Helgarpósturinn - 26.02.1987, Síða 31
INNLEND YFIRSYN
eftir Friðrik Þór Guðmundsson, Guðlaug Bergmundsson og Gunnar Smára Egilsson
Traustur grunnur
og bjartar horfur
Islendirtg
dalshöll. L
Þorgils
Það voru ekki margir á ferli á götum úti
síðasta þriðjudagskvöld og ætla má að
drjúgur meirihluti þjóðarinnar hafi orðið
vitni að frækilegum sigri íslenska handknatt-
leikslandsliðsins á heimsmeisturunum frá
Júgóslafíu. Um fátt hefur verið meira talað
í kjölfarið, helst að menn ræði þá sérstaklega
fólskubragð sem kennt er við Júkkana og
ljósmyndarar náðu að festa á filmu með eftir-
minnilegum hætti. Sigurinn í síðari landsleik
þjóðanna er ekki síst merkilegur fyrir þá
sök, að lykilmenn brugðust eða nýttust
óvenju illa og er þá átt við Kristján Arason,
Atla Hilmarsson og Sigurd Sveinsson. Ótrú-
legt en satt, að Kristján skuli ekki hafa skor-
að eitt einasta mark utan af velli. En maður
kemur í manns stað og að þessu sinni
blómstruðu þeir Páll Ólafsson og Alfred
Gíslason úti, og Einar Þorvardarson átti enn
einn stórleikinn í markinu.
Það fer ekki á milli mála að núverandi
landsliðskjarni er myndaður af samstilltum,
leikreyndum og líkamlega sterkum eingtaki-
ingum. Og þjálfarinn, Bogdan, er yfirburða-
maður á sínu sviði. Um þetta eru allir þeir
sammála, sem HP ræddi við um stöðu ís-
lensks handknattleiks í dag. Sveinn Björns-
son, forseti íþróttasambands íslands, hefur
fylgst vel með handknattleiknum á undan-
förnum árum og hafði sínar skýringar á því
hvers vegna landinn væri svona góður í þess-
ari íþrótt. ,,Ég held að handknattleikur eigi
vel við íslendinga. Það þarf mikinn líkamleg-
an styrk í þetta og íslendingar eru vel byggð-
ir líkamlega á þann hátt að þessi íþrótt pass-
ar vel fyrir okkur. Áhuginn er síðan gífurlega
mikill hjá strákunum og mikil breidd í liðinu.
Og ekki kvíði ég framtíðinni, þvi í yngri
landsliðunum er að finna afburða leikmenn.
Bogdan þjálfari er frábær, hefur sýnt ótrú-
lega tækni og áhuga á því að gera liðið gott.
Hann hefur haft orð á því að hætta með liðið
eftir ólympíuleikana í Seúl 1988, en það yrði
mikill fengur að því að hafa hann áfram;
nsmeistararn
iqðir að velli
hann gjörþekkir alla leikmennina, allt niður
í yngri flokkana," sagði Sveinn.
Guðjón Guömundsson, liðsstjóri landsliðs-
ins, tekur í sama streng. „Við erum með frá-
bæra leikmenn, sem hafa verið að spila sam-
an margir hverjir allt frá því að við náðum
sjöunda sætinu á heimsmeistaramóti lands-
liða 21 árs og yngri árið 1978. Við erum með
mjög góðan þjálfara, á heimsmælikvarða.
Þetta fer vel saman, enda getur góður þjálf-
ari náð slökum árangri ef hann hefur ekki
góða leikmenn. Strákarnir eru nánast eins
og ein fjölskylda, engin vandamál, allt á jafn-
réttisgrundvelli og andinn sérlega góður.
Andinn nú er helst sambærilegur við þann
sem ríkti 1970—1972, þegar Hilmar Björns-
son var með liðið og gerði það gott. Ég óttast
ekki framtíðina, nema þá helst að það geti
myndast eyða eða tómarúm þegar Bogdan
hættir. Það verður erfitt að taka við af svona
þjálfara," sagði Guðjón.
