Helgarpósturinn - 02.10.1986, Page 26
Einokun og hringamyndun
í myndlistinni?
Gagnrýni á Olaf og Gunnar Kvaran fyrir einokun í myndlistarheiminum.
*
,,Listfirmaö Kvaran og Kvaran hf“ Olafur Kvaran: Ætlum aö breyta fyrirtœkinu.
Ölafur Kvaran er forstöðumaður
Listasafns Einars Jónssonar...
og listráðgjafi Norræna hússins... og hluthafi í islenskri listmiðlun.
Gunnar Kvaran er einnig hluthafi
í islenskri listmiðlun og...
formaður bienal-nefndar mennta-
málaráðuneytisina
Einokun og hringamyndun í ís-
lenskri myndlisl? Þannig hljódar
gagnrýni margra myndlistarmanna
á hendur brœðrunum Gunnari og
Ólafi Kvaran. Umrœða um þetta er
komin á það stig, að um málið hefur
verið fjallað á fundum félaga mynd-
listarmanna og á stjórnarfundi
Sambands íslenskra myndlistar-
manna t síðustu viku.
Myndlistarmenn margir hverjir
segja að í raun ríki alger fámennis-
stjórn á því hverjir fái að sýna og
hverjir listamanna fái seld verk eftir
sig. Síðustu misseri hafi valdið færst
á enn færri hendur. Þeir eru nefndir
til þeirrar sögu bræðurnir Gunnar
og Ólafur Kvaran og Einar Hákonar-
son og sagt að þessir menn hafi
einnig samband inní voldugustu
stofnanir í kerfinu. Af viðtölum við
fólk í þessum geira þjóðlífsins er
Ijóst, að ásakanir og brigsl um ein-
okun hafa fengið byr undir báða
vængi með tímabundinni ráðningu
Gunnars Kvaran að Kjarvalsstöðum.
KVARAN OG KVARAN
Ólafur Kvaran er starfsmaður rík-
isins. Hann 6? forstöðumaður Lista-
safns Einars Jónssonar. Þá er hann
og listráðgjafi Norræna hússins. Auk
þess er hann formaður í félagi list-
fræðinga á Islandi.
Gunnar Kvaran er starfsmaður
borgarinnar. Hann er forstöðumað-
ur í Asmundarsafni. Á dögunum var
hann aukinheldur ráðinn til bráða-
birgða forstöðumaður Kjarvals-
staða. Gunnar er auk þess formaður
bienal-nefndarinnar á vegum
menntamálaráðuneytisins.
Margir viðmælenda HP hrósuðu
þeim bræðrum mjög fyrir góða
stjórnun þeirra á Ásmundarsafni og
Listasafni Einars Jónssonar og báru
menn lof á þá fyrir hugkvæmni í
leiðum til tekjuöflunar og fyrir að
gæða söfnin meira lífi.
Um hitt er meira deilt, þ.e. að þeir
skuli vera ráðandi um það hverjir og
hvenær listamenn geti sýnt í íang-
bestu sýningarsölum borgarinnar,
Norræna húsinu og Kjarvalsstöð-
um. Segja gagnrýnendur að sýning-
artími og -salur ráði algerlega úrslit-
um um hvernig til tekst um sölu
myndverka. En þetta nægði tæp-
lega til þeirrar nafngiftar, sem
myndlistarmaður gaf á veldi þeirra
bræðra: Listfirmað Kvaran og Kvar-
an hf?
EINKAFYRIRTÆKIÐ
Þeir Kvaran-bræður eiga og reka
fyrirtækið íslensk listmiðlun sf. —
og eru meðeigendur þeirra Hall-
grímur Geirsson (seðlabankastjóra
Hallgrímssonar) og Haraldur Jó-
hannesen (Matthíasar Morgun-
blaðsritstjóra).
Þetta fyrirtæki hefur fengist við
sölu listaverka og miðlun þeirra.
