Helgarpósturinn - 02.10.1986, Side 40
karlinn Reagan mun aka um á bíl
frá Sambandinu þegar hann fer til
fundar við Mikhail Gorbatsjev á
Hótel Sögu um aðra helgi. Þannig
liggur í málinu að bandaríska sendi-
ráðið í Reykjavík festi fyrir
skömmu kaup á sérútbúinni bifreið
af gerðinni Opel Zenator sem er
brynvarinn og mun reyndar vera sú
eina sinnar tegundar hérlendis enn
sem komið er. Bílvangur — bílainn-
flutningsdeild Sambandsins hefur
umboð fyrir þessa bíltegund. Eftir
því sem HP er best kunnugt hefur
brynvarni Opelinn ekki komið
bandaríska sendiráðinu að notum
fyrr en nú, að forseti Bandaríkj-
anna stígur upp í bifreiðina. Og það
var varla við veglegri vígslu að
búast. . .
llSLtir af inngöngu þeirra Stef-
áns Benediktssonar, Guðmund-
ar Einarssonar og Kolbrúnar
Jónsdóttur í krataflokkinn gamla
hafa fætt af sér ótal vangaveltur og
sögur. Ein er sú, að á mánudag í há-
deginu hafi þeir Stefán, Guðmundur
og Eyjólfur Konráð Jónsson
fengið sér snæðing saman á veit-
ingastaðnum Pottinum og pönn-
unni og brallað mikið. Eftir því, sem
HP kemst næst mun Eykon hafa
verið þess mjög hvetjandi, að þing-
menn BJ gengju til liðs við Jón Bald-
vin og notað m.a. þá röksemd, að
eftir næstu kosningar væri næsta
víst að mynduð yrði ný Viðreisnar-
stjórn sjálfstæðismanna og krata.
Þannig myndu þingmenn BJ, ef þeir
næðu þá kjöri, sitja litlir og einangr-
aðir í stjórnarandstöðu með helstu
bandamenn sína í ríkisstjórn. Ekki
fylgdi sögunni hvort ráðherradóm
hefur borið á góma, en allavega
mun Eykon hafa sagt við þá félaga
að þeir gætu orðið iykillinn að
myndun Viðreisnarstjórnar númer
tvö...
(ligendur Hótel Borgar, þeir
Sigurður Kárason og Pálmar
Magnússon neyðast sennilega ti!
að láta eigr.ina ar 'nendi áður en
langt um líður. Málið stendur þannig
að Hótel Borg fer á síðara nauð-
ungaruppboð í nóvember vegna
vanskila eigendanna og lítil von er
til að þeir félagar geti reitt fram það
fé sem krafist er. Sigurður og Pálmar
munu einnig eiga erfitt með að
standa í skilum við seljendur Borg-
arinnar. Síðustu fréttir i þessu hóiéi-
rr.áii eru þær, að félagarnir Sigurður
og Pálmar reyna þessa dagana að
láta kaupin á Hótel Borg ganga til
baka. Hins vegar hafa þeir leigt
Borgina til þriggja ára til Ólafs
Laufdal og þegar tekið við
greiðslum frá honum fyrir umrætt
timabil. Það er því ekki mjög freist-
andi tilboð fyrir fyrri eigendur að fá
Borgina aftur í hendur í stað
greiðslna, sérstaklega þar sem eign-
in er í leigurekstri og óarðbær í
þann tíma fyrir gamla eigendur sem
við henni taka. Það er ennfremur
erfiður valkostur fyrir fyrri eigend-
ur að sjá Borgina fara á uppboði og
fá peninga sína seint og illa. Eina
vonin virðist því að gömlu eigend-
urnir geti selt. Borgi.na strax aftur.
Við höíum heyrt að þeir líti nú til borg-
aryfirvalda með skrifstofuhúsnæði í
huga eða Alþingis sem vantar hróp-
lega húsnæði áður en fyrirhugaður
Kremlarmúr verður reistur sem nýtt
húsnæði Alþingis. . .
LEIKHÚS- OG ÓPERUGESTIR
FRÁB>£R HELGARMATSEÐILL!
FORRÉTTUR:
Kryddlegnir sjávarréttir m/ristuöu brauöi.
AÐALRÉTTUR:
EntreCote steik meö kaldri piparsósu,
bökuöum kartöflum og grœnmeti.
FORRÉTTUR:
Grafinn nautavöövi meö sinnepssósu.
AÐALRÉTTUR:
Hvítlaukskrydduö lúöuflök í súrsœtri sósu
meö kartöflum og grœnmeti.
Kaffi
Salatbar ásamt a la Carte
Opiö frá kl. 11:00 árdegis til miönœttis.
VEITINGAHÚSIÐ
Borðapantanir í síma 24630 lau.gavegi 11
blettahreinsir hreinsar á skjótan og árangursríkan hátt.
Fœst í nœstu uerslun.
STIRNIR HF.
DREIFING. Funahöfða 3,112 Reykjavik s. 672550.
40 HELGARPÓSTURINN