Helgarpósturinn - 02.05.1985, Síða 19
SKOÐANAKONNUN HELGARPOSTSINS
2. Þorsteinn Pálsson
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Al-
þýðuflokksins, er sá íslenzkur stjórnmála-
maður, sem kjósendur treysta bezt til að
stjórna landinu. Þetta kemur fram í skoðana-
könnun Helgarpóstsins, þar sem spurt var:
Hvaða þingmanni eða ráðherra treystir þú
bezt til að stjórna landinu? Jón Baldvin fékk
flest atkvæði í fyrsta sæti af þremur, sem
fólki var gefinn kostur á að raða í, hann fékk
næstflest atkvæði samanlagt, en í heild hlaut
hann flest stig. Fyrir atkvæði í fyrsta sæti
fékk þingmaður eða ráðherra tvö stig, en fyr-
ir atkvæði í annað eða þriðja sæti fékk við-
komandi eitt stig.
Á hæla Jóni Baldvin kom Þorsteinn Púls-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins, stærsta
stjórnmálaflokksins. Hann hlaut næstflest at-
1. Jón Baldvin Hannibalsson
3. Steingrímur Hermannsson
ætla að kjósa Framsóknarflokkinn og hlut-
fallslega meira fylgis en þeir tveir flokksleið-
togar, sem hafa verið nefndir. Sama má segja
um Halldór Ásgrímsson, sem kemur mjög
sterkur út úr þessari könnun almennt, burt-
séð frá fyrirætlunum fólks í kosningum.
Albert Gudmundsson nýtur aðallega fylgis
sjálfstæðismanna, en næsti maður á eftir
honum, Stefán Benediktsson, nýtur meira
fylgis meðal þeirra sem ekki ætja að kjósa
Bandalag jafnaðarmanna. Flokksfélagi hans
Gudmundur Einarsson nýtur hins vegar nær
jafnmikils fylgis þeirra sem ætla að kjósa BJ
og þeirra sem það ætla ekki að gera.
Geir Hallgrímsson fær fylgi sjálfstæðis-
manna að mestu, Jóhanna Sigurdardóttir
fær talsvert meira af Alþýðuflokksfyigi en frá
Hverjum treysta íslendingar best til að stjórna Íslandi?
JÓN\ BALDVIIM
betur treyst en
ÞORSTEIIMI
kvæði í fyrsta sæti, eða 72 atkvæði á móti 78
atkvæðum Jóns Baldvins. Hann fékk samtals
122 atkvæði á móti 119 atkvæðum Jóns, en
að stigum fékk hann 194 á móti 197 stigum
Jóns Baldvins.
í þriðja sæti lenti svo Steingrímur Her-
mannsson með 54 atkvæði í fyrsta sæti, 94
atkvæði alls og 148 stig samanlagt.
Að öðru leyti vísast í töfluna hér á síðunni
með nöfnum þeirra 15 þingmanna og ráð-
herra, sem fengu flest atkvæði og stig.
Ef litið er nánar á þessa töflu kemur margt
eftirtektarvert í ljós. Jón Baldvin Hannibals-
son er formaður stjórnmálaflokks, sem sam-
kvæmt skoðanakönnun HP í síðustu viku um
fylgi flokkanna, nýtur fylgis 22,3% þjóðar-
innar, en Þorsteinn Pálsson lendir rétt fyrir
neðan hann, þrátt fyrir að fylgi Sjálfstæðis-
flokksins sé rösklega 40% samkvæmt sömu
skoðanakönnun. Af útreikningum sést
greinilega, að Jón Baldvin nýtur hlutfalls-
lega allnokkru meira fylgis fólks sem ekki
ætlar að kjósa Alþýðuflokkinn, heldur en
Þorsteinn nýtur utan raða fylgismanna Sjálf-
stæðisflokksins.
Hins vegar nýtur Steingrímur Hermanns-
son mikils fylgis út fyrir raðir þeirra sem
Umsjón Halldór Halldórsson Myndlr Jlm Smart
Þeir sem njóta mests trausts
Fjöldi atkvæða Stig
1. Jón Baldvin Hannibalsson 119 197
2. Þorsteinn Pálsson 122 194
3. Steingrímur Hermannsson 94 148
4. Albert Guðmundsson 64 98
5. Halldór Ásgrímsson 63 93
6. Svavar Gestsson 53 83
7. Sverrir Hermannsson 30 40
8. Stefán Benediktsson 30 38
9. Geir Hallgrímsson 28 38
10. Jóhanna Sigurðardóttir 20 24
11. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir 20 24
12. Friðrik Sophusson 20 23
13. Guðmundur Einarsson 17 20
14. Kjartan Jóhannsson 15 20
15. Helgi Seljan 13 20
SKÝRING
Fjöldi: Fjöldi þeirra einstaklinga sem tilgreina tiltekinn stjórnmálamann, þe. fjöldi atkvæöa.
Stig: Stigin eru reiknuð þannig út, aö fyrir 1. sæti eru gefin tvö stig en fyrir 2. og 3. sæti er gefiö eitt stig fyrir
hvort sæti.
fólki sem ætlar að kjósa aðra tlokka og Sig-
rídur Dúna Kristmundsdóttir fær örlitlu
meira af Kvennalistafylgi en frá öðrum, Frid-
rik Sophusson fær mestmegnis sjálfstæðis-
fylgi, Kjartan Jóhannsson nær eingöngu
kratafylgi, en atkvæðin á 15. manninn skipt-
ast jafnt á milli kjósenda Alþýðubandalags-
ins og annarra flokka.
Vitaskuld er ýmsum annmörkum háð að
leiða getum að því hvers vegna nákvæmlega
þessar 15 manneskjur komust á listann yfir
þá 15 þingmenn sem þjóðin treystir bezt til
að stjórna landinu. Hins vegar segja nöfnin
talsvert.
Þarna eru t.d. formenn allra gömlu flokk-
anna fjögurra, þ.e. Jón Baldvin, Þorsteinn
Pálsson, Steingrímur Hermannsson og Svav-
ar Gestsson. Allir hafa þeir verið mjög áber-
andi í fjölmiðlum. Þá hefur Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir komið mikið fram í sjón-
varpi fyrir hönd Kvennalistans og Guðmund-
ur Einarsson fyrir hönd Bandalags jafnaðar-
manna sem formaður þingflokks. Þá hafa
ráðherrarnir á listanum allir verið talsvert
fjölmiðlatíðir, eins og Sverrir Hermannsson,
Geir Hallgrímsson, Albert Guðmundsson og
Halldór Asgrímsson. Þarna eru tveir varafor-
HELGARPÖSTURINN 19