Helgarpósturinn - 02.10.1986, Side 20
NYJAR
IÁNAREGLUR
HINN 1. SEPTEMBER 1986
TÓKU GILDI NÝ LÖG
UM HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
OG REGLUGERÐ UM
LÁNVEITINGAR STOFNUNARINNAR
ÚR BYGGINGARSJÓÐI
RÍKISINS.
Hinar nýju reglur varöa þessi lán:
Lán til að byggja eöa kaupa nýjar íbúöir
í smíðum.
Lán til aö kaupa notaöar íbúöir.
Lán til meiri háttar viöbygginga, endur-
bóta og endurnýjunar á notuöu íbúöar-
húsnæði.
ry, Lán til orkusparandi breytinga á íbúö-
arhúsnæöi.
Framkvæmd þessara nýju reglna er skýrö
hér á eftir. Fræöslurit um hina nýju tilhögun
liggur frammi hjá stofnuninni, á skrifstofum
Félagsmálaráðuneytisins, sveitarfélaga og hjá
Byggingaþjónustunni, Hallveigarstíg 1,
Reykjavík.
SOTTUM
LÁN OG BEÐIÐ
EFTIR
LÁNSLOFORÐI
Ef þú hyggst sækja um húsnæöislán til
Húsnæðisstofnunar ríkisins er grundvallar-
atriði aö gera þaö og bíöa síðan eftir skriflegu
lánsloforöi áður en kaup eru gerö eöa bygging
hafin. Þaö er afar óhyggilegt aö gera kaup-
samning eöa ráöast í byggingu áöur en
staðfest, skriflegt lánsloforö stofnunarinnar
liggur fyrir, eins og augljóst er. Jafn óvarlegt er
aö selja íbúö nema fyrir liggi, aö kaupandinn
hafi skriflegt lánsloforð Húsnæöisstofnunar-
innar í höndum, hyggist hann greiöa hluta
kaupverösins meö láni frá stofnuninni.
SKRIFLEGT
LÁNSLOFORÐ
Skriflegt lánsloforö Húsnæðisstofnunarinn-
ar færöu innan 8 vikna frá umsóknardegi, haf-
iröu veriö úrskuröaöur lánshæfur þar. í því er
fjárhæö lánsins tilgreind og hvenær þaö verð-
ur borgað út. Lánsloforð er að sjálfsögðu því
aðeins unnt að gefa, aö tilskilin gögn hafi veriö
lögð fram með umsókninni og í tæka tíð.
MIKLU MÁLI SKIPTIR
Miklu máli skiptir fyrir þig og þína, hvort
heldur þú ert seljandi eöa kaupandi íbúöar, aö
þú bíðir með allar skuldbindingar og endan-
legar ákvarðanir þar til skriflegt lánsloforð
stofnunarinnar hefur borist væntanlegum
kaupanda. Ella geta salan/kaupin oröiö öllum
aðilum fjötur um fót og baggi um ókomin ár.
Þaö er grundvallaratriði að gera hlutina í réttri
röð og byrja ekki á öfugum enda. Séu málin
vel undirbúin og byrjaö á því, sem á aö gera
fyrst, má ætla, aö þeim Ijúki á farsælan hátt.
Sé hins vegar reynt aö fara í málin í öfugri röö
og jafnvel tekin áhætta varöandi há lán, m.a.
varðandi útborgunartíma þeirra frá stofnun-
inni, bjóöa kaupandi og seljandi íbúöar hætt-
unni heim. Þaö er augljóst, að enginn getur
skuldbundið sig í kaupsamningi til að greiða
fé, sem hann ætlar aö fá að láni, fyrr en hann
hefur skriflega staðfestingu fyrir þvf hvenær
þaö á aö koma til greiðslu.
ABYRGÐ
FASTEIGNASALA
í þessu sambandi er áríöandi að minnast
þess, aö fasteignasali sá, sem hefur milli-
göngu um viðskipti kaupanda og seljanda, er
þar að kemur, ber mikla ábyrgð á því að vel
takist til og ekki komi til vandræða, sem koma
HUSNÆÐISSTOl
KYNl
NYJU HUSN
síöan öðrum hvorum eöa báðum aöilum í koll.
