Helgarpósturinn - 23.02.1984, Blaðsíða 18

Helgarpósturinn - 23.02.1984, Blaðsíða 18
LEIKLIST Agata í Kópavogi „Það tekst allgott samspil milli leik- aranna en nokkuð skortir á að hraði sýningarinnar sé nægur til að nýta möguleika verksins til fulls," segir Gunnlaugur Ást- geirsson í umsögn sinni um „Óvæntan gest“ eftir Agötu Christie. Leikfélag Kópavogs: Óvœntur gestur eftir Agötu Christie. Leikstjóri: Pétur Einarsson. Þýding: Helga Hardardóttir. Leikmynd: Ogmundur Þor Jóhannesson. Lýsing: Egill Ó. Arnason. Leikendur: Sigfús Aöalsteinsson, Helga Hardardóttir, Sigurður Grétar Guðmunds- son, Svanhildur Th. Valdimarsdóttir, Eiríkur Hjálmarsson, Sólrún Yngvadóttir, Þór H. Asgeirsson, Finnur Magnússon, Hrafn Hauksson, Gunnar Magnússon. Agata Christie er lengi búin að vera vin- sæll höfundur hér á landi sem og annarsstað- ar. Þó nokkuð hefur verið þýtt af sögum hennar á islensku og leikrit eftir hana hafa víða verið sett upp af áhugaleikfélögum út um landsbyggðina, Vinsældir Agötu byggja sem kunnugt er á leikni hennar við að segja sögu og hæfileik- um við að skapa spennu og að koma sífellt frá nýju og nýju sjónarhorni að atburðunum (glæpnum). Þannig leiðir hún lesandann sífellt á villigötur uns hún slær honum alveg við í lokin þegar i ljós kemur að glæponinn er einhver af þeim allra ólíklegustu. Hún er meistari í að búa til flækjur af þessu tagi. Ekki þætti mér ólíklegt að upp sé að renna nýtt vinsældaskeið Agötu með nýbyrjuðum sjónvarpsþáttum byggðum á sögum hennar. Leikfélag Kópavogs tekur sér því fyrir hendur ákaflega þakklátt verk með því að setja á svið vinsælt sakamálaleikrit eftir Agötu Christie. Það er ástæðulaust í þessu sambandi að faraað velta fyrir sér samfélagsmynd Agötu með áhyggjulausu yfirstéttarfólki eða hvernig hún gerir grín að fötluðu fólki. Það sem skiptir fyrst og fremst máli þegar um er að ræða sakamálaleikrit er hvernig tekst að halda spennunni i verkinu. Ovæntur gest- ur er samið í ekta Agötustil eins og lýst er hér að framan. Sviðsetningin stendur því og fell- ur með því hvernig tekst að skapa spennu- andrúmsloft á sviðinu og leiða áhorfendur á villigötur. í sýningu Leikfélags Kópavogs tekst sumt vel og annað miður eins og gengur. Leikar- arnir eru að sjálfsögðu misþjálfaðir og fram- sögn þeirra og framgangsmáti því ekki alltaf jafn og samur. Það tekst al! gott samspil milli leikaranna, en nokkuð skortir á að hraði sýningarinnar sé nægur til að nýta til fuils möguleika verksins. Þýðing verksins er býsna bókleg og olli það þvi að húmorinn í verkinu átti nokkuð ógreiða leið til áhorf- enda. En þetta þrennt, spenna, hraði og húmor hljóta að vera grunnþættir í sýningu eins og þessari. Það má ekki skilja orð mín svo að ekkert af þessu sé til staðar, það er af og frá, en þeir möguleikar sem eru fyrir hendi eru ekki nýttir til fulls. Ekki var samt annað að heyra en að áhorf- endur á frumsýningu á sunnudaginn skemmtu sér ágætlega, en það sker auðvitað úr um hvort sýning af þessu tagi heppnast eða ekki — hvort tekst að skemmta áhorf- endum bærilega. GAst. Verksmiðjan og helgardjammið Leikfélag Akureyrar: Súkkulaði handa Silju Höfundur: Nína Björk Árnadóttir Leikmynd og búningar: Guðrún Sigríður Haraldsdóttir Lýsing: Viðar Garðarsson Tónlist: Egill Ólafsson flutt af Ingimar og Ingu Eydal. Leikstjóri: Haukur J. Gunnarsson. Getur ömurleiki verið fallegur? Sjálfsagt myndu víst flestir svara þessu neitandi, en samt er það nú svo að það er fallegur ömur- leiki sem manni dettur fyrst í hug þegar mað- ur vill lýsa verki Nínu Bjarkar Árnadóttur „Súkkulaði handa Silju". Ömurleikinn og firringin er það stef