Helgarpósturinn - 02.05.1985, Qupperneq 22
HELGARDAGSKRAIN
Föstudagur 3. maí
19.15 Á döfinni.
19.25 Krakkarnir I hverfinu.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.40 Toots. Þýsk heimildar- og tónlistar-
mynd um belgíska munnhörpuleikar-
ann Jean Babtiste Thielemans en sér-
grein hans er djass.
21.25 Baráttan við heróínið. Ný bresk
heimildarmynd um aukna heróín-
neyslu ungs fólks í Bretlandi.
22.20 Aðeins það besta. Bandarísk bíó-
mynd frá 1951. Leikstjóri: Michael
Gordon. Aðalhlutverk: Susan
Hayward, Dan Daily, George Sanders
og Sam Jaffe. Myndin er um unga
sýningarstúlku sem stofnar eigið
tískuhús og setur markið hátt.
23.50 Fréttir í dagskrárlok.
Laugardagur 4. maí
16.00 Enska knattspyrnan.
17.00 Iþróttir.
18.15 Fréttaágrip á táknmáli.
18,20 Fréttir og veður.
19.00 Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í
Ivrópu 1985. Bein útsending.
21. #Hótel Tindastóll.
22. Ö0 Heiftarleg ást. Ný sovésk bíómynd
gerö eftir leikriti frá 19. öld eftir Alex-
ander Ostrovski. Leikstjóri Eldar
Rjasanof. Aðaíhlutverk: Larisa
Gúseéva, Alisa Freindlih, Níkíta
Mihalkof, Ljúdmíla Gúrtsénko og
Andrei Mjahkof. Söguhetjan er ung
og falleg stúlka af góðum ættum en
févana. Hún á ekki margra kosta völ
þar sem enginn er heimanmundurinn
en ekki skortir hana þó aðdáendur.
00.30 Dagskrárlok.
Sunnudagur 5. maí
18.00 Sunnudagshugvekja.
18.10 Húsið á sléttunni.
19.50 Fróttaágrip á táknmáli.
20.QQ Fróttir og veður.
20.40 Sjónvarp næstu viku.
20.55 Islenskur heimsborgari — fyrri
hluti. Kristján Albertsson segir frá
uppvaxtarárum í Reykjavík og kynn-
um sínum af skáldum og listamönn-
um heima og erlendis á fyrstu áratug-
um aldarinnar.
21.55TÍI þjónustu reiðubúinn.
22.45 Áfangastaðir í Portúgal. Þýsk
heimildarmynd um Algarveströndina,
þjóðgaröa, náttúruverndarsvæði og
aðra fagra staði í Fbrtúgal og á eyjun-
um Madeira og Porto Santo.
23.50 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 2.maí
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfróttir.
19.50 Daglegt mál.
20.00 Hvískur.
20.30 Ungir maídagar. Umsjón: Sverrir
Páll Erlendsson.
21.30 Píanótónleikar í útvarpssal.
22.00 ,,Söngvarinn úr Svarthamri",
smásaga eftir Vilhjálm S. Vil-
hjálmsson, Þorbjörn Sigurðsson les.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
22.35 Fimmtudagsumræðan. Umsjón:
Ævar Kjartansson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur 3. maí
07.00 Fréttir.
08.00 Fréttir.
09.00 Fréttir.
09.05 Morgunstund barnanna.
09.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.45 ,,Mór eru fornu minnin kær"
(RÚVAK).
11.15 Morguntónleikar.
12.20 Fróttir.
14.00 ,,Sælir eru syndugir" eftir W.D.
Valgarösson. Guðrún Jörundsdóttir
byrjar lestur þýðingar sinnar.
14.30 Á lóttu nótunum.
16.00 Fréttir.
16.20 Síðdegistónleikar.
17.00 Fróttir á ensku.
17.10 Síödegisútvarp.
18.45 Veöurfregnir.
19.00 Kvöldfróttir.
19.55 Daglegt mál.
20.00 Lög unga fólksins.
20.40 Kvöldvaka.
21.30 Frá tónskáldum. Atli Heimir Sveins-
son kynnir sex lög eftir Hjálmar H.
Ragnarsson við Ijóð Stefáns Harðar
::Grímssonar.
22.00 ,,Óðurinn um oss og börn vor".