Kaupsamningurinn á að vera svo vel undirbú-
inn og unninn, að seljandi og kaupandi íbúðar
geti treyst því til fulls að sérhver liður hans
standist til hlítar. ( því sambandi skipta
greiöslur og greiðslutími almennt mjög miklu
máli. Um þá hnúta verður að búa eins vel og
frekast er mögulegt. í því efni má enga áhættu
taka, ef vel á að vera. Verið þess vegna kröfu-
hörö um vandaðan undirbúning og nákvæm
vinnubrögö.
LÁNSLOFORÐ ER
JAFN MIKILVÆGT
FYRIR BÁÐA AÐILA
Væntanlegir íbúðakaupendur ættu að
minnast þess, aö skriflegt, skuldbindandi láns-
loforö Húsnæöisstofnunarinnar í höndum
þeirra gerir samningsstööu þeirra á allan hátt
miklu öruggari og betri en ef þeir hafa það ekki
í höndum. Með sama hætti er það mjög mikil-
vægt fyrir seljendur íbúða, að væntanlegir
kaupendur hafi slík loforð í höndum. Það er
eitt hiö fyrsta sem þeir ættu aö kynna sér er
samningaviðræður hefjast,
Seljandi hlýtur fyrst og fremst að telja þann
kaupanda traustan, sem m.a. hefur skriflegt
lánsloforö Húsnæðisstofnunarinnar upp á
vasann, ætli hann á annað borö aö sækja um
húsnæðislán. í þessu sambandi eru allar
setningar óæskilegar, þar sem talað er um
„Ef, vonandi, kannski, einhvern tíma“. Þess
vegna er þaö grundvallaratriði fyrir báða aðila,
að skriflegt lánsloforö Húsnæöisstofnunarinn-
ar liggi fyrir þegar kaupsamningur er undirbú-
inn eða ráðist í byggingaframkvæmdir.
ÞU ÞARFT AÐ VITA
HVAÐ ÞÚ HUGSAR ÞÉR
Þegar þú sækir um húsnæðislán þarftu sem
sagt ekki að hafa fengið augastað á sérstakri
íbúð eða lóð og því síður gert út um það mál.
Hins vegar þarftu að vita nokkurn veginn í hve
stór kaup eða framkvæmd þú ætlar að ráðast.
Fyrstu drög að kostnaðar- og greiðsluáætlun
þurfa að fylgja umsókninni; einnig vottorð líf-
eyrissjóðs/lífeyrissjóða um iðgjaldagreiöslur
þínar (og ykkar beggja, ef um hjúskap eða
sambýli er að ræða); og loks vottorð skatt-
stjóra um íbúðareign (hafi hún verið fyrir hendi)
og árstekjur sl. ár. Ella telst umsóknin ekki
fullgild.
AFGREIÐSLURÖÐ
Umsókn þín færist í afgreiðsluröð jafnskjótt
og hún berst Húsnæðisstofnun. Sé lánsum-
sókn póstsend stofnuninni er hún færð í af-
greiðsluröð í samræmi við póstsetningardag.
Lán verða afgreidd í sömu röð og umsóknir
berast og/eða íbúðir verða veðhæfar, skv. þar
að lútandi reglum. Lánveiting til þeirra, sem
ekki hafa átt íbúð á sl. 3 árum gengur fyrir veit-
ingu lána til hinna, sem hafa átt og/eða eiga
íbúðir á þeim tíma. Er í því sambandi farið eft-
ir fyrrnefndu vottoröi skattstjóra.
Sama einstaklingi er að jafnaöi ekki veitt
húsnæðislán oftar en á 5 ára fresti.
