Helgarpósturinn - 02.10.1986, Page 22

Helgarpósturinn - 02.10.1986, Page 22
HÚSNÆÐISSTOFMJN RÍKISIIÍS r , KYNNIR: NYJU HUSNÆÐISIANIN IANTIL ORICUSPARANDI ENDURBÓTA Þá þarf sérstök verklýsing og kostnaðar- áætlun, gerðar af trúnaðarmanni stofnunar- innar, að fylgja lánsumsókninni. Lánið getur numið allt að 70% af endurbótakostnaðinum en fer þó ekki yfir kr. 1.588.000,00. Lánstím- inn er allt að 21 ári. Um lánsréttinn og aðild að lífeyrissjóði gildir hið sama og áður hefur verið talið. TIL ENN FREKARI ÁHERSLU Hvort sem þú byggir, kaupir nýtt eða notað, gildir ávallt sama meginreglan: Kaupi lífeyrissjóður þinn ekki skuldabréf af Húsnæðisstofnun fyrir 55% af árlegum ráð- stöfunartekjum sínum, þá skerðist lánið til þín í hlutfalli við kauþ hans. VIÐHVAÐ ERU FRAMAN- GREINDAR LÁNS- FJÁRHÆÐIR MIÐAÐAR? Þær eru allar miðaðar við byggingarvísitölu 270 stig í seþtember 1986 og munu síðan taka breytingum í samræmi við breytingar á henni. Grunntölurnar, sem reiknað er frá, eru frá því í janúar 1986 og þær er að finna í Sam- komulagi aðila vinnumarkaðsins frá 26.2. sl. og lögum nr. 54/1986 um Húsnæðisstofnun ríkisins. FRAMHALD SKYLDU- SPARNAÐUR UNGMENNA öllum einstaklingum á aldrinum 16-25 ára, sem ekki hafa formlega undanþágu, er skylt að leggjatil hliðar 15% af launum sínum, í því skyni að mynda sér sjóð til íbúðabygginga /íbúðarkauþa. Launþegar á skyldusparnaðaraldri eru hvattir til að fylgjast gaumgæfilega með því að launagreiðendur dragi lögboðinn skyldusparn- að af launum og geri skil til Veðdeildar Lands- banka íslands. Hafi það brugðist er þeim bent á að snúa sér til lögfræðings, sem fer með málefni skyldusparnaðar hjá Húsnæðisstofnun ríkis- BREYTINGAR Á LÁNUMÚR BYGGINGAR- SJÓÐI VERKAMANNA Lán úr sjóðnum mega nú nema 85% af þeim kostnaðargrundvelli, sem Húsnæðis- málastjórn samþykkir. Heimilt er að hækka lánshlutfallið í allt að 90% ef um sérstaklega erfiðar fjölskyldu- eða fjárhagsástæður er að ræða. Einnig er heimilt að veita sérstök lán til allt að þriggja ára til þeirra, sem eiga í verulegum erfiðleikum með útborgun. AUGLÝSING ÞESSI ER BIRT AÐ HÖFÐU SAMRÁÐI OG í SAMVINNU VIÐ FÉLAGSMÁLA- RÁÐUNEYTIÐ OG ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS RAÐGJAFAR- STÖÐ FYRIR HÚS- BYGGJENDUR OG IBÚÐA- KAUPENDUR Ráðgjafarstöð stofnunarinnar hefur með höndum ráðgjöf til handa lántakendum. Þeim stendur þar til boða þjónusta ýmissa sérfræð- inga, t.d. verkfræðinga, viðskiptafræðinga, lögfræðinga, arkitekta, bókhaldsmanna o.fl. aðila. Fólk er eindregið hvatt til að notfæra sér þessa þjónustu, sem byggir á mikilli reynslu. Stöðin er opin kl. 8-16 daglega, sími 28500. HVERNIG GETURÐU FENGIÐ FREKARI UPPLÝSINGAR? Þær geturðu að sjálfsögðu fengið með ýmsu móti. En taktu með varúð upplýsingum, sem berast manna í milli eða söluaðilar veita, þótt vel séu meintar og gefnar í góðri trú. Hafðu samband við Húsnæðisstofnunina sjálfa, sem opin er kl. 8-16 daglega, sími 28500. Auk þess verða á næstunni haldnir kynningarfundir víða í landinu, þar sem sér- fróðir menn um hina nýju löggjöf og fram- kvæmd hennar munu flytja erindi og svara fyrirspurnum. Kynningarbæklingar eru fyrir hendi í Húsnæðisstofnuninni, Félagsmála- ráðuneytinu, Byggingaþjónustunni, Hallveigarstíg 1, Reykjavík og á skrifstofum sveitarfélaga í landinu. Húsnæðisstofnun ríkisins Laugavegi 77. 101 Reykjavík. Sími 28500 22 HELGARPÖSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.