Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 02.10.1986, Qupperneq 16

Helgarpósturinn - 02.10.1986, Qupperneq 16
Stálgrindarhúsið sem Bifreiðaeftirlitið skyldi fá og dómsmálaráðuneytið leigði af Ráli í Polaris til 12 ára. Baett aðstaða Bifreiðaeftirlitsins hefur ekki hlotið náð í augum fjárveitingavaldsins. „Sparnaðurinn" mun kosta 7 —10 milljónir króna. MILLJÓNIR í SÚGINN Páll Jónsson í Polaris hefur höföaö mál gegn ríkinu vegna hús- nœöis sem leigt var fyrir Bifreiöaeftirlitiö — milljón króna krafa vegna hiröuleysis leigutaka. I þrjú ár stóö þetta dýra leiguhús- nœöi ónotaö og ókynt. Páll G. Jónsson, eigandi og for- stjóri ferðaskrifstofunnar Poiaris, hefur höfdað mál gegn dómsmála- ráðherra, fjármálaráöherra og Bif- reiðaeftirliti ríkisins, þar sem hann krefur þessa aðila um 2,4 milljón króna greiðslu vegna ógoldinnar leigu og skemmda á hásnœði Páls að Bíldshöfða 6. Um er að rœða stálgrindarhús skammt frá stöðvum Bifreiðaeftirlits- ins og stóð til að eftirlitið fengi þar aðstööu til skoðunar á bifreiðum innanhúss. Dómsmálaráðuneytið hefur haft stálgrindarhús þetta á leigu í alls 3 ár án þess að nota það, enda fékkst aldrei fjárveiting í það verkefni að bœta aðstöðu Bifreiða- eftirlitsins. í þrjú ár, frá maí 1983 til júní 1986, hefur dómsmálaráðuneytið greitt háa leigu fyrir stálgrindarhús þetta. í upphafi tímabilsins var leiguupphæðin 125 þúsund krónur á mánuði, en samkvæmt leigu- samningi skyldi leigan hækka á þriggja mánaða fresti og var leigu- upphæðin undir lokin komin upp í rúmlega 350 þúsund krónur á mán- uði. Stálgrindarhúsið var tekið á leigu vorið 1983 í þágu Bifreiðaeftirlitsins og leigutímabil ákveðið 12 ár — eða til mánaðamóta maí og júní 1995. Þarna skyldi hanna og innrétta framtíðaraðstöðu Bifreiðaeftirlitsins til skoðunar á bifreiðum innanhúss, enda aðstaða eftirlitsins til slíkra hluta með öllu ófullnægjandi. Þessi fyrirætlan hefur á hinn bóginn ekki hlotið náð fyrir augum fjárveitinga- valdsins. í desember síðastliðnum náðist samkomulag milli leigusala og leigutaka um niðurfellingu leigu- samningsins. Ríkisvaldið var búið að greiða talsverða leigu fyrirfram og var tekið tillit til þess í riftunar- samkomulaginu, auk þess sem hús- næðið skyldi afhent 15. febrúar 1986. Samkomulag náðist um að Páll í Polaris endurgreiddi ríkisvald- inu alls 5,2 milljónir króna með skuldabréfum til 10 ára og skyldi fyrsta greiðsla innt af hendi árið 1988. DÝR LEIGA FYRIR ÓNOTAÐ HÚSNÆÐI Húsnæðið var hins vegar ekki af- hent formlega fyrr en um mánaða- mótin maí og júní í sumar og greiddi dómsmálaráðuneytið leigu í sam- ræmi við það. Alls hefur ríkið á öllu þessu tímabili greitt Páli i Polaris leigu upp á tæplega 12,3 milljónir króna — og dregst þar frá umsamin endurgreiðsla Páls. I heild hefur þá ríkið dælt rúmlega 7 milljónum króna í þetta húsnæði, sem var látið standa nær autt og ónotað af þess hálfu í þrjú ár. Á hinn bóginn urðu aðilar ekki sammála um skil á húsinu. Skilin urðu síðar en