Helgarpósturinn - 23.02.1984, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 23.02.1984, Blaðsíða 10
HP HELGARPÓSTURINN Ritstjórar: Árni Þórarinsson og Ingólfur Margeirsson Ritstjórnarf ulltrúi: Hallgrimur Thorsteinsson Blaðamenn: Egill Helgason og Sigmundur Ernir Rúnarsson Lltlit: Björgvin Ólafsson Ljósmyndir: Jim Smart Handrit og prófarkir: Hildur Finnsdóttir Útgefandi: Goðgá h/f. Framkvæmdastjóri: Guðmundur H. Jóhannesson Auglýsingar: Áslaug G. Nielsen Skrifstofustjóri: Ingvar Halldórsson Innheimta: Jóhanna Hilmarsdóttir Afgreiðsla: Þóra Nielsen Lausasöluverð kr. 30. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 36, Reykjavik, slmi 8-15-11. Afgreiösla og skrif- stofa eru að Ármúla 36. Slmi 8-15-11. Setning og umbrot: Alprent hf. Prentun: Blaðaprent hf. Lífsbjörg Örlög einstakra manna endurspeglaoft margflókið þjóðlíf og félagslegar að- stæður á einfaldan hátt. Helgarpósturinn birtir opnuviðtal I dag við danska fatafellu sem skemmtir Reykvíkingum þessa dag- ana á öldurhúsum. Orðið fatafella fær eflaust flesta lesendur til að draga skjót- ar og emhæfar ályktanir um eðli og persónu þessarar stúlku. En málið erflóknara en svo. Bak við hinakaldrifj- uðu grlmu nektardans- meyjarinnar leynist lítil og óörugg stjúlka sem reynir að sjá sér og þremur börn- um sfnum farborða. Serena eða Hanne eins og hún heitir réttu nafni lýsir á af- dráttarlausan hátt I Helgar- póstinum hvernig hún hef- ur orðið að búa til nýja persónu; nýjan ham utan um viðkvæma og auðtrúa sál í því skyni að komast af (velferðarþjóðfélagi sem er gegnsósa af kynjamisrétti, fordómum og rétti hins sterka. Saga Serenu endursegir að mörgu leyti þann veru- leik sem vestræn þjóðfélög búa við f dag. En frásögn hennar er einnig dæmi um einstaklingsbundna sjálfs- vörn þegar félagslegt um- hverfi veruður yfirþyrm- andi. Faðirhennarvaralkól- hólisti sem móðirin skildi við er Hanne var barn að aldri. Móðirin giftist aftur drykkjumanni og samskipt- in við stjúpfööurinn gerðu það að verkum að Hanne varkominn ávergang um 13 ára aldur. Hörð lífsbarátta og barneignir einkenndu unglingsárin og í dag þegar hún er rétt tveggja tuga hef- ur hún haslað sér völl sem fræg fatafella í Kaup- mannahöfn. í öllum þess- um ömurleik og lífshörku hefur Hanne haldið sjálfs- virðingunni og uppruna- legri hlýju. Með því að skapa nýja persónu, nektar- dansmeyna Serenu, sem axlar brauðstritið og er verndarengill Hanne. Lff stúlkunnar er tvöfalt líf. En á brynju fatafellunnar mundi hún ekki eiga mögu- leika á lífsafkomu. Þessi litla saga segirokkur mikið um samfélag okkar og það segir reyndar talsvert um hvert og eitt okkar. Og hún útskýrir fyrir okkur hvers vegna Serena tfnir af sér spjarirnar í Kaupmanna- höfn. Eða fyrir framan dauðadrukkna íslendinga á skemmtistöðum borgar- innar. orystumannaskipti innan SÍS eru í sjónmáli. Erlendur Einars- son forstjóri mun senn láta af störf- um, sömuleiðis Vilhjáhnur Jóns- son, forstjóri Olíufélags Islands (ESSO), og þá Kristleifur Jónsson, bankastjóri Samvinnubankans. Baktjaldamakkið er nú hafið og tví- sýnt um hverjir stöðuerfingjarnir verða. I forstjórastól SIS teflir Er- lendur Einarsson fram Guðjóni B. Ólafssyni í Icelandic Seafood í Bandaríkjunum, en forkólfar kaup- félaganna víðs vegar um landið veðja á Val Arnþórsson, kaupfé- lagsstóra KEA á Akureyri