Helgarpósturinn - 02.05.1985, Blaðsíða 4
YFIRHEYRSLA
nafn: Steingrímur Hermannsson. heimili Mávanes 19f Garðabæ. mánaðarlaun Um 100.000 kr.
FÆDDUR: 22.06.1929. heimilishagir: Kvæntur Eddu Guðmundsdóttur. áhugamál Útivera, smíðar, o.fl.
staða: Forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins. bifreið: Chevrolet Blazer, árg. '84.
Hefði hikað við að kjósa Framsókn ...
eftir Sigmund Erni Rúnartson myndir Jim Smart
— Kjaradóniur. Ertu sáttur við hann?
„Ég hef yfirleitt ekki lagt í vana minn að
gagnrýna dómstólana. Þeir eru sjálfstæður
þáttur í okkar kerfi og ég treysti þeim.“
— Reyndir þú að hafa áhrif á dóminn?
„Nei, ekki á nokkurn máta. Ég ræddi
aldrei þennan tíma við neinn af þessum
mönnum sem dóminn skipa, gætti þess
vandlega."
— Hefðir betur gert það?
„Nei, eins og ég segi; ég treysti þessum
dómurum. Hitt er svo annað mál að ég hélt
að þeir myndu dæma háskólamenntuðum
mönnum meiri hækkun, sérstaklega
kannski kennurum."
— Hefðir þú viljað þaö?
„Viljað,- spurningin er ekki hvað ég vil. Ég
mat stöðuna þannig, að ég reiknaði með
að hann myndi gera það.“
— En fannst þér ekki ráðherrar og
ráðamenn vera með ómaklegar yfirlýs-
ingar, áður en dómurinn var kveðinn
upp, þess efnis að þjóðarbúið þyldi ekki
þessar leiðréttingar á misvægi kjara
BHMR-félaga og kollega þeirra í einka-
geiranum?
„Hvaða menn ertu að tala um?"
— Til dæmis Albert Guðmundsson
sem tók í þennan streng hér í Yfir-
heyrslu fyrir nokkru.
„Jú, ég held að út af fyrir sig elgi menn að
vera með sem minnstar yfirlýsingar á svona
viðkvæmum stundum."
— Hljóp Albert þarna á sig?
„Nei, ég held það ekki. Ég held að dómur-
inn sé það sjálfstæður að hann hafi metið
þetta upp á eigin spýtur."
— Þú hefur lengi hampað stjórn þinni
fyrir þaö að hafa náð verðbólgunni nið-
ur og oftiega sagt það vera helsta árang-
ur hennar. En þú getur ekki þvertekið
fyrir það að sú aðgerð hafi aðallega ver-
ið á kostnað launafólks og.„
„Bíddu nú lu*.gur. Ég þvertek fyrir það.
Þetta er einhver bábilja sem gengur í gegn.
Launafólkið ber fyrst og fremst byrðarnar af
minnkandi þjóðarframleiðslu og þjóðartekj-
um. Þegar þær falla um átta tU níu af hundr-
aði, þá á það að koma niður á öllum jafnt..."
— En hefur einmitt ekki gert það!
„Ja, þar er ég hræddur um að þú hafir rétt
fyrir þér. Ég er viss um að sumir einstakling-
ar hafa sloppið vel í gegnum þetta, til dæmis
þeir sem gátu breytt eignum sínum í fjár-
magn og fengið háa vexti..."
— Á að negla þá næst?
„Ég er hræddur um að það verði erfitt, sér-
staklega vegna þess að hér í þessu þjóðféiagi
er meirihluti fjármagns orðinn erlent fjár-
magn. Og við það ráðum við ekki neitt."
— Fyndist þér óeðlilegt af mér að
segja að stjórn þín væri búin að gera
tvær þjóðir úr ísiendingum með aðgerð-
um sínum?
