Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 11.09.1986, Qupperneq 15

Helgarpósturinn - 11.09.1986, Qupperneq 15
T EKKI MILLJARÐA IÆÐISLÁNA ALEXANDER STEFÁNSSON FÉLAGS- MÁLARÁÐHERRA: VIÐ HÖLDUM OKKUR VIÐ FORSENDUR HÚSNÆÐISLAGANNA FJÁRFRAMLÖG RÍKISINS VERÐA EKKI AUKIN BIÐTÍMI FORGANGSHÓPSINS GÆTI ORÐIÐ 12 MÁNUÐIR OG HELMINGI LENGRI FYRIR ÞÁ SEM KAUPA í ANNAÐ SINN að fjárþörf þeirra einstaklinga sem rétt eiga skv. hinu nýja kerfi sé rúmlega þrír milljarðar króna. Reiknað er með 1550—2050, sem tilheyra forgangshópi, 600 manns sem eiga lánsrétt og eru að kaupa í annað sinn og a.m.k. 300 manns sem eru yfir 50 ára og eiga rétt á láni. Það skal undirstrikað, að hér er að- eins átt við þá sem eru á fasteigna- markaði. Þessu til viðbótar eru svo þeir sem eru að byggja íbúðir. Gera má ráð fyrir að þeir eigi a.m.k. eins mikinn lánsrétt í milljörðum taiið og nefndir hópar. Samtals má þvígera ráö fyrir, ad Byggingasjódur ríkisins þurfi til útlána um eöa yfir sex milljarda króna á nœsta ári, ef sjóðnum er œtlaö aö sinna eftirspurn eftir hús- nœöislánum. Ásmundur Stefánsson, forseti ASI, lýsti þeirri skoðun sinni, að út- lánin myndu nema um 5.0 milljörð- um á næsta ári. Sú tala var fundin út í maí og hefur hækkað síðan og á eftir að hækka ennþá meira. Tölu- verðs óraunsæis gætir því hjá tals- manni verkalýðshreyfingarinnar um framvinduna á húsnæðismark- aðinum. Ásmundur Stefánsson hélt því fram í áðurnefndu viðtali, þar sem hann svaraði gagnrýni Helgarpósts- ins, að framlag ríkissjóðs til hins nýja húsnæðiskerfis væri nokkuö opinn endi. Þetta er ekki rétt. í frumvarpi því sem liggur til grund- vallar nýja húsnæðiskerfinu er skýrt tekið fram, að framlag ríkisins til kerfisins skyldi vera að lágmarki 1.0 milljarður. Og í samtali við Helgar- póstinn staðfesti félagsmálaráð- herra, Alexander Stefánsson, að í fjárlögum og lánsfjáráætlun fyrir ár- ið 1987 væru menn að tala um upp- hæðir sem væru þær sömu og gert var ráð fyrir í frumvarpinu, eða 1.0 milljarði til Byggingasjóðs ríkisins og 300 milljónum til verkamanna- bústaða. Húsnæðisdæmið lítur því þannig út í stuttu máli, að útlánaþörf Bygg- ingasjóðs ríkisins verður um, eða yfir 6 milljarðar á næsta ári. Skulda- bréfakaup lífeyrissjóðanna skila um 2.6—2.8 milljónum í kerfið í mesta lagi. Ríkisframlagið verður um 1.0 milljarður og þessu til viðbótar má gera ráð fyrir að Byggingasjóður ríkisins geti lagt fram um 700 millj- ónir króna. Ráðstöfunarfé sjóðsins verður m.ö.o. rúmir fjórir milljarðar, ef vel árar. Því gœti svo fariö, aö sjóöinn vantaöi um 1.5 milljaröa til aö svara þeirri eftirspurn sem verö- ur eftir lánum á fyrsta ári. Við þetta bætist síðan sú mikla niðurgreiðsla á vöxtum, sem ríkis- sjóður hefur tekið á sig. í þríhliða samkomulagi ríkisstjórnar, verka- lýðshreyfingar og atvinnurekenda er gert ráð fyrir 3,0% vaxtaniður- greiðslu fram að næstu kosningum. Þeir fáu mánuðir skipta e.t.v. ekki miklu fyrir ríkissjóð, en þetta dæmi verður stærra og erfiðara við að eiga, þegar fram sækir ef samtök launamanna ætla ekki að semja um sama tíkallinn aftur og aftur. Þau áhrif sem veröa áþreifanleg af þessu nýja húsnœöislánakerfi gœtu hœglega oröiö þau, aö biö eft- irlánum lengdist ogyröi fljótlega 12 mánuöir fyrir forgangshópinn og helmingi lengri fyrir þá sem eru aö kaupa sína aöra íbúö. íbúðaverð hækkar í kjölfar kerfisbreytingar- innar vegna þess að með henni er ekki reynt að ná stjórn á fasteigna- markaðinum. Stöku hópar, eins og t.d. Sigtúnshópurinn falla að mestu utan þessa kerfis og þegar allt kemur til alls er ávinningur hins nýja kerfis ekki meiri en svo að menn hljóta að spyrja sig — í biðröð eftir láni — : — Var ástæða til að semja um þetta kerfi í kjarasamn- ingum? Hefði ekki verið betra að láta stjórnmálamenn bera ábyrgð á þessu kerfi? ALEXANDER STEFANSSON VIÐUNANDI