Helgarpósturinn - 02.05.1985, Síða 3
Nfi SJÓNARMIÐ
segir á hreinskilinn hátt frá lyfjanotkun sinni í
þeim tilgangi aó ná betri árangri í lyftingum.
Sjónarmiöin skiptast í tvö horn. Sumir
fagna því að umræöan skuli hafa verió opnuð,
og hafa á orði að með þessu viðtali hafi
Stefán sýnt mikinn kjark. Aórir segja aó meó
þessu sé verió að sverta íþróttahreyfinguna í
heild sinni. Helgarpósturinn leitaói til
nokkurra aðila vegna þessa máls og bað um
álit þeirra á hispurslausri frásögn Stefáns.
— Stefán segist ekki hafa
orðið var við afleióingar lyfja-
notkunarinnar fyrr en eftir
töluverðan tíma, en hann not-
aði lyf í tæp þrjú ár.
,,Nú er fjöldinn allur af
mönnum búinn að æfa í mörg
ár. Ég hef æft í 8 ár og mér líð-
ur mjög vel. Guðmundur Sig-
urósson hefur verið að bráð-
um í 20 ár og ég get ekki séð
aó það _sé neitt að honum, og
Skúli Óskarsson. Þetta eru
menn sem hafa náð árangri.
Náttúrlega er einn og einn
maður sem reynir að ná ár-
angri eftir einhverjum leiðum
sem honum þykja þess veróar.
En eru þær þaó?
— Hefur þú orðió var við
notkun hormónalyfja?
„Núna, eftir greinina í
Helgarpóstinum sem þú ert að
segja mér frá."
—■ Annars staðar?
„Éghefheyrt sögusagnir. En
það er staðreynd að þessi lyf
eru í notkun á íslandi, eftir því
sem Stefán segir."
— Veistu önnur dæmi?
„Ég veit það ekki fyrir víst.
En mig skiptir engu máli hvort
menn setja í sig eina og eina
töflu, haldi framhjá konu sinni
eða reyki hass. Það kemur
mér ekki við."
— Hvert er þitt álit á hor-
mónalyfjum?
„Það er augljóst að það er
ekki hægt að koma í veg fyrir
að lyf séu notuð. Skynsamleg-
ast væri að leyfa þau eða
hætta framleiðslunni á þeim."
— Kemur til greina að leyfa
þau?
„Undir eftirliti lækna. Frekar
en að hafa þetta eins og það er
núrta; þessi maður var næstum
búinn að drepa sig á hormóna-
lyfjum. Væri ekki betra að sá
sem vildi á annað borð, gæti
fengið þessi lyf með löglegum
hætti og í þeim skömmtum
sem ráðlegt væri að taka þau
samkvæmt læknisráói?"
Páll Eiríksson læknir:
Hef verió beóinn um
að útvega hormónalyf
,,Ég verð að segja að mér
finnst gott að einhver skuli
þora að viðurkenna að notkun
hormónalyfja eigi sér stað.
Menn hafa haldið því fram að
svo væri ekki, en ég veit ósköp
vel að það er ekki rétt. Eins og
ég skrifaði í bækling íþrótta-
sambandsins um þessi lyf og
notkun þeirra, hefur verió leit-
að til mín og ég beðinn um að
útvega hormónalyf, og það
fyrst fyrir mörgum árum."
— Þú hefur ekki gert það?
„Nei, það hefði mér aldrei
dottið í hug, enda er mér skað-
semi þessara lyfja ljós. Öll
truflun og inngrip í hormóna-
starfsemi líkamans eru stór-
hættuleg. Þaö má nefna mörg
dæmi þess."
— Geta menn látið lífið
vegna ofnotkunar hormóna-
lyfja?
,,Já, því miður. Að vísu er erf-
itt að sanna það, en sterkar lík-
ur benda til þess."
— Hefur þú sem læknir þurft
aó fást vió eftirköst einstakl-
inga vegna ofnotkunar hor-
mónalyfja?