Ill Hjalti Rögnvaldsson les Ijóðaflokk eft-
ir Jóhannes úr Kötlum.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
22.35 Úr blöndukútnum (RÚVAK).
23.15 Á sveitalfnunni (RÚVAK).
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Laugardagur 4. maí
07.00 Fréttir.
08.0Q:Fréttir.
08.30 Forustugr. dagbl. (útdr.).
00.00 Fréttir.
09.30 óskalög sjúklinga (10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir).
11.20 Eitthvað fyrir alla.
12.20 Fróttir.
13.40 Iþróttaþáttur.
14.0Q Hór og nú.
15.15 Listapopp.
16#Ö Fréttir.
16.20 íslenskt mál.
16.30 Bókaþáttur.
1710 Fróttir á ensku.
17.15 Á óperusviðinu.
18.15 Tónleikar.
18.45 Veðurfregnir.
19,00 Kvöldfróttir.
19.35 Þetta er þátturinn. Umsjón: örn
Árnason og Sigurður Sigurjónsson.
20.00 Útvarpssaga barnanna: Gunn-
laugs saga ormstungu.
20.20 Harmonikuþáttur.
20.50 ,,En á nóttunni sofa rotturnar".
Tvær þýskar smásögur eftir Elísabeth
Langgásser og Wolfgang Borchert í
þýðingu Guðrúnar H. Guðmunds-
dóttur og Jóhönnu Einarsdóttur. les-
arar: Guðbjörg Thoroddsen og Viöar
Eggertsson.
21.35 Kvöldtónleikar. Þættir úr sígildum
tónverkum.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
22.35 Skyggnst inn í hugarheim og
sögu Kenya. 1. þáttur: Skúli Svavars-
son segir frá og leikur þarlenda tón-
list.
23.15 Hljómskálamúsík.
24.00 Miðnæturtónleikar.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Sunnudagur 5. maí
08.00 Morgunandakt.
08.10 Fréttir.
08.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.)
08.35 Létt morgunlög. Hljómsveit Ríkis-
óperunnar í Vín leikur; Leo Gruber
stjórnar.
09.00 Fréttir.
09.05 Morguntónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
Val Elísarbetar Erlingsdóttur
sópransöngkonu
„Yfirleitt hef ég útvarpiö ekki í gangi nema þegar ég er að hlusta á ein-
hvern sérstakan dagskrárlið.Og þá hlusta ég líka. Rás 2 hlusta ég ekki á,
hef bara ekki þörf fyrir það. Rás 1 nægir mér.
Eg geri fastlega ráð fyrir að horfa á föstudagsbíómyndina og varla fer
ég að sleppa rússnesku myndinni á laugardagskvöldið. En ég hlakka
mest til að horfa á viðtalsþáttinn „íslenskur heimsborgari". Hann verður
áreiðanlega mjög fróðlegur og skemmtilegur. Á föstudagskvöldið kýs ég
fremur að hlusta á kvöldvökuna en að horfa á sjónvarpið. Þá er á dag-
skránni eftirtektarverður þáttur sem Atli Heimir Sveinsson stjórnar og
ég vel einnig að hlusta á Ijóðaupplestur, enda hef ég ákaflega gaman af
ljóðum og Ijóðalestri. Yfirleitt allir þættir um íslenskt mál finnst mér
áhugaverðir. Eg ætla að hlusta á flutning tveggja smásagna á laugardag-
inn og e.t.v. að horfa á sölngvakeppnina með öðru auganu. Á laugar-
dagsmorgun er yndislegt að vakna við fallega, klassíska tónlist. Kotru
Signýjar Pálsdóttur hyggst ég hlusta á. Útvarpsfréttir eru ómissandi.
10.25 Stefnumót við Sturlunga.
11.00 Messa í ölduselsskóla.
Hádegistónleikar.
12.20 Fróttir.
13.30 ,,Að berja bumbur og óttast ei".
Þáttur um gagnrýnandann og háð-
fuglinn Heinrich Heine í umsjón Arth-
úrs Björgvins Bollasonar og Þrastar
Ásmundssonar.
14.30 Miðdegistónleikar. Klarinettukvint-
ett í A-dúr K.581 eftir Wolfgang
Amadeus Mozart. Sabine Meyer leik-
ur á klarinettu með Fflharmoníukvart-
ettinum í Berlín.
