Helgarpósturinn - 26.02.1987, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 26.02.1987, Blaðsíða 8
BLAÐBURÐARBÖRN EIGA SÉR ENGIN HAGSMUNASAMTÖK EÐA MÁLSVARA. TIL ÞEIRRA ERU GERÐAR ÓTAL KRÖFUR, EN MINNA Þau vinna nœtur- og kvöldvinnu, 5—6 daga vikunnar. Þau vinna all- ar helgar. Þau eru ein á ferd med fjármuni, þegar fáir eru á ferli. Þau fá hluta af launum sínum med því ad fara inn á heimili ókunnugs fólks ad kvöldiagi—oft þurfa þau aö fara margar ferðir á sama staðinn. Þau eru ótryggð viö vinnu sína. Þau geta verið sett undir eftirlit, efkvartað er undan þeim við yfirboðarana. Þau hafa oft litla eða enga lýsingu við vinnuna og lenda því stundum í hálfgerðum slysagildrum. Þau eru blaðburðarbörnin okkar! Framangreind lýsing er ef til vili svolítið hrollvekjukennd, en hún er þó tekin beint úr íslenskum raun- veruleika nútímans. Okkur hefur löngum þótt það sjálfsagður hlutur, að krakkar ynnu sér inn vasapeninga með því að „bera út“, eins og það er kallað. Þetta hefur þótt mesta dugnaðar- og sjálfstæðismerki. Minna hefur farið fyrir umhugsun eða umfjöllun um hinar miður skemmtilegu hliðar blaðaútburðar. Blaðberar hafa engin samtök sín á milli, til þess að tryggja hagsmuni sína eða koma fram sem ein heild gagnvart vinnuveitendum. Þegar haft var samband við skrifstofu ASÍ, kom þó í ljós að þangað hringja af og til foreldrar blaðburðarbarna í leit að upplýsingum um réttindi og skyldur þessara litlu „verktaka". Lára V. Júlíusdóttir, lögfræðingur ASÍ, sagði að foreldrar hringdu oft- ast vegna spurninga um orlofs- eða veikindagreiðslur, sem mismunandi reglur virtust gilda um hjá blöðun- um. Hún sagði stöðu barnanna svo- lítið óljósa. Þau njóta ekki réttar launþega, en hafa heldur ekki þann rétt og skyldur sem verktakar hafa. Réttarstaðan er sem sagt ekki á hreinu og enginn sérstakur aðili í þjóðfélaginu, sem lætur sig málefni þeirra varða. Lára sagði ennfremur, að hug- mynd að stofnun hagsmunahóps blaðbera hefði kviknað hjá a.m.k. einni móður, svo hún vissi til. Úr því hefur hins vegar aldrei orðið, enda erfitt um vik þegar börn eiga í hlut, sem þar að auki stoppa oft stutt í stéttinni. Þegar haft var samband við Vinnueftirlit ríkisins kom í ljós, að á þeim bæ hafa málefni blaðburðar- barna ekki verið í brennidepli, frek- ar en annars staðar. Vinnuaðstaða og réttindamál þessarar fjölmennu stéttar þjóðfélagsins virðast hvergi tekin sérstaklega fyrir. Verktakarnir Iitlu puða bara hver í sínu hverfi og þiggja sín laun — punktur og basta. OFTAST ÁRÁSIR í AUÐGUN ARSKYNI í þætti um kynferðisafbrot á Stöð 2 fyrir nokkru, voru tekin dæmi um fjögur ung fórnarlömb. Helmingur þeirra hafði verið að bera út eða rukka fyrir dagblöð, þegar árásin átti sér stað. Sú staðreynd þótti mörgum óhugnanleg. Af og til sjá- um við nefnilega örstuttar tilkynn- ingar um það í blöðunum að ráðist hafi verið á blaðburðarbarn, það rænt innheimtuaurunum eða því misþyrmt á einhvern hátt. Og ekki eru öllum slíkum málum gerð skil í fjölmiðlum, eins og fram kemur hér í opnunni í viðtali við föður blað- burðardrengs sem nauðgað var