Helgarpósturinn - 14.11.1985, Qupperneq 2
ÚR JÖNSBÓK
Frá landsfundi Samtaka um verndun Fjalakattarins
eftir Jón Örn Marínósson
Landsfundur Samtaka um verndun Fjalakattarins hófst með því að landsfundarfull-
trúar hvísluðust á í anddyrinu á Alþýðubíó, tókust í hendur og brostu hver til annars
líkt og kraftakarlarnir í Laugardalshöll áður en þeir byrjuðu að brjóta hver annan til
mergjar. Þetta var indæl samverustund og mikið hvíslast á. Til að veita fjölmiðlum
nokkra innsýn í fjöldafylgi samtakanna höfðu landsfundarfulltrúar dregið með sér á
setninguna maka sína, nauðuga viljuga, ástkonur, sambýlinga, börn, tengdabörn,
barnabörn, tengdaforeldra, afa og ömmur, og var svo þéttskipað í anddyrinu að mér
gafst aldrei færi á formanni samtakanna. Ég taldi skynsamlegast að bíða, vöðlaði stál-
vírnum saman, faldi hann inni í skýrslunni frá starfsháttanefnd og bauð gott kvöld
í þann mund sem Ijósmyndari samtakablaðsins smellti skoti af mér og formanninum.
Ljósmyndin birtist á forsíðu daginn eftir.
Svo virðist af myndinni sem við séum að
hvfslast á, en sú var ekki raunin; ég var
einungis að kanna — með því að hlusta
eftir andardrætti formanns — hvort hann
væri „nervös" og grunaði eitthvað. Ég er
brosandi á myndinni fyrir þá sök eina að
mig kitlaði í hlustina eftir að formaður
hafði hvíslað að mér síðustu hugdettu
sinni um mótleik gegn andófshópnum.
Að afstöðnum brosum, handaböndum
og hvíslingum í anddyrinu var gengið í
salinn og til dagskrár. í setningarræðu
sinni lagði formaður áherslu á virka lýð-
ræðislega valddreifingu innan Samtak-
anna um verndun Fjalakattarins, en gat
þess jafnframt að hann hefði ákveðið, ef
upp kæmi ágreiningur, að takmarka at-
kvæðisrétt við þá sem væru sömu skoð-
unar og hann sjálfur. Formaður snerti
ekki vatnsglasið, sem var í púltinu hjá
honum, en þjóðkunnur leikari að lesa
Ijóð eftir Jóhannes úr Kötlum í næsta at-
riði drakk tvisvar af glasinu og liggur enn
á milli heims og helju. Þeir sem vilja hug-
myndafræðilega nýsköpun geta ekki æv-
inlega við öllu séð. Þegar menn höfðu
rogast með leikarann út af sviðinu, var
sýndur gamanþáttur þar sem skopast var ótæpilega að sundrungu og átökum í öðr-
um samtökum. Vakti hann mikla kátínu í röðum okkar landsfundarfulltrúa. Að því
búnu var orðið gefið frjálst og allir fóru að hvíslast á, uns eyru manns voru orðin heit,
rök og rauðþrútin af baktjaldaumræðum, og var þá störfum landsfundar frestað til
næsta morguns.
Efnt var til leynifunda þá um nóttina. Formaður hélt austur í bæ að leggja á ráðin
með verkalýðsarminum gegn gömlu forystunni og brá sér þaðan í Þingholtin að
leggja á ráðin með gömlu forystunni gegn andófshópnum, en áður hafði gamla for-
ystan setið bak við byrgða glugga með andófshópnum og lagt á ráðin gegn formann-
inum, sem fór sjálfur undir morgun að leggja á ráðin með andófshópnum gegn verka-
lýðsarminum. Við í baráttukjarnanum veltum málum fyrir okkur alla nóttina og urð-
um að semja nýja áætlun þar sem ég hafði gloprað niður stálvírnum úr skýrslu starfs-
háttanefndar. Var það sameiginleg niðurstaða okkar að ásýnd samtakanna yrði ekki
breytt nema með rakhníf. Að vísu hefðu Marx og Lenín (og Trotskí hvíslaði einhver)
borið skegg, en sögulegar aðstæður hefðu breyst og ásýnd samtakanna yrði að gefa
sterklega til kynna að samtökin væru einnig samtök skeggleysingja. Var jafnframt
bent á að Gorbatsjoff væri skegglaus samkvæmt hinni nýju línu, en hin sögulega hefð
væri varðveitt á vöngum Alþýðusambandsforseta.
