Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 02.10.1986, Qupperneq 36

Helgarpósturinn - 02.10.1986, Qupperneq 36
KARLMENN VÍTT OG BREITT UM LANDIÐ TJÁ SIG UM ÞAÐ HVAÐA KONUR ERU MYND/ „KONAN MÍN, HÓFÍ ÞRJÁR FRAMBÆRILEGUSTU KONUR LANDSINS NÁNAST ÓUMDEILDAR MEÐAL Fyrir nokkrum mánudum, gerdum viö hér á Helgarpóstinum óformlega könnun á því hvaða karlmenn íslenskum konum þœttu eftirsóknarveröastir. Auðvitad voru viðbrögð kvennanna misjöfn, en yfirleitt voru þœr þó hinar hressustu og létu ýmis nöfn flakka með tilheyrandi upphrópunum og yfirlýs- ingum. Nú í vikunni gafst karlmönnum vítt og breitt um landið kostur á því að tjá sig um myndarlegustu og frambœrilegustu konur á Islandi, en þá var heldur betur annað hljóð í strokknum. Þeir karlmenn, sem haft var samband við, gátu fœstir stunið upp nafni einnar einustu konu, sem þeim þótti fram- bœrileg. Langflestir gáfust upp og tóku alls ekki þátt í könnuninni! Þegar konur hér á landi voru spurðar um eftirsóknarverða karlmenn, þótti þeim það upp til hópa afar fyndið og spennandi. Tilnefningum þeirra fylgdu alls kyns óborg- anlegar lýsingar, hlátrasköll og jafnvel stunur, sem erfitt er að greina frá í blaði sem börn undir ákveðnum aldri geta komist í. Þessu fylgdu sem sagt hin skemmtilegustu tilþrif og Ijóst var, að konurnar tóku málið töluvert alvarlega. Það kom blaðamanni þar af leiðandi mjög á óvart, hver viðbrögð karlmanna voru við sambærilegri spurningu um kvenkynið. Varir þeirra skullu saman eins og lyftuhurðir á fimmföldum hraða og út úr þeim varð vart dregið eitt einasta nafn nema með töngum. Þó áttu mennirnir það sameiginlegt að nefna nær alltaf sömu konuna fyrst, því þegar að þeim var þrengt sögðu flestir einfaldlega „konan mín“. Þetta var einnig viðkvæði þeirra, sem síðan létu eitt eða fleiri nöfn koma í kjölfarið. Allir nefndu karlarnir „konuna mína“ fyrsta. Manni var meira en farið að detta í hug að þetta væri hugsað sem nokkurs konar syndaaflausn. „KONAN MÍN", HÓFI OG VIGDÍS Þegar á heildina er litið, neitaði yfir- gnæfandi meirihluti karlanna að svara, gat ekki svarað, eða komst ekki lengra en að nefna eiginkonu sína eða sambýliskonu. „Konan mín“ fékk því alls marga tugi atkvæða. Þess vegna er „hún" hér með útnefnd frambærilegasta og myndarlegasta kona landsins, þó svo vinningshafinn sé þar með hálfgert ómark og hafi eflaust til að bera afskaplega margþætta og mótsagnar- kennda eiginleika — jafnt á sál og líkama. En þetta eru óyggjandi úrslit könnunarinnar. Islenska eiginkona/sambýliskona, þú hefur hér með verið kosin frambœrilegasta kona á landinu! Til hamingju. Á eftir „konunni minni“, voru auðvitað aðrar konur nefndar til sögunnar og þar sem nú er farið að ræða um eina og sömu konuna í hvert skipti, fer loks að vera mark takandi á niðurstöðunum. Fyrir utan þá staðreynd að hverjum þótti sinn fugl fagur, dáðust flestir að alheimsfegurð Hólmfríðar Karlsdóttur. Hún var mönnum greinilega ofarlega í huga, eins og eðlilegt verður að telja. Þegar Hólmfríður var nefnd til sög- unnar, mátti oft augljóslega greina mikla aðdáun og einlæga tilfinningu í raddblæ viðkomandi karla. Það er örugglega ekki orðum aukið að segja Hólmfríði óum- deilda draumadís íslenskra karlmanna. Þeir voru svo sannarlega stoltir