Helgarpósturinn - 02.10.1986, Qupperneq 10
LEIÐARI
„Og sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa“
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Ritstjórnarfulltrúi:
Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Blaðamenn: Gunnar Smári
Egilsson.Friðrik Þór
Guðmundsson, Helgi Már
Arthúrsson, Jóhanna Sveins-
dóttir, Jónína Leósdóttir og
Óskar Guðmundsson.
Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson.
Ljósmyndir: Jim Smart.
Útgefandi: Goðgá h/f.
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson.
Skrifstofustjóri:
Garðar Jensson.
Auglýsingastjóri:
Steinþór Ólafsson.
Auglýsingar:
Hinrik Gunnar Hilmarsson
Sigurður Baldursson.
Dreifing:
Garðar Jensson
(heimasími: 74471).
Guðrún Geirsdóttir.
Afgreiðsla:
Berglind Nanna Burknadóttir.
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
68-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 68-15-11.
Setning og umbrot:
Leturval s/f.
Prentun: Blaðaprent h/f.
Fjölmiðlar eiga mörgum merk-
um skyldum að gegna, en ein
skiptir mestu máli. Hún er sú að
þjóna sannleikanum, því hann er
öllu æðri. Stundum getur sannleik-
urinn vissulega verið sár, en það
verður enginn betri manneskja á
því að renna á flótta undan sann-
leikanum. Sama gildir um fjöl-
miðla. Þeir verða ekki betri með því
að þegja yfir sannleikanum vegna
þess, að hann er óþægilegur.
Þetta lærir flest siðmenntað fólk
á unga aldri og flestum er innborin
lotning fyrir sannleikanum. í kristn-
um samfélögum er það ekki síst
kirkjan, sem kennir þetta grund-
vallaratriði:
„Og sannleikurinn mun gjöra yð-
ur frjálsa," segir ( hinni helgu bók
kristinna manna (Jóhannes 8:32).
I liðinni viku birti Helgarpóstur-
inn óþægilegar staðreyndir um
eina af stofnunum kirkjunnar,
Hjálparstofnun hennar, sem sam-
kvæmt reglugerð á að gegna mjög
merku hlutverki. HPhafði hinsveg-
ar komist á snoðir um, að ekki væri
allt sem sýndist um hjálparstarf
stofnunarinnar og rekstur hennar
væri með ákaflega einkennilegum
hætti.
Blaðið stóð frammi fyrir vanda.
Hann var í sem stystu máli sá, að
með því að birta sannleika málsins
skapaðist sú hætta, að Hjálpar-
stofnun kirkjunnar bæri ekki sitt
barr á eftir, a.m.k. um skeið. Ef við
hins vegar birtum ekki það, sem
við töldum sannleika málsins, vær-
um við að bregðast bæði sjálfum
okkur sem persónum og hlutverki
okkar sem fréttamanna, því hlut-
verki að flytja bæði góðar fréttir og
vondar, því hlutverki að segja satt.
Vitanlega ákváðum við að þjóna
sannleikanum. Það gerðum við í
þeirri von, að með ábendingum
um annmarka á störfum Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar myndum við
verða til þess að forystumenn kirkj-
unnar létu til sfn taka og leiðréttu
það, sem hefði misfarist.
Sú hefur því miður ekki orðið
raunin enn og virðast þeir, sem
helst voru bundnar vonir við, vera
runnir á flótta.
Skrif HP hafa verið fordæmd af
kirkjunnar mönnum, forsprakkar
HK útmála okkur sem ósanninda-
menn, þeir neita að ræða við blað-
ið, einum tókst m.a.s. í útvarpsvið-
tali að láta svo Ifta út sem Helgar-
pósturinn myndi brátt hafa á sam-
viskunni andlát ótalinsfjölda barna
í Afríku o.s.frv., o.s.frv.
Viðbrögðin við fyrstu skrifum
okkar um HK minna illþyrmislega á
fyrstu viðbrögðin við skrifum HP
um Hafskipsmálið. Við erum for-
dæmdir, getið er upp á einum
heimildarmanni, hann er ataður
auri, komið er á kreik upplognum
sögum um viðkomandi o.fl. o.fl.
Viðbrögðin einkennast ekki af
kristilegu þolgæði, kristilegum
anda. Þau einkennast af ótrúlegri
heift, nánast ofstæki.
Eftir stendur, að ótrúlega lítill
hluti þess fjár sem (slendingar láta
af hendi rakna árlega til hjálpar
hungruðum heimi og bágstöddu
fólki kemst til skila.
HP hefur þegar lýst þeirri skoð-
un sinni, að leggja beri áherslu á
þróunaraðstoð til langs tíma, sem
komi að gagni í hrjáðum löndum,
og raunar sé það einmitt þessi teg-
und af aðstoð, sem Islendingar séu
best í stakk búnir að veita.
Enda þótt skuggi hvíli yfir starfs-
háttum og rekstri einnar hjálpar-
stofnunar hérlendis, breytir það
engu um nauðsyn þess, að Islend-
ingar taki þátt f hjálparstarfi, sem
kemur að gagni.
