Helgarpósturinn - 13.12.1984, Side 6
INNLEND YFIRSÝN
Undanfarna daga hafa menn velt talsvert
vöngum yfir því hvort útvarpslagafrumvarp
ríkisstjórnarinnar yrði afgreitt úr mennta-
málanefnd neðri deildar Alþingis fyrir þessa
helgi eða í næstu viku og þar með í síðustu
vinnuviku þingmanna á Alþingi fyrir þessi
jól. Halldór Blöndal, formaður nefndarinn-
ar, hefur látið hafa eftir sér að málið verði af-
Halldór Blöndal vill fulla ferð... en Páll Pétursson telur fyrsta gír góðan.
eftir Halldór Halldórsson
og kannski ekki einu sinni lifandi, ef svokall-
að frelsi fjármagnsins á að ráða.“
Frumvarpid heföi átt
vel við fyrir 50 árum
Helztu breytingar, sem Bandalag jafnað-
Ný útvarpslög meö vorinu
greitt fyrir helgi, Kristófer Már Kristinsson,
BJ, taldi málið „dautt" o.s.frv.
Eftir því sem eftirgrennslan Helgarpósts-
ins hefur leitt í ljós skiptir í raun engu máli
hvort málið kemur úr nefnd fyrir jól eða
ekki. Fyrir liggja sjónarmið allra flokka í
málinu í menntamálanefnd, að undanskild-
um Framsóknarflokki. Hins vegar staðfestu
bæði varaformaður nefndarinnar, Ólafur Þ.
Þórðarson, og Páll Pétursson, formaður
þingflokksins, að þeir væru hlynntir frum-
varpinu að meginefni. Á því væru vankant-
ar, sem þyrfti að sníða af. Páll sagði, að það
væri mál sem menn hlytu að geta samið um.
Kjarnaatriði í athugasemdum framsóknar-
manna er að með frumvarpinu verði Ríkisút-
varpið ekki lamað á neinn hátt, miklu frem-
ur eflt. Sjálfstæðismenn munu ekki láta
steyta á viðbárum framsóknarmanna. Þann-
ig er ljóst, að fyrir þinglok í vor verða sam-
þykkt ný útvarpsiög á Alþingi og ekki er ó-
líklegt, að gildistaka laganna verði miðuð
við 1. janúar 1986. Þann dag verður heimilt
að hefja rekstur einkaútvarps- og sjónvarps-
stöðva, þótt yfirleitt sé aðeins talað um svo-
kallað frjálst útvarp. Ástæðan er að sjálf-
sögðu sú, að allur tæknibúnaður til hljóð-
varps er einfaldari og ódýrari.
„Hollustuyfirlýsing við konung"
í raun má segja, að sjálfstæðismenn, fram-
sóknarmenn, Bandalag jafnaðarmanna og
alþýðubandalagsmenn séu fylgjandi veru-
lega auknu frelsi í útvarpsmálum. Alþýðu-
flokksmenn vilja viðhalda einkarétti Rikis-
útvarpsins til þess að útvarpa til allra lands-
manna, að sveitarfélög og samtök þeirra fái
heimild til að útvarpa og sjónvarpa, en út-
varpsfélögum sé heimilt að starfrækja stað-
bundið hljóðvarp. Þá gera breytingatillögur
alþýðuflokksmanna ráð fyrir því, að Ríkisút-
varpið skuli starfrækja fræðsluútvarp sem
skólastofnun í samvinnu við fræðsluyfir-
völd. Breytingatillögur Alþýðufiokksins eru
mjög ítarlegar og ógerlegt að gera þeim skil
hér svo nokkru nemi.
Sömu sögu er að segja um afstöðu Sam-
taka um kvennalista. Þær hafa lagt fram
frumvarp séráparti, sem í grófum dráttum
gengur út á það að efla Ríkisútvarpið með
fjölgun hljóðvarpsrása, koma á staðbundu
útvarpi og sjónvarpi, og þessar rásir teljist
sjálfstæðar einingar.