og stjórn- arformann Sambandsins. Ovíst er um eftirmenn Vilhjálms og Krist- leifs . . . B orgarifsilm er enn í umræð- unni og hafa margir spurt sig hvern- ig Indriða G. Þorsteinssyni tókst að sameina hinar stóru fylkingar sjálfstæðismanna og framsóknar- manna. Virðist einkum tvennt hafa Þ orsteinn Pálsson og Frið- rik Sophusson þykja ekki hafa komist glæsilega frá stöðuveitingu bankastjóra Búnaðarbankans. Er víst að formaður og varaformaður Sjálfstæðisfiokksins hafa lækkað í áliti þingmanna og ráðherra flokks- ins. Enn hefur ekki reynt mikið á Þorstein sem formann en ýmsir ráð- herrar Sjálfstæðisflokksins gera for- manninum lífið leitt með ákvörðun- um sem ekki samræmast stefnu flokks eða formanns í einu og öllu. En Þorsteinn á einnig góða vini meðal ráðherranna sem standa þétt að honum, eins og Geir Hallgríms- son, Matthías A. Mathiesen og Matthías Bjarnason . . . M ■ W ■ikil mannaskipti eru í uppsiglingu innan yfirmannasveit- ar Ríkisútvarpsins. Öll embættin verða veitt af menntamálaráðherra Ragnhildi Helgadóttur. Guð- mundur Jónsson framkvæmda- stjóri mun senn láta af störfum og mun ákveðið að ráða ungan, röskan viðskiptafræðing með rekstrarhag- fræði sem sérgrein í hans stað. Sá maður er enn ekki fundinn. Emil Björnsson mun hætta bráðlega sem fréttastjóri Sjónvarps og hefur Guðjón Einarsson fréttamaður verið nefndur sem eftirmaður hans, þótt hann hafi enn ekki lýst yfir áhuga sínum. En sýnt þykir að sæki hann um verði erfitt að ganga fram- hjá honum. Þá mun Andrés Björnsson útvarpsstjóri _ láta af störfum og hefur Markús Örn Ant- onsson oft verið talinn eftirmaður hans í starfi. Skyldi Markús afþakka er það alveg víst að sjálfstæðismað- ur hreppi stöðuna meðan þeir hafa menntamálaráðherrastólinn. Mar- grét Indriðadóttir fréttastjóri Hljóðvarps er einnig á förum og þykir líklegt að Kári Jónasson fréttamaður taki við hennar starfi. Þá mun Hinrik Bjarnason vera að hugsa sér til hreyfings úr stóli yfir- manns lista- og skemmtideildar Sjónvarps en óvíst er um eftirmann hans... komið til. Annars vegar vinir Ind- riða og flokksbræður sem vildu hjálpa félaga sínum út úr skulda- súpu ísfilm. Hins vegar sáu pólitísk forystuöfl innan Sjálfstæðisflokks- ins og Framsóknarflokksins sér leik á borði: Stofnun Borgarísfilm mundi ýta mjög á um að afgr.eiðslu þingsá- lyktunartillögu um frjálsan útvarps- rekstur yrði hraðað þegar haldfast- ur samkeppnisaðili við Ríkisútvarp- ið væri fundinn. Sú hefur einnig orðið raunin. Ragnhildur Helga- dóttir menntamálaráðherra hefur nú lagt fram frumvarpið sem stjórn- arfrumvarp og mikill þrýstingur er meðal SlS-manna á þingmenn Framsóknarflokksins að afgreiða frumvarpið á réttan veg . . . veröiJ' mettur ilKa «S/LA» . , Bremsuklossar Höggdeyfar GJvarahlutir Hamarshöfða 1 símar 83744 — 36510 r rrVCTD Bdalelga L ÍTlb 1 olrí. Carrental Borgartún 24 (hom Nóatúnm) Sími 11015, ákvöidin 22434. Sækjum — Sendum — Aðeins að hringja — Nýir og sparneytnir bílar. Tegund og érgerð daggj. Kmgj. Lada 1500 station árgerð 1984. 500 5,00 Opel Kadett (framdrif) argerð 1983. 600 6,00 Lada Sþort jeppar argerð 1984. 800 8.00 Allt verð er án söluskatts og bensins. Flíkinni fylgir sæluvíma Hnökraö 55%uiI/45% bómull Caukur á Stöng veitingahús, Tryggvagötu 22, sími 11556 puLt— 10 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.