af karlmanni í fyrra. Helgarpósturinn hafði samband við Rannsóknarlögreglu ríkisins, til þess að kanna hvort einhverjar tölur væru til yfir fjölda blaðburðar- barna, sem orðið hefðu fyrir árásum á undanförnum árum. Okkur var tjáð, að engin sérstök athugun hefði verið gerð á því máli. * Ingibjörg Georgsdóttir lœknir hef- ur starfað með barnahóp Kvennaat- hvarfsins, einnig „sifjaspellshópn- um“ svokallaða og víðar, þar sem fjallað er um velferð barna og ungl- inga. Hún hefur mjög ákveðnar skoðanir á þeirri hefð fyrir vinnu barna, sem ríkir hér á landi: „Vinna barna á yfir höfuð ekki að eiga sér stað. Það er grundvallar- atriði. Hvað varðar blaðburðinn, bera börnin við þá vinnu þunga poka og fara siðan að rukka á kvöldin, oft með verulegar upphæðir á sér. Það þarf töluvert stálpaðan krakka, eða ungling, til þess að geta varið sjálfan sig ef í illt fer. Þessi börn eru náttúru- lega útsett fyrir alls kyns hlutum, því þau eru á ferli snemma á morgn- ana og seint á kvöldin, og á veturna er niðamyrkur á þeim tímum sólar- hrings. Það eru engar tölur til yfir árásir á blaðburðarbörn, en mig grunar sterklega að þetta séu oftast ein- hverjar hrindingar, í þeim tilgangi að ná af börnunum peningum. Sem betur fer eru kynferðisárásir mikl- um mun sjaldgæfari. En það sár- vantar öll töluleg gögn um afbrot þar sem börn koma við sögu. Slíkar upplýsingar væri hægt að fá, ef skýrslur lögreglunnar væru tölvu- unnar. Vonandi verður þess ekki langt að bíða. FJÁRHAGSLEG ÁBYRGÐ? Það er tæpast jafnalvarlegt að vera rændur og verða fórnarlamb kynferðisafbrotamanns, þó svo það sé auðvitað síður en svo gamanmál í augum þess sem fyrir því verður. Þegar peningum er rænt af blað- burðarbarni, kemur hins vegar sú spurning í huga fólks, hvort hægt sé að gera börn ábyrg fyrir fjármunum án þess að þau séu fjárráða. Það er að vissu leyti fjármálaleg skuld- binding, þegar barn tekur að sér að rukka inn fjármuni dagblaðs og skila þeim óskertum. Hvað t.d. ef barn glatar fénu með einhverju móti og upphæðin er hærri en nemur væntanlegum launum þess? Er það skuldbundið til þess að greiða blað- inu peningana? Við leituðum svara hjá prófessor Jónatan Þórmunds- syni. Sagði Jónatan að ófjárráða barn væri í þessu tilviki ábyrgt fyrir fjár- munum, innan þess samnings sem gerður er við blaðið — en einungis upp að þeirri fjárhæð sem það sjálft ynni sér inn. Samkvæmt því væri hugsanlega hægt að draga glataða peninga af kaupi barnsins, en ekki hægt að ganga á eignir þess til að bæta hugsanlegan skaða. Ennfremur tjáði Jónatan okkur að foreldrar væru almennt ekki skaðabótaábyrgir vegna barna sinna. Slíkt kæmi ekki til, nema foreldrarnir ættu sjálfir einhverja sök í málinu. KAUP OG KJÖR HJÁ ÞJÓÐVILJA OG MOGGA En hver skyldu kjör margum- ræddra blaðburðarbarna annars vera á vinnumarkaðnum? Við höfð- um samband við dreifingarstjóra Þjóðviljans, Hörð J. Oddfríðarson, og Sigurþór Sigurðsson hjá af- greiðslu Morgunblaðsins, til þess að komast að þvi. Þjóðviljinn greiðir blaðberum sín- um 50 krónur á mánuði fyrir hvert blað, sem þeir bera út (þ.e.a.s. fyrir