Helgarpósturinn - 26.02.1987, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 26.02.1987, Blaðsíða 6
^■SKOÐANAKÖNNUN HELGARPOSTSINS Framsókn og kratar tapa Sjálfstæðisflokkurinn ogAlþýðubandalagid vinna dálítið á Hrun hjá framsókn og krötum á landsbyggð- inni frá síðustu könnun Lýðræðisflokkurinn til alls vís Komst á blað áður en hann var stofnaður Unga fólkið lítur helst hýru auga til Sjálfstœðisflokks og Kvennó Ennþá virðast kratar og Kvennalisti eiga mestu möguleikana að vinna á í kosningabaráttunni I skodanakönnuninni sem gerd var um sl. helgi fyrir Helgarpóstinn kemur í Ijós, ad frá sídustu skoöana- könnun HP fyrir rúmum mánuði hefur Sjálfstœðisflokkurinn sótt í sig veðrið í Reykjavík og á landsbyggð- inni, aðallega á kostnað Alþýðu- flokksins, en Alþýðubandalagið hef- ur enn bœtt við sig atkvœðum í Reykjavík og á Reykjanesi. Fram- sóknarflokkurinn og Alþýðuflokk- urinn tapa atkvœðum á landsvísu frá síðustu könnun. Fylgi Stefáns Valgeirssonar er vel merkjanlegt í Norðurlandi eystra, sem og fylgi Lýðrœðisflokksins sem á eftir að stofna. Þessir listar gœtu sem hœg- ast komið manni inn þó hið litla úr- tak í þessari skoðanakönnun leyfi það ekki. Úrtakið í þessari könnun og hlið- stæðum er of lítið til að hægt sé að tala um áreiðanlegar vísbendingar varðandi smærri flokkana og fram- boðin. Engu að síður eru þau vel merkjanleg eins og sjá má af með- fylgjandi töflum. Jafnvel væri hægt að tala um „fljúgandi start" fyrir Lýðræðisflokkinn, samtökin um jafnrétti á milii landshluta, því flokk- urinn hefur ekki verið formlega stofnaður og framboð ekki endan- lega ákveðið. Flokkur mannsins er einnig vel merkjanlegur eins og sjá má á töflunum. í könnuninni og úrvinnslu hennar var sérstaklega skoðað hvernig unga fólkið væri stemmt gagnvart framboðunum. í ljós kom að nær 60% fólks á aldrinum 18 til 25 ára er óákveðið, ætlar ekki að kjósa eða neitar að svara. En sé einungis tekið mið af afstöðu þeirra sem gefa upp stuðning við lista, þá kemur í Ijós að Sjálfstæðisflokkurinn fengi 42.6% fylgi þeirra, Kvennalistinn 23%, Al- þýðuflokkurinn 16.4%, Alþýðu- bandalagið 11.5% og Framsóknar- flokkurinn ræki lestina hjá unga fólkinu með 6.6% atkvæða. Athygli vekur í fyrsta lagi hve unga fólkið er almennt óákveðið og í öðru lagi hve Kvennalisti og Sjálf- stæðisflokkurinn njóta mikils fylgis hjá ungu kynslóðinni. Mega aðrir muna betri tíð í því efni. Sjálfstæðisflokkurinn er á nokk- urri uppleið. Þannig hlýtur hann í könnuninni 3-6.6% atkvæða samtals en var með 35% í síðustu skoðana- könnun. í Reykjavík, kjördæmi Alberts Guðmundssonar, sækir hann all verulega á og er með 40.6% atkvæða en var með 37.3% í síðustu skoðanakönnun. Á lands- byggðinni bætir hann einnig við sig og er nú með 34.2% en var með 31.1% í síðustu könnun. Á hinn bóg- inn tapar flokkurinn í Reykjanesi, þar sem hann er nú með 35.1% en var með 38.5% í síðustu könnun. Þetta gerir það að verkum, að ef úr- slitin yrðu í sama dúr þá kæmist Gunnar Schram ekki inn á þing. Mörgum kann að koma spánskt fyrir sjónir að flokkurinn skuli sveiflast uppá við í Reykjavík, en oddviti listans þar, Albert Guð- mundsson, hefur nánast verið í fel- um í fjölmiðlunum síðustu vikur og mánuði. Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur hins vegar á sama tíma keyrt á auglýsingum og ímynd flokksins með myndum af formanninum Þor- steini Pálssyni, sem hefur verið að festast í formannssessi að undan- förnu. Önnur skýring á fylgisaukn- ingu flokksins í Reykjavík kynni að vera sú, að samkeppnisaðilinn, Al- þýðuflokkurinn hefur verið mjög klaufalegur í höfuðborginni að und- anförnu. Alþýðuflokkurinn heldur áfram Iágfluginu og fer enn niður á við á landsvísu. Flokkurinn er nú kominn niður í 21.5%, á landsvísu, en var með rúmlega 24% í síðustu skoð- anakönnun. Þessum atkvæðum virðist flokkurinn tapa annars vegar í höfuðborginni, þar sem hann er kominn niður í 20.9%, en var með 24.3% í síðustu könnun. Sömu sögu 6 HELGARPÓSTURINN er að segja á landsbyggðinni, þar sem flokkurinn er nú með 16.2% en var með 20.5% í síðustu könnun. Einungis í Reykjanesi stendur flokk- urinn í ístaðinu miðað við niður- stöður siðustu skoðanakönnunar HP og bætir við sig rúmu prósenti. Þar kæmu vi sögu tveir nýir þing- menn, þau Rannveig Guðmunds- dóttir og Guðmundur Oddsson fyrir A-hstann. I fyrri könnunum hefur komið í ljós, að Alþýðuflokkurinn á meiri möguleika en aðrir listar til að ná óákveðnum kjósendum og þeim sem eru laust bundnir við aðra flokka. Þrátt fyrir þessa vitneskju verður ekki séð að flokkurinn hafi stíiað boðskap sinn til þessa fólks, né heldur að hann hafi með fyrri kraftabrögðum úr heimi auglýsinga reynt að hnykla vöðva og vekja at- hygli á sér. Þessi deyfð sem fylgt hef- ur Alþýðuflokknum síðustu vikur gæti hafa skilað Sjálfstæðisflokkn- um fylgi í höfuðborginni og í sveit- um landsins. í þessari könnun einsog í janúar- könnuninni spurðum við aðeins nánar um afstöðu fólks til listanna, hvort það gæti hugsað sér að kjósa aðra lista. Og enn sem fyrr kemur Alþýðuflokkurinn lang sterkast út sem annar valkostur. Þó eru færri sem geta yfirleitt hugsað sér að kjósa aðra lista nú en í síðustu könn- un, þ.e. þann lista sem ákveðið er nú að kjósa. A-listinn er enn í efsta sæti meðal þeirra sem eru óákveðnir og er efst eða næst efst á lista hjá þeim sem yfirleitt geta hugsað sér að kjósa aðra flokka. Flæði hinna óákveðnu atkvæða er lang mest milli Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- flokks á báða bóga. Margir Á-lista kjósendur geta hugsað sér að kjósa D-listann og margir D-lista kjósend- ur geta enn betur hugsað sér að kjósa A-listann. Af öðrum tíðindum úr þessari könnun má nefna, að samkvæmt útreikningum myndu þeir Arni Gunnarsson og Sigbjörn Gunnarsson komast báðir inn á þing en Guðmundur Einarsson í Austurlandskjördæmi og Jón Bragi Bjarnason úr Reykjavík, báðir úr BJ myndu hvorugir komast inn. Alþýðubandalagið sækir mjög í sig veðrið bæði í Reykjavík og Reykjanesi. Á öllu landinu bætir G- listinn við sig frá síðustu könnun, er nú með 16.4% en var með 15.7% og hefur skotð Framsókn aftur fyrir sig. Engu að síður hefur flokkurinn tap- að frá síðustu könnun á landsbyggð- inni, þar sem hann er nú með 15.8% en var með 16.9% í síðustu könnun. Kannski veldur þar einhverju um frammistaða þingflokksins í fræðslustjóramálinu á alþingi á dög- unum? í Reykjavík er Alþýðubandalagið með 17.6% en var með 16.2% í síð- ustu könnun. Ásmundur Stefánsson flýgur því inn. í Reykjanesi sækir G- listinn líka hins vegar lang mest á, er nú með 15.7% en var með 13.1% í síðustu könnun og 8% í desember- könnun Helgarpóstsins. I síðustu könnun var bent á að Ólafur Ragn- ar Grímsson þyrfti