Helgarpósturinn - 02.10.1986, Síða 39

Helgarpósturinn - 02.10.1986, Síða 39
FRÉTTAPÓSTUR Stcrveldafundur í Beykjavík Mikill viðbúnaöur er þegar hafinn vegna fundar Reagans Bandaríkjaforseta og Gorbachevs Sovétleiðtoga í Reykjavík dagana 11.—12. október. Ákvörðunin um að halda fundinn hér á landi hefur mælst vel fyrir, en ljóst er að mikils átaks er þörf til að undirbúa fundinn sem skyldi með svo stuttum fyrirvara. Búist er við 400 manna fylgdarliði með leiðtog- unum og auk þess hundruð fréttamanna, sem þegar eru farnir að streyma hingað til lands. Öll gistirými verða fljót- lega upppöntuð í Reykjavík og nágrenni, allt austur til Sel- foss. BJ í Alþýðuflokkinn Þau undur og stórmerki gerðust nú eftir helgi á nætur- fundi forystumanna Bandalags jafnaðarmanna, að ákveðiö var að leggja bandalagið niður, stofna félag frjálslyndra jafnaðarmanna og ganga í Alþýðuflokkinn. Ákvörðun þessi kom talsvert á óvart, en þó lá fyrir að pólitískt líf BJ hékk á bláþræði eftir síðustu skoðanakönnunum að dæma, þar sem BJ fékk aðeins rúmlega 1% hjá þeim sem afstöðu tóku. Þingmenn BJ, Guðmundur Einarsson, Stefán Benediktsson og Kolbrún Jónsdóttur munu sitja flokksþing Alþýðu- flokksins í Hótel Örk um þessa helgi og verður þar gengið formlega frá innlimuninni. Þingmaðurinn Kristín Kvaran hafði áður sagt sig úr BJ og er ekki með í þessu dæmi. Heyrst hefur um hóp fólks úr BJ sem ekki sættir sig við þessa ákvörðun, en óljóst er um viðbrögð þess. Alþingi kemur saman í þessum mánuði og munu þingmennirnir þrír sitja þingflokksfundi Alþýðuflokksins, sem nú telur 9 þing- menn í stað 6. Hafskips-Ragnar með skýrslu Ragnar Kjartansson, fyrrum stjórnarformaður og for- stjóri Hafskips, hefur sent fjölmiðlum, fyrrum hluthöfum og starfsfólki fyrirtækisins, skýrslu eina mikla, þar sem hann gerir sína grein fyrir Hafskipsmálinu. Er Ragnar þungorður í garð f jölmiðla, skiptaréttarins, rannsóknarlög- reglunnar, endurskoðunarskrifstofu N. Mancher og fleiri aðila. Hefur hann allt á hornum sér og líkir rangindum beittum í máli þessu við Geirfinnsmálið. „Enginn var vísvit- andi blekktur né neinu stolið,“ segir Kjartan meðal annars. Jón Helga skipar nefnd Hmfjöllun Helgarpóstsins um málefni Hjálparstofnunar kirkjunnar hefur ollið miklum taugatitringi í þjóðfélaginu og sýnist sitt hverjum. Nú hefur Jón Helgason dómsmála- ráðherra (um leið kirkjumálaráðherra) skipað nefnd til að rannsaka gjafir til Hjálparstofnunarinnar og ráðstöfun þeirra — en þetta er gert að beiðni stofnunarinnar sjálfrar. í nefndinni eru Sigurgeir Jónsson, fv. hæstaréttardómari, Baldur Möller, fv. ráðuneytisstjóri og Halldór V. Sigurðsson ríkisendurskoðandi. Ráðherra og rikisendurskoðun hafa ekki séð ástæðu til að rannsaka önnur málefni H.K., en nú er að sjá hvort það breytist eftir umfjöllun okkar í dag. Sjúkraliðar segja upp Hópuppsagnir eru í gangi frá Sjúkraliðafélagi íslands. Yfir 525 sjúkraliðar hafa sagt upp, sem þýðir um 92% þátt- töku í Reykjavík og nágrenni. Þá hafa fóstrur ákveðið á fjöl- mennum félagsfundi að segja upp 1. nóvember — ef ekkert hefur verið gert til að hækka launin. Fréttapunktar • Á bæjarstjórnarfundi á Seltjarnarnesi i síðustu viku var hinum blinda Arnþóri Helgasyni meinað af Guðmari Magn- ússyni, forseta bæjarstjórnar, að taka upp á segulband um- ræður bæjarstjórnar og honum vikið úr áheyrnarsal. Málið er i athugun, en Arnþór getur skiljanlega ekki skrifað niður umræðurnar. • Væntanlegir áhorfendur Stöðvar tvö i fjölbýlishúsum standa margir hverjir frammi fyrir miklum vanda. Loft- netskerfi i fjölbýlishúsum eru viða svo einföld að þau geta ekki tekið við tveimur sjónvarpsstöðvum og þarf þá að kaupa nýja loftnetsmagnara. • Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ og Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, neita því báðir að til standi að þeir gangi til liðs við Alþýðuflokkinn. • íslenska sjónvarpið heldur um þessar mundir upp á 20 ára afmæli sitt. Nú hafa tekið gildi margvislegar breytingar á dagskrá og útsendingartimum sjónvarps og útvarps. Með- al annars færast sjónvarpsfréttir frá kl. 20 til 19.30. • Fastlega er reiknað með því að bandarískir þingmenn samþykki samningsdrögin í Rainbow-málinu, sem fela í sér að báðir aðilar geti keppt um flutningana fyrir Varnarliðið og að sá sem býður lægst fær 65% flutninganna, en hinn aðilinn 35%. Þetta felur í sér undantekningu fyrir ísland frá lögunumbandarískufrá 1904 en vestra er ekki talið að samkomulagið feli í sér fordæmisgildi. 