Helgarpósturinn - 23.02.1984, Qupperneq 14
f .p <*
. eftir Ingólf Margeirsson mynd Jim Smart
Hótelherbergiö er lítið og skyggsýnt. A hillum við þröng-
an gluggann standa förðunardósir, úðunarbrúsar og ilm-
vötn. I sprunginni gluggakistunni er hálffull líkjörflaska.
Náttborðið er lítið og ber öskubakka og stóra litmynd í
ramma af ungbarni. Svefnsófinn er umbúinn; herbergið er
snyrtilegt en yfir því hvílir þreyta og tómleiki.
I dökkum stól situr nektardansmœrin Serena. Hún
skemmtir borgarbúum þessa dagana á ýmsum öldurhús-
um. Hún er klœdd í dökkar síðbuxur og bol og hefur sveip-
að svartri ullarpeysu yfir herðarnar. Serena púar sígarettu
þennan morgun; hún er elskuleg og brosmild en dálítið
spennt og roðnar feimnislega annað slagið. Það fysta sem
hún segir við mig er: „I dag er ég Hanne. “
Hin danska Serena heitir fullu nafni Hanne Jörgensen.
Hún er 21 árs og þriggja barna móðir.
Við höfðum hist stuttlega kvöldið áður.
Hún var rétt ófarin inn á sviðið, og lagfærði
vinnufötin sem öll voru hvítlit; lífstykkið,
þunnur brjóstahaldarinn, aðskornar nær-
buxur og leðurstígvél. Sömuleiðis sláin úr
gagnsæju tjulli og fjaðrirnar sem hún bar í
ennísbandinu og við uppháa hanskana. Hún
sagði mér, örugg og þóttafull, að sér þætti
gaman að veiða karlmenn en færi aðeins
einu sinni með þeim í rúmið, kannski tvisvar
ef þeir reyndust vel, en væri sjálfstæð og
óháð öllum. Áhugamál hennar væri kynlíf.
Islenskir karlmenn væru ástríðufullir en
drykkju of mikið. Lífið væri fjör. Hún varð
dálítið undrandi þegar ég bað hana um nán-
ara viðtal næsta morgun en samþykkti það
eftir smáumhugsun. Síðan gekk hún inn á
sviðið.
„Hanne er heiðarleg og ró-
lynd stúika," segir hún. „Hanne er feimin og
viðkvæm. Það eru fáir sem þekkja mig sem
Hanne. Aðeins nánustu vinir. Serena fædd-
ist þegar ég var 16 ára. En það er kannski
réttast að byjar á byrjuninni."
Hún blæs frá sér reyk og drepur í sígarett-
unni. Hellir tei í bollann.
,,Eg fæddist í Kaupmannahöfn. Foreldrar
mínir voru alltaf í peningabasli og við vorum
í stöðugu húsnæðishraki.Þau skildu þegarég
var fjögurra ára. Pabbi var drykkjumaður og
það eina sem ég man úr þessu fjölskyldulífi
eru stöðug rifrildi þeirra. Mamma giftist
nokkrum árum síðar. Mér líkaði aldrei við
stjúpföður minn. Hann var slátrari að at-
vinnu en tolldi illa í vinnu vegna stöðugrar
drykkju. Hann vann við hitt og þetta; var
grænmetissali, þjónn, lagermaður og svo
framvegis. En mamma þagði og beit á jaxl-
inn. Við börnin urðum fjögur og hún vann
úti sem afgreiðslustúlka í búð og hélt heimil-
inu gangandi. Okkur stjúpföður mínum kom
æ verr saman. Hann skráði sig sem öryrkja
og sat drukkinn alla daga heima og reifst og
skammaðist út í allt og alla. Sérstaklega var
honum í nöp við mig og vini mína semkomu
heim. 13 ára gömul flutti ég að heiman. Ég
fór í fyrstu til eldri bróður míns en ári síðar
giftist hann og flutti en ég hélt íbúðinni hans.
Sama ár hætti ég í skóla. Ég hafði lokið
skyldunámi en sá enga ástæðu til að halda
áfram. Skólinn var leiðinlegur og fullur af
heimskum kennurum og bjánalegum
nemendum. Skólalíf átti ekki við mig. Ég
fékk mér vinnu, afgreiddi í verslunum og
hljóp í alls konar lausastörf. Ég hafði alltaf
haft mikinn áhuga á leikfimi og dansi og þeg-
ar efnahagurinn vænkaðist fór ég í kvöld-
tíma og lauk prófi sem leikfimikennari
nokkrum árum síðar. En ég var alltaf blönk
fannst mér. Mig langaði að eiga föt, vera flott
eins og stóru stelpurnar. Fimmtán ára gömul
varð ég ólétt og rétt orðin sextán þegar
„Vasi“ kom í heiminn. Ég kallaði drenginn
minn fljótlega „Vasa“ því hann hefur alltaf
verið svo óframfærinn og feiminn og var
varla farinn að ganga þegar hann stakk
höndunum í vasana mína í hvert skipti sem
óöryggið gerði vart við sig. Sambúðin við
barnsföðurinn entist ekki Iengi og rúmlega
sextán ára var ég orðin einstæð móðir. Og
blankari en nokkru sinni fyrr.