En það spilar fleira mikilvægt inn í en góð-
eins og herforingi og stefnir að hámarksár-
angri. Síðan má ekki horfa framhjá því að við
duttum nánast inn á ólympíuleikana í Los
Angeles. Eftir það höfum við verið A-þjóð og
það er fyrir miklu að berjast að halda því. A
sama tíma tók Jón Hjaltalín við HSÍ og undir-
strikaði breyttar áherslur hjá Bogdan. Hann
var t.d. aldrei til umræðu um möguleikann á
því að ísland keppti í B-keppninni á Ítalíu fyr-
ir heimsmeistarakeppnina í Sviss.“
„Árangur liðsins í dag grundvallast í fyrsta
lagi á því, að við höfum mjög góðan þjálfara.
í öðru lagi er mannskapurinn mjög góður,
þegar á heildina er litið. Þá hefur stjórn HSÍ
unnið mjög gott starf á undanförnum þrem-
ur árum, og allt hjálpast þetta að við að
skapa það lið sem við eigum í dag,“ segir
hornamaðurinn snjalli Guömundur Þ. Gud-
mundsson landsliðsmaður úr Víkingi, þegar
hann er spurður hvers vegna landslið okkar
sé svona gott.
Guðmundur segir að framlag þjálfarans
an og frá vinnu. Það þarf að bæta upp vinnu-
tap, fá menn erlendis frá og allt kostar þetta
pening. Okkur hefur tekist að ná mjög góð-
um samningum við fyrirtæki, sem sjá hag í
því að auglýsa og einmitt er vel gengur eins
og nú. Handknattleiksunnendur hafa brugð-
ist mjög vel við happdrættinu okkar, sem er
okkar aðalfjármögnunarleið, enda kemur
ekki mikið frá ríkinu miðað við t.d. hin Norð-
urlöndin. Góður fjárhagur gerir sitt til að
halda úti liði í heimsklassa og þar er þáttur
Jóns stór. Hann fær ekki bara góðar hug-
myndir, heldur hrindir þeim í framkvæmd.
Ef við getum haldið áfram á þessari braut er
framtíðin björt, því það eru að koma upp
mjög efnilegir menn til að taka við af núver-
andi stjörnum. Verkefnin fyrir yngri lands-
liðin, 21 árs, 18 ára og 16 ára og yngri, hafa
aldrei verið fleiri og vel haldið utan um pilt-
ana,“ sagði Einar. En ekki má gleyma því að
núverandi landsliðskjarni átti góða bak-
hjarla á sínum yngri árum og Gunnar
Guðmundur segir að öll vinna hans í
tengslum við landsliðið komi óneitanlega
niður á öðrum þáttum lífsins. „En ég hef ver-
ið heppinn. Ég vinn hjá tölvudeild Lands-
bankans og bankinn hefur verið mér ein-
staklega hjálplegur. Ég hef fengið frí á fullum
launum til að fara í þessar ferðir, en ef það
væri ekki, gæti maður einfaldlega ekki
stundað þetta. Og auðvitað bitnar þetta á
fjölskyldulífinu, en við erum bara tvö, þann-
ig að það er ekki hjá mér eins og hjá mörg-
um, sem eru með börn,“ segir Guðmundur Þ.
Guðmundsson.
Menn eru því ánægðir og bjartsýnir um
þessar mundir. Hvergi veikan blett að sjá, en
þó helst áhyggjur af því hvað taki við þegar
Bogdans nýtur ekki lengur við. En hann
verður að minnsta kosti með fram yfir
Ólympíuleikana 1988 og því í sjálfu sér næg-
ur tími til að undirbúa tímamótin og víst er,
að toppþjálfararút í heimi hafa viðrað áhuga
sinn á því að taka við af hinum pólska.
