Helgarpósturinn - 11.09.1986, Qupperneq 8
hér fyrir sunnan og á hlutabréf og
eignir víðar.
I apríl fór Gunnar Óskarsson, hjá
Fjárfestingafélaginu, út til Spánar til
þess að leggja mat á Soumi Sun
Spain. Niðurstaða hans var sú að
hér væri um mjög stöndugt og
áreiðanlegt fyrirtæki að ræða. Ferð
Gunnars til Spánar mun hafa verið
liður í samningum þeirra Guðmund-
ar og Páls en Guðmundur hafði á
prjónunum að nýta þjónustu félags-
ins ef hann gengi til samstarfs við
Pál.
Þegar Guðmundi varð ljóst að
Páll hafði undir höndum traust um-
boð færðist meiri alvara í samning-
ana. Páll var kominn í algert þrot,
hafði haft umtalsvert fé af viðskipta-
vinum sínum, framið alvarlega
glæpi og var auk þess kominn út úr
húsi í flestum bankastofnunum hér
heima. í samtali við HP sagðist hann
hafa bundið vonir við að með því að
halda áfram rekstri gæti honum
áskotnast fé tii þess að endurgreiða
því fólki sem hann hafði svikið og
komið þannig í veg fyrir að upp um
brot hans kæmist.
Þeir Guðmundur og Páll stofnuðu
síðan hlutafélagið Orlofsferðir h/f
ásamt fjölskyldum sínum þann 23.
maí 1986. Páll var skráður fyrir 500
þús. kr. hlut og eiginkona hans, Jó-
dís Runólfsdóttir, fyrir öðrum 500
þús. kr. Guðmundur var skráður fyr-
ir 400 þús. kr. hlut, eiginkona hans,
Svaua Gísladóttir, sömuleiðis og
sonur Guðmundar, Guðmundur
Rafn Guðmundsson, var skráður
fyrir 200 þús. kr. hlut. Á stofnfundin-
um var samþykkt að taka tilboði
Umboðsskrifstofunnar, Síðumúla 4,
en í nafni hennar hafði Páll stundað
viðskipti sín, um kaup á skrifstofu-
áhöldum og tækjum, ásamt umboð-
um og viðskiptavild þar að lútandi.
Kaupverðið var 1,5 milljónir kr. í
samþykktinni er tekið fram að ,,all-
ar skuldir bæði beinar og óbeinar
sem stofnað hefur verið til til stofn-
setningar og reksturs „Umboðs-
skrifstofunnar Síðumúla 4“ séu með
öllu óviðkomandi Orlofsferðum h/f
svo og allar kröfur frá viðskiptavin-
um eða óuppfylltar skuldbindingar
gagnvart viðskiptavinum Umboðs-
skrifstofunnar. Einnig kröfur er
kunna að koma frá þeim síðar".
FARIÐ í KRINGUM
GJALDEYRISLÖG-
GJÖFINA
Fljótlega eftir stofnun Orlofsferða
h/f var farin kynnisferð með 5
manns til Spánar og um miðjan júlí
var farin önnur ferð og þá með 15
manns. Eftir þessar ferðir sýndu átta
aðilar áhuga á kaupum á húsum,
ýmist félagasamtök eða einstakling-
ar.
Þrátt fyrir ákvæðið í gjaldeyris-
lögunum um að félagasamtök með
fleiri félagsmenn en 50 væru einu
aðilarnir er heimild höfðu til kaupa
á fasteignum erlendis stóð það ekki
í vegi fyrir því að einstaklingar
keyptu sumarhús, hvorki af Páli né
Orlofsferðum h/f. Sumir þessara
einstaklinga fengu starfsmannafé-
lög eða fagfélög sem þeir voru í til
þess að gerast leppar og aðrir stofn-
uðu félög gagngert til þess að kom-
ast í gegnum síu laganna. Þannig
hefur HP heimildir fyrir því að veit-
ingamaður í Kópavogi lét liggja á
barborðinu hjá sér félagaskrá sem
gestir og gangandi skrifuðu sig í,
framkallaði síðan stjórnarfund sem
samþykkti fasteignakaup á Spáni og
fékk með því gjaldeyrisyfirfærslu í
Seðlabankanum. Ekki er ólíklegt að
slíkt teldist vera fyrir dómstólum
málamyndagerningur gagngert
framkvæmdur til þess að komast
framhjá lögunum. HP hefur einnig
heimildir fyrir því að einir þrír ein-
staklingar hafi lagt inn fyrirfram-
greiðslur og skuldabréf sem trygg-
ingu fyrir kaupum á sumarhúsum
hjá Orlofsferðum h/f án þess að
bera fyrir sig félagasamtök.
