Helgarpósturinn - 26.02.1987, Síða 11
K
■ ^kæra sú sem kona nokkur
lagði inn til rannsóknarlögreglunn-
ar í kjölfar greinaskrifa Helgarpósts-
ins um innheimtulaun lögmanna af
afnotagjöldum Ríkisútvarpsins, hef-
ur verið á töluverðu flakki í kerfinu.
Jón Oddsson hrl. sendi kæruna
inn fyrir hönd konunnar og beindist
hún að innheimtu Sigurmars K.
Albertssonar hdl. á afnotagjöld-
um. RLR sendi hana til ríkissak-
sóknara til umsagnar. Jón Erlends-
son saksóknari fékk hana til með-
ferðar og óskaði eftir rannsókn hjá
RLR. Þegar RLR hafði lokið henni
sendi hún hana aftur til Jóns. Þegar
Jón hafði kannað málið nánar sendi
hann málið aftur til RLR til frekari
rannsóknar. Þar er málið í dag. Sam-
kvæmt heimildum HP beinist rann-
sókn málsins m.a. að því hvort sá
fógetakostnaður sem tilgreindur er
á reikningum lögmannsins, sé sá
sami og greinir frá í fógetabókum.
En sá hluti rannsóknarinnar sem
skiptir sjálfsagt flesta máli er hvort
heimilt sé að senda afnotagjöldin til
innheimtu hjá lögmönnum og
krefja skuldunauta RÚV um inn-
heimtuþóknun samkvæmt gjald-
skrá Lögmannafélagsins. Ef ríkis-
Haföu
smokk
uiö
hendina
Hann gæti
reddaö þér
IP
GEGN EYÐNI
saksóknari höfðar mál vegna þessa
munu sjálfsagt margir senda sam-
bærileg mál inn á borð til hans. Um
síðustu áramót sendi Theódór
Georgsson, innheimtustjóri RÚV,
um 6.000 afnotagjöld til innheimtu
hjá lögmönnum. . .
ÍESins og menn rekur eflaust
minni til var Einar Þ. Matbiesen,
bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, eitthvað
foj út í félaga sína í Sjálfstæðis-
flokknum fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingarnar í vor og bauð fram
sérlista. HP getur fullvissað sjálf-
stæðismenn í Reykjaneskjördæmi
um, að Einar mun ekki lengur vera
illur út í félaga sína og mun því
styðja bróður sinn Matthías Á.
Mathiesen utanríkisráðherra í
komandi kosningum...
lieikbrúðuland og Kristján
Ingi Einarsson ljósmyndari urðu
mikils heiðurs aðnjótandi nýlega,
þegar mynd Kristjáns úr sýningunni
Tröllaleikir birtist í dagatali al-
þjóðasamtaka brúðuleikhússfólks,
UNIMA. Samtök þessi gefa árlega
út dagatal, þar sem eru litmyndir úr
sýningum brúðuleikhúsa um allan
heim. Ljósmyndin úr Tröllaleikjum
er fyrir febrúarmánuð. Aftan á lit-
myndinni eru tvær minni myndir,
auk upplýsinga um aðstandendur
leiksins og innihald hans. í UNIMA
eru hátt á annað hundrað þjóðlönd
og fleiri þúsund einstaklingar. Mark-.
mið samtakanna er að efla og auka
samband brúðuleikhússfólks frá
mismunandi löndum og þjóðum og
stuðla að sem víðtækastri menntun
listafólksins. Einnig stuðla þau að
þróun brúðulistarinnar, bæði sem
fræðigreinar og listgreinar, og á
fjögurra ára fresti eru haldin stór al-
þjóðleg brúðuleikhúsmót, eins kon-
ar Ólympíuleikar brúðufólks. Hið
næsta verður haldið í Japan árið
1988. ..
A
JI^TAllumfangsmikið riftunar-
mál er nú til meðferðar hjá embætti
sýslumannsins í Hafnarfirði og telj-
ast málin raunar 7 talsins og eru í
höndum Más Péturssonar í Hafn-
arfirði og Arngríms ísberg í Saka-
dómi, en hann fjaliar um hugsan-
lega saknæma hluti í skuldamálum
manns, sem seldi eigur sínar og
stakk af úr landi. Um er að tefla
einar 5 milljónir króna. ..
LAUSN Á
SPILAÞRAUT
Kgl03 A762 KD964 104 9
7 A3 52
K7652 D854 ADG983
D96 AG1083 10842
Eftir KG75 sagnir og spilamennsku
ættir þú að hafa fengið örugga
talningu í spilinu, strax í 7. slag.
Skifting austurs er 1-2-6-4. í 9. slag
spilar þú spaða að heiman og bið-
ur um lítið úr blindum, hvað sem
vestur lætur. Vestur á um það að
velja að vera endaspilaður eða
leyfa félaga að eiga slaginn. Aust-
ur verður að spila tígli í þrefalda
eyðu og gefa trompun og niður-
kast.
Það er semsé sama hvernig
spaðar AV eru. Liturinn skiftist
örugglega 4-1 og samningurinn er
tryggur ef við spilum smáum
spaða frá báðum höndum.
UM HVAÐ VERÐUR RARIST?
Opinn almennur hnrgarafundnr á
JÓN SIGURÐSSON
Akureyri sunnudaginn 1. mars,
klnkkan 15.00 í Alþýðuhiisinu.
Ræðumenn:
ÁRNI GUNNARSSON
JÓN SIGURÐSSON
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
HREINN PÁLSSON
Fyrirspnrnir
A Iþýöuflokksfélagar
munum eftir fulltrúaráðsfundinum á laugardaginn
28. febrúar og árshátíð Alþýðuflokksfélaganna
á Akureyri um kvöldið
í Alþýðuhúsinu.
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG AKUREYRAR
HELGARPÓSTURINN 11