Helgarpósturinn - 02.10.1986, Page 4

Helgarpósturinn - 02.10.1986, Page 4
INNLEND OG ERLEND YFIRSYN eftir Magnús Torfa Ólafsson Leiðtogarnir taka samninga- umleitanir í eigin hendur Reykjavíkurfundurinn er áfangi að heimsókn Gorbatsjoffs til Bandaríkjanna. Á hálfri annarri viku eftir aö Eduard Shevardnadse, utanríkisráðherra Sovétríkj- anna, kom til Bandaríkjanna að sitja Alls- herjarþing Sameinuðu þjóðanna, átti hann sex fundi með bandarískum starfsbróður sín- um, George Shuitz, flesta í lengra lagi. Þar að auki gekk sovéski utanríkisráðherrann á fund Ronalds Reagans forseta og afhenti honum svar æðsta manns sovétstjórnarinn- ar, Mikhails Gorbatsjoffs, við bréfi Banda- ríkjaforseta frá miðju sumri. I því bréfi setti Reagan fram afstöðu Bandaríkjastjórnar til viðfangsefnanna sem hæst ber í samskiptum risaveldanna. Hvor- ugt bréfið hefur enn verið birt, en ljóst er að þessi bréfaskipti og viðræður utanrikisráð- herranna undanfarna daga eru undanfari og tilefni þess fundar Reagans og Gorbatsjoffs, sem fyrir dyrum stendur á Islandi. Það sem forustumönnum stórveldanna hefur farið á milli er bersýnilega ástæðan til þess að þeir hafa, öllum á óvænt, ákveðið að hittast í Reykjavík og ræðast við augliti til auglitis. En jafnframt er ljóst af fundarstað og tíma, að enn er ekki leystur ágreiningur ríkj- anna tveggja til ráðstafana sem á dagskrá eru til að takmarka vopnabúnað og hemja þar með vígbúnaðarkapphlaupið sem þau heyja sín í milli. Hefði svo verið, væri samkomulag um grundvallaratriði í sjónmáli, hefðu leiðtog- arnir ekki lagt leið sína til íslands, heldur komið saman til fundar í Washington. í Genf í fyrra ákváðu þeir að næsti fundur yrði hald- inn í Bandaríkjunum, og að honum afstöðn- um er gert ráð fyrir að Reagan komi í heim- sókn til Sovétríkjanna. Aldrei þessu vant hefur lítið sem ekkert sí- ast út af fundalotu utanríkisráðherranna Shultz og Shevardnadse í Washington og New York. Nokkuð af árangrinum er komið í Ijós, þar sem eru skipti á mönnum sem sátu í haldi, Bandaríkjamaðurinn Daniloff í Moskvu og sovétmaðurinn Sakharoff í New York, báðir sakaðir um að hafa tekið við leyniskjölum. Frá upphafi var ljóst að banda- ríska alríkislögreglan tók til leyniskjölin sem kunningi Sakharoffs afhenti honum, og ekki er að efa að sovéska leynilögreglan hefur leitt Daniloff í gildru til að fá átyllu til að handtaka hann. Nú eru báðir farnir til síns heima, og þá er rutt úr vegi hindrun fyrir að samningaum- leitanir risaveldanna um samskipti þeirra á öðrum sviðum geti haldið áfram af fullum krafti. Þar er einkum um þrjú svið að ræða. í fyrsta lagi er rætt um verulega fækkun langdrægra kjarnorkuvopna beggja ríkja, sem þau hafa heima hjá sér eða i kafbátum á siglingu um heimshöfin. í öðru lagi er fjall- að um skammdrægari vopn, sér í lagi þau sem komið hefur verið fyrir í Evrópu og unnt væri að beita í átökum sem ekki næðu út fyr- ir álfuna. í þriðja lagi er svo verið að leita leiða til að finna sameiginlega afstöðu til rannsókna á ráðum til að verjast úti í geimn- um kjarnorkueldflaugaskotum andstæðings- ins, áður en þau komast í mark, svo og smíði slíkra tóla, beri rannsóknirnar árangur. Það sem vitað er um tillögur ríkisstjórn- anna sýnir, að báðar hafa teygt sig nokkuð áleiðis til að nálgast afstöðu hins viðræðuað- ilans. En samsetning vopnabúra þeirra er svo mismunandi, að mikill vandi er að finna meðalhóf í fækkun vopna og hömlum á smíði og