Störfum á landsfundi Samtaka um verndun Fjalakattarins var svo haldið áfram
næsta dag. Skýrsla starfsháttanefndar var tekin til umræðu og hver einasti maður
sammála niðurstöðu nefndarinnar að samtökin væru liðónýt og til einskis megnug
undir stjórn núverandi formanns. For-
maður þakkaði nefndinni vel unnin störf
og taldi brýnt að leita úrbóta. Samþykkt
var að stefna að lýðræðislegri vald-
dreifingu og koma á fót undir eftirliti for-
manns fjörutíu og þremur samvirkum
stofnunum innan samtakanna þar sem
ávallt væri heitt á könnunni ef hinn
óbreytti liðsmaður skyldi reka inn nefið
til þess að athuga hvað væri á seyði.
Þá var gengið til kosninga á yfirstjórn.
Líkt og annars staðar, þar sem stefnt hef-
ur verið að lýðræðislegri valddreifingu
síðan 1917, var formaðurinn einn í kjöri
og menn minntir á að gæta félagslegra
vinnubragða og sýna æðstu markmið-
um samtakanna fulla hollustu. Kosning
var leynileg og þess beðið með eftir-
væntingu hverjir þyrðu að vera á móti.
Formaður þakkaði síðan traust og stuðn-
ing landsfundarfulltrúa. Nú hefðu sam-
tökin kjörið sér „hamar" en vantaði
„sigðina". Þótti mörgum okkar sjálfsagt
að klekkja á formanni með því að taka
hann á orðinu og þarf ekki að orðlengja
frekar um kjör varaformanns sem fór
mjög friðsamlega fram í skugganum af
yfirvofandi landsfundarfagnaði. Að því
búnu hættu landsfundarfulltrúar að hvíslast á og fóru að kyssast og skála fyrir tíma-
mótaáfanga í innri starfsemi samtakanna.
Stefnuskrá samtakanna var samþykkt samhljóða á örstuttum framhaldsfundi dag-
inn eftir. Voru menn harla ánægðir með ásýnd samtakanna þrátt fyrir nokkrar menjar
um vináttuskálarnar kvöldið áður. Þótti stefnuskráin harla góð, einkanlega þar sem
lögð er áhersla á það meginmarkmið Samtakanna um verndun Fjalakattarins að
stuðla að verndun Fjalakattarins. Frá þessu sögulega hlutverki sínu mættu samtökin
aldrei hvika og aldrei missa sjónar á gildi gamalla minja þrátt fyrir stundarátök um
innri málefni, sagði formaður og bauð síðan landsfundarfulltrúum niður í Aðalstræti
að skoða Fjalaköttinn.
Nú vill bankaráð Útvegsbankans fá skýr svör:
BLEKKTI HAFSKIP
ÚTVEGSBANKANN?
„Tvær útgáfur um stöðuna í gangi/7 segir bókarinn
Bankaráðið vill fá upplýsingar um þátt Alberts
Helgarpósturinn hefur það eftir
áreiðanlegum heimildum, að Haf-
skip hafi vísvitandi blekkt Útvegs-
bankann um stöðu fyrirtækisins um
langa hríð. Þetta mun hafa verið
gert með þeim hætti, að fyrirtækið
hafði í gangi tvær útgáfur af fjár-
hagsstöðu Hafskips, aðra rétta til
nota innan fyrirtækis, hina falsaða,
sem sýnd var lánardrottninum Út-
vegsbankanum. „Við erum með tvö
„sett“ í gangi," er haft eftir Sigurþór
Guðmundssyni aðalbókara fyrir-
tækisins.