15.10 Allt í góðu.
16.00 Fréttir.
16.20 Um vísindi og fræði. Geimgeislar.
Dr. Einar Júlíusson flytur sunnudags-
erindi.
17.00 Fróttir á ensku.
17.05 Með á nótunum. Spurningakeppni
um tónlist.
18.05 Á vori.
18.36 Tónleikar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19:35 Fjölmiðlaþátturinn.
20.00 Um okkur.
20.50 Islensk tónlist.
21.30 Útvarpssagan.
22.0Q|pónleikar.
22JfiWeðurfregnir. Fréttir.
22 35 Kotra (RÚVAK).
23,05 Djassþáttur.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur 2. maí
20.00-21.00 Vinsældalisti hlustenda rás-
ar 2.
21.00-22.00 Þriðji maðurinn.
22.00-23.00 Rökkurtónar.
23.00-24.00 Gullhálsinn. Annar þáttur af
sex þar sem er rakinn ferill Michael
Jackson.
Föstudagur 3. maí
10.00-12.00 Morgunþáttur.
14.00-16.00 Pósthólfið.
16.00-18.00 Léttir sprettir.
Þriggja mínútna fréttir klukkan: 11.00,
15.00, 16.00, og 17.00.
23.15-03.00 Næturvaktin.
Laugardagur 4. maí
14.00-16.00 Lóttur laugardagur.
16.00-18.00 Milli mála.
24.00-00.45 Listapopp.
00.45-03.00 Næturvaktin.
Sunnudagur 5. maí
13.30-15.00 Krydd í tilveruna.
15.00-16.00 Tónlistarkrossgátan.
16.00-18.00 Vinsældalisti hlustenda rás-
ar 2.
eftir Halldór Halldórsson
ÚTVARP
Markús hreinsar til
eftir Ingólf Margeirsson
SJONVARP
Sumarandlát
Eins og íslenzkir sjónvarpsáhorfendur
hafa fengið að sjá er svona uppi og ofan
með gæði bandarísks sjónvarpsefnis, sem
boðið er upp á í íslenzka sjónvarpinu. Sumt
er mjög gott, fleira slæmt. Hins vegar berst
okkur aldrei, eða svo gott sem, fréttaefni
eða fréttaþættir frá Bandaríkjunum. Þar er
úrvalsefni á ferð, en að sjálfsögðu tíma-
bundið og því á það síður erindi við ís-
lenzka sjónvarpsáhorfendur.
En við höfum okkar Kastljóssþætti, sem
samkvæmt hlustendakönnun Ríkisút-
varpsins njóta mjög mikilla vinsælda, og á
það bæði við um innlendu Kastljósin og
þau erlendu. Fréttaefni er vinsælt efni,
enda yfirleitt vel úr garði gert hjá Sjónvarp-
inu. Þess vegna sætir það alltaf jafnmikilli
furðu, þegar framleiðsla innlendra Kast-
ljóssþátta um erlend og innlend málefni
dettur niður á sumrin.
í fyrrakvöld var einmitt síðasti Kastljóss-
þáttur vetrarins, og þar með sá síðasti
þangað til sá næsti kemur á skjáinn ein-
hvern tíma í haust. Sjónvarpið er þjónustu-
stofnun í harðri samkeppni við kvik-
myndahús, vídeómyndir, útvarp o.fl. Stofn-
uninni ber nánast skylda til þess að sinna
þeim mikla fjölda áhorfenda sem leggur
sig í líma við að fylgjast með fréttaskýr-
ingaþáttum, þar sem farið er ofan í saum-
ana á málum og reynt að brjóta til mergjar
daglegar erlendar eða innlendar fréttir
sem þarfnast nánari skýringar og túlkunar
en fréttatímarnir sjálfir rúma. Þessi furðu-
lega trú, að þjóðin leggist í einhvers konar
dvala yfir sumartímann, er ekki bara skrýt-
in; hún er stórfurðuleg.
Spurningin snýst fyrst og síðast um þetta:
Ef Sjónvarpið telur ástæðu til þess að halda
úti fréttaskýringaþáttum á veturna, hvers
vegna eru þá fréttaskýringar og nánari um-
fjöllun óþörf á sumrin?