um 3% til viðbót- ar til að komast inn á þing. Því hefur hann á þessum rúma mánuði tæp- lega náð og þyrfti nú sem næmi 200 atkvæðum til að komast á þing. Þá telja sérfræðingar að hann ýtti út Kristni Gunnarssyni á Alþýðu- bandalagslistanum á Vestfjörðum, sem er inni samkvæmt þessari könnun, en dytti trúlega út, ef Ólaf- ur Ragnar næði kjöri. Þessu valda nýju kosningalögin. En hér munar hársbreidd. Einnig hefur orðið sú breyting á frá síðustu könnun, að nú er Unnur Sólrún Bragadóttir annar maður á G-lista í Austurlandskjördæmi inni. Ef það hefur ekki farið mikið fyrir Alþýðubandalagi í höfuðborginni að undanförnu. Ef til vill er málefna- staðan flóknari nú en oft áður, þar sem flokkurinn kemur eins og stuðningsaðili við stefnu ríkisstjórn- arinnar; í húsnæðismálum, skatta- málum, efnahagsstefnu og launa- málum. Framsóknarflokkurinn tapar á öll- um vígstöðvum frá síðustu könnun HP í janúar. í Reykjavík er flokkur- inn með 7.5% en var með 8.6% í síð- ustu könnun. Þar verður því Guð- mundur G. Þórarinsson einn kjör- inn ef úrslit yrðu í samræmi við nið- urstöður könnunarinnar. Á Reykja- nesi er flokkurinn nú með 10.4% atkvæða en var með 11.5% í síðustu skoðanakönnun. Þetta er afskap- lega sérkennileg niðurstaða. Flokk- urinn í Reykjaneskjördæmi hefur tapað fylgi í ölíum könnununum síð- an tilkynnt var um framboð for- mannsins snemma í vetur. Slík nið- urstaða er enn undarlegri vegna þess, að í öllum könnunum um per- sónupólitískar vinsældir, er Stein- grímur Hermannsson öllum öðrum stjórnmálamönnum fremri. Ef til vill hefur Steingrímur misst pólitíska tiltrú í kjördæminu vegna yfirlýsinga sinna um atvinnumál á Suðurnesjum? Ef til vill líta Reyknes- ingar á hann sem „sveitamann", sem eigi eftir að kynnast þéttbýlis- kjördæminu? Eða þá hitt, að vin- sældir og virðing sé eitt, en stuðn- ingur í kosningum annað. Á landsbyggðinni tapar Fram- sóknarflokkurinn enn meiru, er nú með 20.3% en var með 24.2% í síð- ustu skoðanakönnun. Skýringarnar gætu legið í því, að sú hreyfing sem komin er á Lýðræðisflokkinn vænt- anlega og framboð Stefáns Valgeirs- sonar dragi mest frá Framsóknar- flokki. í heild er B-listinn nú með 13.4% atkvæða en var með 15.7% í síðustu könnun HP. Ef niðurstöðurnar í kosningum yrðu í svipuðum dúr og þessi könn- un gefur til kynna, þá fengi Fram- sóknarflokkurinn efsta mann á lista sínum í öllum kjördæmum kosinn, en enga umfram það. Þingflokkur Framsóknarflokksins væri þá þann- ig samsettur, að allir í honum voru þar einnig fyrir tæpum áratug. Engin kona væri í þingflokknum Þridja krafta- verk Egils Jónssonar Á meðfylgjandi töflu sérfræðinga um hugsanlega hlutfallsdreifingu á lista miðað við niðurstöður skoðanakönnun- arinnar er tekið mið af úrslitum síðustu kosninga. Á þessari niðurstöðu eru auð- vitað eðlilegir fyrirvarar um að tiltölu- lega Iitlar breytingar á fylgi lista og miili kjördæma gætu þýtt verulegar tilfærsl- ur á þingmönnum. Þannig er t.d. Egill Jónsson á Seljavöllum inni samkvæmt þessum niðurstöðum, en stendur tæpt. Sagt hefur verið að í tvennum síðustu kosningum kæmist Egill inn fyrir krafta- verk — það yrði þá kraftaverk hjá Agli hinu þriðja sinni, kæmist hann inn í næstu kosningum. 