Helgarpósturinn - 26.02.1987, Blaðsíða 30

Helgarpósturinn - 26.02.1987, Blaðsíða 30
ÁFANGAR FERÐAHANDBÓK SEXTÍU LEIÐARLÝSINGAR OG SÉRTEIKNUÐ KORT Safnrit ferðanefndar Landssambands hestamannafélaga HESTAMANNSINS Bókaútgáfa Helgarpóstsins s: 681511 um þessa dagana. Um helgina verð- ur listinn á Reykjanesi kynntur með pompi og prakt í Stapa á svokall- aðri „kosningahátíð", sem er raunar orðið svolítið útþynnt hugtak. Topp- urinn á hátíðinni verður sá að stór- söngvarinn Kristján Jóhannsson tekur lagið, væntanlega eins og honum einum er lagið, en Rann- veig Guðmundsdóttir, tengda- móðir tenórsins, skipar 3. sæti list- ans. . . ^ESftir tvær vikur mun Árni Árnason, framkvæmdastjóri Versl- unarráðsins, taka saman pjönkur sínar í Húsi verslunarinnar og flytja þær í Kópavoginn þar sem hann tek- ur við starfi sínu sem fjármálastjóri BYKO. Enn hefur framkvæmda- stjórn Verslunarráðsins ekkert gefið út um hver eftirmaður Árna verður, þó að stutt sé þar til stóllinn losnar. Sá sem oftast hefur verið nefndur til starfsins er Hreinn Loftsson, að- stoðcu-maður Matthiasar Á. Mathie- sen utanríkisráðherra. Stutt til kosninga og Hreinn því á lausu. . . í borgarkerfinu að efla stuðning við listamenn. Hingað til hefur einn listamaður fengið 6 mánaða styrk frá Reykjavíkurborg, en nýja hug- myndin gengur út á að greiða þrem- ur listamönnum full laun í þrjú ár. Gott ef satt væri. .. |{ B^^venfólkið ryður sér brautir á vorum dögum inn á „heilög svæði“ karla, eins og ekkert hafi í skorist. Þannig er nú komin í raðir íþróttafréttamanna kvenforkur mikill, Hjördís Árnadóttir, sem nú starfar fyrir Tímaiin. Fyrstu spor sín sem íþróttafréttamaður steig hún hjá útvarpinu eftir að hafa sótt um þar og staðist próf með sóma. Og núna eftir u.þ.b. eitt ár sem íþrótta- fréttamaður í „heimi" þar sem mest ber á körlum, er Hjördís orðin gjald- keri Samtaka íþróttafréttamanna. Samúel Örn Erlingsson hjá RÚV gaf ekki kost á sér sem formaður eft- ir þriggja ára starf og er nú ritari, en formaður var kjörinn Skúli Unnar Sveinsson, Mogga... . NUTIMAFOLK Bókin um einstaklinginn í einkalífi og starfi. Gagnleg bók handa fólki á öllum aldri íslensk bók sem á erindi vid alla og þig líka Höfundar Nútímafólks eru hinir kunnu sálfræðingar Álf- heiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal. Þær reka í sameiningu sjálfstætt fyrirtæki á sínu sviði, Sálfræðistöðina, þar sem þær bjóða m.a. upp á einkaviðtöl og starfsráðgjöf. Álfheiður og Guðfinna hafa á undanförnum árum efnt til námskeiða um land allt og hafa þúsundir manna sótt þessi námskeið, sem bæði hafa verið sniðin að þörfum almennings, sérhæfðra starfshópa og at- vinnufyrirtækja. Þá hafa þær ritað fjölda greina í blöð og tímarit. I Nútímafólki er m.a. leitast viö að svara þessum spurningum: • Hvaö mótar einstaklinginn? • Hvernig pössum við saman? • Hvers vegna ganga sum sambönd en önnur ekki? • Hvers vegna rífumst viö? • Hvernig hjálpum viö börnum best í skilnaöi? • Hvernig vegnar þér í starfi? • Hvernig eru samskiptin á vinnustaö? • Andlegt heilbrigði — hvaö er aö vera ,,normal“? 30 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.