Helgarpósturinn - 11.09.1986, Síða 30
LEIÐARVISIR HELGARINNAR
SÝNINGAR
AKUREYRI
i afgreiðslusal Verkalýðsfélagsins Eining-
ar að Skipagötu 14 stendur yfir sýning á
27 olíumálverkum eftir Þorvald Þorsteins-
son myndlistarmann. Hún mun standa
fram í miðjan september.
ÁSMUNDARSAFN
Reykjavíkurverk Ásmundar til sýnis fram
á haustið kl. 10—17 alla daga.
GALLERÍ iSLENSK LIST
Sumarsýning listmálarafélagsins verður
opin í sumar virka daga kl. 9—17. Sýnd
um 30 verk eftir 15 félaga.
KJARVALSSTAÐIR
Sýningin Reykjavík í myndlist þar sem 60
Reykjavíkurverk eru sýnd eftir 33 lista-
menn. Sýningin er opin kl. 14 — 22. Sýn-
ingin Reykjavík í 200 ár opin til 28. sept.
LISTASAFN HÁSKÓLA
ÍSLANDS,
í Odda
Til sýnis eru 90 verk safnsins aðallega eft-
ir yngri listamenn þjóðarinnar. Aðgangur
ókeypis.
ISAFJÖRÐUR
Daði Guðbjörnsson hefur opnað sýningu
á verkum sínum í Slúnkaríki á isafirði.
Þar sýnir hann málverk og grafíkmyndir
sem eru unnar á síðustu tveimur árum.
HÓTEL ÖRK,
HVERAGEROI
í hótelinu sýnir nú Halla Haraldsdóttir 19
glerverk og nokkur málverk. Hún er m.a.
þekkt fyrir að hafa unnið hinn fallega gler-
glugga í kirkju baejarins.
HLIÐSKJÁLF, HÓTEL HÚSAVlK
Á Húsavík hefur Guðmundur Björgvins-
son nú opnað sýningu á vaxlitateikning-
um sem sýna expressíónir af raunum
mannanna í gegnum tíðina. Sýningin er
opin kl. 14—22.
GALLERÍ BORG
Hafin er sýning á gjöfum Reykjavíkur-
borgar vegna afmaelisins — 44 gjafir alls
— skúlptúrar, málverk o.fl. o.fl. Sýningin
stendur fram í miðjan september og er
opin kl. 10—18 virka daga.
GALLERÍ HALLGERÐUR
Bókhlöðustíg
Hallgrímur Helgason sýnir verk sín frá
laugardeginum 6. september til sunnu-
dagsins21. september. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 12 til 18, en um helgar
frá kl. 14 til 22.
LISTASAFN ASl,
Grensásvegi
Sýningin World Press Photo 1986. Á sýn-
ingunni eru um 180 myndir er hlutu verð-
laun í alþjóðlegri samkeppni blaðaljós-
myndara. Sýningin verður opin virka
daga kl. 16—20 og um helgar kl. 14—22.
Henni lýkur 14. september.
LISTASAFN
EINARS JÓNSSONAR
við Njarðargötu
er opið alla daga nema mánudaga frá kl.
13.30—16. Höggmyndagarðurinn er op-
inn daglega frá kl. 10—17.
ÞJÓÐVELDISBÆRINN
Þjóðveldisbærinn Þjórsárdal verður op-
inn til skoðunar í sumar 13—17.
GALLERI GANGSKÖR
Sumarsýning um þessar mundir, opið
virka daga kl. 12—18.
GALLERÍ LANGBRÓK
Textíll. Opið kl. 14—18 virka daga og laug-
ardaga.
NORRÆNA HÚSIÐ
Sænski myndlistarmaðurinn Ulf Trotzig
sýnir verk sín, en hann er meðal þekkt-
ustu myndlistarmanna Svíþjóðar og beit-
ir ýmiss konar tækni við listsköpun sína.
í Norræna húsinu sýnir hann olíumálverk
niðri og grafík uppi í anddyrinu. Sýningin
stendur yfir til 21. september.
GALLERl GRJÓT
Samsýning. Jónina Guðnadóttir,
keramík; Ragnheiður Jónsdóttir, grafík;
Þorbjörg Höskuldsdóttir, málverk; örn
Þorsteinsson, málverk; Magnús Tómas-
son, málverk; Steinunn Þórarinsdóttir,
skúlptúr og Ófeigur Björnsson, skartgrip-
ir og skúlptúr. Opið virka daga kl. 12—18.
MOKKA-KAFFI
Hafin er sýning á sérhannaðri prjónavöru
Ólafar Sigurðardóttur (Lóu). Sýningin
stendur yfir í september.