um samdist og auk þess telur eigandinn að á tímabilinu hafi orðið á eigninni skemmdir, sem rekja megi beint til hirðuleysis leigu- taka. Enn fremur krefur Páll ríkið um greiðslu á leigu fyrir tímabilið 15. febrúar til 15. júní sérstaklega, vegna afnotamissis. Ljóst er að illa hefur verið hirt um húsnæðið meðan það var í umsjá Bifreiðaeftirlitsins. Aðilar málsins urðu sáttir á að fram færi sérstök út- tekt fagmanna á húsnæðinu. Voru fengnir í það verk verkfræðingarnir Skúli Guðmundsson og Magnús Jónsson. Þeir skiluðu af sér skýrslu 28. maí 1986 þar sem fram komu at- hugasemdir og aðfinnslur upp á alls 10 liði. Meðal aðfinnsluatriða eru frostskemmdir í pípukerfi, skemmd- ir á hitalögnum og fleira. 13. júní gerir ríkið tilboð um að það greiði Páli 200 þúsund krónur vegna hreinsunar húsnæðisins og 120 þús- und krónur vegna skemmda á hita- lögn, alls 320 þúsund krónur. Páll í Polaris sættir sig ekki við þetta tilboð og fól því Sigurði Sigur- jónssyni lögmanni að fara með mál sitt gegn ríkinu. Þeir höfðuðu mál 26. júní síðastliðinn og hljóðar kraf- an upp á alls tæplega 2,4 milljónir króna. Þar af er krafa vegna skemmdanna rúmlega 992 þúsund krónur, en „skaðabætur vegna af- Páll í Bolaris vill fá 2,4 milljónir vegna skemmda og afnotamissis. notamissis" eru tæplega 1,4 milljón- ir króna. Dómsmálaráðuneytið afneitar þessum kröfum alfarið. Hefur ráðu- neytið falið ríkislögmanni, Gunn- laugi Claessen að fara með málið, sem hefur verið dómtekið í borgar- dómi. 1 þessari viku mun ríkislög- maður skila til embættisins sér- stakri greinargerð og í ljósi þess vildi Gunnlaugur lítið tjá sig um málið í fjölmiðlum. RÍKIÐ KREFST SÝKNU ,,Eg tel þessar kröfur ekki rétt- mætar. Við munum halda uppi full- um vörnum og teljum okkur gera það með réttu. Við komum að sjálf- sögðu til með að krefjast sýknu,“ sagði Gunnlaugur. Páll G. Jónsson í Polaris sagði á hinn bóginn að hann ætti alls ekki von á öðru en að ríkið stæði við sitt. „Ég samdi við þá af mínum elsku- legheitum að losa þá undan þessum samningi. Ég vona auðvitað að sam- komulagið um úttektina standi. Ég trúi ekki að íslenska ríkið standi ekki við sína hluti,“ sagði Páll. í út- tekt verkfræðinganna kom fram viðgerðarmat upp á nokkur hundr- uð þúsund krónur, sem lögfræðing- ur Páls hefur framreiknað í 992 þús- und krónur, en ráðuneytið neitar al- farið að bera ábyrgð á öllum þeim aðfinnsluatriðum sem tíunduð voru. Auk þess er bent á að eigand- inn hafi sjálfur haft aðgang að hús- næðinu og endurleigt að hluta til yfir ákveðið tímabil. Hann hafi því verið í góðri aðstöðu til að fylgjast með ástandi húsnæðisins og gera at- hugasemdir á hverjum tíma. Stálgrindarhús þetta er lítið ann- að en stór skemma, alls 2100 fer- metrar auk 4716 fermetra lóðar. Ljóst er að fyrirliggjandi skemmdir stafa aðallega af því að húsnæðið var ekki kynt að vetri til. Málshöfðun Páls kom Bifreiða- eftirlitinu að óvörum og ljóst að þar höfðu menn ekki gert ráð fyrir möguleikanum á