hvern áskrifanda). Standi börnin sig svo vel að engin kvörtun berst þeirra vegna, hækkar greiðslan hins vegar í 55 krónur á blað. (Þeir, sem kvarta yfir því að hafa ekki fengið blaðið sitt, en komast svo t.d. að því að einhver fjölskyldumeðlimur kippti því með sér í vinnuna, eru sem sagt að lækka kaup blaðburð- arbarnsins — án þess að það hafi til þess unnið! Það er verðugt um- hugsunarefni. Brönin fá 7% af innheimtum áskriftargjöldum og frá október fram í marsmánuð fá þau 5% ofan á fyrrgreindar tölur í vetrarálag. Or- lofsfé, sem er 10,17% af heildar- summunni, er greitt mánaðarlega. Hörður sagði Þjóðviljann ekki tryggja blaðberana sérstaklega en síðastliðið sumar hefði ákveðið atvik beint athygli þeirra að þessu. „Þá var okkur einfaldlega bent á borgina. Það væri borgarinnar að sjá til þess að halda gangstéttum þannig að hægt væri að ganga um þær. Inni á lóðunum eru það síðan húseigendurnir, sem eru ábyrgir fyrir frágangi." Enginn sérstakur lágmarksaldur blaðburðarbarna er í gildi hjá Þjóð- viljanum. Slíkt er metið eftir fjölda blaða í hverfinu og öðrum aðstæð- um. Börnunum er bent á að ræða málið við foreldra sína áður en þau taka þetta að sér, en þau þurfa ekki uppáskrift þeirra til þess að fá starf- ið. Varðandi kvartanir um að blaðið bærist ekki á réttum tíma, sagði Hörður Oddfríðarson engar sérstak- ar reglur gilda um þau tilvik. Tekið væri á málunum eftir aðstæðum hverju sinni. Þjóðviljinn á að berast áskrifendum eigi síðar en hálfníu á morgnana. Hjá Morgunblaðinu fá blaðburð- arbörnin 56 krónur á mánuði fyrir hvert blað sem þau bera út, og 6% af innheimtum áskriftargjöldum. Þau fá ekki greitt orlof, en blaðið hefur þá reglu að greiða blaðberum, sem unnið hafa lengur en eitt ár, þriggja vikna laun í sumarleyfinu. Sigurþór Sigurðsson sagðist ekki vita til þess að blaðberar Morgun- blaðsins væru sérstaklega tryggðir við vinnu sína. Hann sagði, að börn undir 10 ára aldri kæmu ekki til greina og að foreldrar barnanna væru ábyrgðarmenn, þar sem um fjármunavörslu væri að ræða. Ekki er þó farið fram á skriflegt leyfi for- eldra. í flestum tilvikum er haft sam- band við þá símleiðis. Morgunblaðið á að berast áskrif- endum fyrir klukkan hálfátta á morgnana. Sigurþór kvað það rangt, að njósnað væri um blað- burðarbörnin ef kvartað væri und- an því að blöðin bærust ekki á til- settum tíma. Benti Sigurþór okkur á að hafa samband við skrifstofu Morgunblaðsins, Daníel Lárusson. Daníel tjáði okkur, að það hefði einungis komið fyrir í tvö eða þrjú skipti, að gripið hefði verið til slíkra aðgerða — enda yrði þeim að sjálf- sögðu aldrei viðkomið í öllum þeim tilvikum, sem um er að ræða á svo stóru blaði. Aðeins í örfáum undan- tekningartilfellum væri nauðsyn- legt að kanna málið með eftirliti, þegar frásögnum kaupenda og blað- bera bæri alls ekki saman varðandi útburðartímann. HP TRYGGIR SÖLUBÖRNIN Að endingu þótti okkur rétt að líta svolítið í eigin barm. Enn sem kom- ið er, er Helgarpósturinn ekki bor- inn út til áskrifenda, heldur berst hann með pósti. Til stendur þó að breyta þessu