Helgarpósturinn - 02.10.1986, Síða 30
LEIÐARVÍSIR HELGARINNAR
SÝNINGAR
ÁSMUNDARSAFIM
Reykjavíkurverk Ásmundar til sýnis fram
á haustið kl. 10—17 alla daga.
GALLERÍ ÍSLENSK LIST
Sumarsýning listmálarafélagsins verður
opin í sumar virka daga kl. 9—17. Sýnd
um 30 verk eftir 15 félaga.
LISTASAFN HÁSKÓLA
ISLANDS,
í Odda
Til sýnis eru 90 verk safnsins aðallega eft-
ir yngri listamenn þjóðarinnar. Aðgangur
ókeypis.
GALLERl BORG
GB býður ykkur velkomin á málverkasýn-
ingu Erlu Þórarinsdóttur. Sýningin mun
standayfir dagana2.—14. október. Opnar
kl. 17 á fimmtudag, en síðan daglega op-
ið 10—18 virka daga og 14—18 laugar-
daga og sunnudaga.
EDEN HVERAGERÐI
G.R. Lúðvíksson hefur opnað sína 13.
myndlistarsýningu f Eden í Hveragerði.
Sýningin stendur til 7. okt. G.R. Lúðvíks-
son sýnir þar olíu, vatnslitamyndir ásamt
skúlptúrum úr rúgmjöli og grjótskúlptúr.
GALLERl LANGBRÓK
Opið þriðjudaga til föstudaga frá kl.
12—18, laugardaga frá kl. 12—16.
NORRÆNA HÚSIÐ
Laugardaginn 27. september var opnuð
sýning á verkum norska málarans Edvard
Munch og stendur hún yfir til 2. nóvemb-
er. Hún er opin daglega frá kl. 14—19.
GULLNI HANINN
í tilefni af 200 ára afmaeli Reykjavíkur
heldur Sólveig Eggerz sýningu á Reykja-
víkurmyndum í húsakynnum veitinga-
hússins Gullna hanans að Laugavegi 178.
Hún er opin frá kl. 11.30—14.30 og frá kl.
18 alla daga en lokað er í hádeginu á
sunnudögum.
LISTASAFN
EINARS JÓNSSONAR
við Njarðargötu
er opið alla daga nema mánudaga frá kl.
13.30—16. Höggmyndagarðurinn er op-
inn daglega frá kl. 10—17.
GALLERÍ GANGSKÖR
Sumarsýning um þessar mundir, opið
virka daga kl. 12—18.
GALLERÍ GRJÓT
Samsýning. Jónfna Guðnadóttir, kera-
mfk; Ragnheiður Jónsdóttir, grafík; Þor-
björg Höskuldsdóttir, málverk; örn Þor-
steinsson, málverk; Magnús Tómasson,
málverk; Steinunn Þórarinsdóttir, skúlpt-
úr og Ófeigur Björnsson, skartgripir og
skúlptúr. Opið virka daga kl. 12—18.
MOKKA-KAFFI
Nú sýnir Árni Elvar málverk sín og teikn-
ingar.
INGÓLFSBRUNNUR
Um þessar mundir stendur yfir Ijós-
myndasýning Jóns Júlíusar, sem standa
mun yfir til 10. október. Opið 8—18.
CAFÉ GESTUR
Nú hangir á veggjum sýning Axels Jó-
hannssonar, sem hann kallar einfaldlega
„Skissur". Opið daglega á virkum dögum
frá 11 —00.30, en til 2.30 um helgar.
ÁRBÆJARSAFNIÐ
Safnið er opið 13.30—18 alla daga nema
mánudaga.
ÁSGRÍMSSAFN
Safnið er opið þriðjudaga, fimmtudaga
og sunnudaga 13.30—16.
LEIKHÚS
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Uppreisnin á l’safirði sýnd föstudag, laug-
ardag og sunnudag kl. 20.
Verkefni f áskrift eru: „Uppreisnin á isa-
firði" eftir Ragnar Arnalds, „Tosca" eftir
Puccini, „Aurasálin" eftir Moliére, „Ball-
ett" eftir Jochen Ulrich, „Rúmúlus mikli"
eftir Durrenmatt, „Yerma" eftir F.G. Lorca
og „Lend me a tenor" eftir Ken Ludwig.
Verð pr. sæti kr. 3200. Miðasala kl.
13.15-20. Sími 11200.
LEIKFÉLAG REYKJAVlKUR
Nú er verið að sýna Land mfns föður eftir
Kjartan Ragnarsson og Atla Heimi
Sveinsson og Upp með teppiö, Sól-
mundur! eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur.
