo ekki komi geisla-
baugur fullorðinslífsins á endur-
minninguna. Jólahugleiðing getur
aldrei orðið góð nema hún sé per-
sónuleg. Þessvegna tala ég ekki
um jól annars fólks heidur mín
eigin.
Aldrei man ég eftir að hafa farið
í kirkju á jólunum nema einusinni.
Þá var farið í Stefánsdóm í Vínar-
borg að hlusta á Wienersanger-
knaben. Okkur þótti það afskap-
lega gaman, ekki afþví við hefð-
um mikinn áhuga á drengjakórn-
um, heldur hitt að hvergi sáu börn
jafnmikið af illa bækluðu, fátæku
og einkennilegu fólki einsog í
þessari kirkju, til þess að glápa á.
Kirkjuvörðurinn í Stefánsdómi
ber þar höfuð og herðar yfir alla,
það hafði verið skotið af honum
andlitið í stríðinu og þar var ekk-
ert nema tvær rosalegar nasahol-
ur og eilífðarbros einsog á haus-
kúpu. Svo var hann náttúrlega
einfættur einsog mig minnir að
flestir kariar hafi verið í þessari
hákristnu menningarborg. Nóg
um það.
Aðfangadagar voru bestu dagar
ársins og fóru ekki í að gera upp
tékkheftið. Þá sat kvenfólkið al-
fiðrað niðrí kjallara og reytti
fugla. Ef það var góður bylur
seinni hluta aðfangadags þá fór
pabbi í fjallgöngu. Eftir því sem
bylurinn var svartari, þeim mun
lengri skyldi fjallgangan verða.
„Einkennilegt að þurfa að fara útí
þetta svona rétt fyrir heilagt,"
sagði systir hans og þóttist vera að
taia við silfurtauið sem hún var að
fægja. Kannski myndi hann villast
í bylnum á aðfangadagskvöld og
við kvenfólkið myndum sitja
hnípnar við grútarlampann og
hræðast myrkrið í göngunum á
sjálfri fæðingarhátíðinni, einsog í
sögu eftir Sigurbjörn Sveinsson.
Alltaf kom hundurinn heim hús-
bóndalaus úr þessari göngu,
nokkrum mínútum fyrir heilagt.
Eg vissi þetta sagði ég við systur
mína, fólk verður alltaf úti á jóla-
nótt á íslandi! Og -hún svaraði,
„Æi, þegi þú með þennan Sigur-
björn Sveinsson þinn“. í þeim orð-
um töluðum kom faðirinn inn úr
bylnum og spurði „hvort hundur-
inn væri kominn." Þetta var siður
á aðfangadag. Nágrannabóndi
okkar fór alltaf að ieita að fé
seinnipart þessa dags. Ef hann sást
uppí hlíð að lemja stafnum í allar
áttir, þá var alveg að verða heil-
agt. Sá maður var þjóðháttafræð-
ingur af guðsnáð. Enda sér maður
í gömlum íslenskum barnasögum
hvað feður lögðu á sig í slæmum
veðrum til þess að skyggja á Maríu
og barnið. Samt varð heilagt hvað
sem tautaði og raulaði og þá var
sungið og er enn „í dag er glatt í
döprum hjörtum, því drottins
ljóma jól...“ o.s.frv. Gamalt fólk
heldur þeim sið að syngja hástöf-
um með jólamessu útvarpsins, og
aldrei brást að þegar fyrstu tón-
arnir úr „í dag er glatt“ hljómuðu
og amma hóf upp raust sína, þá
var pabbi búinn að finna fyrstu
síðuna úr jóiaóratóríu Bachs, svo
skrúfuðu þau tækin sín í botn. Síð-
an heyri ég ekkert jólalegra en út-
varpsmessuna og jólaóratóríuna
samtímis, svo húsið nötrar af há-
tíðleika.
Mér dettur í hug þessa dagana
að ég sé búin að svíkja mín börn
um íslenskt jólahald með útlensku
skrumi. I staðinn fyrir lummur og
iaufabrauð og kaffi með tári er
komið glögg, piparkökur og að-
ventukrans. Maður lætur draga
sig á asnaeyrunum og sýður fullan
fiskipottinn af þessum sænska
vellingi að bjóða fólki á aðventu.
