Helgarpósturinn - 13.12.1984, Side 19

Helgarpósturinn - 13.12.1984, Side 19
ERLEND YFIRSÝN Böðlar Khomeinis og annarra harðstjóra verða rétttækir hvar sem vera skal Allsherjarþingið afgreiddi sáttmála gegn pyndingum Á mannréttindadaginn, 10. desember, samþykkti Allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna tillögu Mannréttindanefndar alþjóða- samtakanna um alþjóðasáttmála gegn pynd- ingum. Þar með er stigið mikilvægt skref til að gera reglur mannréttindasáttmála Sam- einuðu þjóðanna um mannhelgi að bindandi og virkum alþjóðalögum. Eftir að sáttmáli SÞ gegn pyndingum hefur verið fullgiltur og tekið gildi, getur enginn sá sem gerst hefur sekur um þátttöku í skipuiegum misþyrm- ingum á meðbræðrum sínum verið óhultur utan valdsvæðis þeirra sem réðu hann til óhæfuverka. Afgreiðsla sáttmálans gegn pyndingum á Allsherjarþinginu er árangur langrar bar- áttu, og sérstakar'aðstæður valda því að hún ber árangur einmitt nú. Heimsbyggðin er að vakna til vitundar um að undanfarinn ára- tugur er einn af svörtu svívirðingarblettun- um í mannlegri sögu. í landi eftir land hafa tæknivæddar harðstjórnir myrt og mis- þyrmt til að bæla samfélagið undir vilja sinn. I löndum eins og Kampútseu og Miðbaugs- Gíneu hafa verið framin múgmorð sem ekki gefa eftir því versta sem gerðist í heims- styrjöldinni síðari. Lengi vel áttu málsvarar sáttmála gegn pyndingum erfitt uppdráttar í Mannréttinda- nefnd Sameinuðu þjóðanna. Ástæðan er að þar er að finna fulltrúa ríkja sem ekki virða mannréttindi viðlits, ef svo býður við að horfa. Sovétríkin og fylgiríki þeirra hafa frá öndverðu barist gegn öllum ákvæðum sem gerðu bann við pyndingum virkt með alls- herjar lögsögu yfir brotlegum og alþjóða eft- irliti. Til skamms tíma tóku harðstjórnarríki eins og Argentína í sama streng með sovét- blökkinni í þessu efni. En nú eru umskipti orðin í Argentínu, eins og víðar í Rómönsku Ameríku. Herforingjar hrökkluðust frá völdum, og við er tekin lýð- ræðisstjórn undir forustu Raoúls Alfonsíns, manns sem hætti lífi sínu með því að hafa í frammi mótmæli, meðan ógnarstjórnin var í algleymingi. Níu herforingjar sitja í haldi meðan mál þeirra eru könnuð, og nýkomin er út í Buenos Aires skýrsla opinberrar rann- sóknarnefndar, sem ber heitið Aldrei fram- ar. Þar er á 1660 blaðsíðum rakinn blóðferill herforingjastjórnarinnar á síðasta áratug. Fólk var handsamað þúsundum saman án dóms og laga, látið sæta pyndingum í 340 leynilegum fangageymslum og síðan flest líf- látið. Fangar voru látnir taka sínar eigin grafir og síðan skotnir niður í þær, þeim var fieygt í hafið úr flugvélum eða líkin brennd í þar til gerðum ofnum. í Aldrei framar er skrá um 8.960 einstaklinga, sem enn er alls ókunnugt um hver afdrif hlutu. Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna gat afgreitt sáttmálann gegn pyndingum til Allsherjarþingsins, af því að fulltrúi nýju stjórnarinnar í Argentínu tók afstöðu með honum, og sömuleiðis lét Kínastjórn af and- stöðu við ákvæði um allsherjar lögsögu. Það felur í sér, að böðla má handsama hvar sem til þeirra næst og reka mál gegn þeim í hverju landi sem vera skal. Sökudólgarnir eru gerðir ófriðhelgir um heim allan. Fyrir skömmu var Jimmy Carter, fyrrver- andi forseti Bandaríkjanna, á ferð í Argen- tínu, og var tekið þar sem þjóðhetju. Ástæð- an er að hann gerði sér far um að beita áhrif- um Bandaríkjastjórnar til að hefta grimmd- aræði herforingjastjórna í löndum Róm- önsku Ameríku. Fjöldi manns í Argentínu, Uruguay og Brasiiíu telur sig eiga aðgerðum stjórnar hans líf að launa. Alþjóðasamtökin Amnesty International hafa barist ósleitilega á annan áratug fyrir málstað samviskufanga, þeirra sem sviptir eru frelsi fyrir skoðanir sínar eða trú, gegn pyndingum og misþyrmingum á föngum og gegn dauðarefsingu. Erfitt er að leggja mæli- kvarða á árangur af starfsemi Amnesty, en ljóst er að hann er verulegur. Nýlega