„Frumvarp Kvennalistans er eins og holl-
ustuyfirlýsing við konung,“ sagði þingmað-
ur við HP. „Kvennalistinn er eini flokkurinn
á þingi, sem ekki virðist vilja hlýða kalli tím-
ans.“
„Kappið misskilningur“
Eins og marga rekur minni til var útvarps-
lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar lagt fram á
meðan á verkfalli stóð og var þá miðað við
að lögin tækju gildi 1. nóvember. Nú hafa
sjálfstæðismenn lýst yfir því, að þeir vilji að
frumvarpið verði afgreitt fyrir jólaleyfi þing-
manna. Þeir virðast vera einir um þessa af-
stöðu. Páll Pétursson sagði við HP, að ekki
hefði verið haft samráð eða samband við
framsóknarmenn áður en frumvarpið var
lagt fram í haust með dagsetningunni 1. nóv-
ember. „Ég held nú, að það hafi verið mis-
skilningur frá upphafi að leggja svona mikið
kapp á það að fá þetta fram í hvelli," sagði
Páll Pétursson. Hann bætti því við, að þegar
málið var lagt fram í fyrravetur, hafi verið
mikill hraði á ráðherra bæði til þess að vekja
athygli á því og vekja umræðu um það. Við
það hefðu framsóknarmenn ekki haft neitt
að athuga í sjálfu sér, þótt þeir hefðu veitt sitt
leyfi fyrir framlagningu þess með þeim orð-
um, að einstakir þingmenn hefðu óbundnar
hendur. „Við létum það óátalið," sagði Páll
Pétursson, „en við berum ekki ábyrgð á
framlagningu þess núna í haust."
Ólafur Þ. Þórðarson, varaformaður
menntamálanefndar neðri deildar, flokks-
bróðir Páls, sagði við HP, að sennilegasta
skýringin á þessari áherzlu á hraða af-
greiðslu væri sú, að „sumir halda að því
hraðar sem ráðherra komi máli í gegnum
þingið, því hæfari sé hann. Þetta er gamall
misskilningur," sagði Ólafur Þ. Þórðarson.
„Ég slæ því hins vegar föstu, að það verða
afgreidd ný útvarpslög á þessu þingi," bætti
Ólafur við, þótt hann teldi það vera komið í
eindaga nú á annatíma þingmanna skömmu
fyrir jólaleyfi.
Menningarsjóður
úr auglýsingatekjum
í umræðum um afstöðu framsóknar-
manna hefur verið haft á orði, að það sem
kynni að ráða úrslitum í þeim flokki væri af-
staðan til auglýsinga í einkastöðvum. Bæði
Páll Pétursson og Olafur Þ. Þórðarson svör-
uðu þessu á þá leið, að það sem skipti máli
í sambandi við útvarpslagafrumvarpið og
stuðning framsóknarmanna við það væri að
tryggt væri að fjárhagur Ríkisútvarpsins
yrði ekki fyrir skráveifum. Tekjur RÚV
mættu ekki skerðast. Það væri lykilatriði.
Ólafur kvaðst fylgjandi auglýsingum, en vill
jafnframt að tekið verði ákveðið gjald af
auglýsingatekjum í sjóð, sem kalla mætti
„menningarsjóð" og gæti t.d. tekið að sér
rekstur Sinfóníuhljómsveitar Islands, sem
Ríkisútvarpið rekur nú.
Breytingatillögur framsóknarmanna hafa
enn ekki séð dagsins ljós, en Páll Pétursson
sagði, að í sjálfu sér væru allir í þingflokki
hans jákvæðir gagnvart framgangi málsins.
„En við erum tryggir Ríkisútvarpinu og við
viljum sjá því borgið," sagði Páll. „Ég hef
alltaf gert ráð fyrir því, að þetta frumvarp
verði samþykkt á þessu þingi," sagði Páll
ennfremur. Um gildistökudag væntanlegra
nýrra útvarpslaga sagði Páll:
„Mér þætti ekki óskynsamlegt að miða
gildistöku laganna við önnur áramót, það er
í lpk næsta árs.“
í samtalinu við Pál kom fram, að hann
gerði ráð fyrir því að þegar til kastanna
kæmi myndu þingmenn Framsóknarflokks-
ins koma fram sem ein heild. „Ég er þolin-
móður að halda þingflokksfundi," sagði for-
maður þingflokks Framsóknarflokksins.