Svo var það einu sinni að
vinkona mín bað mig að koma með sér á
stað á Vesterbro, sem heitir Waterloo. Þar er
fatafellu-keppni haldin um hverja helgi og
þátttaka öllum opin. Mér fannst þetta hroða-
lega klúr tilhugsun en Iét til leiðast. Þegar ég
kom á staðinn varð ég hissa, því allar að-
stæður voru mun geðþekkari en ég hafði
búist við. Vinkona mín, sem fengist hafði við
nektardans, bað mig að taka þátt í þessu
starfi og lofaði háum tekjum. Umboðsmað-
urinn hennar kom að máli við mig þetta
kvöld og spurði hvort ég gæti hugsað mér að
verða strip-tease dansmær, en ég var fljót að
segja nei, sagðist vera allt of feimin. Þá
spurði hann mig hvort ég hefði áhuga á að
gerast ljósmyndafyrirsæta. „Nei!“ hrópaði
ég um leið, og gat alls ekki skilið að nokkur
maður gæti séð í mér ljósmyndafyrirsætu
því mér fannst ég eins og lítill, þykkur tappi
í laginu.
En ég hélt áfram að fara með vinkonu
minni á Waterloo. Einn daginn kom um-
boðsmaðurinn hennar arkandi inn í salinn
og tók stefnuna á bkkur. Hann staðnæmdist
fyrir framan mig og spurði formálalaust:
„Áttu bikini?" Eg svaraði játandi. Hann
spurði hvort ég vlldi þéna dágóðan skilding
fyrirhafnarlítið. Ég kinkaði hikandi kolli.
Hann sagði mér að taka næstu lest til borgar
á Jótlandi og þar yrði tekið á móti mér. Síðan
strunsaði hann burt. Ég ákvað að taka séns-
inn, skrapp heim og náði í sundfötin. Síðan
tók ég Iestina til Jótlands. Tvær stúlkur tóku
á móti mér á brautarstöðinni og við héldum
á sýningarstað. í ljós kom að samkeppni i
nektardansi var að hefjast. Stelpurnar sögðu
mér að fara í bikiníið, hnýttu rauða hettu á
höfuðið á mér og sögðu mér að fara fram á
sviðið. Ég skalf og nötraði af geðshræringu
en þær brýndu fyrir mér að gleyma ekki að
dansa og taka spjarirnar rólega af mér. Ég
man alltaf eftir laginu: „One for you and one
for me.“ Ég var kynnt serri Serena. Það var
ekki fyrr en nokkrum vikum síðar að ég
komst að því að kona með því nafni var fræg
klámleikkona í Bretlandi, og hafði stunið inn
á alimargar plötur sem orðið höfðu vinsæl-
ar. Ég átti því að vera eins konar andstæða
hinnar djörfu, veraldarvönu Serenu og
leggja áherslu á sakleysi mitt. Sviðsatriðið
varð að martröð. Ég þvældist um sviðið og
notaði allar hugsanlegar leikfimiæfingar
sem ég kunni meðan ég reyndi að fara úr
bikinifötunum. Það tókst ekki betur en svo
að þegar ég var kornin úr brjóstahaldaran-
um og hugðist leysa hnútana á lendaskýl-
unni, voru þeir kyrfilega bundnir enda hafði
ég neytt allra krafta þegar ég batt hnútana í
taugaæsingnum áður en ég fór fram á sviðið.
Ég bullsvitnaði en reyndi að brosa til áhorf-
enda sem hvöttu mig óspart með köllum og
drykkjuöskrum. Loksins tókst mér að losa
annan hnútinn en hinn var gjörsamlega fast-
ur. Ég settist á hækjur mér og reyndi ör-
væntingafull að smeygja mér úr skýlunni'
þegar drukkinn deli kom og togaði í lenda-
reimina svo ég steyptist næstum því um koll.
Hvernig mér tókst að ljúka við atriðið er mér
enn hulin ráðgáta, en ég man að ég hljóp út
að lokum. Undrun mín var því algjör þegar
mér var tilkynnt eftir keppnina að ég hafði
hlotið fyrstu verðlaun. Fólki hafði líkað hin
sakleysislega framkoma min og það sem
meira var, þetta var amatörkeppni og ég var
kjörin hinn sannkallaði amatör. Og þar með
var ég orðin fatafella.
