Helgarpósturinn - 02.05.1985, Blaðsíða 20
SKOÐAIMAKOIMNUN HELGARPÓSTSIIMS
4. Albert Guðmundsson
menn stjórnmálaflokka, þau Jóhanna Sig-
urðardóttir og Friðrik Sophusson. Stefán
Benediktsson hefur komið fram í fjölmiðlum
til jafns við Guðmund Einarsson og Kjartan
Jóhannsson var formaður Alþýðuflokksins
fram til október s.l. Þá er aðeins ótalinn Helgi
Seijan. Með hliðsjón af fjölmiðlaframkomu
má benda á, að talsvert hefur borið á Helga
á ný, og mun meira en títt er, vegna andstöðu
hans við bjórfrumvarpið.
Þannig er hægt að skýra listann með hlið-
sjón af því hvort menn eru áberandi í fjöl-
miðlum eða ekki.
Hins vegar er þetta ekki einhlítur mæli-
kvarði, því margir aðrir þingmenn hafa verið
áberandi, að ekki sé talað um ráðherra. Þetta
kann þó að vera hluti skýringarinnar.
I heild er þetta listi yfir karla og konur sem
bera ábyrgð í eigin flokki, hafa verið áber-
andi í fjölmiðium og þykja annað hvort ske-
legg í málflutningi og/eða ábyrg. Traustir en
hljóðir þingmenn virðast ekki eiga upp á
pallborðið hjá þjóðinni. Fyrir svo utan þá
sem eiga almennt og yfirleitt lítt upp á pall-
borðið!
I þessari samanburðarkönnun um þá sem
kjósendur telja trausts verða, eru einungis
taldir til þeir sem sitja á Alþingi. í könnun-
inni kom á óvart hversu sjaldan sumir voru
nefndir eða alls ekki nefndir á nafn. Þannig
fengu Alexander Stefánsson og Jón Helga-
son, ráðherrar Framsóknarflokksins, aðeins
þrjú atkvæði hvor, og raunar fékk Páll Péturs-
son þingflokksmaður einnig jafnfá atkvæði.
Sex þingmenn Framsóknarfiokksins komust
ekki á blað.
Hjá Sjálfstæðisflokknum komust Ragn-
hildur Helgadóttir, Matthías Á. Mathiesen og
5. Halldór Ásgrímsson 6 . Svavar Gestsson
■ f:
7. Sverrir Hermannsson
8. Stefán Benediktsson
Matthías Bjarnason ekki á blað yfir fimmtán
efstu. Af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins
voru 19 af 23 nefndir og komust t.d. þeir
Halldór Blöndal og Eggert Haukdal ekki á
blað.
Hjá Alþýðubandalaginu voru allir þing-
menn með eitt eða fleiri atkvæði. Einnig hjá
Kvennalistanum. Hjá Bandalagi jafnaðar-
manna komst Kristín Kuaran á blað með tvö
atkvæði en Kolbrún Jónsdóttir fékk ekkert.
Hjá Alþýðuflokknum voru allir þingmenn
flokksins nefndir.
Eins og við var að búast nefndu svarendur
í skoðanakönnuninni ýmsa aðra en þá sem
ekki sitja á Alþingi íslendinga og var það
skráð lauslega. þar voru m.a. nefndir þessir
í. Geir Hallgrímsson
og í þessari röð: Davíd Oddsson, Ólafur
Ragnar Grímsson, Magnús H. Magnússon,
Kristófer Már Kristinsson, Árni Gunnarsson,
Gudmundur H. Gardarsson, Kristjana Milla
Thorsteinsson, Magnús L. Sveinsson, Sig-
hvatur Björgvinsson, Rolf Johansen (hefur
ekki haft opinber afskipti af stjórnmálum),
Björg Einarsdóttir og Styrmir Gunnarsson.
Athygli vekur, að konur virðast ekki njóta
mikils trausts. Að vísu lenda tvær konur, þær
Jóhanna Sigurðardóttir og Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir, á 15 manna listanum, en
að öðru leyti voru þau fá atkvæðin, sem féllu
á konur, og sumar voru aldrei nefndar.