af henni. Ef nafn Hólmfríðar Karlsdóttur fylgdi „konunni minni“ eins og nóttin deginum, var þriðja tilnefning þeirra karlmanna, sem á annað borð svöruðu, einnig nær sjálfgefin. Það var forseti landsins, Vigdís Finnboga- dóttir. Fór forsetinn mjög nærri fegurðar- drottningunni hvað vinsældir snerti og var hún ekki síður óumdeild en Hólmfríður. Voru ummæli manna um Vigdísi þó oftast hátíðlegri og alvarlegri en um Hólmfríði, enda gefur embætti forseta íslands að sjálf- sögðu ekki tilefni til annars en fyllstu alvöru og virðingar. Um fegurðardrottninguna var t.d. sagt að hún væri „sæt og góð“, en um forsetann að hún „efldist við hverja raun“ og að hún væri „yndisleg í alla staði". KONAN, SEM TÓK SLÁTUR FYRIR MÖMMU Aðrar konur en „konan mín“, Hólmfríður Karlsdóttir og Vigdís Finnbogadóttir fengu vissulega atkvæði, en sökum þess hve illa gekk að fá karlmenn til þess að nefna fram- bærilegar og myndarlegar konur, dreifðust atkvæðin verulega. Töluverður fjöldi kvenna var nefndur, án þess að nokkur þeirra fengi marktækan fjölda tilnefninga. Þar af leið- andi verður þeirra einungis getið með nafni, en ekki gerð tilraun til að raða þeim upp í sérstaka röð. Nokkrir karlmenn luku af góðverki dagsins með því að svara ,,þú“, þegar þeir voru beðnir um að nefna frambærilegan íslenskan kvenmann. Þetta svar rökstuddu þeir með því að þeim litist svo ljómandi vel á rödd blaðamannsins, sem í hlut átti. Hún neyddist þó til þess að dæma þessi tilsvör ómarktæk. Sumir karlmennirnir tilnefndu mæður sínar og dætur. Miklir fjölskyldumenn það og ekkert nema gott um slíkt að segja. Einn var mun frumlegri og sagðist gefa „konunni, sem tók alltaf slátur fyrir mömmu“ sitt atkvæði. Því miður mundi maðurinn ekki hvað konan hét, en sagði að hún hefði komið á heimili sitt á hverju hausti og verið þar í heilan dag að taka slátur. Um kvöldið hefði hún horfið á braut og ekki sést fyrr en næsta haust. Ef einhver kona yfir miðjan aldur kannast við þessa lýsingu, hefur hún sem sagt verið tilnefnd sem ein myndar- legasta kona landsins — hvorki meira né minna. Konan, sem tók slátrið, var langt frá því að vera sú eina, sem nefnd var til sögunnar og ekki var um tvítugsaldur. í könnun okkar fékk Guðrún A. Símonar, söngkona, t.d. ein tíu atkvæði. Brynhildur Jóhannsdóttir, eiginkona Alberts Guðmundssonar iðnaðar- ráðherra, fékk einnig atkvæði og það sama gildir um Salome Þorkelsdóttur, alþingis- mann, og Eddu Guðmundsdóttur, forsætis- ráðherrafrú. Sigurvegarinn, „konan mín". (Hér verða viðkomandi að koma fyrir mynd af konunni, sem ber þennan titil.) Brynhildur Jóhannsdóttir, eiginkona Alberts Guð- mundssonar iðnaðarráðherra, á greinilega hóp að- dáenda. Salome Þorkelsdóttir, alþingismaður, hefur löngum þótt með glaesilegri konum og það staðfestu að- spurðir karlmenn í könnun HR 36 HELGARPÓSTURINN Hólmfrlður Karlsdóttir þótti „sæt og góð". Vigdís Finnbogadóttir, forseti islands, er að vonum ein frambærilegasta kona landsins, enda nær óum- deild. Kristín Á. Ölafsdóttir, varaformaður Alþýðubanda- Sigríður Dúna Kristmundsdóttir var reyndar eina lagsins, er ein af þeim konum í stjórnmálum sem þóttu kvennalistakonan, sem komst á blað. frambærilegastar á landi hér.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.