Helgarpósturinn - 02.10.1986, Síða 20

Helgarpósturinn - 02.10.1986, Síða 20
NYJAR IÁNAREGLUR HINN 1. SEPTEMBER 1986 TÓKU GILDI NÝ LÖG UM HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS OG REGLUGERÐ UM LÁNVEITINGAR STOFNUNARINNAR ÚR BYGGINGARSJÓÐI RÍKISINS. Hinar nýju reglur varöa þessi lán: Lán til að byggja eöa kaupa nýjar íbúöir í smíðum. Lán til aö kaupa notaöar íbúöir. Lán til meiri háttar viöbygginga, endur- bóta og endurnýjunar á notuöu íbúöar- húsnæði. ry, Lán til orkusparandi breytinga á íbúö- arhúsnæöi. Framkvæmd þessara nýju reglna er skýrö hér á eftir. Fræöslurit um hina nýju tilhögun liggur frammi hjá stofnuninni, á skrifstofum Félagsmálaráðuneytisins, sveitarfélaga og hjá Byggingaþjónustunni, Hallveigarstíg 1, Reykjavík. SOTTUM LÁN OG BEÐIÐ EFTIR LÁNSLOFORÐI Ef þú hyggst sækja um húsnæöislán til Húsnæðisstofnunar ríkisins er grundvallar- atriði aö gera þaö og bíöa síðan eftir skriflegu lánsloforöi áður en kaup eru gerö eöa bygging hafin. Þaö er afar óhyggilegt aö gera kaup- samning eöa ráöast í byggingu áöur en staðfest, skriflegt lánsloforö stofnunarinnar liggur fyrir, eins og augljóst er. Jafn óvarlegt er aö selja íbúö nema fyrir liggi, aö kaupandinn hafi skriflegt lánsloforð Húsnæöisstofnunar- innar í höndum, hyggist hann greiöa hluta kaupverösins meö láni frá stofnuninni. SKRIFLEGT LÁNSLOFORÐ Skriflegt lánsloforö Húsnæðisstofnunarinn- ar færöu innan 8 vikna frá umsóknardegi, haf- iröu veriö úrskuröaöur lánshæfur þar. í því er fjárhæö lánsins tilgreind og hvenær þaö verð- ur borgað út. Lánsloforð er að sjálfsögðu því aðeins unnt að gefa, aö tilskilin gögn hafi veriö lögð fram með umsókninni og í tæka tíð. MIKLU MÁLI SKIPTIR Miklu máli skiptir fyrir þig og þína, hvort heldur þú ert seljandi eöa kaupandi íbúöar, aö þú bíðir með allar skuldbindingar og endan- legar ákvarðanir þar til skriflegt lánsloforð stofnunarinnar hefur borist væntanlegum kaupanda. Ella geta salan/kaupin oröiö öllum aðilum fjötur um fót og baggi um ókomin ár. Þaö er grundvallaratriði að gera hlutina í réttri röð og byrja ekki á öfugum enda. Séu málin vel undirbúin og byrjaö á því, sem á aö gera fyrst, má ætla, aö þeim Ijúki á farsælan hátt. Sé hins vegar reynt aö fara í málin í öfugri röö og jafnvel tekin áhætta varöandi há lán, m.a. varðandi útborgunartíma þeirra frá stofnun- inni, bjóöa kaupandi og seljandi íbúöar hætt- unni heim. Þaö er augljóst, að enginn getur skuldbundið sig í kaupsamningi til að greiða fé, sem hann ætlar aö fá að láni, fyrr en hann hefur skriflega staðfestingu fyrir þvf hvenær þaö á aö koma til greiðslu. ABYRGÐ FASTEIGNASALA í þessu sambandi er áríöandi að minnast þess, aö fasteignasali sá, sem hefur milli- göngu um viðskipti kaupanda og seljanda, er þar að kemur, ber mikla ábyrgð á því að vel takist til og ekki komi til vandræða, sem koma HUSNÆÐISSTOl KYNl NYJU HUSN síöan öðrum hvorum eöa báðum aöilum í koll. Kaupsamningurinn á að vera svo vel undirbú- inn og unninn, að seljandi og kaupandi íbúðar geti treyst því til fulls að sérhver liður hans standist til hlítar. ( því sambandi skipta greiöslur og greiðslutími almennt mjög miklu máli. Um þá hnúta verður að búa eins vel og frekast er mögulegt. í því efni má enga áhættu taka, ef vel á að vera. Verið þess vegna kröfu- hörö um vandaðan undirbúning og nákvæm vinnubrögö. LÁNSLOFORÐ ER JAFN MIKILVÆGT FYRIR BÁÐA AÐILA Væntanlegir íbúðakaupendur ættu að minnast þess, aö skriflegt, skuldbindandi láns- loforö Húsnæöisstofnunarinnar í höndum þeirra gerir samningsstööu þeirra á allan hátt miklu öruggari og betri en ef þeir hafa það ekki í höndum. Með sama hætti er það mjög mikil- vægt fyrir seljendur íbúða, að væntanlegir kaupendur hafi slík loforð í höndum. Það er eitt hiö fyrsta sem þeir ættu aö kynna sér er samningaviðræður hefjast, Seljandi hlýtur fyrst og fremst að telja þann kaupanda traustan, sem m.a. hefur skriflegt lánsloforö Húsnæðisstofnunarinnar upp á vasann, ætli hann á annað borö aö sækja um húsnæðislán. í þessu sambandi eru allar setningar óæskilegar, þar sem talað er um „Ef, vonandi, kannski, einhvern tíma“. Þess vegna er þaö grundvallaratriði fyrir báða