UMBOÐSMANNINUM
SPARKAÐ
Eftir stofnun Orlofsferða h/f hófu
þeir Páll og Guðmundur að semja
við Fjárfestingafélagið um sölu á
skuldabréfum viðskiptavina sinna
og veittist þeim það létt þar sem
Guðmundur hafði þar góð sam-
bönd. Gunnar Óskarsson hafði sem
áður sagði gert úttekt á Soumi Sun
Spain og nú kom hann með tillögur
um leiðir til fjármögnunar fyrir við-
skiptavini Orlofsferða h/f. Hug-
mynd hans að kaupleigusamningi
sem í raun hefði þýtt um 30% vexti
umfram verðbætur fyrir kaupand-
ann var hafnað bæði af kaupendum
og Orlofsferðum. Önnur leið var
notuð í nokkrum sölusamningum
og hún fólst í því að Fjárfestingafé-
lagið tók til sölu bréf með jöfnum
mánaðargreiðslum til þriggja ára
fyrir nær öllu kaupverði húsanna.
Þessi bréf voru seld með miklum af-
föllum og greiddu því kaupendur
sumarhúsanna mun hærra verð fyr-
ir þau en áður.
í kynningarferðinni til Spánar um
miðjan júlí dró síðan til tíðinda.
Þann 17. júlí voru Guðmundur og
Páll kallaðir á fund á skrifstofu
Soumi Sun Spain. Þar var Páll yfir-
heyrður um skil á greiðslum og þeg-
ar fátt varð um svör var hann látinn
skrifa undir plagg þar sem hann
lagði íbúð sína að veði fyrir að þess-
ar greiðslur bærust til Soumi Sun
Spain. í samtali við HP sagði Guð-
mundur að á þessum fundi hefði
hann fyrst komist að hinum stór-
felldu svikum Páls. Eftir undirskrift
yfirlýsingarinnar gekk Páll af fundi.
Að sögn Guðmundar buðu forsvars-
menn Soumi Sun Spain honum þá
umboð þeirra á íslandi sem hann og
þáði.
Þegar heim kom hélt starfsemi
Orlofsferða áfram eins og ekkert
hefði í skorist. Páll sá enn um sölu-
málin ásamt Guðmundi Rafni og
þeir gengu í sameiningu frá sölu á 7
húsum til 5 aðila.
PÁLI BOLAÐ ÚR
ORLOFSFERÐUM
Þann 5. ágúst boðar síðan Guð-
mundur Óskarsson til stjórnarfund-
ar í Orlofsferðum h/f. Auk Guð-
mundar mættu á fundinum Guð-
mundur Rafn, sonur hans, og Páll
Jónsson. Á fundinum samþykktu
þeir feðgar gegn mótatkvæði Páls
að innkalla ógreitt hlutafé Páls og
konu hans, Jódísar Runólfsdóttur,
að andvirði 500 þús. kr. Páli var gef-
inn tæplega þriggja klukkustunda
frestur til þess að skila þessu fé til
félagsins. Yrði hlutaféð ekki greitt
innan þess tíma tæki stjórn félagsins
ákvörðun um það hvort hún nýtti
sér forkaupsrétt sinn á næsta stjórn-
arfundi sem boðað var til daginn eft-
ir. Þá samþykkti fundurinn, og aftur
gegn mótatkvæði Páls, að segja Páli
upp störfum hjá fyrirtækinu vegna
svika er hann hafði beitt viðskipta-
menn sína og Soumi Sun Spain með-
an hann rak umboðsskrifstofu sína.
Páll mótmælti þessari afgreiðslu á
fundinum og óskaði auk þess eftir
því að gögn um sölu Orlofsferða h/f
frá stofnun yrðu lögð fram á næsta
fundi.
Daginn eftir kom í ljós að Páll
hafði ekki lagt andvirði hlutabréf-
anna inn á reikning félagsins og á
fundinum nýttu Guðmundur Ósk-
arsson, eiginkona hans, Svava Gísla-
dóttir og sonur hans, Guðmundur
Rafn, sér forkaupsréttinn á hluta-
bréfunum og voru þau greidd á
fundinum. Þar næst samþykkti
stjórnin áskorun á Pál að selja eftir-
standandi 25% hlut sinn í félaginu
sem fyrst, og enn mótmælti Páll.
