Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 23.02.1984, Qupperneq 15

Helgarpósturinn - 23.02.1984, Qupperneq 15
engan tíma fyrir krakka og veit að móðir sem er fatafella er óæskileg móðir. Hún hef- ur þess vegna talað við mennina þrjá og fengið þá til að samþykkja að taka að sér börnin. Hanne fer oft í heimsókn til þeirra og hefur mjög gott sambandi við þau og feð- urna. Hún veit að börnin fá gott uppeldi og að þeim líður vel. Hanne veit líka að hún kemur aftur til barnanna sinna þegar Serena hættir að dansa sem fatafella. Serena á einnig þessi þrjú börn en í hennar augum eru börnin án ásjónu; þau eru þrír óljósir blettir úti í heimi. Hún skiptir sér ekkert af þeim. Serena er þó ekki tilfinningalaus. Hún þekkir hins vegar heiminn og tekur hlutina ekki of alvarlega. Hún er reyndar mjög opin manneskja og brosir til þeirra sem brosa til hennar. En hún lætur engan vaða yfir sig og borgar umsvifalaust í sömu mynt ef eitthvað er gert á hlut hennar. Serena er mjög stolt kona. Hún hlær þegar aðrir gagnrýna hana. Hún veit að lífið er fallvalt og hagar sér eftir því. Ég hef komið einu sinni áður til íslands sem fatafella. Það var fyrir nokkrum árum. Á íslandi er ég nær alltaf Serena. Ég er ein- staka sinnum Hanne þegar ég er ein uppi á herbergi en um leið og ég geng út fyrir dyr hótelsins er ég orðin Serena. Serena óttast ekki framandi lönd eða ókunna skemmti- staði. Á íslandi fellir Serena fötin á öldurhús- um og brosir framan í áhorfendur. Hún kann ágætlega við sig í þessu fásinni og snýr sig auðveldlega úr höndum ágengra, drukkinna gesta. Hanne hefði ekki lifað af einn dag á Islandi undir sömu kringumstæðum. En auð- vitað er ísland ekkert óskaland Serenu. Ég held að Serena sé rokókó-manneskja. Hún hefði sennilega kunnað best við sig við hirð franska sólkonungsins. Og Serena er borgar- manneskja; hún fyrirlítur fábrotið sveitalíf. Hanne elskar aftur á móti sveitina og hræð- ist stórborgir. Serena fyrirlítur flestar konur og henni finnst nútímakonur ekki vera nein- ar konur. Hanne lítur aftur á móti upp til sjálfstæðra nútímakvenna og óskar í hjarta sínu að hún væri ein þeirra. En hún veit að svo verður aldrei og huggar sig við að hafa Serenu til halds og trausts. Serena er nefni- lega útspekúleruð og bjargar sér við allar aðstæður. Stundum þegar Serena er í bæn- um og hittir aðra Serenu verður hún strax að Hanne, því hún veit að þessari manneskju getur hún treyst. Hanne kemur aðeins fram í dagsljósið þegar ég er ein eða innan um fólk sem ég get treyst. Stundum er ég þó Serena og Hanne sam- tímis og á erfitt með að ákveða hvor þeirra á að taka völdin. Einkum gerist þetta þegar ég hef verið Serena í Iengri tíma og á erfitt með að kalla Hanne fram á nýjan leik. Sumir vina minna eiga þá erfitt með að vita hvor manneskjan ég er og gengur erfiðlega að greina þær í sundur. En ég skipti hratt og það er oft erfitt fyrir aðra að elta hugrenn- ingar mínar. Sérstaklega þegar Serena tekur völdin. Hún framkvæmir nefnilega hlutina tafarlaust líkt og af eðlisávísun. Viðbrögð hennar eru oft ósjálfráð en alltaf rétt. Einu sinni man ég að stúlka stóð við senuna og glápti eitruðu augnaráði á Serenu fella fötin. Eg ákvað að brosa til hennar brosi Hanne en fékk bara fyrirlitningarglott í staðinn. Þá brást Serena fljótt við og laut eldsnöggt að stúlkunni og rak henni rembingskoss á munninn. Stelpan öskraði eins og stunginn grís og hljóp út úr húsinu. Hanne dauð- skammaðist sín eftir á, en Serena hló inni í sér. I annað sinn sýndum við tvær stúlkur nektardans með þeyttan rjóma á líkaman- um í stað fata. í salnum var svoli sem öskraði á okkur allan tímann og var á góðri leið með að eyðileggja skemmtunina fyrir nærstödd- um. Serena reyndi að umbera hann en að lokumgafst húnuppog dansaði eggjandi til hans á meðan hann hélt áfram að demba yfir hana fúkyrðum. Serena tók handfylli af þykkum rjóma, angandi af vellyktandi, og steypti eldsnöggt yfir hár mannsins og höf- uð. Allur salurinn lá í hlátri og náunginn varð orðlaus. Eftir skemmtunina kom kann