Helgarpósturinn - 11.09.1986, Qupperneq 29
3Egm
s
um sem unnu við þetta til mikillar
undrunar, að það voru mjög fá skiln-
aðarbörn í þessum hópi. Allir höfðu
ímyndað sér að þegar skilnaðir fóru
að aukast í Bandaríkjunum, hefði
það alvarlegar afleiðingar fyrir
börnin. En þegar farið var að rann-
saka málið nánar, kom í ljós, að fjöl-
skyldur barna með erfið sálræn
vandamál einkenndust af mikilli til-
finningalegri togstreitu og kulda.
Þarna var oft um að ræða töluvert
spennuástand, sem aldrei leystist
heldur var viðvarandi. Þess vegna
upplifðu börnin allt mögulegt á
heimiiunum, bæði ljóst og leynt.
En svo ég svari spurningunni, þá
er svo sem hægt að setja fram lista
um það hvaða skilyrði „gott" hjóna-
band þarf að uppfylla. Báðir aðil-
arnir verða t.d. að geta séð um alls
kyns hagnýta hluti sem varða
heimilishald, börn og annað slíkt.
Einnig verður fólkið að hafa einhver
áhugamál, geta deilt ýmsum hlut-
um og fullnægt tilfinningalegum
þörfum hvors annars, án þess að
það sé eilífur spennuvaldur. Aðal-
málið er hins vegar það, að ein-
staklingarnir geti einhvers staðar
verið sem algjörlega sjálfstæðir aðil-
ar og haft raunverulegt sjálfstæði.
Maður má ekki vera límdur upp við
makann eins og blóðsuga."
AMERÍSKA FORMÚLAN
Til þess að enda þessa umfjöllun
um smitsjúkdóminn skilnað á já-
kvæðum nótum, er ekki úr vegi að
benda fólki í áhættuhópumá bók eft-
ir Francine Klagsbrun, sem nefnist
Married People: Staying together in
The Age of Divorce. Á íslensku
myndi titillinn útleggjast Hjónafólk:
Listin aö halda hjónabandinu á rétt-
um kili í skilnaöaröldunum. Höf-
undurinn telur að hægt sé að gera
hjónabandsfleytuna skilnaðarþétta,
ef fylgt er ákveðnum reglum. Áður
en Klagsbrun komst að endanlegri
niðurstöðu, tók hún viðtöl við yfir
tvö hundruð hjónakorn, sem voru í
hamingjusömum samböndum.
Flest þessi pör áttu þrennt sameig-
inlegt: Þau voru mjög ákveðin í að
vilja láta sambúðina blessast, þau
treystu hvort öðru fullkomlega, en
reyndu á sama tíma að vera jafn-
sveigjanleg og mögulegt var.
Hvort þessi ameríska uppskrift
reynist gagnleg sóttvörn í skilnaðar-
faraldri hér uppi á Fróni, skal hins
vegar ósagt látið.
EFÞÚÁTT
SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS SEM
ERINNLEYSANLEGT
IO. SEPTEMBER
Á SKALTU
VERJAST
aLLRI ASOKN
í ÞAÐ
ÞVI RÍKIS5JOÐUR
BÝÐUR ÞER NÝ
SKÍRTEINI MEÐ
6.5% ÁRSVÖXTUM
UMFRAM
VERÐTRYGGINGU
OG AÐEINS TIL
TVEGGJA ÁRA
Þú skalt hugsa þig um tvisvar áður
en þú fellur fyrir einhverjum
þeirra tilboða sem nú rignir yfir þig.
F>að er þinn hagur að ríkissjóður
ávaxti peningana þína áfram - í
formi nýs skírteinis; ávöxtunin er
góð og skírteinin eru laus eftir rétt
rúmlega tvö ár (gjalddagi er 10.
janúar 1989).
En það segir ekki alla söguna.
Þótt sumir bjóði álitlegri vexti en
ríkissjóður eru spariskírteinin engu
að síður um margt betri kostur. Þau
eru innlent lánsfé og draga því úr
erlendri skuldasöfnun, þau eru eign-
arskattsfrjáls (eignarskattur er nú
1,2% á ári) og þau eru öruggasta
fjárfesting sem völ er á; þeim fylgir
engin áhætta.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS
HELGARPÖSTURINN 29