Helgarpósturinn - 23.02.1984, Blaðsíða 21

Helgarpósturinn - 23.02.1984, Blaðsíða 21
G óðar fréttir berast nú í her- búðir borgarstjórnarfuiltrúa sjálf- stæðismanna. Grafarvogsævintýrið svonefnda virðist ekki ætla að enda í martröð eins og vinstriminnihlut- inn hefur haldið fram hingað til. Lóðirnar ganga nú hratt út og hefur 60 þeirra verið úthlutað frá áramót- um. Þannig vart.d. 10 lóðum úthlut- að sl. þriðjudag á einu bretti, tveim- ur í Seláshverfi og einni í Selja- hverfi. Ef svo heldur fram sem horf- ir er líklegt að lóðaúthlutun ljúki um næstu áramót. Enn er 250 lóðum óúthlutað í Grafarvogi. Síðustu út- hlutanir hafa átt sér stað án auglýs- inga og er líklegt að fjörkippur fær- ist í leikinn þegar þær koma til. Lóð- irnar eru 800 fermetrar að stærð og kostar stykkið um 400 þúsund krón- M leira um lóðaúthlutanir: Bráðlega verður 20 einbýlishúsa- lóðum úthlutað í Stigahlíð við hlið Menntaskólans við Hamrahlíð. Sennilega birtast auglýsingarnar í fjölmiðlum í endaðan mars. Hér er um að ræða 800—900 fermetra lóð- ir og er víst að barist verður um þær. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn eru ekki á eitt sáttir um hvernig standa skuli að úthlutuninni. Sumir vilja láta útboð fara fram, þar sem hæstbjóðandi hreppi lóðirnar, en aðrir vilja hafa lýðræðislegri að- ferðir í heiðri og setja fastan prís á ióðirnar. En þá lendir borgarstjórn- armeirihlutinn í erfiðum gildrum eins og t.d. punktakerfi.. . S 'enn mun verða efnt til skipu- lagssamkeppni um Skúlagötuna, þar sem forskriftin verður niðurrif umræddra húsa. Skilafrestur verð- ur fram í júlímánuð . . . Rakarastofait Klapparstíg Sími 12725 Hárgreiðslustofan Klapparstíg Tímapantanir 13010 Góöir gestir Arnarhóls! Viö höfum tekió í notkun nýjan stórkostlegan sérréttamatseöil Sýnishorn: Forréttur Reykt laxamousse m/kaldri kryddjurtasósu og þriggjakorna brauðhleifi Fiskréttur Rauðspretta au gratin og pönnusteiktir humarhalar i skel Villibráð Hreindýrasteik m/týtuberjasósu Kjötréttur Pottsteiktar grisalundir í dijon-portvinssósu Eftirréttur Kampavins-melónusorbet HELGA' 'STURINN 21.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.