PÁLL SVIKINN Á
ENDANUM
Þegar Páll kom á skrifstofu sína á
Laugavegi 28 um morguninn fyrir
seinni fundinn var búið að fjarlægja
þaðan nær öll gögn um viðskipti
hans á tímum Umboðsskrifstofunn-
ar og einnig skjöl er vörðuðu sam-
skipti hans og Guðmundar. Páll
sagðist í samtali við HP ekki vera í
vafa um að þeir feðgar, Guðmundur
og Guðmundur Rafn, hefðu flutt
hans persónulegu gögn á skrifstofu
Guðmundar á Laugavegi 18 aðfara-
nótt 6. ágúst. Samkvæmt heimild-
um HP færði Guðmundur RLR mik-
ið af skjölum úr fórum Páls er hann
var kallaður þangað til yfirheyrslu
vegna kæru Árna Sörenssonar sl.
fimmtudag.
Lögmaður Páls, Hilmar Ingi-
mundarson, sagði í samtali við HP
að sér þætti ekki leika vafi á að Guð-
mundur hefði brotið hlutafélagalög
með því að gefa Páli einungis þrjár
klukkustundir til að greiða innkallað
hlutafé og kaupa hlutabréfin síðan
sjálfur ásamt fjölskyldu sinni er Páll
greiddi þau ekki innan tilskilinna
tímamarka. Þá taldi Hilmar sýnt að
Orlofsferðir h/f hefðu ekki staðið í
skilum við Umboðsskrifstofuna
Síðumúla 4 um kaupverð á skrif-
stofutækjum hennar, umboðum og
viðskiptavelvild en það var metið á
1,5 milljón kr. samkvæmt stofn-
samningi Orlofsferða h/f. Einnig
taldi Hilmar athyglisvert að Guð-
mundur hefði beðið með það í 20
daga að tilkynna Páli að hann væri
ekki lengur umboðsmaður Soumi
Sun Spain á íslandi, heldur hefði
Guðmundur sjálfur tekið við því
starfi. Á þessum tuttugu dögum
gekk Páll frá sölu á 7 sumarhúsum í
nafni Orlofsferða, að því er hann
taldi. Þagar gengið var frá þessum
samningum var hins vegar nafn fyr-
irtækis Guðmundar, G. Óskars-
son, sett á samningana í stað Orlofs-
ferða. Því er hægt að leiða að því lík-
ur að hér hafi Guðmundur hlunnfar-
ið Orlofsferðir um umboðslaun af
þessum sölusamningum. Þá væri
einnig hægt að efast um rétt Guð-
mundar til þess að ieggja hald á
skjöl Páls og umboðsskrifstofu
hans, enda hefði það verið skýrt
tekið fram í stofnsamningi Orlofs-
ferða að sú skrifstofa væri með öllu
óviðkomandi Orlofsferðum.
FJÁRDRÁTTUR ENN OG
AFTUR
Þrátt fyrir að Páli væri vikið frá
störfum hjá Orlofsferðum sveik
hann fé af tveimur aðilum sama
daginn, þann 7. ágúst, í nafni félags-
ins. í annað skiptið tók hann við 300
þús. kr. af manni sem fyrirfram-
greiðslu í sumarhús og í hitt skiptið
tók hann við 160 þús. kr. af Arna
Sörenssyni sem lokagreiðslu í hús
hans en eins og komið hefur fram
var aldrei hafist handa við að byggja
það þar sem Páll hafði í upphafi fals-
að kaupsamninginn en haldið áfram
eftir sem áður að taka við greiðslum
frá Árna. Þetta fé segist Páll síðan
hafa notað til þess að greiða fólki er
hann hafði svikið áður „til þess að fá
það útúr dæminu“ eins og hann orð-
aði það í samtali við HP.
Þegar hér er komið sögu var sag-
an um svik Páls farin að berast milli
viðskiptamanna hans. Þegar þeir
leituðu upplýsinga á skrifstofu G.
Óskarssonar, en Guðmundur hafði
lagt starfsemi Orlofsferða niður
þann 6. ágúst, var þeim bent á að
leita réttar síns hjá lögmanni. Atvik
höguðu því svo að allir nema einn
leituðu ti! Ragnars Aðalsteinssonar
og sem fyrr sagði hóf hann að
kanna hvort ekki væri mögulegt að
gera Soumi Sun Spain ábyrgt fyrir
umboðsmanni fyrirtækisins á ís-
landi og gerðum hans í nafni þess.
Alls voru það 12 aðilar er sneru sér
til Ragnars en sá þrettándi, Árni
Sörensson, leitaði hinsvegar til Jóns
Gunnars Zoéga og hann valdi þann
kost að kæra Pál til RLR.
