Helgarpósturinn - 23.02.1984, Blaðsíða 12
MATKRÁKAN
Enn af grjónaæði og holdsveiki
Þaö eru engin ný sannindi aö þjóðhagsleg
hryðjuverk (alias kapitalísk kreppa) marki
mjög líf einstaklinga og jafnvel heilu stétt-
anna; frjó hugsun og listsköpun rísi þá upp í
hæstu hæðir og skemmtanalíf verði furðu
fjölskrúðugt. A daginn gjörnýtir fólk at-
vinnutæki sín, líkamina, og allt þeirra inn-
vols, en fer síðan hamförum í skjóli nætur.
Hvað skemmtanalífið varðar er ljóst að
danska kreppuholdsveikin hefur stungið sér
niður í höfuðstaðnum og áreiðanlega víðar.
Æ færri hafa ráð á að sækja sér „tilbreyt-
ingu" til sólarlanda eða í sælkeraferðir til
Parísar og flykkjast þess í stað út á hála braut
skemmtanalífsins. Girndin og eirðarleysið
teyma menn inn í tómt og tímalaust ástríðu-
flæði diskóljósa; holdsveikir eigra út og inn
um göngudeildir holdsveikrahælanna,
hvaðan sjúklingarnir útskrifast aldrei en
eyðast fremur í angist sinni. Stefán Snævarr
lýsir slíkri hælisvist svo í Ijóði sínu Diskó-
landid í ljóðabókinni Sjálfssalinn (1981);
Þú ferö ekki heim
þegar fjörið er búið
en finnur þér loftpúða: vodka í kók
þú ferð ekki heim
þegar fjörið er búið
en dreymir hið fullkomna partí
þess frummynd
meðan þú dansar í flogaveiku Ijósi
Diskóland!
Danslandslag!
„Með hljómandi skálabumbum .
með gígjum og hvellibjöllum“
með pákum og lúðraþyti
Og eftir ballið efnaskipti okkar.
En ég veit svei mér ekki hvað ég á að
halda um andríki og listsköpun þjóðarinnar
um þessar mundir. T.d. voru umræðurnar
um stöðu íslensku skáldsögunnar, sem
stúdentar í bókmenntum við HI efndu til í
vikunni sem leið, harla dauflegar. Umræður
um grjónagraut hafa verið þeim mun fjör-
ugri af gefnu tilefni forsætisráðherra. Frú
hans varð við fjölda tilmæla og birti í DV
uppskrift að uppáhalds vellingi Steingríms.
Morgunhanar Rásar 1 buðu fólki að ræða
þjóðmálin í rauðabítið sl. mánudag á Arnar-
hóli og síminn hjá mér hefur verið rauðgló-
andi eftir að ég birti nokkrar hrísgrjónaupp-
skriftir í síðasta blaði. Margir skömmuðu mig
fyrir að hafa ekki útlistað í smáatriðum
hvernig eigi að sjóða grjón, en um það eru
uppi ýmsar kenningar. Eg verð hér með við
þessum tiimælum og held áfram umfjöllun
um þetta eftirlæti Islendinga þessar vik-
urnar, grjónin.
Ég mæli að sjálfsögðu með hýðishrísgrjón-
um sem eru miklu næringarríkari en þau
hvítu; einkar auðug af eggjahvítu- og trefja-
efnum, svo og B-6-vítamíni en það eyðist
mjög eins og annað B-vítamín úr líkama
þeirra er neyta áfengis .. .
Soöin hvít hrísgrjón
Sjóðið hvít hrísgrjón í stórum potti með
ríkulegu vatni, a.m.k. 6 dl á móti hverjum dl
af grjónum. Setjið salt út í vatnið, smjörklípu
og gjarnan nokkra dropa af sítrónusafa.
Látið suðuna koma upp og látið grjónin þá
út í vatnið í litlum skömmtum og hrærið í á
meðan með sleif. Lækkið hitann og látið
grjónin sjóða í 15 mín. Smakkið þá á grjón-
unum. Þau eiga, eins og spaghettí, að verða
meyr en ekki að mauki, al dente eins og ítalir
segja, þ.e. þau eiga að veita tönnunum ör-
lítið viðnám þegar bitið er í þau. — Ef ykkur
finnst þau enn of húrð, ættu þau að soðna á
2-3 mín. til viðbótar.
Þegar hrísgrjónin eru orðin hæfilega soðin
er vatnið látið drjúpa vel af þeim. Ekki setja
þau undir kalt vatn né hræra í þeim með
skeið, því lítið þarf til að merja soðin hrís-
grjón í mauk. Heillavænlegast er að losa
grjónin varlega í sundur með tveimur göffl-
um.
Best er að bera grjónin fram um leið og
þau eru orðin soðin. Ef þau þurfa af einhverj-
um ástæðum að bíða í nokkrar mínútur,
setjið þau þá aftur í pottinn (þurran) og lok
yfir.