„Ég held að það sér rangt. Ef hér búa tvær
þjóðir, þá hefur svo verið lengur en nemur
lífdögum minnar stjórnar. Mér er til dæmis
tjáð að flestir sem nú eiga peninga hafi áður
átt miklar eignir. Má þá ekki segja að þær
ríkisstjórnir sem sátu þegar vextir voru nei-
kvæðir hafi klofið þjóðina í tvennt, annars-
vegar í þá sem lögðu fyrir og töpuðu og hins-
vegar þá sem tóku lánin og græddu."
— Þetta hefur þá bara snúist viö, eða
hvað?
Ja, kannski gagnvart þeim launþegum
sem hafa lagt í fjárfestingar."
— En hversvegna hefur þetta tveggja
þjóðatal aðeins heyrst að undanfðrnu?
Er fólk bara eitthvað að rugla?
„Fólk er að tala um þetta núna vegna þess
aö stór hópur fólks finnur ákaflega mikið
fyrir þeim tekjumissi sem hann hefur orðið
fyrir að undanförnu á meðan það hefur horft
upp á aðra sleppa betur út úr ástandinu..."
— Annað mál. Var þér kunnugt um að
bankastjórar ríkisbankanna greiddu
ekki eyri í lífeyrissjóði en fengju engu að
síður greiddan 90 prósent lífeyris að
loknu starfi?
„Nei, ég hafði aldrei heyrt það fyrr en þið
fóruð að skrifa um þetta."
— Hvernig geta svona hlutir við-
gengist þegar til dæmis bankaráðs-
menn — sem margir eru jafnframt þing-
menn — vita af þessu?
„Ég hef svo sem undrast þetta á sama hátt
og spurning þín gefur til kynna. Ég verð nú
að segja það, með fullri virðingu fyrir banka-
stjórum og fleiri mönnum í mikilvægum
stöðum í þjóðfélaginu, að þetta er ótrúlegt."
— Á að láta þetta óátalið eða refsa
viðkomandi mönnum sem að þessu
stóðu?
„Það eru líkast til engin lög sem ná til þess
að refsa mönnum fyrir þetta. Bankaráðs-
menn hafa samkvæmt lögum ákvörðunar-
rétt um kaup og kjör bankastjóra og eru þar
engin takmörk sett..."
— Þetta er spilling?!
„Ég veit ekki hvort þetta er spilling, út af
fyrir sig."
— Þetta er lögbrot!
„Ja, það getur vel verið að svona nokkuð
sé lögbrot, ég veit það ekki alveg..."
— Þetta er víst iögbrot!
„Ja, ef svo er, þá er það kannski dómstóla
að athuga þetta."
— Gefur þetta ekki ástæðu til að ætla
að víðtæk spilling þrífist í kerfinu?
„Það er undir því komið hvað á að kalla
spillingu. Ég hef svo sem ástæðu til að ætla
að víða í kerfinu sé mönnum hyglað á ein-
hvern máta. En ég er líka alveg sannfærður
um að það er ekkert minna um þetta í einka-
geiranum."
— Ertu með öðrum orðum að halda því
fram að fyrst svolítil spilling þrífist í
einkageiranum, sé réttlætanlegt að svo
sé í svipuðum mæli hjá ríkinu?
„Nei, alls ekki, enda hef ég ekki orðið var
við það í hinum raunverulega ríkisgeira að
ekki liggi allt hreint á borðinu. Ríkisbankarn-
ir eru hinsvegar sjálfstæðar stofnanir sem
eru ekki innan stjórnarráðsins. Og ég verð
að segja í því sambandi að mér finnst banka-
ráðin hafa farið óeðlilega að í þessum málum
sem að undanförnu hefur verið Ijóstrað upp,
einkanlega vegna þess að þau hafa haldið
þeim leyndum."
— Bankaráðin hafa sem sagt verið að
hygla sínum mönnum?
„Þarna er greinilega verið að bæta kjör
manna eftir öðrum reglum en giida ella í
þjóðfélaginu, enda virðist svo sem þess hafi
ekki verið krafist. Og það er rangt."
— Hvað þýða þær ásakanir formanns
Sjálfstæðisflokksins á landsfundi aö æ
meira sé farið að bera á því hjá Fram-
sókn að hún 'noti stjórnarsamstarfið til
að gæta hagsmuna SÍS?
