Helgarpósturinn - 26.02.1987, Side 15
RNUNUM!
varast ákveðna hentistefnu og tækifæris-
mennsku í félagslegu starfi. Því er ekki víst að
íhaldssemin birtist gagnvart vinum og sam-
starfsfólki.
SVAVAR GESTSSON
Svavar er stórhuga tilfinningamaður. Að
sumu leyti er hann líkur Þorsteini Pálssyni, t.d.
því að báðir eru fastir fyrir, geta verið þverir,
stífir og lokaðir. Sjálfsagi og formfesta er ein-
kennandi fyrir persónlegan stíl beggja. Með
nokkrum sanni má kalla Svavar pólitískan
krossfara, hæpið er t.a.m. að hann geti nokkru
sinni orðið ánægður með ríkjandi ástand eða
kyrrstöðu. Sú hugmynd skýtur upp kollinum
þegar kort hans er skoðað, að vegna óljósrar
sjálfsímyndar sæki Svavar í völd, áhrif og
upphefð til að styrkja egóið, að hann sé það
óöruggur sem persóna, að hann þurfi á upp-
hefð að halda og geti ekki staðið á eigin fótum
án ytri vegtyllu. Hvort sem það er rétt eða ekki
verður veikleiki hans að teljast íhaldssemi,
sem getur komið í veg fyrir eðlilega endurnýj-
un, það að honum hættir til að staðna í við-
horfum og aðferðum. Styrkur Svavars er fólg-
inn í krafti hans og ákveðinni framkomu.
Hann er duglegur, reffilegur, baráttuglaður og
seigur.
HORFURNAR BJARTAR HJÁ
ÞORSTEINI OG JÓNI
Ef kort leiðtoganna eru skoðuð sem heild,
skera Jón Baldvin og Guðrún sig úr. Þau eru
fulltrúar nýrra strauma í stjórnmálum. Jón
Baldvin er listamaður og húmanisti, boðberi
amerískra aðferða. Guðrún er fulltrúi fyrir
nýja stefnu konunnar, skynsemi ofar tilfinn-
ingum. Þorsteinn, Steingrímur og Svavar virð-
ast hefðbundnari persónuleikar og um leið
fulltrúar þess gamla. Á margan hátt eru Svav-
ar og Þorsteinn líkir, báðir formfastir og að
vissu leyti öfgafullir, eða öllu heldur má segja
að þeir leggi mikla einbeitingu og þunga í störf
sín.
Samkvæmt athugun á horfum í korti flokks-
leiðtoganna virðist Þorsteinn eiga heldur
bjarta tíma framundan. Sterk afstaða frá Júpí-
ter gefur m.a. til kynna að honum aukist kraft-
ur og ákveðni á árinu. Sömuleiðs virðast af-
stöður í korti Jóns Baldvins jákvæðar, þótt þær
séu tvísýnni og vandmeðfarnari. Afstöður í
korti Steingríms verða að teljast sæmilegar, en
þó eru blikur á lofti á næsta ári, m.a. möguleik-
ar á innanflokksátökum og uppstokkun sem
gæti leitt til breytinga á högum hans. Slík þörf
getur reyndar einnig komið frá honum sjálf-
um. Kort Guðrúnar sýnir engar sérstakar af-
stöður á næstunni, frekar rólegt ár, en upp-
stokkun og hugsanleg innanhússátök í októ-
ber og desember 1987. Kort Svavars sýnir
ákveðin tímamót, lægð og lakar horfur hvað
varðar áhrif í þjóðfélaginu á næstunni.
Ef þetta er yfirfært á flokka mætti draga þá
ályktun að Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokk-
ur ættu góðu gengi að fagna í næstu kosning-
um, að Kvennalista og Framsókn gengi svona
sæmilega, en Alþýðubandalagi síður. Hafa
verður hins vegar í huga að hver flokkur er
meira en einn maður. Auk þess erum við sjálf
okkar gæfu smiðir og dugnaður og vinna geta
breytt lakri stöðu í góða og vanmat gert
góðar horfur að engu.
STJÖRNUSPEKIER TÆKI
„Stjörnuspeki er tæki til að skilgreina per-
sónuleika manna, ákveðið líkan. Það er mikil-
vægt að skilja, að þetta er fyrst og fremst tœki.