Hafnar eru sýningar á leikgerð Brfetar
Héðinsdóttur á Svartfugli, skáldsögu
Gunnars Gunnarssonar um Sjöundár-
morðin og réttarhöldin sem þeim fyigdu.
Leikstjóri er Bríet Héðinsdóttir og samdi
hún einnig leikhandrit. Leikmynd og bún-
inga hannaði Steinþór Sigurðsson. Tón-
list er eftir Jón Þórarinsson. Lýsingu ann-
ast David Walters. Með helstu hlutverk
fara: Jakob Þór Einarsson, Þorsteinn
Gunnarsson, Sigrún Edda Björnsdóttir,
Soffía Jakobsdóttir, Jón Sigurbjörnsson,
Kjartan Ragnarsson, Þröstur Leó Gunn-
arsson, Gísli Halldórsson, Gfsli Rúnar
Jónsson, Steindór Hjörleifsson, Guð-
mundur Pálsson, Sigurður Karlsson, Val-
gerður Dan, Karl Guðmundsson og
Margrét Helga Jóhannsdóttir.
VIÐBURÐIR
BUBBI OG MX-21
Fyrstu sjálfstaeðu tónleikar Bubba
Morthens og MX-21 í Reykjavfk verða í
Austurbaejarbíói laugardagskvöldið 4.
október. Hér er um að ræða tvenna tón-
leika og hefjast hinir fyrri kl. 19:00 en hinir
sfðari kl. 22:00. Reyndar eru þetta fyrstu
rokktónleikar Bubba í Reykjavfk í um það
bil 2 ár. Að vfsu komu Bubbi og MX-21
fram á Reykjavíkurhátíðinni um daginn.
Hljómsveitin vakti þar strax gífurlega at-
hygli, en þeir tónleikar voru raunverulega
aðeins forsmekkurinn af þvf sem koma
skal.
Yfirskrift tónleikanna í Austurbæjarbíói
er FRELSITIL SÖLU, sem er samheiti fyrir
hina væntanlegu nýju stúdíóplötu Bubba.
Á þessum tónleikum kynnir Bubbi ásamt
MX-21 f fyrsta sinn aðdáendum sínum
efni plötunnar í heild. Hér er um að ræða
efni plötunnar, sem Bubbi hefur verið að
vinna að með hléum að vísu í heilt ár,
með meðlimum sænsku hljómsveitarinn-
ar Imperiet.
Fyrri tónleikarnir hefjast með því að
Bubbi kemur fram einn í hálfa klukku-
stund. Að því loknu tekur við hljómsveitin
Ný augu, með einn af athyglisverðustu
tónlistarmönnum þessa árs í broddi fylk-
ingar, Bjarna Tryggvason. Eftir hlé kemur
svo Bubbi ásamt MX-21 og spila í rúma
klukkustund.
Seinni tónleikarnir, sem hefjast klukkan
22:00 eru með sama sniði nema að þá
verðum við líklega flest vitni að í fyrsta
sinn uppákomu „dreptanbillý" tríósins,
Langa Sela og skuggunum. Hér eru
mættir á ný saman þrfr af fyrrum meðlim-
um hinnar ógleymanlegu hljómsveitar
Oxzmá. Lfkt og á fyrri tónleikunum munu
svo Bubbi og MX-21 Ijúka tónleikunum.
Forsala aðgöngumiða verður sem hér
segir:
Reykjavík: Hljómplötuverslanir
Selfoss: 29. sept. MM búðinni
Keflavík: 30. sept. Hljómval
Akranes: 31. sept.
Jafnframt er fólki, sem býr víðsvegar á
landsbyggðinni bent á að snúa sér til-
Flugleiða, sem bjóða sérfargjöld og miða
á þessa tónleika.
NORRÆNIR MÚSlKDAGAR
Fjölmargt er á seyði næstu daga. Meðal
annars gefst kostur á að hlýða á Sinfóníu-
hljómsveitina leika á föstudag verk eftir
Pade, Maros og Nordheim og á laugardag
verk eftir Holewa, Hillborg, Heineinen og
Hallgrímsson okkar. Sjá nánar Listapóst.
FOLD '86
Alltaf eitthvað á seyði hjá torflistamönn-
unum í Vatnsmýrinni, ýmiss konar þjóð-
legar og óþjóðlegar uppákomur og sviðs-
verkið Seifur. Frá kl. 15 laugardag og
sunnudag — fjör fram eftir kveldi.