Meðal skjólstæðinga firmans eru
listamennirnir Einar Hákonarson,
Gunnar Örn Gunnarsson, Helgi Þ.
Friðjónsson, Kjartan Ólason og
Brynhildur Þorgeirsdóttir. Fyrirtæk-
ið tekur umboðslaun af seldum lista-
verkum. Samkvæmt frétt í DV á
dögunum hyggur fyrirtækið á út-
víkkun starfseminnar með opnun
sýningarsalar í húsnæði þess, H.
Ben-húsinu við Suðurlandsbraut 4.
„Þetta er nú heldur í dramatískara
lagi. Það eru breytingar fyrirhugað-
ar á þessu fyrirtæki, þannig að það
mun í framtíðinni sinna meira ráð-
gjöf og útgáfustarfsemi, en ekki
umboðssölu á listaverkum núlifandi
listamanna — við erum hættir þvi,“
segir Ólafur Kvaran listfræðingur
um þetta mál.
Ólafur segir enn fremur að íslensk
listmiðlun hafi ekki selt verk eftir þá
Gunnar Örn, Kjartan Ólason og
Helga Þorgils, þó svo að fyrirtækið
hefði verk eftir þá til sölu. Þá kvað
Ólafur frétt DV á misskilningi
byggða — fyrirtækið hygðist ekki
opna sýningarsal.
BIENAL-NEFNDIN
Á vegum menntamálaráðuneytis-
ins er starfandi nefnd sem hefur það
hlutverk að taka á móti boðum urrj
sýningar erlendis. Samkvæmt upp-
lýsingum menntamálaráðuneytis-
ins var Einar Hákonarson formaður
nefndarinnar fram í septembermán-
uð. Aðrir í nefndinni eru Gylfi Gísla-
son, Jóhannes Jóhannesson og
starfsmaður hennar Gunnar
Kvaran. 2. september urðu þær
breytingar gerðar á nefndinni, að
Einar Hákonarson lét af for-
mennsku en við tók Gunnar Kvar-
an. Ekki kemur fram í fundargerð-
um að Gunnar hafi látið af störfum
sem starfsmaður nefndarinnar.
Nefndin velur sumsé hvaða lista-
menn sýna erlendis í boði opinberra
aðilja. Margir listamenn gagnrýna
nefndina fyrir að velja skjólstæð-
inga íslenskrar listmiðlunar sf. til
sýninga erlendis, og benda á að
skjólstæðingar firmans hafi orðið
þess heiðurs aðnjótandi að nefndin
sem hluthafinn er í formennsku fyr-
ir hafi valið verk þeirra til sýninga
erlendis.
EINOKUNARMYNDUN?
Gagnrýnendur segja að sumar-
sýning Norræna hússins, þar sem
sýnd hafi verið verk eftir Einar
Hákonarson, Gunnar Örn, Helga
Þorgils og Kjartan Ólason, sé dæmi
um það hvað sé á ferðinni. Þó þessir
listamenn séu alls góðs maklegir, þá
veki það tortryggni að Ólafur Kvar-
an sé listráðgjafi Norræna hússins,
jafnframt því sem hann rekur ís-
lenska listmiðlun sf., sem hefur ein-
mitt sömu listamenn á skjólstæð-
ingaskrá sinni.
Um þetta segir Ólafur Kvaran:
„Sumarsýningin var ákveðin áður en
fyrirtækið var stofnað. Valið á ein-
staklingum er ekki afleiðing af
stofnun fyrirtækisins. Enginn hefur
heldur efast um gildi þessara lista-
manna sem fulltrúa breiddarinnar í
nýja málverkinu. Sýningin er sett
saman í samvinnu vi ð Halldór Björn
Runólfsson gagnrýnanda Þjóðvilj-
ans og við ræddum þetta val opin-
skátt og faglega. Hann setur síðan
saman texta í sýningarskrá, þannig
að þetta er ekki þannig að ég hafi
haft eitthvert allsherjarvald í þessu
sambandi. Ég get ekki verið að
brigsla honum Halldóri Birni um
einhver annarleg sjónarmið í sam-
bandi við val á listamönnum."