Flumbrugangurinn of mikill
Það kom greinilega fram i samtölum HP
við þingmenn, að þeim þykir menntamála-
ráðherra og formanni menntamálanefndar
liggja of mikið á. Útvarpslagafrumvarpið sé
flókið og það sé engum til góðs að rasa um
ráð fram. í þessu viðfangi var t.d. bent á
fjarskiptalögin, sem samþykkt voru undir
þinglok í fyrra, en fram hafa komið vankant-
ar á þeim sem raktir eru til flumbrugangs í
meðförum á þingi.
Guðrún Agnarsdóttir, Kvennalista, lagði
áherzlu á þetta, og hið sama gerði Kristófer
Már Kristinsson, BJ, en Kristófer á sæti í
menntamálanefnd neðri deildar og Guðrún
hefur verið áheyrnarfulltrúi á fundum henn-
ar.
Raunar hefur áherzlan á hraða afgreiðslu
málsins haft sín áhrif, því Samtök um
kvennalista völdu þann kostinn að leggja
fram sérstakt frumvarp til útvarpslaga og
lögðu það fram í efri deild. Málið er hins veg-
ar til umfjöllunar í neðri deild og á eftir að
hljóta afgreiðslu þaðan. Guðrún Agnarsdótt-
ir sagði við HP, að þær hefðu lagt sitt frum-
varp fram í efri deild, þ.e. síðari deild, m.a.
til þess, að það hlyti umfjöllun þar samhliða
stjórnarfrumvarpinu. Þá var haft í huga, að
Kvennaiistinn á fulltrúa í menntamálanefnd
efri deildar. Nú þegar vafi leikur á um af-
greiðslu málsins fyrir jól hafa viðhorfin
breytzt og langur tími getur liðið þangað til
stjórnarfrumvarpið kemur til kasta efri
deildar. Guðrún bætti því við, að raunar hafi
ætlunin verið að leggja frumvarpið miklu
fyrr fram, og þá í neðri deild.
Guðrún sagði að Kvennalistinn væri ekki
búinn að ákveða hvort lagðar yrðu fram
breytingatillögur við stjórnarfrumvarpið í
neðri deild.
Sumir hafa talið það formleg mistök hjá
Kvennalista, að leggja frumvarpið fram í efri
deild, en Þorvaldur Garðar Kristjánsson, for-
seti Sameinaðs þings, kvað svo ekki vera.
Aðrir telja þetta „taktísk" mistök. Um það
vildi Þorvaldur Garðar ekki dæma.
„Mér finnst afskaplega mikilvægt að
vanda sig við þetta. Hins vegar skiptir það
ekki nokkru máli hvort það er mánuðinum
fyrr eða seinna. Mér finnst það ekki ná nokk-
urri átt að flumbrast í gegnum svona mikil-
vægt mál,“ sagði Guðrún Agnarsdóttir. Hún
bætti því við, að við afgreiðslu málsins ætti
að virða þá vinnu, sem lögð hefði verið í all-
ar breytingatillögurnar sem fram hafa kom-
ið, auk frumvarps Kvennalistans. Guðrún
kvaðst hafa spurzt sérstaklega fyrir um það
hvers vegna þvílík áherzla væri lögð á hraðá
afgreiðslu málsins, en ekki fengið nein við-
hlítandi svör.
