Helgarpósturinn - 04.10.1984, Blaðsíða 13

Helgarpósturinn - 04.10.1984, Blaðsíða 13
rauninni sömu form lögð til grundvallar og í kúbisma, en hér eru þau flött út enn frekar. Eins og í öllu sem sett er á striga er um að ræða tvær víddir — eingöngu; hér verður ekki framkölluð nein þriðja vídd, nema sú sem menn geta haft á tiifinningunni. Mönnum kann að virðast einn litur nær og annar fjær; þeir eru vanir því að hugsa sér blátt sem bláma í fjarska, en rautt sem rauða þakið á næsta húsi. Þetta ervitaskuld hverjum og einum í sjálfsvald sett að ímynda sér; en þegar öllu er á botninn hvolft styðst þessi myndlist ekki við annað en það sem mað- ur hefur í höndunum og höfðinu. Taka má sem hliðstætt dæmi músíkina. í stað tóna höfum við hér liti. Eins og það er tómt mál að tala um hvað einn tónn þýði gildir sama hér: rautt er rautt — en ekki rautt húsþak. Þetta hefur oft verið sagt, en einhvern veginn gengur mörgum illa áð skil ja að málverk er ekki annað en línur, form og litur. Málarinn hefur ekki við neitt að styðjast nema eigið hugarflug, og hann á heldur ekki að styðjast við neitt annað — jafnvel þótt ýmsir góðir vinir mínir séu annarrar skoðunar!" Þekkti ekki Jónas En nú kemur í Ijós að kaffið er uppdrukkið, og Hafsteinn fer fram í eldhús til að hella upp á. Þegar hann kemur aftur færandi hendi veltum við því fyrir okkur um hríð hvort hann Davíð ætli að láta sitja við bamaheimilið sem verið er að reisa á flötinni á bak við húsið, eða hvort það haf i aðeins verið notað sem yfirskin til þess eins að öllum þessum stóra græna bletti verði í kjöl- farið fómað undir frekari húsbyggingar. — Þá tekur Hafsteinn ciftur upp þráðinn: „Eftir að heim kom sumarið fimmtíu og fimm tók við brauðstritið sem staðið hefur síðan. Ég fékk fljótlega starf við teiknikennslu á daginn, en konan mín lék töluvert hjá Iðnó og ég var því bamapía heima á kvöldin. íbúðin á Bókhlöðu- stígnum var ekki stór; ég málaði í stofunni og vann iðulega langt fram eftir nóttu. Fyrstu einkasýninguna opnaði ég árið 1956 í Listamannaskálanum við Austurvöll; hans sakna ég ávallt, þótt maður ætti á hættu að fara þar niður úr gólfinu sums staðar. Það þótti viðburður að sýna í þá tíð, og blöðin gerðu yfirleitt vel við mann; ég hlaut alveg þokkalega krítík. En ég man þó eftir því að maður nokkur kom inn, gekk einn hring og fór beint úr aftur, allsnúðugur. Á eftir Vcir mér sagt að þetta hefði verið Jónas frá Hriflu; ég var svo mikið blávatn að ég þekkti hann ekki! Nei, það var tekið á mér með silkihönskum, miðað við marga aðra, einkanlega þá sem vom svo sem eins og tíu ámm á undan mér. Svavar Guðnason, til dæmis, sagði mér, að á sinni fyrstu sýningu hefðu myndimar farið svo fyrir brjóstið á sumum konum á meðal gesta að þær hefðu hnoðað saman prógrömmum og hent í sig, æfar af reiði. Hann bætti þó við að þrátt fyrir að hann hefði ekkert selt hefði hann samt grætt á aðgangseyrinum; fólk flykktist á sýninguna til að hneykslast! Mozart, Debussy — Austmann! um tíma. Reyndar var vinnustofan sú ekki stærri en það að hægt var að teygja sig á milli veggjanna. Ætli ég hafi ekki mest lært á því að reika um og skoða söfn. Júdókappinn Yves Klein Svo sat maður á kaffihúsum; strax á morgn- ana var feirið út á Coupole, en á Select seinni partinn. Það var heilmikill samgangur á meðal Islendinganna, og á þessum stöðum var oftast nær margt um manninn. Þama kom Nína Tryggvadóttir, og Pétur Ben., sem þá var sendi- herra, rakst meira að segja inn annað veifið og bauð á línuna. Um jólin bauð svo Sigfús Daða- son heim til sín, einkum einhleypingum sem ekki áttu í önnur hús að venda. Eg vil nú heist hafa sem fæst orð um hvemig þeirri jólagleði lyktaði, nema hvað á heimleiðinni urðu heil- mikil áflog á milli okkar boðsgesta og hóps af Amríkönum, sem vom hinir víghreifustu. Er aldrei að vita hvemig farið hefði ef lögreglan hefði ekki verið kvödd til, en við það brast flótti í liði áflogaseggjanna. Þær stefnur sem vom helst ráðandi í París á þessum tíma vom geómetrísk afstraktlist, og svo stefnur sem ákvörðuðust af mönnum sem vom ekki eins harðir á ismunum, eins og til dæmis Hartung og Schneider. Hins vegar lagði ég mig mest eftir því að kynna mér þá Vasarely og Poliakoff, en líka þá Dani Mortensen og Jacobsen. Um þeta leyti var tachisminn svokall- aði að ryðja sér til rúms,- hann er eins konar