skemmdum. Hús- næðið hefur af þess hálfu staðið ónotað allan tímann, en það var þó í umsjá stofnunarinnar. Bifreiða- eftirlitið hefur lengi barist fyrir bættri aðstöðu, en hefur mætt litl- um skilningi fjárveitingavaldsins. Stálgrindarhúsið var tekið á leigu í maí 1983 með bætta aðstöðu eftir- litsins í huga, en hingað til hefur ekki fengist fjárveiting til nauðsyn- legra innréttinga og tækjakaupa. Nú hefur dómsmálaráðuneytið á hinn bóginn tekið á leigu húsnæði í sömu byggingu og eftirlitið er í og er fjár- veiting til kaupa á innréttingu og tækjum í fyrirliggjandi drögum að fjárlögum fyrir næsta ár. Alls er þó óvíst hvort sú fjárveiting hljóti end- anlega náð fyrir augum fjárveit- ingavaldsins. Guðni Karlsson, forstöðumaður Bifreiðaeftirlitsins, vildi fátt eitt segja um málshöfðun Páls í Polaris, en sagði Pál hafa alla tíð haft aðgang að húsinu og verið mjög vitandi um allar aðstæður. Sagði hann að nú lægi íyrir það brýna verkefni að bæta aðstöðu Bifreiðaeftirlitsins, hún væri enda alls ófullnægjandi. Það væri hins vegar dýrt að innrétta og kaupa nauðsynleg tæki, en hann ætti von á því að þetta þjóðþrifaverk mætti skilningi yfirvalda. MILLJÖNIR KRÓNA í SÚGINN Ef dómur í máli þessu fellur Páli Jónssyni í Polaris í vil, þá stendur eftir, að ríkið hafi reitt fram 10 milij- ónir króna úr sjóðum sínum í hús- næði sem var ekki nýtt hið minnsta. Á ári hverju var við afgreiðslu fjár- laga beiðni dómsmálaráðuneytisins og Bifreiðaeftirlitsins skorin niður — enda „sparnaðarandi" sem svifið hefur yfir vötnunum. Hins vegar er afleiðing þessa „sparnaðaranda" sú, að 7—10 milljónum króna hefur ver- ið kastað út um gluggann. Ef fram fer sem horfir mun hið nýja leigu- húsnæði einnig standa ónotað í næstu framtíð, þ.e. ef fjárveitinga- valdið velur sér þennan vettvang til niðurskurðar á ríkisútgjöldum. Ekki verður annað séð á þessari stundu en að Bifreiðaeftirlitið fái fullnægj- andi fjárframlög, enda stendur til að gera þarft átak í starfsemi stofnun- arinnar. Meðal annars liggur fyrir að gert hefur verið sérstakt samkomu- lag við tryggingafélögin um eftirlit með sölu á tjónabílum, sem hefur verið umdeildur þáttur í starfsemi félaganna. Þá er og verið að meta viðbrögð við síauknum innflutningi á notuðum bílum, enda ljóst að meðal þeirra leynast margir tjóna- bílar sem þyrftu sérstakrar skoðun- ar við. HP fjallaði fyrir nokkrum mánuðum um sölu tryggingafélaga á tjónabílum, um vandkvæði Bifreiðaeftirlitsins í því sambandi og urðu þau skrif að sögn heimildar- manns ekki síst til þess að farið var út í samkomulag þetta; nú þurfa allir tjónabílar sem seldir hafa verið á uppboði tryggingafélaganna að fara í gegnum sérstaka skoðun eftir að hafa fengið „gæðastimpil" hjá lög- giltu viðgerðarverkstæði. Með þessu er ætlunin að útiloka að illa við- gerðir bílar frá „fúskurum" komi meira eða minna skakkir og skældir á götuna. eftir Friðrik Þór Guðmundsson mynd Jim Smarti 16 HELGARPÖSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.