fyrirkomulagi. Sölubörn okkar fá 16 krónur fyrir hvert eintak, sem þau selja. Þau fá síðan aukablöð, sem þau geta selt og fengið peninginn óskertan í eigin vasa, þ.e. 80 krónur fyrir hvert ein- tak. Eftir sölu á 11 blöðum fá þau eitt aukablað, eftir 15 seld blöð fá þau tvö aukablöð, og þrjú eftir að hafa selt 23 eintök af HR Hingað til hafa sölubörn okkar ekki verið tryggð sérstaklega, frem- ur en blaðburðarbörn dagblaðanna — einfaldlega vegna þess að enginn hafði leitt hugann að því. Það var eins með Helgarpóstinn og svo marga aðila í þjóðfélaginu, sem í hreinu hugsunarleysi athuga ekki hve þessir ungu verktakar búa við léleg kjör. Þá, sem ekki tilheyra neinum hagsmunasamtökum, skortir nefnilega vettvang og sam- takamátt til þess að knýja á um sjálf- sögð réttindi. Framkvæmdastjóri HP hafði í byrjun vikunnar samband við tvö tryggingarfélög og leitaði tilboða í tryggingu sölubarna og væntan- legra blaðburðarbarna. Málaleitan hans var einkar vel tekið á báðum stöðum og þegar þetta lesmál kem- ur í hendur kaupenda í vikulok, verður væntanlega búið að ganga frá eftirfarandi tryggingarskilmál- um: 1.100 þúsund króna dánarbætur. 2. 3 milljón króna örorkubætur. 3. Greiðsla útlagðs kostnaðar, sam- kvæmt reikningum — upp að 15 þúsund krónum. Þannig verða öll sölubörn okkar tryggð og hvað haldið þið að það kosti blaðið? Einungis 624 kr. á ári fyrir hvert barn! Það er ekki há upp- hæð í samanburði við mörg önnur útgjöld við blaðaútgáfu, en fyrir börnin sem í hlut eiga hlýtur það að teljast lágmarkskrafa að þau séu tryggð við vinnu sína á götum bæj- arins. Móðir 14 óra blaðburðar- stúlku í Reykjavík: „Blaðið ekki bótaskylt" Það eru ekki allir foreldrar hrifnir afþvíað börn þeirra beri út blöð. Þó svo sjá megi ýmsar jákvœðar hliðar á slíku framtaki, telja margir þœr neikvœðu yfirsterkari. Þegar börnin hafa bitið það í sig að bera út, getur hins vegar reynst erfitt að fá þau of- an afþví. Þannig getur einnig hagað til, að heimilin þurfi hreinlega bráð- nauðsynlega á þessum aukatekjum barnanna að halda. Því var að vísu ekki þannig farið á heimili nokkru í Reykjavík, þar sem heimasœtan bar út Morgun- blaðið í tvö ár til þess að fjármagna kostnaðarsamt tómstundaáhuga- mál sitt — hestamennsku. Þótt for- eldrarnir vœru ekki ýkja hrifnir af þessari vinnu dótturinnar með skól- anum, var erfitt að kœfa sjálfstœði hennar og sjálfsbjargarviðleitni. Móðir hennar lýsir viðhorfum sín- um á eftirfarandi hátt: „Telpan byrjaði að bera út Mogg- ann þegar hún var 12 ára og gerði það í tvö ár. Mér finnst það hins veg- ar álitamál hvort þetta borgar sig fyrir krakka, eins og fyrirkomulagið er núna. STOFNAOijR SAMl ISlAi istuttumáu. 'srnanna ‘■ANSKJARAviSirALA h£RManr srro Tr'Til WÍTVOSiÍi SKOlAGAROAR Daufc*aWaJ.\ voldum eyftot \ -ilaWs55 \ \ vcisluna'”.0 \ \ roeSh»n' ' SAMVINNUFEI WÆKJUVERO BamatwWf í SunöSoll ReyVjiW'1'" 1 pastemak \ eniun®et“ 7"d i „et við Crim. 'gen: Vandinn vid A '7 «tdanfan. No'egsstn;,di ££» M ,U,tK ■maud AjKÆRUR jTóöhatUtufn, natskips máhö, 'annsóknar. 8 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.