ljóðrænt afbrigði af afstrakt expressjónisma. Ég get státað af því að hafa kynnst einum manni sem var heimsfrægur, þótt ég gerði mér ekki ljósa grein fyrir því þá, en það veir Yves Klein. Ég held að hann hafi einkum sóst eftir félagsskap mínum með það fyrir augum að geta fyrir mína milligöngu komist í tæri við íslenskt kvenfólk, sem hann hafði heyrt getið að miklu góðu... Ég vissi aldrei til þess að hann væri neitt að mála, en hann átti aftur á móti lítinn bíl sem við rúntuðum um á að kvöldlagi. Hann fór með mig inn á ótal júdóklúbba, þar sem var bukkað sig og beygt fyrir okkur — honum, vildi ég sagt hafa, því að ég komst að því að hann var frægur júdókappi og hafði hlotið svarta beltið og hvaðeina. Þetta var annars þægilegheita maður og hafði víða komið við, meðal annars hafði hann verið eitt ár á Spáni og þjálfað þar lögregluþjóna í slagsmálum. Það kom mér satt að segja á óvart þegar ég heyrði af skandal-sýningum sem hann var að halda, og fólk kepptist um að hneykslast á. Eitt sinn sýndi hann í Róm eingöngu bláan striga, og í virðulegu leikhúsi í París málaði hcinn bláar myndir á léreftsdúka, en notaði í stað pensla berar stelpur." Rautt er rautt — En Hafsteinn Austmann leitaði ekki á sömu mið í list sinni og frægur félagi hcins forð- um, Yves Klein. Sú liststefna sem hann tileink- aði sér í París var geómetríska afstraktlistin. Ætli ekki sé óhætt að fullyrða að afstraktlistinni hafi hann verið trúr allar götur síðan. Sem þýðir auðvitað ekki að efnistökin séu einlægt hin sömu — síður en svo. ,,Ég get trúað því,“ segir Hafsteinn og um stund stríkkar á tóninum í spjallinu, „að þegar list þessarar aldar verður gerð upp muni tími geómetríunncir þykja einna merkilegastur. I geómetríunni haldast í hendur, þegar best læt- ur, klár og yfirveguð hugsun og fágað handverk. Hvert sem mann á eftir að bera í listinni er víst að maður mun alltaf búa að þeim aga sem hlaust af því að fást við þessa stefnu. Ég bý að minnsta kosti að því enn í dag, enda þótt ég sé að gera allt annað núna en þegar ég var að byrja, og láti tilviljunina ef til vill meira ráða ferðinni en áður. Út frá hvaða prinsipum er gengið? Þar eru í En auðvitað hefur ekki farið hjá því í gegnum tíðina að maður fengi að heyra í blöðum sví- virðingæ frá Iistgagnrýnendum. Fyrir nokkrum árum fann einn gagnrýnandi sig tilknúinn að •skamma mig fyrir að hafa hrakað, og var honum það vitaskuld fullkomlega frjálst. En hann lét ekki þar við sitja, heldur varaði í gagnrýni litlu síðcU' annan mcinn við að lenda í „aust- 'mennsku". Það líkaði mér illa, og fannst hcirt ef ætti að búa til eitthvertskammaryrði úr nafninu mínu. Merkilegast við þetta mál var þó að sami maður hafði áður lofað mig upp í hástert og líkt mér í myndlistinni við Mozart og Debussy í tónlistinni; það hafði mér jafnvel fallið enn verr, eins og gefur að skilja, því að skammt er úr oflofi yfir í háð... Annars er skrýtið með gagnrýnendur hvemig þeir éta allt hver upp eftir öðrum. Einhver byrj- aði á að tala um „lífræn form“, og svo er töhnl- ast á þesu. Aftur á móti virðast færri hafa staldr- að við og spurt sig hvað í ósköpunum þessi „lífrænu form“ eiginlega séu. Ætli viti það nokk- ur? Ennfremur hef ég verið spurður að því hvers vegna ég sé ekki kominn út í Nýja málverkið. Því er auðvelt að svara: Þótt í því sé margt gott til, þá hef ég engan áhuga á að mála þannig sjálfur eins og er. En það er gaman að almennur áhugi á málverkinu skuli hafa aukist, og það er gífur- lega stór hópur cif ungu fólki sem er að fást við að mála núna. Þetta er auðvitað bundið við ákveðna tísku, eins og gengur, og spuming hvert framhaldið verður. Hitt er annað mál að nauðsynlegt skilyrði til árangurs í listrænu starfi, eins og öllu öðru, er að taka það alvar- lega, en það er ekki nóg, heldur skiptir úthaldið líka miklu máli. Annars finnst mér ég vera of ungur ennþá til þess að vera með prédikanir. Sjálfur verð ég líklega seint það sem kallað er popular málari; það er fremur þröngur hópur, býst ég við, sem ég höfða til. Þetta er eflaust svipað og í mörgum öðrum greinum nútímalist- ar — það er enginn hægðarleikur að finna breiðan hljómgrunn. Mér hefur svo sem cddrei dottið í hug að ég sé neitt að frelsa heiminn með því sem ég er að gera, en ég steypi honum varla í glötun heldur."

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.