INGÓLFSBRUNNUR
Alda Sveinsdóttir sýnir áfram vatnslita-
og akrýlmyndir í Ingólfsbrunni að Aðal-
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ
GERA UM HELGINA?
Jón Múli Árnason
rithöfundur með meiru
Ég er nú að hugsa um að fara í nema hálft ár síðan það kom út
frí! Ferðast? Viltu nú endilega fá bók eftir mig. Halldór Laxness lét
mig út úr bænum? Nei, ég bý á líða ár á milli sinna bóka, en ætli ég
Vatnsenda og er að hugsa um að hafi þau ekki tvö!
labba í bæinn. Bók? Það er nú ekki
stræti 9, en sýningu hennar lýkur á morg-
un, föstudag. Á laugardag tekur við Ijós-
myndasýning Jóns Júlíussonar, sem
standa mun til 10. október. Opið 8—18.
CAFÉ GESTUR
Nú hangir á veggjum sýning Axels Jó-
hannssonar, sem hann kallar einfaldlega
„Skissur". Opið daglega á virkum dögum
frá 11—00.30, en til 2.30 um helgar.
NÝLISTASAFNIÐ
í Nýlistasafninu að Vatnsstíg 36 opnar á
laugardag kl. 16 sýningu Ásta Ólafsdóttir,
sem að undanförnu hefur verið við list-
nám í Hollandi, þar sem hún lagði sér-
staka stund á mynd- og hljóðbandalist,
auk hefðbundnari myndmiðla. Sýningin
stendur frá 13. sept. til 21. sept. og er opin
kl. 16—20 virka daga, en 14—20 um
helgar og er öllum velkomið að skoða
hana.
LEIKHÚS
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
í dag, fimmtudag, rennur út forkaupsrétt-
ur áskrifenda að sömu sætum. Verkefni I
áskrift eru: „Uppreisnin á Isafirði" eftir
Ragnar Arnalds, „Tosca" eftir Puccini,
„Aurasálin" eftir Moliére, „Ballett" eftir
Jochen Ulrich, „Rúmúlus mikli" eftir
Durrenmatt, „Yerma" eftir F.G. Lorca og
„Lend meatenor" eftir Ken Ludwig. Verð
pr. sæti kr. 3200. Miðasala kl. 13.15—20.
Sími 11200.
LEIKFÉLAG REYKJAVlKUR
Land míns föður, 143. sýning á laugardag
kl. 20.30. Áskriftarkort gilda á eftirfarandi
sýningar: „Upp með teppið, Sólmundur"
eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur og fleiri,
„Vegurinn til Mekka" eftir Fugard, „Dag-
ur vonar" eftir Birgi Sigurðsson og
„Óánægjukórinn" eftir Ayckbourn. Verð,
aðgangskorta kr. 2.000. Upplýsingar í
síma 16620.
VIÐBURÐIR
TÓNLEIKAR I HÖLLINNI
íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur
stendur fyrir tónleikum í Laugardalshöll-
inni nú á föstudagskvöldið kl. 21—01.
Fram koma Sniglabandið, Skriðjöklar,
Stuðmenn og Sykurmolarnir (sem ku
vera sambland af Kuklinu og Purrkinum).
Þá er von á framlagi frá Leoncie. Miðaverð
er 500 krónur og er forsala i Pennanum,
en miðasala við Höllina hefst föstudag kl.
16.
KYNNING Á INDVERSKUM
LJÓÐUM OG DÖNSUM
Félagar í Ananda Marga standa fyrir
kynningu á indverskum Ijóðum og
dönsum sunnudaginn 14. september kl.
15. Kynnt verða Ijóð úr bálkinum
Söngvum dögunar (Prabhat Samgiit)
eftir RR. Sarkar. Leikin verður tónlist við
Ijóðin og sýndur dans. Kynningin fer fram
í húsnæði Hugræktarskólans í Aðalstræti
16 í Reykjavík. öllum er heimill ókeypis
aðgangur á meðan húsrúm leyfir. Léttar
veitingar verða bornar fram að
dagskránni lokinni.
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN
FELLAHELLIR
Engin ástæða ætti að vera fyrir þollaus-
um Breiðhyltingum í sumar. Nú býður
Fellahellir upp á trimm-aðstöðu þe. þrek-
aefinga-, borðtennis- og baðaðstöðu. Til
að bæta upp kaloríu- og vökvatap eru
kaffiveitingar á staðnum.