Sú venta hérlendis er uppúr
„Hjemmet" einsog alit gott, og
eingöngu til þess að gera börn ó-
þekk. Þau frekjast með skóna útí
glugga á hverju kvöldi í margar
vikur. Svo þarf að búa til aðventu-
krans einsog í barnatímanum. En
þar er víst enginn fífiagangur á
ferðinni. Ekki í katólskum löndum
þarsem öllu máli skiptir hvernig lit
kerti þú brennir þessa fjóra sunnu-
daga. Rauð eru víst svívirða á
þeim fyrsta. Synd að við skulum
ekki vera þýsk og hafa þessa hluti
á hreinu. Skrattakollarnir 1 og 8
sem hrekktu myrkfælin börn í
skammdeginu eru orðnir að am-
erískum Santaklás á hreindýra-
sleða. íslenskur jólasveinn hefði
sett hrossatað í lítinn sauðskinns-
skó. Grýlu hafa sálfræðingarnir
séð fyrir, einsog það er gaman að
hræða börn á henni. En ef það
fréttist þá verða börnin tekin með
valdi og komið fyrir hjá vanda-
lausum. Svo ef maður veit ekki
lengur hverslensk jól maður á að
halda næst, þá er ágætt að fletta
upp í almanakinu. Var það ekki
skemmtileg tilviljun að Jesús
fæddist um vetrarsólhvörf, þegar
þráin eftir sólarljósinu er allri trú
sterkari? Einhversstaðar í myrkr-
inu er Grýla svo börnin fari sér
ekki að voða, húsfreyjan gefur
lummukaffi, karlar ganga út að
spá í bylinn. Ég leyfi mér til hátíða-
brigða að vitna í Bernsku Sigur-
björns Sveinssonar, bls. 229, Jóla-
ljósið. Sú bók hefur reynst mér
betur en margar, sérstaklega þeg-
ar ég man ekkert guðsorð:
....Ó Jesús Kristur, góði frels-
arinn minn, mig langar svo mikið
til að sjá ljós, mér leiðist svo að
vera í myrkrinu á jólunum."
Allt í einu heyrði Sigga fótatak.
Hún flýtti sér að þerra af sér tárin
með svuntuhorninu sínu.
„Ertu þarna rýjan mín?“ sagði
gamla konan um leið og hún kom
fram í eldhúsið.
„Já, ég er hérna, svaraði Sigga
með grátstafinn í hálsinum.
„Vertu ekki að vola rýjan mín,“
,sagði kerling. „Nú eru blessuð jól-
in komin, og ég ætla nú að fara að
baka lummur." Svo fór hún að púa
í eldinn og skara í hann. Hún hélt
á grútarlampa í hendinni, og í
honum var fífukveikur. Kerlingin
rak lampanefið í eldinn og kveikti
á lampanum; með þessu móti
sparaði hún eina eldspýtu. Svo
bað hún Siggu litlu að halda á
lampanum en sjálf settist hún á
hrosshaus við hlóðirnar og fór að
baka lummurnar.
Sigga hélt á lampanum í annarri
hendinni, en með hinni gerði hún
að ijósinu með smáteini sem var á-
fastur við lampann. Hún ýtti fífu-
kveiknum æ lengra og lengra
fram í lampanefið, og lét ljósmetið
drjúpa á hann.
„Ó, hvað Guð er góður, að lofa
mér að horfa á svona fallegt jóla-
ljós," hijgsaði Sigga og brosti
gegnum tárin, en það bros bar
vott um innilegan hjartans fögn-
uð.
Það var annars engin furða, þó
að Sigga litla væri glöð, því að
hverjir ættu að vera glaðir á jólun-
um, ef ekki einmitt þeir, sem elska
Ijósið?"
HÖGGDEYFAR
í MIKLU ÚRVALI
Við opnum ki. 8.30<
og höfum
opið í hádeginu ,
Næg bílastæði
KndHkortaþ/inu**.
HABERGhC
Skeifunni 5a, sími 84788.
I
1 li 1
Geysir “
Borgartúni 24 — 105
Reykjavík lceland —
Tel. 11015
Leigjum út nýja Opel
Kadett, Mazda 323 og
Daihatsu-bíla.
Sækjum og sendum.
Símsvari allan sólar-
hringinn.
EUROCARD
kreditkortaþjónusta
12 HELGARPÓSTURINN