Ólafur Kvaran Ieggur ríka áherslu
á að viðkomandi listamenn séu ekki
sérstakir skjólstæðingar sínir eða
Gunnars, — það séu tilaðmynda
verð sem var á umræddri mynd var
alls ekki óeðlilegt, í rauninni undir
því verði sem Svavar er seldur og
keyptur á í Danmörku."
— En hefði ekki verið rökrétt að
kaupa beint af listamanninum?
„Ja, nú er um kaupandann
Reykjavíkurborg að ræða í þessu til-
felii, en það er ekki auðvelt að fá
mynd hjá listamanninum," segir
Ólafur.
— En kaupandinn Einar Hákon-
arson er skjólstœöingur Islenskrar
listmiðlunar og hagur fyrirtœkisins
er hagur hans — ekki satt?
„Það snýr þá að honum en ekki
okkur," segir Ólafur Kvaran.
Gunnar Kvaran.
engir skriflegir samningar til milli
þeirra hjá íslenskri listmiðlun sf. og
listamannanna um sölu einsog tíðk-
ast víða erlendis.
HP leitaði staðfestingar Halldórs
Björns Runólfssonar á því að hann
hafi valið listamenn á sumarsýningu
Nprræna hússins með Ólafi Kvaran:
„Ég réði ekki vali á listamönnum
þessum, en á hinn bóginn má segja
að ég hafi lagt blessun mína yfir val
Ólafs á listamönnunum," sagði Hall-
dór Björn.
BLESSUN REYKJA-
VÍKURBORGAR?
Þá er sagt að Einar Hákonarson
hafi sem formaður Kjarvalsstaða
verið nær einráður um myndverka-
kaup fyrir Reykjavíkurborg síðustu
árin. Fullyrt er að Einar hafi keypt
verk af íslenskri listmiðlun sf., sem
fær þóknun í umboðssölu. Fleiri op-
inberir aðilar kaupa myndverk af Is-
lenskri listmiðlun sf. — og telja
gagnrýnendiir að þarmeð sé efnt til
óþarfa kostnaðar, þarsem einfald-
ara væri að kaupa beint af viðkom-
andi listamönnum.
Nefnt er dæmi um verk eftir Svav-
ar Guðnason sem Einar hafi keypt
fyrir Reykjavíkurborg, og sagt að
borgin hefði getað fengið verk ódýr-
ara hjá listamanninum sjálfum.
Þessu svarar Ólafur Kvaran:
„Menn verða að átta sig á því að
Svavar hefur algera sérstöðu, það
En nú er Einar Hákonarson ekki
lengur formaður Kjarvalsstaða. Þeir
heyra nú undir menningarmála-
nefnd borgarinnar, sem hefur sam-
kvæmt upplýsingum þaðan ekkert
fé til ráðstöfunar á þessu ári fyrir
myndverkakaup. Áætluðu fé hafi
þegar verið eytt á þessu ári. Gunnar
Kvaran hefur verið ráðinn til bráða-
birgða listráðgjafi Kjarvalsstaða og
töldu margir viðmælendur HP að
forstöðumaður hússins, Alfreð Guð-
mundsson yrði látinn hætta á næst-
unni og stöður forstöðumanns og
listráðgjafa sameinaðar.
