Helgarpósturinn - 11.09.1986, Blaðsíða 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Ritstjórnarfulltrúar:
Egill Helgason og Sigmundur
Ernir Rúnarsson.
Blaðamenn:
Gunnar Smári Egilsson, Friðrik
Þór Guðmundsson, Helgi Már
Arthursson, Jóhanna Sveinsdóttir,
Jónina Leósdóttir og Óskar
Guðmundsson.
Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson"
Ljósmyndir: Jim Smart
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Skrifstofustjóri:
Garðar Jensson.
Auglýsingastjóri:
Steinþór Ólafsson.
Auglýsingar:
Hinrik Gunnar Hilmarsson,
Sigurður Baldursson.
Dreifing:
Garðar Jensson
(heimasími 74471).
Berglind Björk Jónasdóttir.
Afgreiðsla:
Ólöf K. Sigurðardóttir.
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 68-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Vond lög verri
en engin
Í Helgarpóstinum í dag grein-
um við frá fjárdrætti, skjalafalsi
og ýmsu öðru vafasömu í sam-
bandi við sölu orlofshúsa til is-
lendinga á Spáni. í þessi við-
skipti virðast hafa valist vafa-
samir einstaklingar í leit að fljót-
fengnum aur.
i sjálfu sér er það miður.
En það er einnig miður
vegna þess, að þetta upphaf að
löglegri leið til kaupa á orlofs-
húsi erlendis gæti spillt fyrir
eðlilegri og sjálfsagðri þróun
þessara mála.
Raunar má færa rök að því,
að þær lagareglur, sem nú gilda
séu út í hött og geri ekki annað
en að bjóða upp á svindl og
svínarí. I frásögn blaðsins í dag
kemur a.m.k. í Ijós, að umboðs-
maðurinn/-mennirnir hafi kennt
fólki leiðir til þess að fara í
kringum lögin og gera þau
þannig gagnslaus.
Hér er átt við ákvæðið um að
til þurfi félag uppá 50 manns
hið minnsta til þess, að íslend-
ingar geti komist í eigið hús í
sólarlandi.
Þetta er að vísu skömminni
skárra en hinir fullkomnu átt-
hagafjötrar, sem fólust í algjöru
banni við því, að íslendingar
ættu fasteignir erlendis.
Það er hins vegar skoðun
Helgarpóstsins, að íslending-
um eigi að vera frjálst að velja
milli þess hvort þeir vilja eiga
hús á erlendri grund eða við
Hafravatn, ef viðkomandi hefur
efni á slíkum munaði hvort sem
er.
Annars er það annar kapítuli
í þessu máli, sem fáir gera sér
sennilega grein fyrir, en það er
sú staðreynd, að taki t.d. fjöl-
skylda sig saman um að kaupa
hús á Spáni, þá kostar slíkt til-
tölulega lítið fé og að öllu sam-
anlögðu myndi þessi fjölskylda
vera komin á slétt eftir tvö ár.
Hvað um það. Að verja eigin
fjármunum til kaupa á húsi á
Spáni, italíu, RDrtúgal eða ein-
hvers staðar annars staðar,
heyrir til sjálfsagðra mannrétt-
inda.
Að auki eru lög, sem bjóða
upp á lögbrot verri en engin. I
orlofshúsin á Spáni hafa í
nokkrum tilvikum farið „svartir
peningar", sem hvergi koma
fram til skatts. Þannig lét efnað-
ur maður suður með sjó sér
ekki nægja eitt hús á Spáni
heldur keypti sér tvö til að festa
„svörtu peningana" sína. Vit-
laus lög hafa gert honum þetta
auðvelt.
Viturleg lög og öflugt gjald-
eyriseftirlit er það sem þarf.
BRÍFTIL RITSTJÓRNAR
BJ, hægri,
vinstri og nor-
ræn samvinna
Til ritstjóra Helgarpóstsins
Leiðtogi Bandalags jafnaðar-
manna Guðmundur Einarsson, al-
þingismaður, svarar spurningum í
yfirheyrslu Helgarpósts 4. septemb-
er. Þar er hann spurður hversvegna
Bandalag jafnaðarmanna hafi kosið
að starfa með íhaldsflokkunum á
vettvangi Norðurlandarás og nor-
rænnar samvinnu. í viðtalinu segir:
„Jafnaðarmannaflokkarnir höfðu
skipað okkur án þess að spyrja með
sér og tekið okkar atkvæði". Þetta
er ekki rétt og það hlýtur leiðtogi
Bandalags jafnaðarmanna að vita.