8. maður á D-lista í Reykjavík, Sólveig Pétursdóttir er um 1200 atkvæðum f rá jöfnunarsæti samk v. þessum niðurstöðum. Gunnar G. Schram á Reykjanesi vant- ar mikið en Ólaf Ragnar Grimsson rétt innan við 200 atkvæði til að komast inn. Þá gætu kratar misst 4. manninn á sín- um lista á Reykjanesi, Gudmund Odds- frekar en nú. Samtök um kvennalista fá í heild nákvæmlega sömu útkomu í þessari könnun og hinni síðustu, eða 8.8%. Fara að vísu úr 12.4% í 11.8% í Reykjavík, en bæta við sig i Reykja- nesi, þar sem þær eru nú með 7.5% en voru með 6.9% í síðustu könnun. Á landsbyggðinni bæta þær enn við sig og eru með 7.2% nú en voru með 6.8%. Kvennalistinn hefur verið að til- kynna um framboð í flestum kjör- dæmum landsins og er til alls líkleg- ur miðað við þessa könnun. Þannig skorar Kvennó hæst og mest hjá unga fólkinu fyrir utan Sjálfstæðis- flokkinn og er með helmingi meira fylgi en t.d. Alþýðubandalagið í þeim kjósendahópi samkvæmt könnuninni. Kvennalistinn fengi samkvæmt könnuninni 6 þing- menn. Þær Kristín Einarsdóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir yrðu kjörn- ar í Reykjavík, auk Guðrúnar Agn- arsdóttur og Kristínar Halldórsdótt- ur í Reykjanesi. En eins og nærri má geta, kynni hending að ráða í hvaða kjördæmum öðrum listinn fengi þingmenn. í þessu dæmi fengi list- inn í Norðurlandi eystra einn mann, þ.e. Málmfríði Sigurðardóttur, sem skipar efsta sætið þar. Þá fengju konurnar einnig „flakkarann" í sinn hlut og kæmi hann í þessu dæmi niður á Suðurlandi. Þar hefur ekki verið gengið frá framboðslista, en talið er að Kristín Ástgeirsdóttir verði þar fengin til framboðs. Hún hefur setið á þingi í forföllum fyrir listann í Reykjavík á því kjörtímabili sem er að líða. „Gömlu" flokkarnir standa nú augliti til auglitis við ýmsar hættur ef svo má að orði komast í þessu samhengi. Alþýðubandalag og Framsóknarflokkur fá þannig mjög lítið fylgi frá ungu fólki og hvorugur þessara flokka eru oft nefndir sem annar valkostur. Það hlýtur einnig að þykja áhyggjuefni í stjórnarher- búðunum, að vinsældir ríkisstjórn- arinnar aukast enn, þar sem 55.7% segjast nú styðja stjórnina en voru 52.6% í síðustu könnun, á sama son. Á Vestfjörðum gæti G-listamaður- inn misst af jöfnunarsætinu til 2. manns á A-lista, Sighvats Björgvinssonar, eða 3. manns á D-lista, Einars K. Guðfinnssonar. Ef V-listamaðurinn í Norðurlandi eystra, Málmfríöur Siguröardóttir, næði ekki kjöri þarna, kæmu Valgerður Sverris- dóttir af B-lista og Tómas Ingi Olrich af D-lista til sögunnar. Sigurbjörn Gunnars- son af A-Iista er jöfnunarmaður og stendur mjög tæpt. Á Austurlandi gæti orðið spennandi slagur, þar sem Unnur S. Bragadóttir (G) stendur nú tæpt, en Guömundur Einarsson (A) á von sem og annar maður, Jón Kristjánsson af B-Iista. Á Suðurlandi virðist Árni Johnsen (D) tíma og Framsóknarflokkurinn tapar fylgi og stjórnarflokkarnir báðir njóta ekki hliðstæðs fylgis samanlagt og ríkistjórnin gerir. Það hlýtur samt að vera Sjálfstæðis- flokknum huggun að virðast sterk- ur meðal yngsta kjósendahópsins, — með yfir 40% stuðning þeirra sem gefa upp afstöðu sína. Alþýðuflokkurinn hefur meðal ungs fólks meira fylgi en Alþýðu- bandalag og Framsóknarflokkur en ekki jafn mikið og Kvennalistinn. Þá kemur það einnig í ljós eins og í síð- ustu könnun, að mjög margir sem nú segjast ætla að kjósa G-listann eru einnig að hugsa um Kvennalist- ann. Reyndar eru kjósendur allra flokka með Kvennalistann á blaði, en milli Alþýðubandalagsins og Kvennó