Þess vegna vill Helgarpósturinn
hvetja landsmenn til þess að láta fé
af hendi rakna til þeirrar söfnunar,
sem nú stendur yfir á vegum
Rauða kross íslands og Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar. Samkvæmt
fréttatilkynningu RKÍ mun söfnun-
arféð renna óskert til Flóttamanna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna.
BRÉF TIL RITSTJÓRNAR
IÞROTTIR
Viðurnefni Ólsara ranghermd
í grein um viðurnefni og uppnefni
í Helgarpósti liðinnar viku var birt-
ur níðlegur leirburður um nafn-
greinda einstaklinga í Ólafsvík.
Helgarpóstinum var ekki kunnugt
um tilurð þessa vísubrots né var
þess gætt að kanna út í hörgul hvort
viðkomandi einstaklingar væru á
lífi og bæru þessi uppnefni. Nú hefur
okkur verið bent á, að viðkomandi
einstaklingar séu á lífi og hafi aldrei
borið þessi uppnefni. Vísan mun
hafa orðið til í glensi barna fyrir
löngu síðan og þannig sett saman af
fullkomnu ábyrgðarleysi og grimmd
stríðinna barna.
Helgarpósturinn biðst velvirðing-
ar á þessum mistökum og biður við-
komandi einstaklinga innilega af-
sökunar. Jafnframt þykir okkur mið-
ur að hafa birt uppnefni á fimmta
Ólsaranum. Samkvæmt þessu hafa
heimildir okkar um upp- og viður-
nefni í Ólafsvík verið ótryggar.
Ritstj.
Forysta í fyrstu
umferd
Rauðu djöflarnir frá Manchester
halda áfram að svekkja tauga-
strekkta fylgismenn sína og sæti
framkvæmdastjórans orðið rauð-
glóandi. Þeir brugðust spámanni
HP og sama gerðu Drottningargarðs-
verðir (Queens Park Rangers). Engu
að síður náði spámaður HP 7 réttum
af 12. Um leið tók hann forystu í
keppni sinni við aðra fjölmiðla — ut-
an við fjölmiðlakeppni íslenskra
getrauna.
HP náði 7 og það gerði DV einnig.
Dagur og Bylgjan náðu 6, en Morg-
unblaðið, Þjóðviljinn og Ríkisút-
varpið náðu 5. Lestina rak spámað-
ur Tímans með aðeins 3 rétta.
Nú hefur Alþýðublaðið, sem sigr-
aði í fyrra en er einnig utan keppn-
innar af einhverjum dularfullum
orsökum, skorað á HP í innbyrðis
keppni og er auðvitað ekki annað
hægt en að taka því. Sú keppni hefst
þá frá og með þessari leikviku.
Síðasti seðill var nokkuð heima-
sigralegur, en þessi er það í enn rík-
ara mæli. Eiginlega væri farsælast
að veðja á heimasigur í hverjum ein-
asta leik, utan hvað nýliðarnir
Wimbleton hafa það varla af að
sigra Liverpool-maskínuna. Þá nær
Sunderland því vart að sigra Ports-
LEIKVIKA 7 Leikir 4. október 1986
K
1 X 2
1 Chelsea - Charlton 2 Everton - Arsenal 3 Man. City - Leicester I
1
1
4 Norwich - Q.P.R. 5 Nott'm Forest - Man. Utd. 6 Sheffield Wed. - Oxford 1
1
1
7 Southampton - Newcastle 8 Tottenham - Luton 9 Watford - West Ham 1
1
1
10 Wimbledon - Liverpool 11 Sunderland - Portsmouth 12 W.B.A. - Oldham X
X
mouth. Liðin Chelsea, Everton,
Nottingham Forest, Sheffield
Wednesday, Southampton og Wat-
ford voru öll sterk á heimavelli í
fyrra og töpuðu þar aðeins örfáum
leikjum. Ekki verður séð að andstæð-
ingar þessara liða nú geti rönd við
reist. Nokkur vafi leikur á getu
Manchester City til að sigra
Leicester í ljósi síðustu úrslita og
spáin um heimasigur þar því blend-
in. Luton á það til að koma á óvart,
en varla ríða þeir feitum hesti frá
White Hart Lane, velli Tottenham
Hotspurs.
En sem sagt, forysta í fyrstu um-
ferð og bein braut framundan.
FÞG
LAUSN Á SKÁKÞRAUT
25 Áki Pétursson
Svartur er nærri í algerri leik-
þröng, hvaða leik sem hann velur,
að undanskildum Kxc2, er honum
búið mát í næsta ieik. En þá er að
búa sig undir Kxc2, til þess þarf
rýmingarleik:
1. Hh8 Kxc2 2. Dh7
Hin mátin eru óbreytt.
26 Niels Höegh
Þetta dæmi er samið fyrir áhrif
frá „indverska" dæminu fræga:
1. Bal Kd3 2. Hbd Kd4
3. Hd2 (indverska þemað)
1. - Kc2 2. De2 +
1.-Kc3 2. Dxe3 +
1.-Rfl+ 2. Hxfl
10 HELGARPÓSTURINN