ENDANLEG GÖGN VEGNA
ÚTBORGUNAR LÁNS
Endanleg kostnaðar- og greiðsluáætlun
umsækjanda, sem og önnur umbeðin gögn,
verða að liggja fyrir í stofnuninni a.m.k. 3 mán-
uðum áður en lánveiting stofnunarinnar á að
koma til greiðslu. Hafi fullgild gögn ekki borist
verður útborgun lánsins frestað um 3 mánuöi.
Hafi gögn þá ekki borist fellur umsóknin og
lánveitingin úr gildi.
HVERJIR
TELJAST
LÁNSHÆFIR?
Það er grundvallarbreyting frá fyrri reglum,
að lánsréttur er nú, í flestum tilfellum, háður
því, að:
Umsækjandi sé og hafi verið virkur fé-
lagi í lífeyrissjóði sl. 24 mánuði, samfleytt.
Sá lífeyrissjóður hafi keypt eða skuld-
bundið sig til að kaupa skuldabréf af Húsnæð-
isstofnun ríkisins fyrir a.m.k. 20% af ráðstöf-
unarfé sínu.
Virkur félagi í lífeyrissjóði telst hver sá, sem
hefur sannanlega greitt iðgjöld af atvinnutekj-
um sínum eða námslánum samfleytt sl. 24
mánuði áður en hann sækir um lánið - og
hver sá, sem nýtur lífeyris úr sjóönum.
Til að lífeyrissjóðsmenn geti notið hámarks-
lánsréttar hjá stofnuninni verður viðkomandi
lífeyrissjóður að hafa keypt eða skuldbundið
sig til að kaupa skuldabréf af Húsnæðisstofn-
un fyrir 55% af árlegu ráðstöfunarfé sínu.
Nemi kaupin lægra hlutfalli skerðist lánsréttur
sjóðsfélaga í samræmi við það.
HVERJIR AÐRIR?
Til eru undantekningar frá þeirri meginreglu,
að væntanlegur lántakandi verði að vera virk-
ur félagi í lífeyrissjóöi, svo hann fái lán hjá
Húsnæðisstofnun. Þær eru þessar helstar:
HEIMILISSTÖRF
Það fólk, sem hefur haft heimilisstörf að
aðalstarfi og jafnframt launuð störf utan heim-
ilis, þó ekki meiri en nemur fjórðungi ársverks
eða hærri árslaun en 75 þús. krónur, miðað
við kauplag árið 1985 á hámarks-lánsrétt hjá
stofnuninni, svo fremi það sé ekki í hjúskap
eða sambúð. Annars á það sama lánsrétt og
hitt hjónanna eða hin sambýlismanneskjan.
Hluti lánsréttar getur áunnist á skemmri tíma.
ÖRORKA, ELLI, FÖTLUN
Elli- og örorkulífeyrisþegar, sem greitt hafa
til lífeyrissjóðs í 24 mánuði samtals, þótt á
mun lengri tíma sé, eiga sama lánsrétt og þeir
einstaklingar, sem greitt hafa í lífeyrissjóð
síðustu 24 mánuði, samfleytt. Fái lífeyrisþegi
lífeyri frá fleirum en einum lífeyrissjóöi miðast
lánsréttur hans við skuldabréfakaup þess
sjóðs, sem greiðir honum mestan lífeyri þegar
hann sækir um lánið. Þeir lífeyrisþegar, sem
ekki búa við þessa aðstöðu, eiga hámarks-
lánsrétt. Sama máli gegnir um þá, sem ekki
hafa stundað launuð störf sakir fötlunar eða
elli, þótt þeir séu ekki lífeyrisþegar.
ÁRSTÍÐABUNDIN STÖRF
OG TlMABUNDIN VEIKINDI
Lánsréttur manna skerðist ekki þótt þeir hafi
misst úr vinnu vegna árstíðabundinnar at-
vinnu eða vegna veikinda.
HVERERU
LÁNSKJÖRIN?
Lán til að byggja eða kaupa íbúðarhúsnæði
er til allt að 40 ára. Það má að sjálfsögðu
20 HELGARPÓSTURINN