Helgarpósturinn - 23.02.1984, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 23.02.1984, Blaðsíða 28
hússtjóri sendi Ragnhildi Helga- dóttur menntamálaráðherra bréf í fyrri viku. í bréfinu, sem dagsett er 13. feb., kvartar þjóðleikhússtjóri yfir leikhúsgagnrýni þeirri sem heyrst hefur á öldum ljósvakans í þætti Sigmars B. Haukssonar, Listalífi, sem er fluttur á laugardög- um. Gagnrýnin hefur ,,einkennst af hroka, ósanngirni og jafnvel æru- meiðingum," segir orðrétt í bréfi Gísla. Þjóðleikhússtjóri víkur einnig að því að hlutleysisreglur Útvarps- ins séu þarna gróflega brotnar. Bréfritari fjallar síðan almennt um hve viðkvæm leiklistin sé og að gagnrýni af þessu tagi hafi áhrif á aðsókn og fjárhag leikhússins. 1 lok bréfsins fer þjóðleikhússtjóri fram á það við menntamálaráðherra að hún „breyti gagnrýninni í heilbrigð- ara horf þannig að hún sé Ríkisút- varpinu samboðin," eins og segir í bréfinu. Páll Baldvinsson er leik- listargagnrýnandi Listalífs og þess er skemmst að minnast að þjóðleik- húsráð kvartaði í stjórnartíð Sveins Einarssonar undan leiklistargagn- rýni Jóns Viðars Jónssonar, for- vera Páls, og sendi þá kvörtun bréf- lega til útvarpsráðs sem hundsaði aðfinnslurnar. Nú er að vita hvort menntamálaráðherra gerir slíkt hið sama eða hvort Ragnhildur verður við ósk þjóðleikhússtjóra og rit- skoðar leiklistargagnrýni Útvarps- ins sem margir telja að þýddi að sett yrði á stofn eins konar baktrygging- arkerfi ríkisstofnana . . . D reytingar á ferðamálaráði eru væntanlegar. Framkvæmda- stjórinn Lúðvík Hjálmtýsson mun brátt hætta og við stöðunni tekur að öllum líkindum markaðsstjóri ráðs- ins, Birgir Þorgilsson. Þá mun for- maður ráðsins, Heimir Hannes- son, einnig vera á förum en óá- kveðið er enn um eftirmann hans annað en að sá á að vera ungur og röskur eins og sagt er. Matthías Bjarnason samgöngumálaráð- herra skipar í stöðuna. Mikii óá- nægja hefur ríkt með störf ferða- málaráðs og einkum hefur samsetn- ing ráðsins, hið svonefnda fulltrúa- kerfi, verið gagnrýnt. Er búist við að nýir menn í forystustörfum muni stokka upp gamla kerfið ... F lokksforysta Alþýðubanda- lagsins mun vera þrumu lostin vegna hinna skjótu samninga VSÍ/ ASI. Er mikill urgur í ýmsum valda- mönnum flokksins og er talið að hér se um ákveðin tímamót að ræða. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, mun af mörgum talinn hafa sett gömlu verkalýðsforystuna út í horn með þessum leik og undirstrikað ákveðna kynslóðaskiptingu. Guð- mundur J. Gudmundsson, for- maður Verkamannasambandsins, mun t.a.m. vera patt í þessari stöðu. Og víst er að Svavar Gestsson, for- maður Alþýðubandalagsins, lítur mjög óhýrum augum til Ásmundar fyrir samninginn, því áframhaldið gerir Svavari og alþýðubandalags- mönnum mjög erfitt fyrir í stjórnar- andstöðu . . . v W ið heyrum að urbætur vegna barnafólks, sem felast í hin- um nýju samningum VSÍ/ASÍ, verði fjármagnaðir m.a. með minni niður- greiðslu á kjötvörum. Er ráðgert að niðurgreiðslurnar minnki frá og með þessari helgi . . . V/SA EITT KORT INNANLANDS OG UTAN BINAÐARBANKINN Happy skrifborð frá 3300 Happy bókahillurfrá 1795 „Alfa" ' Kroppstóll frá 10520IKroppstóll frá „Gamma" 8200 Höfum opnaö nýja húsgagnaverslun að Garðastræti 17, Reykjavík. Einnig skiptum við um nafn á Happyhúsinu Hafnarfirði sem heitir Sess húsgagnaverslun héðan ífrá. Með opnun þessarar nýju verslunar fást nú í fyrsta sinn í Reykjavík Happy unglingahúsgögn og Kropp hvíldarstólar. Ítilefniafþessumtímamótumverðaopnunartilboöáeinstaka rjspmi i im vprrS’ vörumverslanannaogtöluverðurafslátturáöðrum. UIll veiu. HUSGAGNAVERSUJN RPiKJAVÍKURVEGI 64 S. 54499 GARBASTR4TI17 S.15Q44 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.