Um ágreiningsefnin sagði Guðrún m.a.: Ég
held, að meginkvíðbogi margra sé hreinlega
sá, að Ríkisútvarpinu verði skolað niður
vaskinn, a.m.k. að það verði minni máttar
Yfir 20 hafa sótt
um leyfi til að
reka útvarp.
armanna hefur lagt til að verði gerðar a
frumvarpinu, eru þær, að svokölluð útvarps-
réttarnefnd verði felld úr frumvarpinu. Út-
varpsréttarnefnd er eins konar „súper" -út-
varpsráð. Þá vill BJ, að útvarpsráð verði lagt
niður en þess í stað taki yfirstjórn Ríkisút-
varpsins við hlutverki þess og auk þess fall-
ast þingmenn BJ á, að auglýsingar verði
gefnar frjálsar.
„Með þessu frumvarpi halda menn að ver-
ið sé að færa hlutina í einhverja frjálsræðis-
átt. Sú staðhæfing væri sjálfsagt rétt, ef hún
hefði verið sett fram fyrir 50 árum,“ sagði
Kristófer Már Kristinsson, BJ. „En þetta
frumvarp tekur ekkert mið af tæknilegu um-
hverfi sínu,“ sagði Kristófer. „Þessar tillögur
hefðu verið nokkuð góðar ef þær hefðu ver-
ið kynntar fyrir 50 árum.“
Kristófer Iagði ríka áherzlu á það, að BJ
hefði kosið að menn hefðu setzt niður og
samið frumvarp sem tæki mið af þeim
tæknilega veruleika, sem við búum við í
dag. Varðandi útvarpsréttarnefnd og út-
varpsráð sagði hann að þingmenn BJ gætu
ekki séð að það samrýmdist stjórnarskránni
að Alþingi samþykkti lög sem það síðan ætti
sjálft að sjá um framkvæmd á.
Um hraðann á málinu sagði Kristófer: „Ég
hef enga trú á að þetta fari í gegn fyrir jól og
ég trúi því reyndar ekki að það vilji það
nokkur maður í alvöru. Ég dreg m.a.s. í efa,
að Halldór Blöndal (formaður nefndarinnar)
vilji það í alvöru," sagði Kristófer Már. HP
reyndi ítrekað að ná tali af formanninum í
gær. Árangurslaust. Hann bætti því við, að
það hefði hvarflað að honum að ein ástæða
hraðans á málinu væri sú að tryggja þeim
arð sem fjárfest hefðu í tækjabúnaði og það
sem fyrst. Þá benti Kristófer á að umræða
um málið hefði verið mjög lítil.
Því má ekki gleyma, að Hjörleifur Gutt-
ormsson, fulltrúi Alþýðubandalagsins í
menntamálanefnd neðri deildar, hefur gert
breytingartillögu í nefndinni og gerir hún
ráð fyrir að auglýsingar verði óheimilar.
20 sœkja um útvarpsleyfi
En hvað svo sem líður frumvarpinu og
framgangi þess, þá vekur það athygli að hjá
útvarpsstjóra liggja nú yfir 20 umsóknir um
tímabundin leyfi til útvarpsrekstrar. Út-
varpsstjóri hefur heimild til þess að veita slík
tímabundin leyfi og hefur beitt þessari heim-
ild t.d. vegna útvarpsstöðva sem settar hafa
verið upp í skólum um mjög skamma hríð.
Hins vegar hefur aldrei reynt á þessa heim-
ild í slíkum og þvílíkum mæli sem um er að
tefla nú.
Fullvíst er að Andrés Björnsson mun ekki
snerta á þessum umsóknum og því mun það
koma í hlut Markúsar Arnar Antonssonar,
nýskipaðs útvarpsstjóra frá áramótum að
taka afstöðu til málsins. Hann er fylgjandi
rekstri einkastöðva.
Spurningin er hins vegar sú hvort hann
kýs að bíða eftir niðurstöðu Alþingis eða
veita einhverjum eða öllum þessum um-
sækjendum tímabundin útvarpsleyfi — og
þá er líka hægt að spyrja hvað „tímabundið
leyfi" geti verið langt. Ef miðað er við gildis-
töku nýrra útvarpslaga 1. janúar 1986, þá er
rétt rúmt ár í „frjálst" útvarp á íslandi —
nema bilið verði brúað með tímabundnum
leyfum.
6 HELGARPÓSTURINN