Gagnrýnendur segja að með
þessu kerfi, hringamyndun, sé verk-
um skjólstæðinga listfirmans haldið
uppi í verði og verkum þeirra óeðli-
lega hampað. Það geti ekki orðið
nema á kostnað annarra mynd-
verka, annarra listamanna m.a.
vegna smæðar markaðarins. Þeir
telja hins vegar að sjálfsögðu ekkert
athugavert við að listamenn taki
boði gallerís um umboðssölu, enda
séu þeir góðs maklegir. En það
breyti ekki því að listamönnum sé
mismunað með óeðlilegum hætti
þegar sömu menn ráði miklu um
hverjir sýni í sýningarsölunum,
hverjir séu í háum verðflokki og
hverjir fái verk sín send til sýninga
á erlendum vettvangi.
HARKALEGUR
HAGSMUNAÁREKSTUR
HP leitaði álits nokkurra listfræð-
inga á þessu máli og kváðu þeir
engan vafa leika á að hér væri starf-
að á mörkum siðareglna. Listamenn
sem annars voru ómyrkir í máli
vísuðu til talsmanna sinna í forystu
samtakanna.
Daði Guðbjörnsson, formaður Fé-
lags myndlistarmanna, staðfesti að
listamenn hefðu verulegar áhyggjur
af þessari þróun og að þessi mál
hefðu verið til umfjöllunar á fund-
um, en á þessu stigi máls vildi hann
ekki frekar tjá sig um málið opinber-
lega.
Guðný Magnúsdóttir, formaður
Sambands íslenskra listamanna,
staðfesti að um þetta mál hefði verið
fjallað á síðasta stjórnarfundi sam-
bandsins. „Við erum mjög óhress
með ailt það vald sem liggur á fárra
manna hendi og myndlistarmenn
koma í rauninni hvergi nærri,
hvorki hérlendis né erlendis. Sömu
menn sjá um sýningar sem sendar
eru á vegum opinberra aðilja til út-
landa og velja á þær, sitja líka í
stjórnum sýningarsala, og reka
voldugt einkafyrirtæki, — þetta er
orðið svo víðtækt vald, að við
myndlistarmenn getum ekki til
langframa horft aðgerðalausir á.
Sambandið hyggst skoða þessi mál
nánar og í framhaldi af því taka til
sinna ráða,“ sagði formaður Sam-
bands íslenskra myndlistarmanna.
HPspurði Ólaf Kvaran hvort hon-
um fyndist sjálfum um hagsmuna-
árekstur að rœða þarsem hann vœri
bœði opinber starfsmaður og œtti
hlutdeild ! einkafyrirtœki.
„Ég myndi segja að miðað við
yfirlýstan starfsvettvang íslenskrar
listmiðlunar, þ.e. með áherslu á ráð-
gjöf og útgáfustarfsemi, þá væri
ekki um hagsmunaárekstur að
ræða.“
— En stríðir þessi víðtœka starf-
semi ykkar á móti siðareglum sam-
taka sem þið eigið aðild að, nor-
rœna safnaráðinu og alþjóðasam-
tökum listfrœðinga?
„Þetta er alltaf teygjanlegt og
matsatriði hverju sinni. Maður
þekkir dæmi um listfræðinga er-
lendis sem eiga aðild að galleríum
og eru jafnframt í alþjóðasamtökum
listfræðinga."
HP fékk sent nafnlaust bréf frá
listamanni, sem dró upp mjög
dökka mynd af veldi þeirra bræðra
og Einars Hákonarsonar. Vald
þeirra væri ógnvænlegt í íslenska
myndheiminum. Því treysti viðkom-
andi sér ekki til að gefa upp nafn
sitt, „þar sem slíkt jafngilti atvinnu-
sjálfsmorði". Og þótt fjölmargir við-
mælenda meðal listamanna og list-
fræðinga lægju ekki á skoðunum
sínum um þróunina á markaði
myndlistarinnar — aesktu langflestir
þeirra nafnleyndar. Ástæðurnar eru
margvíslegar en í þessum „heimi
markaðar og myndlistar" er loft
lævi blandið, mikil samkeppni og
togstreita.
leftir Óskar Guðmundssoni
26 HELGARPÓSTURINN