Eins og þegar menn byggja hús, þá eru vinnu-
pallar reistir í kringum húsið, og má því segja
að stjörnuspekin sé e.k. vinnupallar, í kringum
manninn, en ekki maðurinn sjálfur. Stjörnu-
kortið sýnir fyrst og fremst upplagid, en síðan
þarf að taka tillit til uppeldis og umhverfis. Þótt
þú hafir ákveðið upplag er hreint ekki þar með
sagt að þjóðfélagið gefi þér það eins og að vísa
þér eftir rauðum dregli. Mesta gagnið við
stjörnuspekina er að hún getur hjálpað mönn-
um að finna þetta upplag, að finna rót sína.
Hvað varðar þessa stjórnmálamenn þá veikir
það að þekkja ekki mennina, að vita ekki vel
hver áhrif uppeldisins og umhverfisins hafa
verið, hvað þeir hafa gert, hvort þeir hafa
þroskað sínar jákvæðu hliðar. Þótt menn hafi
í upplagi sínu jákvæða eiginleika, þá er hreint
ekki víst að þeir hafi þroskað þá.“
Gunnlaugur segir að stjörnuspekin eigi víða
Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur:
Stjörnukort sýnir fyrst og fremst upplagið, rótina.
En slðan verður að taka tillit til uppeldis og um-
hverfis.
erfitt uppdráttar, eins og hér á landi, en víða
annars staðar sé hún viðurkennd fræðigrein.
Menn setji hér gjarnan samasemmerki milli
stjörnuspekinnar og þessara hefðbundnu
stjörnuspáa.
„Menn þekkja þessa speki svo lítið hér, en
síðan eru aðrar þjóðir þar sem stjörnuspekin á
sér ævaforna rót. í Austurlöndum nær hefur
þessi speki verið hluti af menningunni í mörg
þúsund ár. Það má nefna til fróðleiks að Yam-
arti, olíumálaráðherra Saudi-Arabíu og einn
aðal forystumaður OPEC í aldarfjórðung, einn
valdamesti maður heims, er stjörnuspekingur
og notar þá speki mjög mikið. Breski stjörnu-
spekingar, sem ég er í sambandi við, hafa reynt
að fá upplýsingar um fæðingartíma ísraelskra
stjórnmálamanna, en það er bara ekki hægt,
því þetta er ríkisleyndarmál þar í landi. Ég hef
heyrt að í Danmörku sé geysilega mikið um
það núorðið að fyrirtæki noti stjörnuspekina
við mannaráðningar og í Óðinsvéum er stórt
fyrirtæki með ráðgjafarþjónustu á þessu sviði.
I Bandaríkjunum eru síðan þúsundir fyrir-
tækja á þessu sviði.“
Gunnlaugur segir grunnhugmyndina á bak
við stjörnuspekina ekki vera þá að pláneturn-
ar sendi e.k. geisla og hafi þannig áhrif; þær
hafi ekki áhrif.
„Grunnurinn er heildarhyggja, sem gengur
út á það að allt lífið er ein lífræn heild. Það eru
sömu lögmál í allri lífheildinni. í Biblíunni seg-.
ir að Guð hafi skapað manninn í sinni mynd og
mín túlkun er sú að Guð sé alheimurinn og að
maðurinn sé í mynd heimsins. í einu atómi er
heilt sólkerfi og sömu lögmál í gangi. Allt lífið
er bundið saman í eina lífkeðju. Allt sem gerist
á ákveðinni stundu ber merki þeirrar stundar.
Ef þú ert fæddur á ákveðinni stundu þá berðu
merki og lögmál þeirrar stundar í þér. Það er
ekkert mystískt eða dulrænt við þetta, heldur
í rauninni ákveðin náttúrulögmál."
Það er mikið að gera hjá Gunnlaugi í
Stjörnuspekimiðstöðinni, þar sem hann tekur
að sér persónuráðgjöf og heldur auk þess nám-
skeið og fyrirlestra.
„Okkar markmið er að hjálpa, því sjálfs-
þekking leiðir til betra lífs. Þetta verður auð-
vitað að vera í samhengi við ýmislegt annað;
mataræði, líkamsrækt og fleira, enda mikil-
vægt við leit mannsins að hlutirnir vinnist
saman," sagði Gunnlaugur Guðmundsson
stjörnuspekingur.
HELGARPÓSTURINN 15