Helgarpósturinn - 26.02.1987, Side 29

Helgarpósturinn - 26.02.1987, Side 29
í öruggum höndum hjá errctxvm Brottfarir til Mallorka í sumar: apríl 15. 29. maí 23. júní 1. 13. 22. júlí 4. 13. 25. ágúst 3. 15. 24. sept. 5. 14. 26. okt. 5. Sumaráætlun ATLANTIKer komin út. Sextán síöna litprent- aður bæklingur með myndum og upplýsingum auk fjögurra síðna verðskrár. Við bjóðum þér bækl- inginn á skrifstofunni. Páskaferðir. Því ekki að hrista af sér vetrardrungann í hrífandi ferð til fjalllendis Sviss 11 -20. apríl? Þar býðst glæsileg gisting á Axenfels, nýju einkar vönduðu hóteli. Öll herbergi með síma, sjónvarpi og útvarpi, míníbar, svölum og baði. Páskaferðtil Mallorka. Vinnudagamir eru fáir sem tapast og á þessum tíma þráir fólk sólaryl. islenskur fararstjóri tekur á móti farþegum við kom- una. Flogið til Palma 15. apríl og ueim- leiðis er haldið þann 29. april. Verðdæmi: Hjón með tvö börn. Kr. 22.000 á fjöl- skyldumeðlim. Á Mallorka fjögur hótel. Royal Playa de Palma, Royal Jardin del Mar, Royal Sa Coma og Royal Torrenova. Allt gististaóir i sér- flokki. Til þess að taka eitt dæmi um aðbúnað má skoða Royal Jardin del Mar. Allar íbúðir hótelsins hafa svalir að sjó, eldhús, baðherbergi, stofu og svefn- herbergi. Á hótelunum er auk þess skemmtidagskrá sex daga vikunnar. Á næstu grösum eru klúbbar, veitingastað- ir, þjónustufyrirtæki, dansaðstaða og aðstaða til hvers kyns íþróttaiðkana. Verðdæmi fyrir hjón með tvö börn í þrjár vikur i júlí: Kr. 28.300 á fjölskyldumeðlim. Sumarhús við sjó. Enn bjóðum við vinsælar ferðir í Weissenhauser - Strand sumarhúsin við strendur Eystrasaltsins norður af Hamborg. íþrótta- og tómstundaað- staða er með því besta sem gerist í Evrópu. Golf, tennis, keiluspil, billjard. Frá húsunum er stutt til Kaupmannahafn- ar með börnin í Tívolí eða á Strikið. Enn styttra er í Hansaland sem er feikistórt leiktækja-, skemmtana- og útivistarsvæði í nágrenninu. íslenskur fararstjóri á staðnum svarar öllum spurningum. Flogið er beint til Hamborgar. Tekið á móti farþegum og ekið á áfangastað. Hægt er að velja um tvo kosti og báða góða. Sumarhús fyrir 2-8 eða íbúð í þriggja hæða íbúðarbyggingu á svæðinu. Verðdæmi fyrir hjón með tvö börn í hálfan mánuð: Kr. 20.900 á fjölskyldumeðlim. Siglingar, sérarein Atiantik. skhfstof an hefur einkaumboð fyrir hið óviðjafnanlega skipafélag Royal Caribbean. Sé markmiðið munaður og viðurgerningur á heimsmælikvarða er sigling með Royal Caribbean rétti kosturinn. Unnt er að velja milli siglinga í 7-17 daga með ólíkum áfangastöðum. Lúxusferð. Verð frá kr. 71.000 á mann. Heillandi heimsborgir. Vinsældir stórborg- arferða aukast stöðugt. Við bjóðum upp á flug og bíl til Hamborgar, Amsterdam, Lúxemborgar, Kaupmannahafnar, Glasgow, Rómar, Parísar og London. Verðdæmi Hamborg: Fimm saman i bil í viku. Kr. 14.400 á mann. Rútuferðir. Notaleg ferð um Norður-Þýskaland. i ferðinni er meðal annars farið í borgarskoðanir í Hamborg, Bremen og Hannover. Ferðir 4.-14. júní og 27. ágúst - 6. september. Myndræn ferð um Mið-Evrópu. Heillandi ferð um fögur fjallahéruð og skóga. Flogið er til Frankfurt og þaðan ekið áfram. Meðal áfangastaða eru Heidelberg, Freiburg, Svarti- skógur, Tyrol hérað, Innsbruck, Vínarborg, Múnchen og Núrnberg. Ferð 2. - 23. ágúst. Barnaafsláttur Það koma allir brosandi heim FERÐASKRIFSTOFA, IÐNAÐARHÚSINU HALLVEIGARSTÍG 1 SÍMAR 28388 - 28580 HELGARPÓSTURINN 29

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.