,,Ég hef starfað sem geð-
læknir í tveimur löndum auk
íslands; Danmörku og Noregi,
og hef fengið einstaklinga í
viðtöl sem hafa misnotað þessi
lyf. Ég vil helst ekki gefa upp
hvar þaó var."
— Ér líkamleg heilsa ekki
eingöngu í hættu, heldur and-
leg líka?
„Ekki síður. Með inntöku
þessara lyfja eykst árásar-
kennd, eins og Stefán lýsir í
viðtalinu, ef ég man rétt, en
jafnframt vantar stjórnina.
Menn eru búnir að venja sig
við eigin árásarkennd í 20 ár
eða svo, og byrja síðan að taka
lyf sem auka hana; þetta rugl-
ar andlegt jafnvægi. Ýmsir
þessara manna hafa lent í
vandræðum þegar þeir neyta
áfengis; þegar stjórnin verður
enn minni."
— Getur þú ímyndað þér
hversu almenn notkun hor-
mónalyfja er hér?
„Ég hef ekki hugmynd um
það, en vona aó hún sé lítil.
Hins vegar legg ég áherslu
á að um þessi mál sé fjallað af
skynsemi en ekki í æsifrétta-
stíl. Við getum aldrei komið í
veg fyrir að reynt verði að
svindla, hvort sem það er í
íþróttum eða öðru. En vió get-
um reynt að hmdra það með
skynsamlegri fræðslu og
stuðningi. Og þarna er hlut-
verk þjálfara stórt."
Alfreð Þorsteinsson
formaður lyfjaeftirlits-
nefndar ÍSI:
Staðfestir nauðsyn
lyfjaeftirlits
„Frásögn Stefáns Sturlu
staðfestir nauðsyn lyfjaeftirlits
hérlendis, þrátt fyrir efasemd-
ir ýmissa aðila. Frásögn hans
er óvenju hispurslaus og
hreinskilin, og verður vonandi
öðrum íþróttamönnum víti til
varnaðar.
íþróttasamband Islands
mun halda sínu striki varðandi
lyfjaeftirlit, og treystir því aó
almenningur og fjölmiðlar
styðji ÍSÍ í þeirri viðleitni að
halda þessum ófögnuði fyrir
utan íslenskar íþróttir."
— Telur þú að notkun hor-
mónalyfja sé almenn?
„íþróttasambandið hefur
staðið að tvenns konar fyrir-
byggjandi aógerðum. Annars
vegar er útgáfa fræðslubækl-
ings, sem m.a. inniheldur skrá
yfir öll ólögleg lyf. Síðan eru
fræðslufundir innan íþrótta-
hreyfingarinnar, og loks er
lyfjaeftirlitið fyrirbyggjandi
aðgerð að því leyti til, að því er
hægt að beita fyrirvaralaust
hvenær sem er, og menn hljóta
að hugsa sig um tvisvar áður
en þeir nota ólögleg lyf, vit-
andi að lyfjaeftirlitið getur far-
ið fram hvenær sem er. Ég tel
að þessir tveir þættir, fræðslu-
starfsemi og lyfjaeftirlit, séu
fyrirbyggjandi aðgerðir."
— í viðtalinu kemur fram að
bæklingi þessum hafi ein-
göngu verió dreift í apótek.
„Það er ekki rétt. Honum var
m.a. dreift í apótek, en hann
hefurfarið út til allra aöildarfé-
laga íþróttasambands íslands
og liggur frammi á skrifstofu
þess. Þar geta allir nálgast
hann."
— Nú hefur verið bent á þaó,
að samkvæmt reglum lyfjaeft-
irlitsnefndar eigi að útiloka þá
frá þátttöku í íþróttamótum,
sem notað hafa hormónalyf.
Hvaó hyggst nefndin gera?
„Þetta hefur lyfjaeftirlits-
nefndin ekki fjallaö um ennþá,
en mun væntanlega gera það.
Mál Stefáns er þó dálítió
óvenjulegt, því að þetta bygg-
ist á prófi eða aó maður mæti
ekki til prófs."
Var
byltingarstemmning?