Ef litið er á heildina er styrkur stjórnmála-
manna eftir kynjum þannig, að af atkvæðum
sem konur greiddu féllu aðeins 15,5% á
konur, en 84,5% á karla. Atkvæði karla féllu
hins vegar þannig, að einungis 1,8% at-
kvæða þeirra féllu á konur en 98,2% voru
greidd körlum.
Að vísu ber að taka tillit til þess, að á Al-
þingi sitja fáar konur og því ekki um margar
að velja fyrir þá sem spurðir voru. En samt
hefði mátt ætla að konur bæru meira traust
kynsystra sinna en raun ber vitni.
Sjö konur á þingi fengu atkvæði, og aðal-
lega frá konum. Jóhanna Sigurðardóttir naut
mests trausts, þá Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir og síðan Guðrún Helgadóttir, Ragn-
hildur Helgadóttir, Guðrún Agnarsdóttir,
Kristín Halldórsdóttir og Kristín Kvaran.
Hinar fjórar síðastnefndu fengu færri en 10
atkvæði og sú neðsta aðeins tvö.
Fyrir þá, sem hafa gaman af því að skoða
niðurstöður frekar birtum vjð hér töflu
með einstaklingum úr 15 manna hópnum
ásamt hlutfallstölum um stuðning úr eigin
flokki og öðrum, ásamt skiptingu þessa hóps
í stjórnarsinna og stjórnarandstæðinga.
Styrkur stjórnmálamanna
eftir kynjum
Atkvæði kvenna alls: 406
Atkvæöi greidd konum: 63 15,5%
Atkvæöi greidd körlum: 343 84,5%
Atkvæði karla alls: 439
Atkvæði greidd konum: 8 1,8%
Atkvæði greidd körlum: 431 98,2%
Staða stjórnmálaflokkanna ef miðað er við persónulegan styrk
einstakra þingmanna og ráðherra
Fiokkur Karlar Konur Fjöldi alls Stig Kjósa eigin flokk Kjósa annan flokk Ekki viss Styðja rfkisstj. Styðja ekki rfkisstj. Taka ekki afstöðu
Alþýðuflokkur 76 85 161 250 92 43 26 34 105 22
Framsóknarflokkur 92 80 , 172 258 50 83 39 114 37 21
Bandalag jafnaöarmanna 24 25 49 60 20 22 7 10 32 7
Sjálfstæðisflokkur 196 132 328 472 201 79 48 227 65 36
Alþýðubandalag 49 55 104 152 45 36 23 17 78 9
Samtök um kvennalista 2 29 31 38 16 10 5 1 29 1
439 406 845 1230 424 273 148 403 346 96
Stuðningur við flokk — stuðningur við stjórnmálamann Hlutfall í %
Kjósa eigin flokk Kjósa annan flokk Ekki viss Styöja ríkisstj. Styðja ekki rfkisstj. Taka ekki afstööu
Jón Baldvin Hannibalsson 52,9 31,1 16,0 25,2 61,3 13,5
Steingrímur Hermannsson 29,8 47,9 23,3 73,4 12,8 13,8
Halldór Ásgrímsson 27,0 52,4 20,6 55,6 33,3 11,1
Stefán Benediktsson 36,7 46,7 16,7 16,7 66,7 16,7
Þorsteinn Pálsson 61,5 27,0 11,5 69,7 18,0 12,3
Albert Guömundsson 56,3 20,3 23,4 67,2 25,0 7,8
Svavar Gestsson 39,6 34,0 26,4 18,9 75,5 5,6
Sigr. Dúna Kristmundsdóttir 50,0 40,0 10,0 5,0 95,0 0,0
Þessi tafla lesist þannig, að t.d. Jón Baldvin Hannibalsson nýtur trausts 52,9% fólks sem ætlar jafnframt að kjósa Al-
þýðuflokkinn, en 31,1% þeirra sem ætla að kjósa annan flokk o.s.frv. Slðan koma dálkar sem sýna stuðning við Jón
meðal stjórnarsinna og stjórnarandstæðinga.
20 HELGARPÓSTURINN