Helgarpósturinn - 23.02.1984, Page 27
jalakötturinn, hin umdeilda
eign Þorkels Valdimarssonar,
verður afgreidd á fundi borgar-
stjórnar þ. 1. mars. Talið er öruggt
að borgarstjórn muni samþykkja að
honum verði heimilað að rífa húsið.
Formlega fer síðan málið til bygg-
inganefndar þar sem það mun einn-
ig verða samþykkt. En húsið stend-
ur þó að öllum líkindum áfram.
Leikur sjálfstæðismanna er nefni-
lega sá, að þeir vilja ekki að borgin
kaupi húsið og sitji uppi með útgjöld
til endurbyggingar og viðhalds.
Hins vegar mun borgarstjórnar-
meirihlutinn hvetja einstaklinga, fé-
lög og aðra áhugahópa um friðun
gamalla húsa til að kaupa Fjalakött-
inn og sanna þar með friðunarbar-
áttuna í verki. Mjög líklegt er talið
að sú verði lausnin, en samtals mun
Þorkell vilja fá 15 milljónir fyrir hús
og lóð ...
D.,...,................
mun að öllum Iíkindum sigla auð-
veldlega gegnum stórsjó Borgarís-
film. Þótt óánægja ríki meðal ým-
issa sjálfstæðismanna vegna fram-
göngu hans í því máli, hefur það
verið tiltölulega auðvelt fyrir Davíð
að settla óánægjuraddirnar innan
flokksins. Hins vegar mun Davíð
vera mjög óánægður með þá stöðu
LAUSNA
SKÁK
Úr tefldu tafli
1. d6 nægir til vinnings, en öflugra
er 1. Dg4 Bf6 2. Bxg7 Bxg7 3. f6 og
mátar. Eða:
1. - g6 2. d6axb3 3. dxe7 He8 4.
f6 og mátar að lokum með Dg4-h4
osfrv.
36. Healey
1. Be6! Hxe6 2. Rd5 mát
1. - Bxe6 2. Re2 mát.
sem upp kom er Þorsteinn Páls-
son var kjörinn formaður. Davíð
hafði hugsað sér gott til glóðarinnar
og víst er að Þorsteinn hefði vikið úr
sæti fyrir Davíð. Borgarstjórinn átti
því formannsstöðuna og forsætis-
ráðherrastólinn vísan í næstu kosn-
ingum. En hann var það nýsestur í
borgarstjórastólinn að það hefði
verið pólitískt siðleysi að spretta
strax upp úr honum aftur. Því kaus
Davíð nauðugur viljugur að bíða.
En biðin getur orðið löng, og að
dómi þeirra sem til þekkja um tíu ár.
Þá ætti Davíð að eiga möguleika á
formennsku en það veltur náttúr-
lega mikið á því hvort hann heldur
borginni eða ekki. . .
ær eru kaldar kveðjurnar
sem ganga á milli manna í blöðum
og bókunum vegna hitaveitunnar á
Akureyri þessa dagana. Hitaveitan
hefur verið eitt meginþrætuepli
bæjarbúa síðan hún tók til starfa og
er nú skuldugasta fyrirtæki bæjar-
ins. Nýlega réðist forstjóri hitaveit-
unnar Vilhelm V. Steindórsson
með offorsi á hönnuði hennar,
verkfræðingana Pétur Pálmason
og Harald Sveinbjörnsson í grein
í Degi. Þar sakaði forstjórinn
hönnuðina um mistök og agnúa í
hönnun, og rakti fjárhagsvandræði
H.A. til þessara „mistaka". Hita-
veitustjórinn vill að verkfræðing-
arnir verði dregnir til ábyrgðar og
segir að allt hafi verið gert til að
hlífa þeim. Haraldur svaraði með
blaðagrein og Pétur, sem á sæti í
stjórn hitaveitunnar, lét hafa harð-
orða bókun eftir sér, þar sem hann
talar um róg, dylgjur og offors hita-
veitustjórans og kallar framferði
hans tilraun til að kúga aðra til
undirgefni. Kveikjan að þessum
hatrömmu deilum mun m.a. vera
sú, að Pétur lagði fram tillögu í hita-
veitustjórninni um hitastýrikerfi á
apparatið í desember sl. Hitaveitu-
stjórinn segir að stýrikerfishug-
myndin sé bara tilraun til að breiða
yfir mistökin. Verkfræðingarnir
segja það fráleitt. Ekki vantar hit-
ann þarna þessa dagana . . .
hefur nú ákveðið eftirmann Gud-
rúnar Jónsdóttur, forstöðumanns
borgarskipulags. Að því er HP
kemst næst er þetta karlmaður,
arkitekt að mennt og velliðinn í öll-
um flokkum. Og gettunú. Þá er
einnig afgert að eftirmaður Guðrún-
ar njóti fulls sjálfstæðis og að samn-
ingurinn verði til 5 ára sem fyrr.
Ekki eru fyrirhugaðar neinar breyt-
ingar á borgarskipulagi. Samningur
Guðrúnar rennur út 1. apríl og er án
uppsagnar ...
A
D^^Dlbert Guðmundsson, fjar-
SVÍNAKJÖT
ÁÚTSÖLU
Svínalæri
Svínasnitchel
Svínakótileggur
Svínahamborgarhryggur
Baconsneiðar
Bógur
aðeins kr. 150 pr. kg.
aðeins kr. 250 pr. kg.
aðeins kr. 225 pr. kg.
aðeins kr. 250 pr. kg.
aðeins kr. 150 pr. kg.
aðéins kr. 150 pr. kg.
Opið alla daga til kl. 19
Opið laugardaga til kl. 16
Alltaf opið í hádeginu
málaráðherrann okkar heimsfrægi,
dvaldi sér til hressingar í London
nýverið, sem kunnugt er. Við heyr-
um að Albert hafi meðal annars
slappað af við fjárhættuspil í heims-
borginni. Albert ku vera lunkinn
fjárhættuspilari og er sagður venju-
lega koma út með gróða. Hingað
kemur Albert beint í annað pen-
ingaspil: samningana við opinbera
starfsmenn. Vogun vinnur, vogun
tapar ...
PARKET
Nýtt
Nýtt
Einu sinni enn er Tarkett-parket í far-
arbroddi í parket-framleiðslu.
• Á markaðinn er nú komið parket með
nýrri lakkáferö, sem ,er þrisvar sinnum
endingarbetri en venjulegt lakk.
• Veitir helmingi betri endingu gegn risp-
um en venjulegt lakk.
• Gefur skýrari og fallegri áferð.
• Betra í öllu viöhaldi.
• Komið og kynnið ykkur þessa nýju og
glæsilegu framleiöslu frá Tarkett.
• Alger bylting á íslenska parket-markað-
inum.
Harðviðarval hf.,
Skemmuvegi 40, Kópavogi,
sími 74111.
HELGARPOSTURINN 2 f