BUBBI OG MX21
Bubbi og MX21 halda áfram að gera það
gott á ferð og flugi um landið vítt og
breitt. I kvöld, fimmtudagskvöld 11.
september er Bubbi á Vopnafirði, á föstu-
dag hann og sveitin í Grindavík, en ekki
vitum við hvar þeir verða á laugardag. Á
mánudag skemmtir Bubbi á Tálknafiröi, á
þriðjudag á Bíldudal og á miðvikudag,
17. september verður Bubbi á Þingeyri.
Meira næst...
OG HANA NÚ!
Vikuleg laugardagsganga frístundahóps-
ins Hana nú í Kópavogi verður laugardag-
inn 13. september. Lagt af stað kl. 10.00
frá Digranesvegi 12. Markmið göngunnar
er: Samvera, súrefni, hreyfing. Við röltum
um bæinn í klukkutíma. Búið ykkur vel.
Nýlagað molakaffi.
ÆTTFRÆÐINÁMSKEIO
Ættfræðiþjónustan — Ættfræðiútgáfan
tók nýlega til starfa (Reykjavík. Mun Ætt-
fræðiþjónustan standa fyrir námskeiðum
í ættfræði þar sem leiðbeint verður um
vinnubrögð og heimildir ættfræðinnar,
gerð ættartölu og niðjatals o.afrv. Kennt
er bæði í fyrirlestrum og þó mest í eigin-
legri rannsóknarvinnu með frumheimildir
um ættir þátttakendanna. Fyrstu nám-
skeiðin hefjast í fyrri hluta september. For-
stöðumaður er Jón Valur Jensson, sem
hefur áður haldið slík námskeið. Síminn
er 27101.
TVÆR Á AUSTFJÖRÐUM
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og
Catherine Williams píanóleikari efna til
tónleika víða um Austurland á næstunni.
Þær leika kl. 21 í Egilsbúð á Neskaupstað
á fimmtudag, i Valhöll á Eskifirði á föstu-
dag kl. 21, í Félagslundi Reyðarfirði á
laugardag kl. 17, í Herðubreið á Seyðis-
firði á sunnudag kl. 15 og sama dag í
Egilsstaðakirkju á Egilsstöðum kl. 21.
TÓNLEIKAR í
NORRÆNA HÚSINU
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og
Catherine Williams píanóleikari munu
halda tónleika f Norræna húsinu þriðju-
dagskvöldið 16. september kl. 20.30.
Þær munu leika sónötu í C-dúr KV296 eft-
ir Mozart, Nigun eftir Ernest Bloch, Vals-
Scherzo eftir Tschaikowski og Introducti-
on et Rondo Capriccioso eftir Camille
Saint-Saens. Auk þess mun Guðný leika
tvö einleiksverk fyrir fiðlu, sónötu (g-moll
eftir J.S. Bach og Vetrartré eftir Jónas
Tómasson.
BÍÓIN
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ ágæt
★ ★ góð
★ þolanleg
O léleg
AUSTURBÆJARBÍÓ
Purpuraliturinn
(The color purple)
★★★
Þessi mynd Spielbergs fær hjá okkur
stimpilinn ágæt — sjá nánar umsögn í
Listapósti. Whoopy Goldberg ( aðalhlut-
verki kl. 5 og 9 í sal 1. Bönnuö innan 12
ára. Hækkað verð.
Flóttalestin
(Runaway Train)
★★★
Önnur ágætismynd undir leikstjórn
Andrei Konchalowsky, þar sem Jon
Voight fer á kostum í mynd sem er bönn-
uð innan 16 og er sýnd f sal 2 kl. 5, 7, 9
og 11.
Cobra
„Fyrst Rocky, þá Rambo, nú Cobra". Auð-
vitað Silvester Stallone, hver annar? Sýnd
(sal 3 kl. 5,7,9 og 11 við hækkað verð og
aldurstakmark við 16 ára mörkin. Stal-
lone ( skítverkunum...
BÍÓHÖLLIN
Poltergeist 2: Hin hliðin
Hryllingurinn sem draugaunnendur hafa
beðið eftir.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 í sal 1.
Svikamyllan
(Raw deal)
★
Spennumynd með Arnold kraftajötni
Schwarzenegger undir handleiðslu leik-
stjórans John Irvins. — Sjá Listapóst.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 í sal 2.
Bönnuð innan 16 ára.
Fyndið fólk í bíó
(You're in the Movies)
Sjálfstætt framhald hinna myndanna þar
sem illgjarnir og hugmyndarfkir menn
rýja aðra menn á förnum vegi öllu sjálfs-
áliti og -virðingu.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 ( sal 3.
Lögregluskólinn III
(Run for Cover)
★★
Léttgeggjuð ærslamynd sem hefur þann
sjaldgæfa eiginleika framhaldsmynda að
vera besta eintakið. Aðalhlutverk: Steve
Guttenberg og Bubba Smith. Leikstjórn:
Jerry Paris.
