Helgarpósturinn - 11.09.1986, Blaðsíða 20
Til ungra
myndlistarmanna
35 ára og yngri
í tilefni af 20 ára afmæli IBM á íslandi, hyggst fyrirtækið
standa fyrir sýningu á verkum ungra myndlistarmanna, 35
ára og yngri.
Yfirskrift sýningarinnar er „Ahrif tölvuvæðingar í 20ár“. I
tengslum við sýninguna hyggst fyrirtækið veita verðlaun
einum listamanni að upphæð kr. 100.000,- og jafnframt
áskilja sér rétt til kaupa á sýningarverkum. Ætlast er til að
send séu inn ekki færri en þrjú verk eftir hvern listamann og
geta þau verið úr hvaða listgrein sem er innan myndlistar-
innar. Miðað er við að verkunum sé skilað inn fyrir
10. janúar 1987 til IBM, Skaftahlíð 24.
Sýningarnefnd skipa:
Gunnar M. Hansson forstjóri, formaður
Daði Guðbjörnsson, myndlistarmaður
Einar Hákonarson, listmálari
Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri
Halldór B. Runólfsson, listfræðingur
SKAFTAHLÍÐ 24 REYKJAVÍK SÍMI 27700
| dag, fimmtudag, hefst fyrir
bæjarþingi Reykjavíkur málflutn-
ingur í skuldastaðfestingarmáli Sig-
ríðar Ingvarsdóttur gegn bræðr-
um sínum Jóni og Vilhjálmi Ingv-
arssyni er ganga undir nafninu Is-
bjarnarhúnarnir. Sigríður telur að
þeir bræður hafi vanefnt greiðslur
samkvæmt samningi er þeir gerðu
við hana til að bæta henni það tjón
er hún varð fyrir eftir að bræðurnir
höfðu kafsiglt ísbirninum, sem
hafði verið stöndugt fyrirtæki er
hún eignaðist 24,5% hlut í því. Upp-
haflega ætluðu bræðurnir að greiða
Sigríði út hlut hennar í ísbirninum
með hlutabréfum í Granda h/f en
hún hafnaði því þar sem hlutabréf í
frystihúsi væru verðlausir pappírar
og hún hefði lítið fengið fyrir þá
annað en svimandi háan eignar-
skatt. Jón Oddsson, lögmaður Sig-
ríðar, hóf því samningaviðræður við
þá bræður um hreinar skaðabætur
og eftir að hann hafði hótað að setja
fjármál og bókhald ísbjarnarins til
endurskoðunar hjá Coopers &
Lybrand sáu bræðurnir þann kost
vænstan að greiða Sigríði um 50
milljónir króna í skaðabætur. Hún
fékk í sinn hlut húseign föður síns,
Ingvars Vilhjálmssonar í Skild-
inganesi, lausafé og hlutabréf í
nokkrum af þeim fyrirtækjum er ís-
björninn hafði átt hlut í, m.a. í
Hampiðjunni. Sigríður teiur að
hún eigi að fá bréf í Hampiðjunni að
nafnverði 950 þús. kr. sem með út-
gáfu jöfnunarbréfa yrðu metin á 2,2
milljónir kr. Bræðurnir hafa hins-
vegar látið hana fá bréf að nafnverði
450 þús. kr. og vilja meina að það
nægi til þess að greiða þær 2,2 millj.
kr. sem eftir standa af skaðabótun-
um. Þessu hefur Sigríður ekki viljað
una og hefur því Jón Oddsson lagt
löghald á hlutabréf Isbjarnarins í
Tryggingamiðstöðinni sem trygg-
ingu fyrir greiðslu á eftirstöðvum
skaðabótanna, auk vaxta og verð-
bóta. Málflutningur í þessu máli
hefst í dag og þá mun Jón flytja mál
Sigríðar en Benedikt Blöndal mál
Jóns og Vilhjálms...
kynhneigðra á íslandi, hafa átt í
Iöngu stríði við útvarpsstjóra ríkis-
útvarpsins, sem hófst í tíð Andrés-
ar Björnssonar. Markús Örn
Antonsson hefur haldið baráttunni
dyggilega áfram og stendur stríðið
um notkun orðanna hommi og
lesbía, sem útvarpsstjórarnir hafa
ákveðið að skuli aldrei lesin í aug-
lýsingatíma útvarpsins. í gegnum
tíðina hafa samtökin margsinnis
komið með auglýsingar til lesturs,
en þar sem þeim hefur verið gert að
fella niður hin umdeildu orð, hefur
ekkert orðið úr viðskiptunum. Fyrir
síðustu helgi sneru forsvarsmenn
samtakanna sér hins vegar til Bylgj-
unnar með auglýsingu um dansleik
fyrir homma og lesbíur og var hún
lesin án nokkurrar tilraunar til rit-
skoðunar af hálfu Einars Sigurðs-
sonar. Það er annars hjákátlegt, að
á meðan auglýsingadeild ríkisfjöl-
s
Lada Samara er meðalstór,
3ja dyra rúmgóður og bjartur
bíll. Hann er framdrifinn,
með tannstangarstýri,
m júkri og langri fjöðrun og
það er sérstaklega hátt undir
hann. Sem sagt sniðinn fyrir
íslenskar aðstæður.
Lada Samara hefur 1300 cm3,
4ra strokka, spræka og spar-
neytna vél, sem hönnuð er
af einum virtasta bílafram-
leiðanda Evrópu. Bensín-
eyðsla er innan við 61 á hundr-
aðið í langkeyrslu, en við-
bragðstfmi frá 0-100 km hraða
er þó aðeins 14,5 sek.
Lada Samara er 5 manna og
mjög rúmgóður miðað við
heildarstærð. Aftursætið má
leggja fram og mynda þannig
gott flutningsrými. Hurðirnar
eru vel stórar svo allur um-
gangur er mjög þægilegur.
Það er leitun að sterkbyggð-
aribíl. Sérstök burðargrind er
f öllu farþ egarýminu, sílsareru
sérstyrktir og sama er að segja
um aðra burðarhluti. Lada
Samara hentar jafn vel á rnal-
bikuðum brautum Vestur Evrópu,
sem á hjara norðurslóða.
'2-bO-OOO:
itMb"
Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf
Suöurlandsbraut 14 Slmi 38600 - 31236
20 HELGARPÓSTURINN