íslenskur handknattleikur gengur ekki í bylgjum Iengur. Við höfum
frábæran þjálfara, samheldinn landsliðskjarna, afburðamenn eru á
leiðinni og HSÍ býr við góðan og traustan fjárhag. Nú hafa menn helst
áhyggjur af því að tómarúm myndist þegar Bogdans nýtur ekki lengur
við.
ir leikmenn og góður þjálfari. Við gefum
Einari Magnússyni, starfsmanni Handknatt-
leikssambandsins orðið; „Aðstaðan spilar
mjög inn í myndina, hvað hægt er að bjóða
mönnunum upp á. Jón Hjaltalín Magnússon
formaður HSI hefur reynst kraftaverkamað-
ur í sínu starfi. Strákarnir eru mikið að heim-
Kjartansson, kaupmaður í Torginu og kunn-
ur handknattleiksdómari, rekur rætur nú-
verandi kjarna til unglingastarfs nokkurra
félaga.
„Unglingastarfið hjá íélögunum hefur
gengið í bylgjum. Árangur manna eins og
Kristjáns Arasonar og Þorgils Óttars Mathie -
sen má t.d. rekja til unglingastarfs Janusar
Gudlaugssonar hjá FH. Sama má segja um
þá landsliðsmenn, sem voru í yngri flokkun-
um hjá Guðjóni Guðmundssyni í Víkingi, nú-
verandi liðsstjóra landsliðsins. Þeir sem kom-
ið hafa úr Val eiga vel skipulögðu unglinga-
starfi líka mikið að þakka. Ef horft er til fram-
tíðarinnar má gera ráð fyrir að margir af
þeim mönnum sem eiga eftir að koma inn í
landsliðið á næstu árum komi úr Stjörnunni,
þar sem rekið hefur veirð öflugt starf í yngri
flokkunum. Þeir sem eru ungir í dag fá líka
miklum mun fleiri tækifæri en áður hefur
þekkst með 21 árs og 18 ára liðunum.
En varðandi landsliðiö sjálft varð mesta
breytingin þegar Bogdan kom. Hann ger-
breytti móralnum. Áður hafði allur 12
manna hópurinn fengið að leika í hverjum
leik og menn fóru í fýlu ef þeir fengu ekki
þau tækifæri sem þeir töldu sig eiga skilið.
Bogdan byggði hins vegar upp liðsheild og
beitti henni eftir því hvernig leikkerfi and-
stæðingarnir spiluðu. Bogdan stýrir liðinu
skipti gífurlegu máli, og landsliðið væri ekki
jafn gott og raun ber vitni, þrátt fyrir sama
mannskap, ef ekki væri jafn góður þjálfari.
Um framtíðina segir Guðmundur, að mikið
af efnilegum ungum strákum séu að koma
upp, þannig að til sé efniviður til að taka við
af núverandi landsliðshópi. „En sjáifsagt
kemur eitthvert millibilsástand á meðan ver-
ið er að þjálfa menn upp,“ segir hann. Guð-
mundur minnir á að talað hafi verið um að
eftir heimsmeistarakeppnina í Sviss myndu
margir hætta og þar af leiðandi væri allt bú-
ið. Það hafi ekki oröið. Nú séu menn að
spyrja sig hvað taki við eftir ólympíuleikana
í Seúl á næsta ári. Hann segir að ekki muni
allir í núverandi landsliðshópi hætta að spila
eftir þá keppni, og ef góður þjálfari fáist til að
taka við af Bogdan og ef haldið verður jafn
vel á málum og að undanförnu, ætti ekki að
þurfa að kvíða neinu um framtíð íslensks
handknattleiks.
Uiie*en, Atli Uilmnruon og Alfreð Gialaaoo.
Stórglæsilegur sigur
XNDINGAR unnu elnn ainn atjeratn ligur á íþróttnaviðinu þegar þeir lögðu mð velli he
a frá JúgóaUviu 24:20 I LaugarcUlahSU i gœrkvöldi. Fagnaðarú-tin voru gtfurteg i
inni þegar fyrati aigur okkur yfir heimameiatunim i handknattieik var ataðreynd.
á fráaögn, viðtðl og myndir á iþróttaalðu 68.
HELGARPÓSTURINN 31