hefur Thomas Hammarberg, aðalframkvæmda- stjóri Amnesty, iýst komu nýs forsætisráð- herra og utanríkisráðherra Afríkuríkisins Gíneu í höfuðstöðvar samtakanna í London. Þeir komust til valda eftir að her Gíneu steypti af stóli samverkamönnum harðstjór- ans Sékou Touré skömmu eftir að hann féll frá. Gíneumennirnir tveir gátu ekki tára bundist, þegar þeir skýrðu frá, hversu vitn- eskjan um að Amnesty hefði tekið að sér mál þeirra hefði haldið í þeim kjarki og lífi, með- an þeir sátu í dýflissum Touré. Sovétstjórnin hélt Sékou Touré við völd með vopnasendingum og aðstoð sérfræð- inga í kúgun löngu eftir að hann hafði fyrir- gert fylgi og trausti þorra Gíneumanna. Skýrasta dæmið um óheillavænleg áhrif eftir Magnús Torfa Ólafsson ítaka Sovétríkjanna og fylgiríkja þeirra í þriðja heiminum er Miðbaugs-Gínea. Landið er fámennt og afskekkt, svo harmsaga lands- manna hefur fengið lítið rúm í heimsfréttum. Harðstjórinn Francisco Macias Nguema réði því með fulltingi sovétblakkarinnar mestall- an síðasta áratug. Þegar samstarfsmenn hans risu loks gegn morðæði leiðtogans, var nær helmingur þjóðarinnar annað hvort líf- látinn eða landflótta. Síðastir til að verja Nguema var sveit Kúbumanna, sem Castro hafði sent honum til trausts og halds. Sem stendur berast skelfilegastar fregnir af grimmdarverkum frá tveim nágranna- löndum í Vestur-Asíu, Afganistan og íran. í Afganistan fer sovéska hernámsliðið um landsbyggðina báli og brandi og beitir óspart fjöldaaftökum fanga í herferð sinni gegn mótspyrnuhreyfingu Afgana. í íran hefur stjórn islamsklerka gert stríðið við írak að átyllu til að herða tökin. Bitnar það jöfn- um höndum af pólitískum ástæðum á and- spyrnuhreyfingunni Mujahedinn og af trúar- legu ofstæki erkiklerkanna undir forustu Khomeinis á söfnuði bahá’ía. Böðlum sem áður störfuðu fyrir Savak, leynilögreglu keisarastjórnarinnar, hefur nú verið att á bahá’ía, sem eru sérstaklega berskjaldaðir fyrir fúlmennsku klerkaveldisins, af því að trú þeirra bannar þeim bæði stjórnmálaaf- skipti og að grípa til vopna. Er reynt að pynda bahá’ía til að játa njósnir fyrir írak, Israel eða Bandaríkin og réttlæta þannig enn frekari ofsóknir gegn söfnuðinum. Um leið og tilskilinn fjöldi ríkja hefur full- gilt nýsamþykktan sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum, geta böðlarnir í Kabúl, Teheran, Tabriz eða Shiraz aldrei verið öruggir um sig nema meðan skjóls yfir- boðara þeirra nýtur við. Þá má grípa þá og lögsækja hvar sem sakaraðili nær til þeirra. Lokaátökin í félagsmálanefnd Allsherjar- þingsins stóðu um ákvæði um eftirlitsnefnd til að framfylgja sáttmálanum gegn pynding- um. Sovétríkin og öll ríki sem þau fengu talið á sitt band lögðust gegn stofnun eftirlits- nefndar, og þó sér í lagi gegn því að veita henni rétt til fyrirvaralausra eftirlitsferða til landa, þar sem grunur leikur á að pyndingar viðgangist, og óhefts aðgangs að fangelsum í slíkum löndum. En þau ríki sem fylgdu fram virku pyndingabanni, sérstaklega Norður- lönd og Niðurlönd, höfðu betur. möguleikar af mómum 1. STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR Ef þú staðgreiðir þá vöru sem þú kaupir, veitum við þér 3-20% afslátt eftir vöruflokkum. 2. SKULDABRÉF_____________________ Þú stendur i stórræðum, greiðir 20% út og afganginn á allt að 6 mánaða skuldabréfi. Ef þú greiðir vöruúttekt strax með peningum og skuldabréfi færð þú afslátt. 3. MÁNAÐARREIKNINCUR______________ Þú stendur þig vel í viðskiptum og stofnar mánaðarreikning sem gengið er frá fyrir 10. hvers mánaðar. Sé þá greitt í peningum veitum viö þér 2% afslátt. renndu við eða hafðu samband BYGGlNGflVÖRUR ÍHRINGBRAUT 120: Simar: Harftviðarsala.............28-604 Byggingavörur...28-600 Málningarvörur og verkfæri.28-605 Gólfteppadeild..28-603 Flisar og hreinlætistæki...28-430 HELGARPÓSTURINN 19

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.