Guðmundur Þ. Jónsson,
aðalræðumaður 1. maí
„Það er of djúpt í árinni tekið að það hafi ríkt byltingarástand
á Lækjartorgi í gær. En stemmningin var engu að síður mikil að
mínum dómi. Þarna kom fram mjög eindreginn vilji fjöldans til
að herða róðurinn í kjarabaráttunni, og þá einkanlega í sam-
bandi við kauptrygginguna."
— Fannst þér of fáir mæta?
„Nei, þvert á móti. Það var fjölmenni."
— Færri en venjulega?
„Nei, ég held ég geti sagt að þetta hafi verið með fjölmenn-
ari 1. maí-fundum í mjög langan tíma."
— Er þessi dagur fólki jafn hugleikinn og áður var?
„Það er erfitt fyrir mig að dæma þar um. Þó má vel vera að
hugur fólks til þessa dags hafi breyst eitthvað með árunum.
Mér fyndist það ekki óeðlilegt. Ég gæti trúað því að fólk liti nú
meira á 1. maí sem hátíðisdag en baráttudag eins og hann var
upprunalega, svo og að tilfinningin til hans væri orðin önnur en
áður. Hvað sem því líður er ég sannfærður um að dagurinn
stendur ennþá fyrir sínu. Inntak hans hefur ekkert breyst í sjálfu
sér. Kröfurnar eru enn á lofti og svo verður alltaf."
— Telurðu að hátíðahöldin þurfi einhverrar endur-
skoðunar við, til dæmis breytinga í takt við tímann?
„Umgjörð þessa dags hefur verið að breytast smám saman
með árunum. Það átti að gera stóra breytingu á honum á sínum>
tíma, þegar dagskráin var færð inn í Laugardalshöll vegna þess-
arar árvissu hættu á kalsaveðri. Sú stóra breyting gafst illa. Þá
kom vel í Ijós að fólk vill hafa útifund og göngu, hvernig svo
sem veðurguðirnir láta. Hvað dagskránni sjálfri viðvíkur —
ræðuhöldunum og öðru því sem við tekur þegar niður á torg
er komið — vil ég segja að þar má sjálfsagt einhverju breyta.
Heldur hafa ræðurnar styst með árunum. Það finnst mér til
dæmis af hinu góða."
— Þarf að poppa þetta eitthvað upp?
„Nei, ég get ekki séð að popp geri 1. maí að meiri degi en
hann er. Það var lítið popp að finna á Lækjartorgi í gær, en samt
mættu þar fleiri en oftast áður. Og ástæðan var ekki bara góða
veðrið, þótt það hafi vissulega hjálpað eitthvað, heldur tel ég
að fólk hafi viljað sýna þarna samstöðu sína og eindrægni til
að takast á við þá miklu kjarabaráttu sem þarf á næstunni til að
ná fram mannsæmandi launum. Það sýndi sig í gær, að jafn
alvarlegt ástand í kjaramálum og fólk á við að eiga í dag,
þjappar því saman, eflir hug þess."
— Þú tekur væntanlega ekki undir þá skoðun að
vissrar íhaldssemi sé farið að gæta í 1. maí-hátíðahöld-
unum!
„Ég tek ekki undir það. Þótt sama formið hafi verið á dag-
skránni lengi, þá er ekkert sem bendir til þess að það sé vont.
Við höfum ekki fundið neitt annað form á þessu, þrátt fyrir leit.
En allar ábendingar í því efni eru vissulega vel þegnar."
I dag er fimmtudagurinn annar maí, sem gefur okkur að fyrsti maí, bar-
áttudagur verkalýðsins, var haldinn hátíölegur ígær. Margmenni hlýddi
á dagskrána á Lækjartorgi, þar sem fulltrúaráð verkalýðsfélaganna, Iðn-
nemasambandið og BSRB héldu sinn fund. Guðmundur Þ. Jónsson,
formaður Landssamtaka iðnverkafólks, var einn ræðumanna dagsins
og við spyrjum hann hvort eðli þessa dags og inntak sé að breytast.
HELGARPÓSTURINN 3