er samt greinilegt flæði, — fyrir utan Sjálfstæðisflokk og Al- þýðuflokk að sjálfsögðu. Ýmislegt bendir til þess að barátt- an fari harðnandi. Þannig segjast til að mynda færri að komi til greina að kjósa annan flokk nú en í síðustu skoðanakönnun. Höfuðborgin er dálítið sérkenni- leg, þar sem flokkarnir hafa verið deyfðarlegir í baráttunni. Engu er líkara en þeir séu meira og minna með frambjóðendur sína í felum og á það við um flesta flokka — eða hverjir hafa orðið varir við Albert Guðmundsson, Sjálfstæðisflokki, Guðmund G. Þórarinsson, Fram- sóknarflokki, eða Ásmund Stefáns- son frambjóðanda Alþýðubanda- lags? Á niðurstöður skoðanakönnunar og túlkun á þeim verða aldrei settir nógu margir fyrirvarar. Skekkju- mörkin nema nokkrum prósentum og einmitt þau prósent skipta sköp- um um það hvort menn lenda „utan eða innan þings". Skoðanakannanir gefa fyrst og fremst vísbendingar og það er leikur fjölmiðla, almennings og stjórnmálamanna að lesa út úr þeim vísbendingum. Þetta er um- fram annað leikur. Úrtakið er of lítið til að draga mjög víðtækar ály ktanir og það þarf að taka tillit til margra þátta við mat á niðurstöðum. Þannig fá samtök um jafnrétti milli landshluta, Lýð- ræðisflokkurinn, ekki hátt hlutfall atkvæða í könnuninni nú, en þar sem fylgið gerir vart við sig áður en flokkur er formlega stofnaður, gæti niðurstaðan þýtt nokkra þingmenn eftir nokkrar vikur. En um það mun næsta skoðanakönnun HP gefa áreiðanlegri vísbendingar. Við ósk- um lesendum og þingmannsefnum góðrar skemmtunar!' nokkuð öruggur í þessari könnun og Elín Alma Arthúrsdóttir (A) lengra frá því að komast að en áður. í þessari dreiíingu er fyigi Framsóknar á landsbyggðinni ótrúlega lítið og ótrú- legt að það breytist ekki frá þessari könnun. Fleira er nokkuð ólíklegt í þess- ari könnun, svo dæmi séu nefnd; ójöfn dreifing atkvæða Kvennalista í lands- byggðarkjördæmum, og þótt staða krata i kjördæmi Kjartans Jóhannssonar sé sterk, þá eru niðurstöðutölurnar ótrú- lega háar. Samtök um jafnrétti milli landshluta gætu komið á óvart i næstu könnun... Staða flokkanna nú samkvæmt skoðanakönnun HP miðað við HP-kannanir (janúar á þessu ári, desem- ber, október og ágúst á sl. ári, nóvember 1985 og úrslit kosninganna 1983. Nú Jan. Des. Okt. Ágúst Nóv. Kosn. '86 86 '86 '85 1983 Alþýðuflokkur 21,5 24,2 28,6 21,2 19,0 18,6 11,7% Framsóknarflokkur t 13,4 15,7 16,2 ‘15,9 11,9 14,4 18,5% Bandalag jafnaðarmanna 0,6 0,4 0,2 0,0 1,6 2,3 7,3% Sjálfstæðisflokkur 36,6 35,0 34,7 40,3 44,4 37,4 38,7% Alþýðubandalag 16,4 15,7 13,6 ,16,5 14,3 19,2 17,3% Kvennalisti 8,8 8,8 6,4 5,7 8,1 6,9 5,5% Flokkur mannsins 0,9 0,2 0,0 0,4 0,6 1,3 —• Framb. Stefáns Valgeirss. 0,7 — — — — — — Samt. um jafnrétti 0,9 ~~ — — — " Hlutfall atkvæða og fjöldi þingmanna hvers lista A 1 B D G V C L M J % Þ % Þ % Þ % Þ % Þ % % % % Rv. 20,9 4 7.5 1 40.6 7 17.6 3 11.8 3 0.5 — 1.1 Rn. 31.3 4 10.4 1 35.1 4 15.7 1 7.5 1 — — VI. 20.7 1 20.0 1 36.4 2 13.1 1 5.3 0 0.9 2.3 1.3 — Vf. 21,2 1 18.0 1 40.7 2 11.3 1 4.4 0 0.9' 2.2 1.3 Nv. 11.3 1 28.2 1 34.5 2 16.6 1 4.7 0 0.9 2.4 1.4 Ne. 16.5 2 16.5 1 28.7 2 15.3 1 12.1 1 0.9 2.2 1.3 6.5 Ai. 8.4 0 26.5 1 26.9 2 27.5 2 6.0 0 0.9 2.4 1.4 Sl; 18.0 1 18.3 1 41.2 3 12.2 1 5.9 1 0.9 2.2 1.3 is. 21.5 14 13.0 8 36.9 24 16.5 11 9.0 6 0.6 0.9 0.9 0.7

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.