uppsetningu nýrra, sem samkomu- lag er um að gangi jafnt yfir bæði, þannig að það ógnarjafnvægi sem bæði viðurkenna að nú ríki þeirra í milli raskist ekki. Ógnarjafn- vægið felst í því, að hvorki Bandarikin né Sovétríkin geta gert sér von um að sigra hitt með skyndiárás, nema eiga víst að verða fyr- ir gereyðingarárás á móti. Sovétríkin reiða sig fyrst og fremst á öfl- ugustu eldflaugar sem smíðaðar hafa verið. Þær geta borið allt að tvo tugi kjarnorku- sprengja, sem beina má hverri að sínu skot- marki, af svo mikilli nákvæmni að Banda- ríkjamenn fullyrða að þær geti eyðilagt sínar langdrægu eldflaugar í skotbyrgjum. Aftur á móti hafa Bandaríkin yfirburði í fjölda og búnaði kjarnorkukafbáta sem bera kjarn- orkueldflaugar. Þar að auki eru Bandaríkja- menn taldir eiga mun hægara með að fylgjast með ferðum sovéskra kafbáta en Sovétmenn með ferðum þeirra bandarísku. Það felur í sér að sovésku kafbátunum er meiri hætta búin í vopnaviðskiptum. Meðaldræg kjarnorkuvopn eru þéttust í Evrópu, þar sem Sovétmenn hafa 270 eld- flaugar af gerðinni SS-20 með 810 kjarnorku- sprengjum, og Bandaríkjamenn eru í óða önn að koma fyrir Pershingeldflaugum og Cruise flugskeytum, sem eiga að verða til samans 572 þegar uppsetningaráætluninni lýkur. Fregnir herma að upp á síðkastið hafi einna mest miðað til samkomulags um það viðfangsefni, að fækka þessum meðaldrægu vopnum. Fréttamenn í Washington höfðu fyrir skömmu eftir embættismönnum þar, að eygja mætti samkomulag sem fæli í sér fækk- un niður í 100 sprengjur af þessu tagi hjá hvorum aðila. Aftur á móti væri enn ófengið samþykki Sovétmanna við bandarískri kröfu um að fækkað verði í sama hlutfalli SS-20 eldflaugum í Asíuhluta Sovétríkjanna. Frá öndverðu hefur Gorbatsjoff tekið þá af- stöðu, að skilyrði fyrir fækkun sovéskra kjarnorkuvopna sé að Reagan hverfi frá því að koma upp eldflaugavörnum, sem geri Bandaríkin óhult fyrir árás með slíkum vopnum. Slíka geimvarnaáætlun líta Sovét- menn á sem tilraun til að ná úrslitayfirburð- um yfir sig, þar sem ógnarjafnvægið væri þá úr sögunni. Það lítið frést hefur úr bréfunum, sem leið- togunum hafa farið á milli, bendir til að þar sé einkum fjallað um þetta mál. Fyrir liggur að Reagan hefur boðist til að framlengja nú- gildandi samning, sem takmarkar smíði og uppsetningu geimvopna gegn eldflaugum af hálfu risaveldanna beggja, í allt að sjö og hálft ár. Á skotspónum er hermt að svar Gorbatsjoffs sé tilboð um að endurskoða samninginn og framlengja hann breyttan ekki skemur en í 15 ár. Nú getur hvort ríkið um sig sagt samningnum upp með skömm- um fyrirvara. Þarna er um flókin mál að ræða, og allt bendir til að í báðum ríkisstjórnum sem hlut eiga að máli séu uppi ólík sjónarmið um hve Iangt eigi að ganga í tilslökunum til að ná samkomulagi. Aðdragandi fundar Gorbat- sjoffs og Reagans í Reykjavík bendir til, að þeim hafi þótt mál komin á það stig, að nauð- syn bæri til að þeir kæmu saman til að reyna á þann hátt að ryðja úr vegi hindrunum fyrir árangri í takmörkun vopnabirgða og vígbún- aðar, sem erfitt yrði að vinna bug á með orð- sendingaskiptum og fyrir milligöngu ann- arra. Því er þess ekki að vænta, að Reykjavíkur- fundur æðstu manna risaveldanna verði til þess að Bandaríkin og Sovétrikin komist að formlegu samkomulagi um vígbúnaðar- hömlur. En ef vel tekst til getur hann orðið markvert skref á brautinni að því marki. 4 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.