Maður veit svo sem hvernig þessu verður
svarað. Svarið verður, að vegna skorts á
tæknimönnum sé nauðsynlegt að draga
saman seglin og því sé gert ráð fyrir um-
ræðuþáttum á þriðjudögum. Hins vegar
verður ekkert hægt að gera í þessum þátt-
um annað en að draga fólk inn í stúdíó og
láta það mala. Þessir þættir verða ekki
„pródúseraðir" eða unnir á annan hátt
með viðtölum og samklippingum.
Þetta er mjög slæmt.
En það verður fleira slæmt í sumar. Fyrir-
hugað er að senda allar fréttir Sjónvarpsins
út úr litlu lesstúdíói, sem er á sömu hæð og
fréttastofan, og mun það hafa í för með sér,
að fréttaútsendingarnar verða naumast
sendar út í beinni útsendingu. Allt efni
verður tilbúið klukkustund eða svo fyrir út-
sendingu og þulur kynnir og les á milli.
í sumar deyr þetta daglega lifandi sjón-
varp, sem við fáum þó að njóta yfir vetr-
armánuðina. Það verður auðvelt fyrir Rolf
og félaga að sigra í samkeppni við RÚV við
þessar aðstæður!
Á sunnudagskvöld birtist útvarpsstjóri
nokkuð óvænt á sjónvarpsskerminum eftir
fréttatíma og ávarpaði þjóðina stutta stund.
Meginboðskapur Markúsar Arnar var að
mikið og gott efni fengist frá Ríkisútvarpinu
fyrir lítinn pening. í framhaldi af afnota-
Markús hefur lofaö að bretta upp ermarnar.
gjöldunum kom síðan útvarpsstjóri inn á
skoðanakönnunina sem gerð var meðal
landsmanna á dögunum og tilkynnti alþjóð
að dagskrárgerð í náinni framtíð myndi taka
mið af niðurstöðum könnunarinnar.
Þetta eru gleðifréttir. Nú fáum við væntan-
lega að sjá meira af innlendu efni í Sjónvarp-
inu, eins og áhorfendur hafa beðið um, og
töluverðar vorhreingerningar hljóta að standa
fyrir dyrum á báðum rásum Útvarpsins. En
hvað verður Markús að gera til að koma til
móts við hlustendur? Könnunin sýnir að
landsmenn hlýða aðallega á fréttir og morg-
unútvarp á rás 1. Hlustunin er hins vegar
miklu jafnari á rás 2. Þegar einstakir dag-
skrárliðir eru athugaðir, kemur í ljós að tón-
leikahaldið á rás 1 ersokkið niður í 4—6% en
á sama tíma hlusta 25% á rás 2. Sömu sögu
er að segja af ýmsum öðrum þáttum á rás 1;
þegar rás 2 sendir út, hrapar hlustunin niður
úr öllu valdi. Það er því ljóst, að útvarpsstjóri
þarf litlar áhyggjur að hafa af rás 2, stöðin er
búin að sanna tilverurétt sinn og vinsældir,
og nú þarf aðeins að fínpússa dagskrána.
Fréttasendingar eru þegar hafnar og nú
mætti setja aðeins uppbyggilegri grind
kringum einstaka tónlistarþætti, og fá meiri
fjölbreytni í dagskrána í heild. Markús þarf
jjví fyrst og fremst að snúa sér að rás 1. Hann
verður að gera einstaka dagskrárstjóra
ábyrga fyrir efni deilda sinna og byrja á því
að kalla dagskrárstjóra og tónlistarstjóra inn
á teppið. Það verður að hætta öllu áhuga-
mannastarfi í dagskrárgerð; fá hæft fólk til
að gera góða þætti og borga því vel. Deildar-
stjórarnir verða einnig að vera vakandi fyrir
nöfnum og hugmyndum í stað þess að bíða
þess á kaffistofunni að einhver droppi inn
með góða hugmynd. Leitið og þér munuð
finna! Þá þarf að stórauka alla kynningu á
dagskrárliðum rásar 1, t.d. með því að skjóta
inn í stuttum, samklipptum kynningum úr
efni einstakra þátta sem á döfinni eru. Verk-
efnin eru mörg fyrir Markús. Hann hefur Iof-
að að bretta upp ermarnar. Við fylgjumst
spennt með.
22 HELGARPÓSTURINN