(Gufu)soðin hýöishrísgrjón
Hýðishrísgrjón er gott að gufusjóða í hrað-
suðupotti; það tekur mun lengri tíma að
sjóða þau en hvít hrísgrjón. Byrjið á að þvo
þau vandlega. Setjið svo í pott '/21 af vatni á
móti hverjum dl af hýðishrísgrjónum. Sjóðið
þau án loks í 5 mín., lækkið hitann síðan eins
mikið og hægt er og lokið pottinum kyrfi-
lega (!) og sjóðið áfram í 45 mín. Ekki lyfta
lokinu af á meðan á suðu stendur, það raskar
ró grjónanna.
Slökkvið á hellunni eftir þessar 45 mín. og
látið lokaðan pottinn standa á henni í 10
mín. til viðbótar. Þá er loks óhætt að lyfta
lokinu af pottinum og grjónin birtast hæfi-
lega soðin og allt vatn er gufað upp. Losið
um grjónin með gaffli og berið fram.
Ur 2 dl af hráum hrísgrjónum fást 6 dl af
soðnum sem er hæfilegur skammtur handa
4.
Svo koma hér tvær hrísgrjónauppskriftir,
önnur handa láglaunafólki, hin handa þeim
sem eru bjargálna.
Hrísgrjónaréttur
láglaunamannsins (h. 4-6)
8 dl af soðnum hýðishrísgrjónum
3 msk smjörlíki
2 msk heilhveiti
eftir Jóhönnu Sveinsdóttur
1 dl mjólk
1 dl heitt grænmetissod eda vatn
'/2 tsk salt
1 egg
safi úr '/2 sítrónu
2á dl rifinn Parmesanostur
1. Bakið upp sósu úr 2 msk af smjörlíki,
hveiti, mjólk og grænmetissoði; saltið.
Takið pottinn af hellunni og látið sósuna
kólna lítillega.
2. Þeytið saman egg og sítrónusafa og hrær-
ið saman við sósuna. Setjið pottinn aftur
á heita helluna, og hrærið í henni þar til
hún þykknar. Hrærið þá út í hana 1 msk.
af smjörlíki og helmingnum af ostinum.
Hellið sósunni yfir nýsoðin hrísgrjónin og
stráið yfir því sem eftir er af ostinum.
Risotto Genovese (h. 4-6)
ítalir borða töluvert af hrísgrjónum. Hvert
hérað og borg á Italíu á sínar eigin útgáfur af.
risotto, pottréttum sem hafa hrísgrjón að
meginuppistöðu. Þessi réttur er kenndur við
Feneyjar. Þeir sjóða grjónin öðruvísi en sagt
er frá hér að framan og í þessari uppskrift er
gert ráð fyrir hvítum hrísgrjónum.
1 stór gulrót
1 stór sellerístöngull
1 stór Iaukur
3 msk ólífuolía
2' msk smjör
2 dl skinka í bitum
3 dl hrísgrjón
2 dl þurrt hvítvín
3 dl kjúklingasoð
u.þ.b. 1 tsk þurrkað basil
salt og pipar
2 greinar steinselja eða u.þ.b. 2 msk
þurrkuð
1. Þvoið og saxið gulrót og sellerí, afhýðið
laukinn og saxið og léttsteikið þetta
þrennt í olíu og smjöri í 5 mín. Bætið
skinkunni saman við og steikið í 1 mín. til
viðbótar. Hrærið hrísgrjónin saman við
þar til þau hafa drukkið í sig feitina.
2. Hellið víninu út í pottinn og aukið hitann.
Bíðið þar til allur vökvi er gufaður upp og
hrærið stöðugt í á meðan. Setjið þá 1 d! af
kjúklingakrafti út í svo og basil, salt og
pipar og lækkið hitann.
3. Látið réttinn malla áfram og hrærið oft í
honum á meðan og bætið út í því sem eft-
ir er af kjúklingakraftinum, 1 dl í senn, og
sjóðið þar til grjónin eru orðin hæfilega
meyr (u.þ.b. 20 mín.). Hrærið þá saxaðri
steinseljunni saman við og berið fram.
12 HELGARPÓSTURINN
r
NÝJA
ROKKIDI
n k. laugardagskvöld
Nýja rokkiö eitthvaö sem allir veröa aö
sjá — stanzlaust stuö GUNNAR
ÞÓRÐARSON, með 25 listamönnum
ásamt ZORRO, TARZAN og DÚA-
KVARTETTINUM.
Matsediil
Kjúklingapaté í vatnsdeigi meö kjöthlaupi.
Broadway-steik meö smjörsteiktum svepp-
um. gljáöum gulrótum, rjómasoönu blóm-
káii, hrásalati. bökuöum jaröeplum og
béarnaise-sósu.
Broadway-pakki Flugleiða
fyrir aðeins 3.445 krónur!
Flugleiðir bjoða flug. gistmgu i 2 nætur. kvoldverð |
og skemmtun a Broadway fvrir 5 345 krónur'
IJMAIMr
FLUGLEIÐIR
Tryggið
ykkur
borð
strax
ídag
ísíma
77500.
Á laugardags-
kvöld veröur
haldið hátíð-
legt Goldie-
kvöld á
Broadway
Model 79 sýna það allra nýj-
asta frá Goldie.
Dansflokkurinn Fantasy
sýnir.
Grínararnir Viktor og Baldur
skemmta.
Kung-Fu flokkurinn sýnir
bardagalist
Húsiö opnaö kl. 20.30
Lystauki.