sneyptur bak við sviðið og bað okkur með grátstafinn í kverkunum að ieyfa sér að þvo sér í búningsherberginu því það myndi kosta hjónaskilnað ef hann kæmi svona á sig kom- inn heim. Þá brosti Hanne og þvoði honum um hárið og kvaddi hann með kossi. Serena lítur ekki á vinnu sína sem niðurlægjandi. Hún veit að strip- tease eða nektardans er list sem krefst mikils af dönsurum. En auðvitað er nektardans eins og hver önnur list þar sem margir svindla og svíkjast um. Serena finnur mátt sinn þegar hún hefur vald á öllum hreyfing- um og veit að hún hefur karlmennina í hendi sér. Pá glottir hún. Ef hún verður fyrir aðkasti kvenna launar hún þeim lambið gráa á augabragði. En yfir- leitt hlær hún að konum. Hún dansar fyrir framan þær sakleysislega en með sömu hreyfingum klýfur hún hugsanir eigin- manna þeirra án þess að þær hafi hugmynd um. Serena er hafin yfir skinhelgi hjóna- bandsins og siðgæði. Hún er hún sjálf; sjálf- stæð og óhrædd og fyrirlítur veraldlegt brambolt mannanna. Serena drekkur ekki, hún neytir aldrei fíkniefna. Hanne reykir stundum sígarettur en fer varlega með áfengi. Hvorug þeirra stundar vændi en öðru hverju biður Serena um peninga ef henni leiðist næturgesturinn. Og er reyndar skítsama hvort hann borgar eða ekki. Hanne verður stundum yfir sig ást- fangin en Serena sefur hjá af því að henni finnst gaman að því eða vegna þess að henni leiðst stundum tilveran. Fyrir henni er kynlíf ekkert stórmál. Og ekki ástin heldur. Stundum verður Hanne hrædd við styrk Serenu. Hún óttast að Serena taki af henni öll völd og þurrki hana endanlega út. Útrými henni. En Hanne getur verið óhrædd. Þær þurfa hvor á annarri að halda. Serena myndi ekki lifa dauða Hanne af. Serena yrði köld, tilfinningalaus og kald- hæðin án Henne.Hún myndi glata öllu því mannlega sem hún hefur, litla brosinu sínu, meðaumkun sinni og Iífsgleði. Og Hanne yrði gjörsamlega hjálparvana án Serenu. Þeim kemur vel saman. Hanne er hreykin af Serenu; hún lítur upp til hennar. Serena lítur hins vegar niður á Hanne og finnst hún óttalegur krakki sem hún verður að gæta. Hanne er háð Serenu en Serena er ekki háð Hanne. En það heldur Hanne. Serena hefur aðeins einnar skyldu að gæta: Að verja Hanne gegn umheiminum. Hanne getur ekkert án Serenu. Hún er oft hrædd og óviss. Eins og t.d. þegar hún hittir stjúpföður sinn. Hann setur upp gamla svipinn og ætlar að hella sér yfir hana. En þá kallar Hanne á Serenu. Og Serena kemur og horfir með fyrirlitningu á þennan bæklaða drykkjurút og tekur hann í gegn svo hann verður eins og lúbarinn hundur. Hanne er svo lítill mannþekkjari. En Serena sér í gegn um alla og greinir hismið ávallt frá kjarnanum. Stundum áttar Hanne sig ekkert á fólki en Serena kemur henni þá strax til hjálpar og útskýrir einstakar persónur fyrir henni á svipstundu. Stundum öfundar Hanne Serenu og reynir að vera hún. En það mistekst alltaf hrapallega. Það þýðir nefnilega ekkert að vera Serena. Serena kemur að innan. Þegar Hanne kallar á Serenu verður Hanne að víkja alveg. Hverfa og gefa Serenu völdin. Aftur á móti man Hanne alltaf allt sem Serena hefur gert. Serena er hins vegar búin að gleyma því. Serenu er líka skítsama hvað hún eða Hanne hefur gert. Hún horfir ekki um öxl. Aðeins fram á við. Gert er gert. Ég mun alltaf verða þessir tveir persónu- leikar. Ég mun sennilega aldrei þora að sleppa Serenu alveg þótt ég eigi eftir að þroska Hanne með aldrinum. Ég er jú aðeins tuttugu og eins. Kannski róast líka Serena með aldrinum. Hún og Hanne eiga sér sameiginlegan draum: Þegar Serena er orðin of gömul til að fella föt ætlar hún að kaupa hús úti í sveit fyr- ir peningana sem hún hefur safnað saman sem nektardansmær. Hanne ætlar að taká börnin sín og búa með þeim í húsinu og bjóða mönnunum sínum þremur að búa þar einnig ef þeir kæra sig um. Svo ætlar Hanne að kenna þar leikfimi og Serena getur átt náðuga daga það sem eftir er. Þá verður hún orðin roskin og ekki lengur villt, heldur bara yfirveguð og sterk."

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.