1) Opel GSI '85 Ekinn aðeins 2000 km. Meiriháttarbíll. 2) Daihatsu Charmant '85, ekinn 19 þ.km. Fallegur fjölskyldubíll. 3) Daihatsu Charade '86, ekinn 4000 km. Bráðhuggulegur sparibaukur. 4) Daihatsu Rocky '85, diesel, ekinn 21.000 km. Finn jeppi fyrir veturinn. 5) Ford Escort '81—86, 6) Range Rover '84, 4ra dyra, flestar útfærslur sjálfskiptur, ekinn 41.000 km. Konunglegur breskur lúxusjeppi. Bíla bilasala höllin Lagmula 7 Sirru 688888 108 Reyk|avik ÞETTA ER TOLVAINJ! FYRIR EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKI AMSTRAD PCW tölva með íslensku RITVINNSLUKERFI, ísl. 3ja tíma leiðbeiningum á snældum, SAMSKIPTAFORRITI fyrir telex, gagnabanka o.fl. og PRENTARAI - fyrir aðeins 39.900,- kr. Stóri bróðir, AMSTRAD 8512, er með 2 drifum og stærra minni og kostar aðeins 49.900,- kr. Hann er auk þess hægt að fá fneð fullkomnu fjárhagsbókhaldl eða með viðskiptamanna-, sölu- og lagerkerfi fyrir 59.900,- kr., og með hvoru tveggja fyrir aðeins 64.900,- kr. - allt í einum pakka - geri aðrir betur! AMSTRAD PCW 8256 ritvinnslutölvan: 256 K RAM (innbyggöur RAM diskur), I drif; skjár: 90 stafir x 32 l(nur. Prentari: Punktaprentari. 90 stafir á sek. AMSTRAD PCW 8512 ritvinnslu- og bókhaldstölvan: 512 K RAM (innb. RAM diskur), 2 drif (B-drif er I megabyte), skjár: 90 st. x 32 Ifnur. Prentari: punktaprentari, 90 stafir á sek. Báðum gerðum fylgir íslenskt ritvinnslukerfi (LOGO- SCRIPT). Dr. Logo og CP/M+, ísl. lyklaborð, fsl. leiðbeiningar, 3ja tíma kennsluefni á 2 snældum (ísl.|, prentari með mörgum fallegum leturgerðum og -stærðum. Með AMSTRAD 8512 er einnig hægt að fá fullkomin bókhaldskerfi sem henta mjög vel litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Námskelð: Tölvufræðslan sf, Ármúla 36, s. 687590 & 686790: Fjárhagsbókháld 6 tfmar aöeins 2.500 kr. Viöskiptamanna-, sölu- og lagerkerfi 6 tímar aöeins 2.500 kr. Ritvinnslunámskeið 6 tímar aöeins 2.500 kr. FORRIT FYRIR AMSTRAD: Samsklptaforrit: BSTAM, BSTMS, Chit-Chat, Crosstalk, Honeyterm 8256, Move-it. Áætlana- og reiknlforrlt: Pertmaster, Milestone. Brainstorm, Statflow, Cracker, Master Planner, Multiplan, PlannerCalc, SuperCalc. Gagnagrunnsforrlt: Cambase. Cardbox, dBase II, dGraph, dUtil, Delta, Flexifile. Telknlforrlt: Dataplot plus, Datplot III, DR Draw, DR Graph, PolyploL Polyprint. Forrltunarmál: DR C Basic. Mallard, Basic, Microsoft Basic, Neyada Basic, Cis-Cobol, Nevada Cobol. RM Cobol, HiSoft C, Nevada Fortran. Pro FortrarþDR PL/I, DR Pascal MT+, Nevada Pascal, Pro Pascal, Turbo Pascal. Annaö: Skákforrit, Bridgeforrit. íslensk forrlt: Ritvinnsla (fylgir), Fjárhagsbókhald, Viðskiptamannafor- rit, Sölukerfi, Lagerbókhald, Nótuútprentun. Límmiðaútprentun. Auk púsunda annarra CP/M forrita. v/Hlemm Símar 29311 & 621122 máuu TÆKNID0LD Hallarmúla2 Sfrni 83211 Umboösmenn útl á landl: Akranes: Bókaskemman, Akureyrl: Bókabúöin Edda, Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga, DJúpavoglrVerslunin Djúpiö, Grindavík: Bókabúö Grindavíkur, Hafnarfjöröur: Kaupfélag Hafnfiröinga, Húsavík: Bókaverslun Þórarins Stef., ísafjöröur: Hljómborg, Keflavfk: Bókabúö Keflavfkur. Vestmannaeyjar: Vídeóleiga GS. Seltjarnarnes: Verslunin Hugföng. öll verö miöuö viö gengi I. sept. 1986 og staögreiöslu. TOLVULAND HF„ SIMI 17850 HELGARPÓSTURINN 39

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.