Innan Norðurlandaráðs skiptast
stjórnmálaflokkarnir í fjóra hópa.
Jafnaðarmenn (sósíaldemókratar),
hægri menn, miðflokkar og komm-
únistar og vinstri sósíalistar. Full-
trúa Bandalags jafnaðarmanna var
boðið að taka þátt í störfum jafnað-
armannahópsins. Hann sótti einn
slíkan fund og sat kveldfagnað
norska jafnaðarmannaflokksins,
þegar þing ráðsins var haldið í Osló
1984.
í yfirliti yfir stjórnmálaflokka,
sem fulltrúa eiga í Norðurlandaráði
hefur skrifstofa forsætisnefndar sett
Bandalag jafnaðarmanna með jafn-
aðarmannaflokkunum, og lái þeim
hver sem vill. Hvar annars staðar
mundu menn telja, að flokkur sem
kallar sig Socialdemokratisk For-
bund á norrænu máli ætti heima,
nema í hópi sósíaldemókrata? Það
var ekki von að þeir ágætu menn
áttuðu sig á því, að fyrirbærið, sem
kallar sig Bandalag jafnaðarmanna
á ekkert skylt við jafnaðarstefnu
eða sósíaldemókrata. En nú eru þeir
bandalagsmenn greinilega komnir
á réttan stað, en hvort hægri flokk-
unum í Norðurlandaráði hugnast
þessi félagsskapur sérstaklega skal
hér ósagt látið.
Loks er þess að geta, að í Norður-
landaráði hefur enginn ,,tekið“ at-
kvæði Bandalags jafnaðarmanna,
eins og leiðtoginn kemst að orði.
Það er hreinlega ekki hægt. Það er
bara enn einn misskilningurinn hjá
Bandalagi jafnaðarmanna.
Reykjavík, 5. september 1986
Eiöur Gudnason, alþingismadur
Leiðrétting
í síðasta Helgarpósti var það rang-
hermt að Sigurður G. Björgvinsson
væri einn þeirra starfsmanna Sam-
bandsins, sem ákærðir eru í kaffi-
baunamálinu. Þarna mun nafn Sig-
urðar hafa slæðst inn fyrir misskiln-
ing. Hins vegar er Sigurður vitni í
málinu. Helgarpósturinn biður
hann velvirðingar.
Ritstj.
BridsskóKnn
í\lý námskeið að hefjast
Fyrir BYRJENDUR
Fyrir LENGRJk KOMNA
Byrjendanámskeið verður á mánudagskvöldum milli kl. 20.15 og
23.15. Það hefst 29. september og stendur til 8. desem-
▼ ber. Samtals 11 kvöld.
Námskeiðið er sniðið fyrir fólk, sem lítið eða ekkert þekkir
til spilsins. Reglur spilsins verða skýrðar, og farið verður
yfir undirstöðuatriði sagna og sjálfrar spilamennskunnar.
Heimalærdómur er ekki nauðsynlegur, en flýtur auðvitað
fyrir árangri.
Framhaldsnámskeiðið verður á þriðjudagskvöldum milli kl. 20.15
og 23.15. Það hefst 30. september og því lýkur 9. desem-
ber. Samtals 11 kvöld.
Námskeiðið er ætlað fólki sem nokkuð hefur fengist við
að spila, en vill öðlast aukið öryggi. Farið verður hratt yfir
sögu í sögnum, en megináherslan lögð á spilamennskuna,
bæði sókn og vörn.
Spilastaður: Bæði námskeiðin fara fram í nýju húsi Sóknarkvenna
«• við Skipholt 50a, í rúmgóðum og þægilegum fundarsal.
Upplýsingar og innritun í
símum 27316 á skrifstofutíma
og 27397 á kvöldin og um
helgar.