sem gengur í gegnum all- an leikinn, en mörg tilbrigðin við þessi nöt- urlegu stef eru þrungin einstæðum ljóðræn- um yndisþokka, og þessa þverstæðu túlkar tónlist Egils Ólafssonar á hreint frábæran hátt, tónlist sem stundum er Ijóðræn, stund- um firrt og stundum hvorttveggja. Ekki spill- ir afburða flutningur þeirra feðgina Ingimars og Ingu Eydal. Súkkulaði handa Silju verður víst að flokk- ast sem „vandamálaleikrit". Þungamiðja verksins er samband einstæðu móðurinnar Önnu og 15 ára dóttur hennar Silju, sam- band sem í rauninni er mjög innilegt þrátt fyrir það að hinar ömurlegu ytri aðstæður móðurinnar geri það að verkum, að súkku- laði þaðsem hún svo gjarnan vill bera fram handa dóttur sinni, verður harla beiskt á bragðið og hún er sér þess fyllilega meðvit- andi, en hún reynist ekki þess umkomin að breyta þessu, meðfram vegna sinna kröppu kjara, þessara sultarkjara láglaunakonunnar þar sem einasta undankomuleiðin frá firr- ingu verksmiðjulífsins, a.m.k. um stundar- sakir, er ef til vill enn meiri firring helgar- djammsins með ofsafengnu kynlífi sínu og brennivínsþambi, allt á kostnað miðaldra karlmanna sem leita stundarfróunar frá meira eða minna misheppnuðum hjóna- böndum, og þetta líferni fyrirlítur dóttirin án þess að vera á nokkurn hátt þess umkomin að finna sér heilbrigðan lífsstíl og hlýtur því að enda í sama feninu og móðirin. Vímugjaf- ar af ýmsu tagi eru snar þáttur í þessu verki, eins og svo oft í íslenskum vandamálaleikrit- um síðari ára, og reynir höfundur á einkar sannfærandi hátt að sýna fram á það hvern- ig þeir, eða misnotkun þeirra,leiðir hinar ólíku kynslóðir, sem annars eru nánast ósættanlegar, alltaf að sama brunni sjálfs- eyðileggingarinnar. Vímugjafarnir breytast frá kynslóð til kynslóðar, en afleiðingarnar verða ávallt hinar sömu. Það eru þó í raun- inni ekki vímugjafarnir sjálfir sem vandan- um valda heldur það umhverfi sem leiðir til misnotkunar þeirra. Persónurnar eru i raun og veru fórnarlömb kringumstæðna sem þær ráða ekki við. Þær eru alltaf í leit að draumi sem þær aldrei fá þó höndlað. Að því er mér skilst þá hafa verið gerðar breytingar á verkinu frá því það var sýnt á litla sviði Þjóðleikhússins, breytingar sem miða frekar í raunsæisátt. Til dæmis mun persóna sú sem nefnd er Hin konan hafa ver- ið mun þokukenndri og draumkonulegri í fyrri gerðinni en er nú orðin að einhverjum raunverulegum sálfræðingi eða félagsráð- gjafa. Ég sá því miður ekki sýningu Þjóðleik- hússins, en einhvernveginn hefur maður það á tilfinningunni að þessar breytingar í raunsæisátt hafi ekki að öllu leyti verið til góðs. Að ósekju hefði mátt gera hinn draum- kennda þátt verksins enn meiri, eins og til að undirstrika hlut hinnar miklu vímuefna- neyslu í leiknum, því hvað er vímuefna- neysla (og jafnvel kynlíf) annað en leit að draumi, flótti inn í draumalöndin burt frá gráum ömurleika hins hversdagslega verk- smiðjuþrældóms. En þrátt fyrir hina raun- sæislegu umgjörð er þó enn eftir mikið ljóð- rænt ívaf í verkinu, ívaf sem gerir það að verkum að þetta leikrit tekur langt fram þeim vandamálaleikritum sem við eigum helst að venjast frá hendi íslenskra nútíma- höfunda, og einhvern veginn býður mér í grun að það eigi eftir að verða lífseigara heldur en gengur og gerist með slík verk. En úr því farið var út í svo raunsæislega túlkun verksins á annað borð, þá vaknar sú spurn- ing hvort ekki hefði verið hægt að staðfæra það alveg. Sá veruleiki sem þarna er lýst er áreiðanlega eins akureyrskur og hann er reykvískur, en ekki er víst að allir geri sér fyllilega grein fyrir þvi. Það kom skemmtilega á óvart