Helgarpósturinn - 23.02.1984, Page 25

Helgarpósturinn - 23.02.1984, Page 25
Konurnar segjast koma á bingó á hverju fimmtudagskvöldi: .„Vid höfum ekkert annaö að gera.“ Þær spila vist í hléinu, „en karlmennirnir spila allt annað.“ Þeir segj- ast spila mjög varleg- an póker og vinna meira í bingóinu. Sumir segjast fara á bingó fimm kvöld í viku. BINGÓ? nú virðist fólk ekki kaupa nema rúmlega einn bækling í hvert skipti en áður var meðaltalið rúm- ir tveir." Bingóið er megintekjulind templaranna. ,,Við ættum ekki þetta hús ef ekki hefði verið fyrir bingóið. Styrkurinn frá ríkinu er ekki nema rétt svo fyrir fasteigna- gjöldum. Annars eru þetta ekki stórir peningar sem koma inn," segir Brynjar. Samkvæmt lögum má ekki reka neins konar happ- drætti nema með leyfi frá dóms- málaráðuneytinu. Leyfin eru munnieg, reglugerðin aðeins hefð sem hefur erfst milli manna í ráðu- neytinu. í þeirri „hefð" er meðal annars kveðið svo á að leyfi til bingóhalds fáist ekki nema um sé að ræða fjáröflun til góðgerðar-, líknar- eða menningarmála, eða handa íþrótta- eða stjórnmála- félögum. Templarar eru heldur óhressir vegna samkeppninnar í bingóinu frá Sigmari Péturssyni, veitingamanni í Sigtúni. Báðir fara þessir aðiljar í kringum lögin hvað varðar peningavinninga en templarar sjá ekki alveg rökin fyr- ir því að Sigmar fái ieyfi, þar sem henn rekur ekki neina góðgerðar- stofnun. Sjálfur reynir Sigmar að afgreiða þessa ásökun með því að segja við HP: „Þetta er teknalaust hjá mér. Þetta er þjónustustarf- semi.“ Uti í horni í kjallara Templara- hallarinnar það fimmtudagskvöld sem ég var þar sat ungur maður, Hörður Jónsson. Hann tekur bingóið föstum tökum. Hjá hon- um er þetta einskonar bisness. Þetta kvöld var hann með átta bæklinga en fékk engan vinning. Hann var heppnari um daginn. Þá vann hann aðalvinninginn í Tóna- bæ, 15.000 krónur, og svo Skoda- bíl á bingói hjá íþróttafélaginu Leikni í Sigtúni sama kvöldið. Hann seldi Skodann á 120.000 krónur. 135.000 krónur verða að teljast sæmilegar kvöldtekjur. Bæklingarnir kostuðu hann 1.200 krónur umrætt fimmtúdagskvöld og ég spyr hann hvort það fari ekki mikill peningur í þetta hjá honum. „Það skilar sér aftur," segir hann. Öruggur á þessu, Hörður. „Ég vinn meira í bingóinu," seg- ir hann. „Ekki mikið, en ég fæ eitt- hvað einstaka sinnum." Sex gamlar konur sitja úti við vegg og spila vist. „Þú verður að fara að stunda þetta,“ segir ein þeirra við mig. „Þú sérð nú bara — ég var á fá vinning áðan‘,‘ Og hún sýnir mér gula miðann sinn, vöru- úttekt fyrir 800 krónur. Hún segir að það sé vinningsvonin sem í og með dragi fólk á bingó, en segist halda að fólk komi aðallega til að drepa tímann, að minnsta kosti eldra fólkið. „Mér finnst sjón- varpið ekki svo skemmtilegt á kvöldin að maður geti ekki alveg sleppt því. Það verð ég að segja.“ En það er með þessa vöruúttekt. Hún er feimnismál meðal bingó- haldara. Hún er feimnismál vegna þess að hún er ekki vöruúttekt í raun heldur aðeins ávísun á pen- inga, en samkvæmt lögum um happdrætti og hlutaveltu má eng- inn greiða vinninga út í peningum nema Happdrætti Háskólans. „Happdrætti Háskólans hefur einkaleyfi sem allir fara í kring- um,“ segir Brynjar Eymundsson, framkvæmdastjóri Templarahall- arinnar. Þetta sem fólkið vinnur eru vöruúttektir. Ég kaupi hins vegar úttektirnar af fólki þegar það fer út úr húsinu. Það fær ekki peningana á staðnum.“ Nei, kannski ekki í sjálfum bingósaln- um en það faer útborgað í kjallara- stiganum. „Ég má kaupa úttekt- irnar eins og hyer annar,“ segir Brynjar. „Þetta er eins löglegt og það getur verið." Með öðrum orð- um: þetta er eins löglegt og hægt er að hafa það ef verið er að fara kringum lögin. En Brynjar segir að fólk komi ekki nema peninga- verðlaun séu í boði. „Nema þá á framsóknarbingó og annað þ.h. þar sem fólk fer vegna trúarskoð- ana.“ Hann segir að aðsóknin hafi heldur aukist upp á síðkastið. Kannski er það vegna þess að fólk fer að lifa fyrir lukkuna þegar allt annað þrýtur, lotteríið verður síð- asta hálmstráið í mögru ári. „En öðru hafa harðjaxlarnir rottað sig saman í pókerspil upp á peninga. Potturinn hjá þeim er ekki miklu stærri en 50 krónur. Það er ekki svo mikið. „Nei, það er sko spilað varlega hérna vinur minn, mjög varlega, segir höfuðpaurinn í pókergeng- inu, digur maður fyrir enda borðs- ins. Hann segist spila bingó fimm sinnum í viku og alltaf taka póker með félögunum fyrir bingóið og í hléinu. — Hvort vinnurðu meira í bingóinu eða í pókernum? MAZDA bílar halda verðgildi sínu betur en flestar aðrar gerðir bíla og engin furða. Til dæmis MAZDA 323: • Hann er þrautreyndur, vandaður og vel smíðaður. • Hann hefur miklu meira rými en svokallaðir „smábílar" og kostar samt svipað. • Hann er með aflmikla 1300cc véi, sem er ótrúlega sparneytin. • Honum fylgir 6 ára ryðvarnarábyrgð. • Hann hefur sérstaka LLPC lakkhúð, sem er sérstaklega högg og veðrunarþolin. Vandaðu valið, veldu MAZDA mazDa BÍLABORG HF Smiöshöföa 23 sími 812 99 HELGARPÓSTURINN 25. Almenna auglyslngastofan hf. 10.8

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.