„Eg leitaði eftir dæmum um slíka hags-
munavörslu í ræðu minni á miðstjórnarfundi
Framsóknarflokksins. Ég hef ekki heyrt neitt
ennþá."
— Ég nefni íslandslax!
„Það er bara alrangt. Það er ekki neinum
hyglað þar."
— Ég bæti hér við skeytum varafor-
manns Sjálfstæðisflokksins í þá átt að
helsta einkenni Framsóknar í stjórn sé
að vera þar eingöngu til að gæta sjóö-
anna sinna...“
„Hvaða sjóða? Hann hefur aldrei tilgreint
við hvaða sjóði hann átti..."
— Þú verður aö taka hann tali!
„Nei, ég held nú að þetta sé bara eins og
hvert annað buli, sagt fyrir landsfundinn,
svona til þess að ná kosningu."
— Þú segir nokkuð. En svo sagði hann
líka að Framsókn væri „púra“ hags-
munaklúbbur á meðan aðrir flokkar
væru þó prinsippflokkar.
„Ég ætla ekki að fara að kenna öðrum um
að gæta hagsmuna sinna fylgismanna, en
gæti þó nefnt ýmis dæmi um það. Við viljum
gæta hagsmuna hvers þess fyrirtækis sem
okkur finnst vera þjóðhollt og gott í þessu
landi."
— En Steingrimur, öll þessi skeyti
milli stjórnarflokkanna —■ þú varst að
senda Friðriki eitt þarna áðan — er þetta
ekki dæmi um að tekið sé að hrikta í
samstarfinu?
„Þú getur nú farið yfir þessi tvö ár stjórn-
arinnar og séð ýmsar yfirlýsingar. Varafor-
maðurinn var nú með eina úti á Seltjarnar-
nesi fyrir ári. Ég held að hún hafi nú ekki
verið neitt skárri en þessar sem þú ert hér að
tíunda."
— Hversvegna alltaf þessi þráseta
Framsóknar í stjórn?
„Það er ekkert markmið hjá flokknum að
sitja í stjórn. Við látum bara málefni ráða
hverju sinni." *
— Samfleytt í stjórn síðan 1971, að
nokkrum mánuðum undanskildum. Er
þetta ekki rétt „krítík“ hjá Friðriki að
þið megið ekki við því að vera utan ráð-
herratignar?
„Við vorum utan stjórnar í ellefu ár á Við-
reisnartímabilinu..."
— Hann sagði þann tíma einmitt hafa
verið ykkar „eyðimerkugöngu“!
„Síður en svo fór af okkur fylgið þá. Ég get
heldur ekki séð annað en Sambandið hafi
komist vel í gegnum það tímabil. Kannski
þeir hafi hugsað svo vel um SÍS í Viðreisn-
inni? Sko, ég er orðinn dálítið þreyttur á því
að vera spurður út í ummæli Friðriks Sop-
hussonar, því sannast sagna er ég hættur að
nenna að lesa þau.Staðreyndin er bara sú að
hreyfing eins og SÍS með meðlimafjölda um
fjörutíu þúsund, langtum fleiri en fjölda
framsóknarmanna nemur, stenst alveg
menn eins og Friðrik. Jafnvel hann getur
ekki komið henni á kné. Ég held að það sé
alveg borin von."
— Hvernig skýrirðu það greinilega
misvægi á gengi stjórnarflokkanna sem
komið hefur fram í hverri skoðanakönn-
uninni á fætur annarri?
„Mér finnst alveg eðlilegt að Framsóknar-
flokkurinn hafi misst töluvert fylgi eftir koll-
steypuna í haust. Ég hefði þá verið hikandi
sem óbreyttur framsóknarmaður, alveg tví-
mælalaust..."
— Ertu að gefa í skyn að þig hafi þá
langað til að segja þig úr Framsóknar-
flokknum?
„Ég er bara að segja að ég hefði verið hik-
andi, ekkert annað."