Á fundi í bankaráði Útvegsbank-
ans á þriðjudag var lögð fram skrif-
leg skýrsla um Hafskipsmálið og
viðskipti bankans við fyrirtækið.
Þrátt fyrir að þetta mál hafi verið til
umfjöllunar í ráðinu frá því HP opn-
aði það í byrjun júní í sumar, mun
bankaráðsmönnum hafa brugðið
illilega og orðið náhvítir yfir sann-
leika málsins, þegar hann lá fyrir út-
málaður með skiljanlegu orðalagi.
í umræðum bankaráðsmanna
komu fram efasemdir um, að Haf-
skip hefði veitt bankanum réttar
upplýsingar og raddir voru uppi um
það, að forráðamenn Hafskips
hefðu blekkt Útvegsbankann.
Þá var ræddur þáttur Alberts Guð-
mundssonar fyrrverandi fjármála-
ráðherra, semvar samtímis formað-
ur bankaráðs Útvegsbankans og for-
maður stjórnar Hafskips. Allar líkur
eru á því, að í bankaráðinu verði
óskað sérstaklega eftir upplýsingum
um lánaviðskipti bankans og Haf-
skips og öðru fjárstreymi á því tíma-
bili, sem Albert var bankaráðsfor-
maður.
Útvegsbankinn beitti sér fyrir við-
ræðum Hafskipsmanna og Eim-
skips, en nú hefur slitnað upp úr
þeim. Útvegsbankastjórn heldur þó
málinu vakandi enda gæti þetta mál
riðið bankanum að fullu. Litlar líkur
eru taldar á því, að samningar takist
um yfirtöku Eimskips. Ef það verður
niðurstaðan tapar Útvegsbankinn
hátt í 700 milljónir króna. En ef von-
ir bjartsýnustu manna rætast um
samninga, þá gæti tap bankans
hugsanlega dottið niður í 200—300
milljónir króna. Og hvernig sem fer,
er víst, að ríkissjóður verður að
pumpa hundruðum milljóna inn í
Útvegsbankann. Hins vegar spilar
hér inn í hugsanleg sameining Út-
vegsbankans og Búnaðarbankans.
Eins ogstaðan er í dag, er samnings-
staða Útvegsbankans í þessu sam-
hengi harla slök.
Valdimar Indriðason, formaður
bankaráðsins og þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, mun vera harla
þungur á brún þessa dagana og á
erfitt með að leyna reiði sinni yfir
stjórnun bankans. Enda má svo sem
segja, að það sé ekkert skrýtið, að
bankaráðsformaðurinn sé óhress
með að Útvegsbankinn hafi tekið
gild veð upp á sjö milljónir dollara,
sem í raun reyndust ekki nema
tveggja^ og hálfrar milljón dollara-
virði. Útvegsbankinn lét plata sig
um 180 milljónir íslenskra króna í
þessu dæmi.
Bankaráö Útvegsbankans hefur tekið af sér silkihanskana ( Hafskipsmálinu. Nú vill
bankinn skýr svör við því hvers vegna stór hluti af ráðstöfunarfé bankans var settur í
sökkvandi fyrirtæki. Og hver þáttur Alberts Guðmundssonar, fyrrverandi stjórnar-
formanns Hafskips og formanns bankaráðs Útvegsbankans á sama tíma, var í því máli.
HELGARPÚSTURINN
Slitra úr landsfundi
Öldruð pólí-tíkó tík
tölti þar til grafar.
Var í einu ekkja, lík
og útfararstjóri Svavar.
Niðri.
2 HELGARPÓSTURINN