hversu Sjall- inn virðist henta vel sem leikhús. Hljóm- burður virtist þokkalegur, en það er annað en stundum er hægt að segja á dansleikjum, enda verið þyrnir í augum ýmissa sem þar hafa leikið fyrir dansi. Þá hæfir sviðsmynd Guðrúnar S. Haraldsdóttur sýningunni eink- ar vel á þessum stað. Hið ruslaralega og smekklausa heimili þeirrar nýju íslensku öreigastéttar sem verkið fjallar um á mið- sviði og umhverfi unglinganna, þar sem myndvörpu er skemmtilega beitt, og skemmtistaðurinn á hliðarsviðum. Reyndar þurfti nú enga leikmynd til að sýna þennan skemmtistað, það er víst erfitt að komast lengra i natúralisma í leikmyndagerð en ein- mitt í þessum atriðum. Þá gerir ljósahönnun Viðars Garðarssonar sitt til að skapa þarna leikhúsandrúmsloft. Ég man sjaldan eftir því að honum hafi tekist betur upp en einmitt hér, og það þrátt fyrir að sjálfsagt hefur lýs- ingin verið af miklum vanefnum gerð. Það er Sunna Borg sem leikur hið erfiða og margslungna hlutverk móðurinnar Önnu, og er í því alveg stórkostlega „útjöskuð", en sýnir þó vel ýmis önnur blæbrigði en Iífs- þreytuna og hina ósjálfráðu skemmtana- fýsn, til dæmis mikla mannlega hlýju sem hún gjarnan vill sýna en fær ekki vegna kringumstæðnanna. Guðlaug María Bjarna- dóttir stendur sig ágætlega í hlutverki Silju, dótturinnar sem reynir að fitja upp á nýjum lífsstíl en er að öllum líkindum dæmd fyrir- fram af kringumstæðunum, eða þannig freistast maður að minnsta kosti til að túlka endi verksins. Þó er eins og hana skorti stöku sinnum hersiumuninn að sýna frísk- leika hinnar uppreisnargjörnu æsku, eink- um i hinum dramatískari atriðum. Við meg- um ekki gleyma þvi að hún er aðeins við upphaf glötunarbrautar móðurinnar og á því allan sinn lífskraft ónotaðan. Þórey Aðal- steinsdóttir sleppur þokkalega frá hlutverki „skvettunnar" Dolly, vinkonu Önnu. Þráinn Karlsson er löngu orðinn helsti sérfræðingur L.A. í fyllibyttum og hér bregst hann auðvit- að ekki frekar en endranær, samt fannst manni leikur hans ef til vill einum of farsa- kenndur. Einna viðfelldnastir af annars fremur leiðinlegum karlpersónum leiksins eru þeir Jóhann, leiði eiginmaðurinn i túlk- un Theódórs Júlíussonar, og unglingurinn Örn leikinnn af Gunnari Rafni Gunnarssyni. Manni fellur ágætlega við þá í byrjun, en þeir eru bara svo óskaplega eigingjarnir og sérgóðir báðir tveir, alls ófærir um að sýna þeim mæðgunum þá hlýju og samúð sem þær þó svo mjög þarfnast sín í hvoru lagi. Ragnheiður Tryggvadóttir var ágæt sem Dúila og reyndar var samleikur hinna þriggja ráðvilltu unglinga ailur einstaklega skemmtilegur og myndar sérkennilega sam- svörun við hinn innihaldslausa skemmtana- heim þeirra eldri. Þau Gestur E. Jónasson og Edda V. Guðmundsdóttir voru einnig ágæt en hlutverk þeirra gáfu ekki tilefni til neinna stórkostlegra leiktilþrifa. Þá er aðeins ógetið leikstjórnar Hauks J. Gunnarssonar sem er með ágætum, þó mað- ur hefði ef til vill kosið örlítið meira jafnvægi á milli hins draumkennda og Ijóðræna annarsvegar og hins grófgerða hversdag- leika hinsvegar. En notkun hans á sviðinu er einkar vel útfærð og í sem stystu máli þá hef- ur honum tekist að opna okkur sýn inn í veruleika sem við öll vitum að er til staðar í íslensku samfélagi. Og þennan veruleik verður öll þjóðin að vera samstiga um að uppræta. Annað væri íslendingum til hins mesta vansa sem sjálfstæðri velferðarþjóð. RA „Ömurleikinn og firringin er það stef sem gengur gegn- um allan leikinn,“ segir Reynir Antonsson m.a. I umsögn sinni um Súkkulaði handa Silju sem LA sýnir um þessar mundir. 18 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.