Helgarpósturinn - 30.08.1984, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 30.08.1984, Blaðsíða 2
öldungarnir Taggart, Tanner og Hamblin. Unglegir öldungar ★Við hittum þrjá öldunga í bænum um daginn. Hamblin, Tanner og Taggart heita þeir og eru um tvítugt. Skýringin á þessu öfugmæli er sú að pilt- arnir eru allir mormónatrúboðar frá Bandaríkjunum, sem eru komnir til að starfa hér í 18 mánuði í sjálfboðavinnu, og trúboðar mormóna eru kallaðir öldungar. Þeir stóðu við trönur í Austurstræti, sem á voru fest sannleikskorn um Jósef Smith og trúna og svöruðu spurning- um gesta og gangandi. — Hvernig gengur að út- breiða mormónatrú á íslandi? „Það gengur bara bærilega, takk. Það eru nú 110 íslending- ar í söfnuðinum, þeim fjölgar hægt og sígandi." — Hvað fær unga menn til að fórna 18 mánuðum af lífi sínu í sjálfboðavinnu? „Við gerum þetta fyrir trúna. Þetta er algengt hjá ungum mönnum meðal mormóna. Þetta er ákveðið með löngum fyrirvara og við söfnum öllu því fé sem okkur áskotnast til að standa undir kostnaði í þessa átján mánuði. Foreldrarnir hlaupa líka undir bagga með okkur." — Þetta eru töluvert strangir 18 mánuðir, er það ekki? „Við förum á fætur klukkan hálf sjö á morgnana og erum að vinna til hálf ellefu á kvöld- in, þegar við förum í háttinn. Þetta er sex daga vikunnar, en einn dag í viku fáum við frí frá níu til fimm til að skrifa bréf, þvo af okkur fötin og þar fram eftir götunum." — Hvað með skemmtanir? „Ef þú átt við diskótek, kvik- myndir og þessháttar, þá slepp- um við því." — Mormónar eru mjög hrein- lífir, að sagt er? „Já, það er lögð mikil áhersla á andlegt og líkamlegt hreinlífi. Við reykjum til dæmis ekki, neytum ekki áfengis eða lyfja og drekkum ekki te eða kaffi. Við höfum heldur ekki kynmök fyrir hjónabandið. Það er litið á líkamann sem musteri og það musteri má ekki van- helga." — Hvernig er ykkur tekið þegar þið bankið upp í heima- húsum til að boða trúna? „Okkur er yfirleitt alltaf tekið kurteislega, en það er misjafnt hvort fólk vill hlusta á trúboðið eða ekki. Stundum getum við talað við kannski átta manns á einum degi, eða átta fjölskyld- ur, en suma daga gengur ekki neitt." HELGARPUSTURINN Valdastólar Fjölmiðlar fjölmargt góla, fjalla að mestu leyti um stóla. Ef Þorsteinn vinnur valdastól ei, Valdi, gefðu honum Sóley. Niðri — Getur ekki verið dálítið niðurdrepandi að þramma um í rigningunni og fá engan til að hlusta á sig? „Úff, jú, maður getur orðið dálítið niðurdreginn. En það stendur aldrei lengi." — Það eru nú varla margir íslendingar til í dag, sem ekki hafa eitthvað syndgað á ykkar mælikvarða; reykt, drukkið (að minnsta kosti kaffi) eða haft mök fyrir hjónaband. „Það er engin hindrun. Fólk er skírt inn í söfnuðinn og fær þá fyrirgefningu synda sinna. Það er enginn svo syndugur að hann geti ekki fengið fyrirgefn- ingu Guðs ef hann iðrast og vill byrja nýtt Iff." VÍDEÓVAL LAUGAVEG1118. SÍMI: 29622. Barnaefni alla daga, kr. 50 Erum aö taka upp mikiö af nýju efni. MUNIÐ TILBOÐIN OKKAR: Ef teknar eru á leigu þrjár spólur eða fleiri, þá má hafa þær í tvo sólarhringa án aukagjalds. FRÍTTAPÓSTUR ' Óttast verkföll | Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSÍ, óttast að til I verkfalla komi í haust. Ljóst sé að atvinnuvegirnir standi ekki undir kauphækkunum og ef verkalýðsfélögin haldi | fast við kröfur sinar, sem séu alltof háar, sé ný verðbólgu- skriða yfirvofandi. Guðmundur J. Guðmundsson telur kröfur verkalýðsfélaganna síst of háar en segir að atvinnu- rekendur geti fengið verkföll ef þeir vilji. Áldeilur við Eyjafjörð Eyfirðingar eru ekki á eitt sáttir um hvort þar skuli rísa álver. Steingrímur Hermannsson fékk fyrir nokkrum dög- um undirskriftalista