aðila, að skriflegt lánsloforö Húsnæöisstofnunarinn- ar liggi fyrir þegar kaupsamningur er undirbú- inn eða ráðist í byggingaframkvæmdir. ÞU ÞARFT AÐ VITA HVAÐ ÞÚ HUGSAR ÞÉR Þegar þú sækir um húsnæðislán þarftu sem sagt ekki að hafa fengið augastað á sérstakri íbúð eða lóð og því síður gert út um það mál. Hins vegar þarftu að vita nokkurn veginn í hve stór kaup eða framkvæmd þú ætlar að ráðast. Fyrstu drög að kostnaðar- og greiðsluáætlun þurfa að fylgja umsókninni; einnig vottorð líf- eyrissjóðs/lífeyrissjóða um iðgjaldagreiöslur þínar (og ykkar beggja, ef um hjúskap eða sambýli er að ræða); og loks vottorð skatt- stjóra um íbúðareign (hafi hún verið fyrir hendi) og árstekjur sl. ár. Ella telst umsóknin ekki fullgild. AFGREIÐSLURÖÐ Umsókn þín færist í afgreiðsluröð jafnskjótt og hún berst Húsnæðisstofnun. Sé lánsum- sókn póstsend stofnuninni er hún færð í af- greiðsluröð í samræmi við póstsetningardag. Lán verða afgreidd í sömu röð og umsóknir berast og/eða íbúðir verða veðhæfar, skv. þar að lútandi reglum. Lánveiting til þeirra, sem ekki hafa átt íbúð á sl. 3 árum gengur fyrir veit- ingu lána til hinna, sem hafa átt og/eða eiga íbúðir á þeim tíma. Er í því sambandi farið eft- ir fyrrnefndu vottoröi skattstjóra. Sama einstaklingi er að jafnaöi ekki veitt húsnæðislán oftar en á 5 ára fresti. ENDANLEG GÖGN VEGNA ÚTBORGUNAR LÁNS Endanleg kostnaðar- og greiðsluáætlun umsækjanda, sem og önnur umbeðin gögn, verða að liggja fyrir í stofnuninni a.m.k. 3 mán- uðum áður en lánveiting stofnunarinnar á að koma til greiðslu. Hafi fullgild gögn ekki borist verður útborgun lánsins frestað um 3 mánuöi. Hafi gögn þá ekki borist fellur umsóknin og lánveitingin úr gildi. HVERJIR TELJAST LÁNSHÆFIR? Það er grundvallarbreyting frá fyrri reglum, að lánsréttur er nú, í flestum tilfellum, háður því, að: Umsækjandi sé og hafi verið virkur fé- lagi í lífeyrissjóði sl. 24 mánuði, samfleytt. Sá lífeyrissjóður hafi keypt eða skuld- bundið sig til að kaupa skuldabréf af Húsnæð- isstofnun ríkisins fyrir a.m.k. 20% af ráðstöf- unarfé sínu. Virkur félagi í lífeyrissjóði telst hver sá, sem hefur sannanlega greitt iðgjöld af atvinnutekj- um sínum eða námslánum samfleytt sl. 24 mánuði áður en hann sækir um lánið - og hver sá, sem nýtur lífeyris úr sjóönum. Til að lífeyrissjóðsmenn geti notið hámarks- lánsréttar hjá stofnuninni verður viðkomandi lífeyrissjóður að hafa keypt eða skuldbundið sig til að kaupa skuldabréf af Húsnæðisstofn- un fyrir 55% af árlegu ráðstöfunarfé sínu. Nemi kaupin lægra hlutfalli skerðist lánsréttur sjóðsfélaga í samræmi við það. HVERJIR AÐRIR? Til eru undantekningar frá þeirri meginreglu, að væntanlegur lántakandi verði að vera virk- ur félagi í lífeyrissjóöi, svo hann fái lán hjá Húsnæðisstofnun. Þær eru þessar helstar: HEIMILISSTÖRF Það fólk, sem hefur haft heimilisstörf að aðalstarfi og jafnframt launuð störf utan heim- ilis, þó ekki meiri en nemur fjórðungi ársverks eða hærri árslaun en 75 þús. krónur, miðað við kauplag árið 1985 á hámarks-lánsrétt hjá stofnuninni, svo fremi það sé ekki í hjúskap eða sambúð. Annars á það sama lánsrétt og hitt hjónanna eða hin sambýlismanneskjan. Hluti lánsréttar getur áunnist á skemmri tíma. ÖRORKA, ELLI, FÖTLUN Elli- og örorkulífeyrisþegar, sem greitt hafa til lífeyrissjóðs í 24 mánuði samtals, þótt á mun lengri tíma sé, eiga sama lánsrétt og þeir einstaklingar, sem greitt hafa í lífeyrissjóð síðustu 24 mánuði, samfleytt. Fái lífeyrisþegi lífeyri frá fleirum en einum lífeyrissjóöi miðast lánsréttur hans við skuldabréfakaup þess sjóðs, sem greiðir honum mestan lífeyri þegar hann sækir um lánið. Þeir lífeyrisþegar, sem ekki búa við þessa aðstöðu, eiga hámarks- lánsrétt. Sama máli gegnir um þá, sem ekki hafa stundað launuð störf sakir fötlunar eða elli, þótt þeir séu ekki lífeyrisþegar. ÁRSTÍÐABUNDIN STÖRF OG TlMABUNDIN VEIKINDI Lánsréttur manna skerðist ekki þótt þeir hafi misst úr vinnu vegna árstíðabundinnar at- vinnu eða vegna veikinda. HVERERU LÁNSKJÖRIN? Lán til að byggja eða kaupa íbúðarhúsnæði er til allt að 40 ára. Það má að sjálfsögðu 20 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.