NILFIS
LÉTT. LIPUR OG VANDVIRK HAGKVÆM OG HEILNÆM
Já, svona er NILFISK: Vönduð og tæknilega ósvikin, gerð til að vinna sitt verk,
fljótt og vel, ár eftir ár, með lágmarks truflunum og tilkostnaði.
10 lítra poki og svo frábær ryksíun að
hún hreinsar einnig andrúmsloftið.
Nýlegar hollusturannsóknir leiddu í Ijós
að flestar ryksugur rykmenga loftið,
sumar hrikalega.
Aðeins 6,1 kg á svifléttum hjólabúnaði.
Stillanlegt sogafl og afbragðs sogstykki.
Reynslan sannar rekstraröryggi og
einstaka endingu.
STERK OG TRAUST
NILFISK
HEIMSINS BESTA RYKSUGA
Stór orð, sem reynslan réttlætir
/?n nix
HÁTÚNI6A SlMI (91)24420
^\^Hagnús Gíslason og
Guðmundur Jónsson frá Verslun-
armannafélagi Suðurnesja hótuðu
úrsögn VS úr rekstrarfélagi orlofs-
húsanna við Ölfusborgir ef ástandið
skánaði ekki við stjórnvölinn í félag-
inu. Á aðalfundi félagsins gagn-
rýndi Magnús harkalega stjórn
Halldórs Björnssonar á rekstrar-
félaginu. Halldór er þar formaður
og þykir Magnúsi og fleirum í stjórn-
inni sleifarlagið á stjórninni vera
með ólíkindum. Á aðalfundi félags-
ins sem haldinn var fyrir nokkru,
gagnrýndi Magnús að ekki hefði
verið boðað til framhaldsaðalfund-
ar félagsins á sl. ári sem þó hafði
verið ákveðið. Benti hann á að fund-
arboð fyrir fundinn í ár hefði ekki
borist á tilskildum tíma og að engin
fundargerð hafi verið til frá síðasta
aðalfundi. Taldi hann þarmeð fund-
inn ólöglegan. Magnús og fleiri í
stjórn rekstrarfélagsins hafa verið
mjög óánægðir með gang mála í
Rekstrarfélagi Ölfusborga, og með-
al þeirra sem gagnrýnt hafa stjórn-
un mála á síðustu árum, eru Áðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir, Einar
Ogmundsson, Þorbjörn Guð-
mundsson og Magnús Gíslason,
sem segir þolinmæðina vera á þrot-
um:..
LAUSNIR Á
SKÁK-
ÞRAUTUM
Það vandamál hefur skapast, að
ef austur kemst inn á spaðakóng,
þá skipti hann um og spili tígli. Þá
minnka möguleikarnir semrvið
reiknuðum með. Ef þú gengur út
frá því að kóngarnir sem vantar,
séu skiptir hjá andstæðingunum,
þá munu þeir taka með tígulásn-
um og vona að spilin liggi 3-3 í
spaða, sem jafnvel getur orsakað
þvingun. Þá uppgötvum við of
seint að spaðinn liggur 4-2 og að
austur á báða kóngana sem vant-
ar.
Til þess að verja tígul-klípuna,
verðum við að svína spaðanum
„öfugt“. Rétti spilamátinn er að
taka tromp og enda í borðinu. Þá
er síðasta hjartað trompað heima.
Svo spilum við spaða að ásnum og
síðan litlum spaða til drottningar-
innar. Komi kóngurinn siglandi frá
austri, getum við losnað við tap-
slaginn í tígli í spaðadrottninguna.
Ef spaðadaman verður tekin með
kóngi vesturs. En ljósi punkturinn
er þó alltaf sá, að við þurfum ekki
að taka ákvörðun um tígulinn fyrr
en við vitum um legu spaðans og
hvort við getum losnað við tígul-
inn með því að henda honum í
spaðann.
Þannig voru öll spilin:
♦ Á-G-2
é? 10-6-3
o D-5
+ D-G-9-5-4
• 10-9-8-3 ♦ K-5
Á-K-D-8-5 O G-9-7-2
o 8-7-2 O K-10-9-6-4-3
6 + 2
♦ D-7-6-4
4
O Á-G
+ Á-K-10-8-7-3
10 HELGARPÓSTURINN
Hveragerði 14. ágúst 1986.