HANA NÚ
Vikuleg laugardagsganga Frístunda-
hópsins Hana nú í Kópavogi verður laug-
ardaginn 4. október. Lagt af stað kl. 10 frá
Digranesvegi 12.
Veturinn nálgast. Við göngum hvernig
sem viðrar og miðum gönguna við að-
stæður. Búið ykkur eftir veðrinu. Sam-
vera, súrefni, hreyfing. Nýlagað mola-
kaffi.
BÍÖIN
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ ágæt
★ ★ góð
★ þolanleg
O léleg
AUSTURBÆJARBiÚ
Purpuraliturinn
(The color purple)
★★★
Þessi mynd Spielbergs fær hjá okkur
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ
GERA UM HELGINA?
Þráinn Hallgrímsson,
fræðslufulltrúi hjá MFA
„Ég hef geysilegan áhuga á því
að sjá Uppreisnina á ísafirði, ef ég
fæ miða. Ég hef áhuga á öllu er
snýr að ísafirði, þar sem ég bjó um
skeið. Mér finnst gaman að skoða
svona verk eftir nýja höfunda og
ekki er það verra að hann skuli vera
fjármálaráðherra verðbólgunnar.
Síðan er ég ákveðinn í að stunda
einhverja útivist, helst að draga
fjölskylduna upp á fjöll, að ganga
upp á eitthvert gott fjall, fá roða í
kinnarnar og hlaupasting. Ég gæti
hugsað mér að skreppa í bíó, að sjá
myndina Mona Lisa í Bíóhúsinu.
Og ég hlýt að koma eitthvað við á
flokksþingi Alþýðuflokksins á
Hótei Örk, að fylgjast með upp-
sveiflunni."
einkunnina „Látlaus,*fögur, hrífandi, mjög
góð, kvikmyndataka frábær, sömuleiðis
klippingin, tónlist Quincy Jones og leikur,
þar sem Whoopy Goldberg rís hæst, að
öðrum ólöstuðum. . ."
Sýnd kl. 5 og 9 I sal 1.
Kynlífsgamanmál á Jónsmessunótt
(A Midsummer night's sex comedy)
Eitt af virtustu meistaraverkum Woody
Allens mætt til leiks á islandi — að vísu
enn án íslensks texta, hvort sem Sverri llk-
ar betur eða verr.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 í sal 2.
Týndir í orrustu
(Missing in action)
Rambo-týpu-mynd með Chuck Norris i
fararbroddi. Fæst orð bera minnsta
ábyrgð . . .
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
BÍÓHÖLLIN
I svaka klemmu
(Ruthless people)
Grínmynd með Danny DeVito, Bette
Midler og fleira góðu fólki. Titillagið flutt
af Mick Jagger.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Eftir miðnætti
(After hours)
★★★
Grínmynd Martins Scorsese, sem hlotið
hefur góða dóma. — Sjá Listapóst.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Poltergeist 2: Hin hliðin
★★★
Hryllingurinn sem margir biðu eftir. Þó
svo að Roltergeist II jafnist e.t.v. ekki á við
fyrirrennara sinn hvað frumleik og mark-
sækni handritsgerðarinnar varðar, þá
bregst hún svo sannarlega ekki vænting-
um áhorfenda sinna varðandi framan-
greint. Myndmál hennar er svo kraftmik-
ið, að við komumst engan veginn hjá því
að hrlfast með, hversu fjarstæðukenndur
sem söguþráðurinn annars kann að virð-
ast. Fbltergeist er fyrst og fremst veisla
fyrir augað.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Á fullri ferð í L.A.
(To live and die in LA)
★★★
Leikstjóri er William Friedkin en I aðal-
hlutverki er William Retersen.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Lögregíuskólinn III
(Run for Cover)
★★
Léttgeggjuð ærslamynd sem hefur þann
sjaldgæfa eiginleika framhaldsmynda að
vera besta eintakið. Aðalhlutverk: Steve
Guttenberg og Bubba Smith. Leikstjórn:
Jerry Paris.
Sýnd kl. 5 og 9.
Svarti Potturinn
(The Black Cauldron)
Disney-teiknimynd af vandaðri sortinni:
öll fjölskyldan getur fylgst með átökum
góðs og ills. Hver fer með sigur af hólmi?
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Villikettirnir
Sýnd kl. 7 og 11.
Barnasýningar
laugardag og sunnudag kl. 3 í öllum söl-
um.