SVIKU SPÁNVERJARNIR
PÁL?
Samkvæmt upplýsingum sem
Guðmundur Óskarsson veitti HP
nemur sú upphæð sem Páll hefur
fengið hjá viðskiptavinum sínum án
þess að það komi fram í gögnum
Soumi Sun Spain hátt á sjöundu millj-
ón kr. Páll viðurkenndi í samtali við
HP skjalafals og fjárdrátt en neitaði
staðfastlega að sú upphæð sem
hann hefði svikið út úr fólki með
þeim hætti væri hærri en tæpar
þrjár milljónir kr. Hann sagðist hafa
í fórum sínum kvittun frá banka í
Luxemborg fyrir innborgun á 3.600
dollurum, en þá greiðslu hefði
Soumi Sun Spain ekki viðurkennt
að hafa fengið. Hann sagðist einnig
hafa kvittun fyrir greiðslu til fyrir-
tækisins að upphæð 8.000 dollarar
en Soumi Sun Spain neitaði því
sömuleiðis að hafa tekið við þeirri
greiðslu. Páll sagði í samtali við HP
að þar sem hann hefði ekki aðgang
að skjölum sínum og Umboðsskrif-
stofunnar, ætti hann erfitt með að
sanna sitt mál en hann sagðist vera
þess fullviss að Soumi Sun Spain,
með eða án vitorðs Guðmundar
Óskarssonar, væri að auka við það
fúafen sem hann hafði gert úr við-
skiptum sínum.
Nokkrir af viðskiptavinum Páls
sem HP ræddi við tóku undir þessi
orð Páls og einn þeirra taldi sig hafa
undir höndum telex-skeyti er sann-
aði að Soumi Sun Spain hefði skuld-
fært umboðslaun Páls á reikning
sinn eftir að fyrirtækið hafði sagt
honum upp sem umboðsmanni.
MÖGULEIKAR Á
ENDURGREIÐSLU
Ef þessar fullyrðingar reynast
sémncu- breytist staða fólksins sem svik-
ið var í þessum viðskiptum til mikils
batnaðar. Páll Jónsson er ekki borg-
unarmaður fyrir þeim tæpum þrem-
ur milljónum kr. sem hann segist
hafa svikið út úr viðskiptamönnum
sínum eins og málin standa í dag og
enn síður er hann borgunarmaður
fyrir þeim tæpu sjö milljónum kr. er
Soumi Sun Spain segir hann hafa
dregið sér. Ef hinsvegar tekst að
sanna að Soumi Sun Spain hafi á
einhvern hátt hlunnfarið Pál í þeirra
viðskiptum og þá jafnframt við-
skiptavini hans hérlendis þá hefðu
þeir hinir sömu meiri möguleika á
að fá eitthvað af peningum sínum til
baka.
Páll og lögmaður hans íhuga nú
að stefna Guðmundi Óskarssyni fyr-
ir þau svik sem þeir telja að hann
hafi beitt Pál í viðskiptum þeirra. Ef
forsendur þeirra eru réttar ætti að
fást eitthvert fé sem rynni þá til
þeirra er Páll hefur svikið.
En eins og málin standa í dag er
engin trygging fyrir endurgreiðslu
þeirra tæpu sjö milljóna kr. er svikn-
ar hafa verið út úr 13 kaupendum
sumarhúsa á Spáni önnur en sölu-
verð íbúðar Páls Jónssonar.
Þeir komast lengst með Dunlop.
Útvegum golfkúlur meö nafni þínu
eöa fyrirtækis þíns, DDH500 eða 65 I.
Hámark 21 stafur.
Lágmarkspöntun 3dúsín og gréiðist viö pöntun.
Verð per dúsín 1.829 kr.
Þær pantanir sem eiga aö afgreiðast fyrir
jól þurfa að berast okkur fyrir 27. okt.
>4» /lusturtxikki hf.
Borgartúni 20, sími 28411.
Hverfið „La Chismosa" er viðTorrevieja á Costa Blanca strönd Spánar. Hverfið er sett saman af eínbýlis-, fjórbýlis-og raðhúsum
og þar ereinnig verslunar-og þjónustumiðstöð. Umboðsskrifstofa Ráls Jónssonar og Orlofsferðir hafa selt 25 húsíþessu hverfi
og að auki stóðu tveir einstaklingar lengi í þeirri trú að þeir ættu þar hús. Þeir höfðu greitt þau að fullu en umboðsmaðurinn
hafði dregið sér allt það fé.
8 HELGARPÓSTURINN