með 3.289 nöfnum, þar sem þess var krafist að aðrar leiðir yrðu farnar í atvinnumálum þar I nyrðra. Steingrímur á von á öðrum lista, frá þeim sem eru ' hlynntir álveri. Seðlabankinn stjórnar Seðlabankinn hefur sett nýjar reglur um yfirdráttar- heimildir viðskiptabankanna. Seðlabankinn býður bráða- birgðalán á víxlum til nokkurra mánaða til að hægt sé að greiða upp skuldirnar. Þessi lán eru þó háð ýmsum skilyrð- um og meðal annars er bönkunum gert að draga úr útlán- um. Ætlar Seðlabankinn að semja við hvern banka fyrir sig um hve mikið hann megi lána. Vilja flytja inn gull Kaupþing hf. hefur sótt um leyfi til að flytja inn gull þar sem ýmsir viðskiptavinir þess hafa óskað eftir að fá að fjár- festa í þeim eðla málmi. Seðlabankinn telur ekki rétt að veita þett leyfi að sinni þar sem verið er að endurskoða ýmis- legt í innflutnings- og gjaldeyrismálum. Sjónvarpsleikrit Sjónvarpið er að semja við þrettán rithöfunda um að þeir skrifi leikrit fyrir það. Sjónvarpið er ekki skuldbundið til að taka þessi verk til sýningar. Skilafrestur er til 15. desem- ber. Þeir rithöfundar sem um ræðir eru: Agnar Þórðarson, Gísli J. Ástþórsson, Guöný Halldórsdóttir, Jón Örn Marin- ósson, Jónas Árnason, Jónas Guðmundsson, KjartanRagn- arsson, Matthías Jóhannessen, Nína Björk Árnadóttir, Svava Jakobsdóttir, Birgir Sigurðsson, Sigurður Pálsson og Steinunn Jóhannesdóttir. Umferð á Bárðarbungu Fimm fallhlífastökkvarar og tvær flugvélar lentu á Bárð- arbungu á Vatnajökli nú um daginn, en hún er í 2000 metra hæð. Ævintýramennirnir stripluðust um á jöklinum í blíð- skaparveðri og allir komu þeir aftur. Deilt um ratsjárstöðvar Deilur eru hafnar um ratsjárstöðvar sem hugsanlega verða reistar á Vestfjörðum og Norðausturlandi. Ratsjár- stöðvar þessar yrðu einkum til afnota fyrir varnarliðið en einnig væri hægt að nota þær til að fylgjast með innanlands- flugi hér á landi og með flugstjórnarsvæði íslands á Norður- Atlantshafi. Vinstri menn hafa skorið upp herör gegn þess- um áætlunum. Bank, bank, hver er þar? Tveir verðandi innbrotsþjófar lentu í vandræðum þegar þeir reyndu að komast til vinnu sinnar í húsi í Þverholti. Þeim tókst ekki með nokkru móti að opna dyrnar til að kom- ast að þeim fjársjóðum sem þeir töldu vera innan dyra. Þeir tóku þá til þess bragðs að bakka stolnum bil sínum á hurð- ina og laukst hún þá upp. Skúrkarnir voru sem betur fór handteknir fljótlega eftir það. Verkisvit ekki flutt út Forseti Evrópusambands verktaka sem gisti landið í vik- unni er ekki bjartsýnn á að íslendingar geti haslað sér völl á alþjóða vettvangi í þeirri grein. Ástæðan er mikill sam- dráttur i verkefnum víðast hvar í heiminum. Kartöflustríðið Núverandi sölukerfi á kartöflum virðist vera að hrynja til grunna því tuttugu verslanir í Reykjavík hafa ákveðið að kaupa kartöflur beint frá bændum. Grænmetisverslun landbúnaðarins hefur ákveðið að þeir bændur sem selja beint til verslana fái ekki að leggja afurðir sínar einnig inn hjá Grænmetisversluninni. Fréttamolar • Átta vaskir drengir úr karatefélaginu Sindra á Höfn i Hornafirði hlupu beríættir til Reykjavíkur um daginn. •Bandalag íslenskra skáta á sextíu ára afmæli um þessar mundir. Það var stofnað 1924, af Axel Tulinius. •Kassa af Kláravíni var stolið af vörubíl sem verið var að af- ferma við ÁTVR. •Á hársnyrtisýningu á Broadway var upplýst að grænt hár væri nú mjög i tísku. •Tveir fulltrúar frá Grænhöfðaeyjum hafa undanfarið dvalist hér á landi til að kynna sér sjávarútveg. Ekki er vitað til að þeir hafi verið í Broadway. •Nýlegar rannsóknir benda til að fjórfalt fleiri íslendingar slasist á heimilum sinum en í umferðinni. 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.