AÐ HALDA í HORFINU Alexander Stefánsson, félags- málaráðherra, var spurður um það hvort tekin hefði verið ákvörðun um ríkisframlag til Byggingasjóðs ríkisins fyrir fjárlagaárið 1987. Hann sagði: „Við erum með mál þessi t skoðun um þessar mundir. Og það verður tekin ákvörðun í þessu máli í þess- ari, eða næstu viku. Ég reikna með því að við munum reyna að miða við þá upphæð sem gert er ráð fyrir í forsendum frumvarpsins sem ligg- ur til grundvallar lögunum. Þær töl- ur sem eru til meðferðar eru einn milljarður og þrjú hundruð milljón- ir. Það er verið að skoða öll þessi mál og það er alveg ljóst að það er ekki hægt að hafa neina skriðu á þessum málum. Það verður að reyna að hafa hemil á þessum málum. Það er ekki hægt að láta byggja fleiri þús- undir íbúða í einni lotu. Það myndi hafa í för með sér afleiðingar, sem væru ekki verjandi." Um þau ummæli Ásmundar Stef- ánssonar, að eðlilegt væri að ríkið setti meira fjármagn í húsnæðiskerf- ið, ef til þess kæmi að „flöskuháls" myndaðist í kerfinu sagði Alexand- er Stefánsson: „Ég held hann geti nú varla gert ráð fyrir því. Allir þeir aðilar, sem stóðu að frumvarpinu í vor þegar það var til meðferðar, gerðu sér grein fyrir því að það væri mikil spurning hve langt væri hægt að ganga í fyrstu lotu. Það er gengið út frá fjölda umsækjenda um lán í sam- ræmi við forsendur kerfisins og það er ekki hægt, þegar lánin eru orðin svona há, að búa til einhverja nýja skriðu. Ef hægt er að halda í horfinu með þeim tölum sem gert er ráð fyr- ir, þá er það strax viðunandi með svona góðum kjörum. Það á hins vegar eftir að gera ná- kvæma úttekt á þessu, hvað er hægt að hugsa sér að margir byggi og kaupi sér íbúð í fyrsta sinn. Þessir aðilar munu ganga fyrir.“ Alexander Stefánsson. ÁSMUNDUR STEFÁNSSON: RÍKISSJÓÐSFRAMLAG- IÐ OPINN ENDI! Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, svaraöi gagnrýni Helgarpóstsins á nýja húsnœöislánakerfiö meö viö- tali viö fréttamann ríkisútvarpsins í liöinni viku. Hér fara á eftir glefsur úr viötalinu viö Ásmund. „Það sem er að gerast í húsnæðis- málum er, að það er að koma mjög mikið aukið fé inní kerfið. Það er áætlað að um 2.8 milljarðar fari til útlána hjá Húsnæðisstofnun í ár og áætlun segir til um 5.0 milljarða á næsta ári, ef við erum að miða við tölur á sama verðlagsgrunni, þann- ig að þar er auðvitað geysileg aukn- ing á því fé, sem þarna verður til umráða." „Við getum reiknað með því, að lífeyrissjóðirnir greiði til húsnæðis- kerfisins á sambærilegu verðlagi um helmingi meira á næsta ári, en þeir greiða á þessu ári.“ (Það skal tekið fram að þeir greiða um 1.3 milljarða á þessu ári/innskot, HP.) „Hins vegar er ríkissjóðsframlag- ið nokkuð opinn endi og verði flöskuháls í kerfinu í upphafi, þá vaknar auðvitað sú spurning, hvort ekki sé pólitískur vilji til að linna það með auknum fjárlögum úr ríkis- sjóði." „Ég er eindregið þeirrar skoðunar — fyrir mitt leyti — að það væri eðli- legt að auka þetta fé einmitt núna, þegar kerfið er að fara af stað til þess að létta því byrjunina ... Það er ekki þannig kerfið, að forgangshóp- arnir fái allt og hinir síðan ekkert. Gert er ráð fyrir því, að þeir sem eru að fá lán í fyrsta sinn — að þeir fái forgang á þann hátt, að hinir hafa helmingi lengri biðtíma og að fyrir hvern mánuð sem biðtíminn lengist hjá forgangshópnum þá færist 1/12 af lánsumsókn yfir á næsta árs tíma- bil og 1/6 hjá þeim sem eru að kaupa, eða byggja sína aðra hús- eign.“ „Eg held það skipti mjög miklu máli, vegna þess að við höfum horft uppá það í stórum stíl á undanförn- um árum, að fólk hefur ráðist útí hluti, sem það hefur ekki minnsta bolmagn til að ráða við — ég held það skipti mjög miklu máli að fólk verði firrt slíkum vandræðum í upp- hafi.“ Ásmundur Stefánsson. HELGARPÓSTURINN 15

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.