Ég held að Serena hafi
fæðst þetta kvöld. Ég hef haldið dagbækur
frá ellefu ára aldri. Ég lími alltaf mynd af mér
árlega á síðuna merkta 16. febrúar. Þá á ég
afmæli. Þegar ég fletti í gegnum árin sé ég
hve breytingin verður ör. Ellefu og tólf ára
var ég barn. Þrettán ára varð ég æðisgengin;
ég er alltaf afbrýðsöm út í mig þrettán ára.
Þá var ég virkilega falleg. Fjórtán og fimm-
tán ára er ég enn barnsfeg og feimin en
skyndilega um sextán ára aldur er Serena
komin til sögunnar. Ég man að ég skrifaði
mikið um þessa breytingu eftir fyrstu fata-
fellusýninguna. Ég skildi ekkert hvað var að
gerast. Ég skrifaði að ég hefði verið á diskó-
teki og skyndilega orðið villt og töff, stóð á
sama um allt og bauð öllu byrginn. Ég hafði
framkallað nýja manneskju í mér sem var
Hanne miklu sterkari. Ég vissi ekki hver hún
var en hún þróaðist hratt og varð að vernd-
ara Hanne. Ég sé á Ijósmyndinni af mér 16
ára að ég hef litað hárið svart og augun eru
orðin harðari og meira ögrandi. Sautján ára
er ég ótrúlega reynd í útliti; ég hef lifað allt,
nú kann ég allt. Hanne er horfin. En þó er
hún til, inni í mér en ekki á ljósmynd. Mynd-
irnar hafa orðið villtari með árunum. Ég lími
aðeins geggjaðar myndir í albúmið núorðið;
einhverjar ljósmyndir sem teknar hafa verið
af mér drukkinni eða klikkaðri.
Ég er fegin að Serena fæddist svona
snemma. Ef nektardansinn hefði ekki komið
inn í líf mitt, hefði ég bara verið hin ómeðvit-
aða, óagaða og áhrifagjarna Hanne. Serena
heldur í mér lífinu, hún segir Hanne hvað
hún á að gera, hvernig hún á að komast af.
Ég á vin sem er leikari. Hann er ósjálfstæður
og hræddur. En i hlutverkum er hann örugg-
ur og ákveðinn. Fólk elskar hann þegar
hann stendur á sviðinu, hefur fullt vald á
textanum og heldur áhorfendum í greip
sinni með orðum eða einni hreyfingu. Utan
sviðs er hann slytti. Þess vegna elskar fólk
leikarann en hefur lítinn áhuga á persónu
hans sjálfs. Þetta þjáir vin minn og einu sælu-
stundirnar sem hann á eru á sviðinu. Þegar
hann er í gervinu. Það sama gildir um
Serenu. Hún er vinsælust. Þegar vinir mínir
hringja, spyrja þeir oftast um Serenu. Hanne
er til að mynda nær aldrei boðið í partí.
Alltaf Serenu. Vinkonur mínar sem lenda í
vandræðum þurfa líka á Serenu að halda. Af
því að Serena er sterk og úrræðagóð. Einu
sinni hringdi vinkona mín og bað Serenu að
koma og hugga sig því hún væri að koma úr
fóstureyðingu. Serena fór og talaði við hana
af raunsæi; hún er persónulega á móti
fóstureyðingum en sagði að úr því þetta
væri búið og gert yrði ekki aftur snúið.
Punktur og basta. Serena flækir ekki hlutina
og kemur beint að efninu. Þegar Serena
kvaddi, féll vinkonan grátandi um háls
hennar og sagði: Hanne, ég elska þig.“ Þá
varð ég að Hanne á augabragði og vissi
eiginlega ekki í hvorn fótinn ég átti að stíga.
Ég hef eignast þrjú börn '
með þremur mönnum. Öll börnin eru dreng-
ir: Vasi er elstur, síðan Peter og uppáhaldið
mitt Dennis er bara 10 mánaða. Ég hef alltaf
þessa innrömmuðu mynd af honum hvert
sem ég fer. Ég hélt skírnarveisluna hans í
Waterioo; eigandinn lánaði mér staðinn að
degi til og Serena bauð hálfri borginni í
skírnarveisluna. En á sama tíma og Hanne
hefur hrúgað niður börnum hefur Serena
orðið þekkt og virt nektardansmær i Kaup-
mannahöfn og víðar. Hún hefur þess vegna
Helgarpóstsv
meyna Serei
stúlkuna
eru tveir pe