BÍÓHÚSIÐ
Mona Lisa
Umtöluð mynd frá Handmade-films,
framleiðandinn er Georg Bftli Harrison,
leikstjóri Neil Gordon.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Skógarlff
(Jungle book)
Barnasýning kl. 3 á sunnudag
HÁSKÓLABÍÓ
Þeir bestu
(Top Gun)
★★★
„Top Gun er á margan hátt dásamleg
kvikmynd og einkum fyrir þá sök, að hún
getur skoöast sem skólabókardæmi um
það, hvernig staðið skuli að gerð áhrifa-
rlkrar áróðurskvikmyndar fyrir nánar til-
tekinn málstað."
Sýnd kl. 5, 7, 9.05 og 11.15.
LAUGARÁSBÍÓ
Salur A
Gfsl f Dallas
★
Hér virðist alls ekki vera rottumynd á ferð-
inni eins og stúlkan á staðnum fullyrti
óábyrgt. Hér er á ferðinni hefðbundinn
USA-USSR tryllir með sápuóperuleikur-
um. — Sjá Listapóst.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur B
Lepparnir
(Critters)
★★
Critters er ein af þessum myndum, sem
maður getur engan veginn verið viss um
hvort skoðast skuli sem skopstæling á
sjálfum sér, eða hvort aðstandendum hafi
í raun búið alvara f huga, og ætlað sér að
koma f verk einhverju, sem um sfðir
reyndist þeim aldeilis um megn. Hvað
sem því liður, þá er kvikmyndin ein alls-
herjar samsuða stolinna eða hálfstolinna
atriða úr ýmsum þekktari hrollvekjum og
geimóperum síðastliðins áratugar.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur C
Skuldafen
(Money Pit)
★
Aðalhlutverk Tom Hanks og Shelley Long
undir leikstjórn Richard Benjamins.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Barnasýningar
Kl. 3 í öllum sölum (Ronja ræningjadóttir
kl. 2.45).
REGNBOGINN
Til varnar krúnunni
(Defence of the realm)
★★★
„Hörkuþriller" segir Mrún. Yfirleitt veit
hún hvað hún syngur, blessunin.
Sýnd kl. 7, 9 og 11.15.
BMX meistararnir
★
Hjólreiðamynd fyrir unglingana og
kannski alla fjölskylduna ef því er að
skipta.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Hanna og systurnar
★★★
Ákaflega freistandi mynd: Woody Allen,
Michael Caine og Mia Farrow. — Sjá
Listapóst.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9, og 11.15.
Martröð á þjóðveginum
(Hitcher)
Tryllir sem lýsir manni sem gerir þau
glæfralegu og hreint ekki gæfulegu mis-
tök að taka ókunnuga puttaferðalanga
upp (. Mynd sem á erindi svona í túrista-
vertfðarlok.
Roger Hauer og C. Thomas Howell leika
undir stjórn Roberts Harmon. Myndin er
stranglega bönnuð yngri en 16 ára og er
sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15
Ottó
★★★
Dæmalaus farsi og hin besta skemmtun
fyrir þá sem hafa gaman af sæmilega
rugluðum kómedíum. Ottó leikur aðal-
hlutverkið og leikstýrir að hluta.
Sýnd kl. 5.10, 7.10, 9.10 og 11.10.
Hercules
Kraftakarlar eru ftísku, Rambóar, Rockyar
og Norrisar í öllum skúmaskotum. Því
ekki að hverfa ófá ár aftur f tímann og rifja
upp hinn eina og sanna kraftakarl?
Sýnd á hefðbundnum tímum með
„akademísku" korteri.
STJÖRNUBÍÓ
Salur A
Algjört klúður
(A fine mess)
★★
Enn einn farsinn frá Blake Edwards. Aðal-
hlutverk eru í höndum Ted Danson og
Richard Mulligans.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Salur B
Engill
(Angel)
Mynd um 15 ára stúlku sem er bönnuð
innan 16 (myndin það er að segja). Stúlk-
an virðist samkvæmt lýsingum vera geð-
klofi, því hún er engill á daginn en selur
sig á kvöldin.
Salur C
Karate Kid II
Hinn mjóslegni og strákslegi Ralph
Macchio þjarmar að japönskum löndum
•vinar sfns F^t Morita og er það alls ekki al-
gjört klúður hjá þeim félögum.
Sýnd kl. 3, 5 og 9.
TÚNABlÚ
Hálendingurinn
(Highlander)
★★
Sýnd kl. 5, 9 og 11.15.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
30 HELGARPÓSTURINN