Sýnd kl. 5, og 9 ( sal 4.
Myrkrahöfðinginn
(Legend)
★★★
Stórmynd leikstjórans Ridley Scott (Ali-
en) með Tom Cruise og Tim Curry (farar-
broddi.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 í sal 5.
Barnasýningar
laugardag og sunnudag kl. 3 í öllum söl-
um.
BÍÓHÚSIÐ
Að lifa og deyja í Los Angeles
(To live and die in LA)
Leikstjóri er William Friedkin en í aðal-
hlutverki er William Petersen.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Skógarlíf
(Jungle book)
Barnasýning kl. 3 á sunnudag
HÁSKÓLABÍÓ
Þeir bestu
(Top Gun)
★★★
Úrvalsmynd Tommy Scotts með Tom
Cruise (aðalhlutverki. Sjá umsögn í Lista-
pósti.
Sýnd kl. 5, 7, 9.05 og 11.15.
LAUGARÁSBÍÓ
Salur A
Bikini búðin
Bandarísk gamanmynd með Michael
Wright og Bruce Greenwood.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur B
Skuldafen
(Money Pit)
★
Aðalhlutverk Tom Hanksog Shelley Long
undir leikstjórn Richard Benjamins.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur C
Ferðin til Bountiful
★★★
Alveg bráðskemmtileg og Ijómandi vel
leikin mynd með óskarsverðlaunahafan-
um Geraldine Page í aðalhlutverki. Hr.eint
engin tfmaeyðsla þetta! Leikstjórn: Peter
Masterson.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
REGNBOGINN
Til varnar krúnunni
(Defence of the realm)
★★★
Sjá umsögn ( Listapósti.
Sýnd kl. 7, 9 og 11.15.
Undrin ( Amityville
Hrollvekjandi spennumynd með James
Brolin (Hotel) og Margot Kidder.
Bönnuð innan 16 ára.
Endursýnd kl. 3, 5.20, 9 og 11.15.
I kapp við tímann
(Racing with the Moon)
★★
Richard Benjamin leikstýrir Sean Penn
ásamt Elísabetu McCovern og Nicholas
Cage.
Sýnd kl. 5.05, 7.05, 9.05 og 11.05.
Martröð á þjóðveginum
(Hitcher)
Tryllir sem lýsir manni sem gerir þau
glæfralegu og hreint ekki gæfulegu mis-
tök að taka ókunnuga puttaferðalanga
upp í. Mynd sem á erindi svona í túrista-
vertíðarlok.
Roger Hauer og C. Thomas Howell leika
undir stjórn Roberts Harmon. Myndin er
stranglega bönnuð yngri en 16 ára og er
sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15
Ottó
★★★
Dæmalaus farsi og hin besta skemmtun
fyrir þá sem hafa gaman af sæmilega
rugluðum kómedlum. Ottó leikur aðal-
hlutverkið og leikstýrir að hluta.
Sýnd kl. 5.10, 7.10, 9.10 og 11.10.
Reykjavfk, Reykjavík
Hrafn Gunnlaugsson með þætti úr l(fi
Davíðs Oddssonar, þar sem hann skýtur
inn svipmyndum úr borginni. . .
Sýnd kl. 3 og 5 í A-sal, aðgangur ókeypis.
STJÖRNUBlÓ
Karate Kid II
Hann er kominn aftur hinn mjóslegni og
strákslegi Ralph Macchio sem barði alla f
klessu og kom nánast einn slns liðs (
gang karateæði á íslandi og vfðar. i þetta
sinn er hann að þjarma að japönskum
bræðrum okkar ásamt þjálfaranum vina-
lega sem „Pat" Morita leikur. John G.
Avildsen (Rocky I) leikstýrir. Sýnd í A-sal
kl. 5, 7 og 9, ( B-sal kl. 4 og 11.
Aukasýning laugardag og sunnudag kl.
2.45 (A-sal.
Ógleymanlegt sumar
(Violets are blue)
Leikstjóri er Jack Fisk en í aðalhlutverki er
eiginkona hans Sissy Spacek. Virðist
þokkalega freistandi mynd.
Sýnd (A-sal kl. 11.10 en (B-sal kl. 7 og 9.
TÓNABÍÓ
Hálendingurinn
(Highlander)
★★
Spennumynd með Christopher Lambert
og Sean Connery, þar sem leikstjórinn er
Russel Mulchay og tónlistin flutt af
Queen. Sjá umsögn í Listapósti.
Sýnd kl. 5, 9 og 11.15.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
30 HELGARPÓSTURINN