Helgarpósturinn - 26.02.1987, Blaðsíða 39

Helgarpósturinn - 26.02.1987, Blaðsíða 39
FRÉTTAPÓSTUR IBM-ofurskákmótið Sterkasta skákmót sem haldið hefur verið hér á landi var sett í síðustu viku. IBM á íslandi stendur fyrir því í tilefni 20 ára afmælis síns. Eftir fimm fyrstu umferðirnar á mót- inu hefur breski stórmeistarinn Nigel Short tekið afgerandi forystu, hefur unnið allar sínar skákir og er með 5 vinn- inga. Jan Timman, Hollandi, er í öðru sæti með 4 vinninga og næstir koma þeir Kortsnoj, Portisch, Tal og Polugajevskí. íslendingunum Helga, Jóni L., Jóhanni og Margeiri, sem eru fjórir stigalægstu menn mótsins, hefur gengið erfiðlega að kljást við hina sterku erlendu skákmenn. Það var ekki fyrr en í fimmtu umferð að Jóhanni Hjartarsyni tókst fyrst- um íslendinga að leggja útlending. Viktor Kortsnoj gleypti við eitruðu peði og Jóhann nýtti sér tækifærið og gerði stuttu síðar úti um skákina með glæsilegri taflmennsku. Kosningabaráttan Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra hefur lýst þvi yfir að alþingiskosningar verði laugardaginn 25. april. Stjórnmálaflokkarnir hafa flestir hafið kosningabaráttu sína, og setur hún nú töluverðan svip á störf Alþingis. Davíð Oddsson borgarstjóri hefur lýst sig mótfallinn þess- um kjördegi, segir of stuttan frest gefast til að afgreiða kær- ur vegna kjörskrár. Ástæðan er að margir frídagar eru vik- urnar fyrir kosningar; páskahátið helgina á undan og sum- ardagurinn fyrsti tveimur dögum fyrir kosningar. Eyjólfur Konráð Jónsson hefur lagt fram frumvarp á Al- þingi þess efnis að Þjóðhagsstofnun verði lögð niður. Eykon hefur fengið fylgismenn við tillöguna úr flestum flokkum, nema Alþýðuflokknum. Þar telja menn tillögunni beint gegn Jóni Sigurðssyni, fyrrverandi forstöðumanni stofnun- arinnar og fyrsta manni á lista Alþýðuflokksins í Reykja- vik. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lýst þvi yfir að samstarf flokksins við Alþýðuflokkinn eftir kosningar sé óhugsandi nema alþýðuflokksmenn láti af hugmyndum sínum um sameiningu lífeyrissjóðanna. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Alþýðuflokksins, hefur lýst þeirri skoðun sinni að hið nýja húsnæðiskerfi sé hrunið. Alexander Stefánsson félagsmálaráðherra hefur staðið í ströngu við að verja kerfið fyrir árásum stjórnar- andstöðuflokkanna og fjölmiðla. Deila reis upp á milli Matthíasar Bjarnasonar viðskipta- ráðherra og Halldórs Ásgrímssonar sjávarútvegsráðherra, eftir að sá fyrrnefndi lýsti því yfir að hann hygðist auka frelsi í útflutningi á ferskfiski. Halldór sagði Matthías ekkert samráð hafa haft við sig í þessu máli. Steíngrímur Hermannsson forsætisráðherra hefur þegið boð Gorbatsjovs sovétleiðtoga um opinbera heimsókn til Sovétríkjanna. Steingrimur er nú staddur i Helsinki á 35. þingi Norðurlandaráðs og mun halda til Sovót að því loknu. Á heimleiðinni mun Steingrímur sækja heim Poul Schlúter í Danmörku. Giftusamleg björgun Val Guðmundssyni, háseta á netabátnum Hrungni GK 50 frá Grindavik, tókst að losa sig úr netratrossu sem hann hafði flækst i og dregist fyrir borð með, siðastliðinn mánu- dag. Valur flæktist með fótinn í netunum þegar verið var að leggja. Þungi sjávarins dró í og Valur sá sér þann kost vænst- an að stökkva fyrir borð þegar netin tóku að merja á honum fótinn. Hann dróst í kaf með netunum, en tókst að losa sig neðan sjávar. Skipsfélagar hans náðu honum mikið þrekuð- um úr sjónum með hjálp bjarghrings og Markúsarnetsins. Fréttapunktar. • Lánsloforð frá Húsnæðisstofnun ganga nú kaupum og sölum á fasteignasölum. Gangverðið er um 100 þús. kr. Sig- urður E. Guðmundsson, framkvæmdastjóri stofnunarinn- ar, hefur lýst því yfir að þeir sem staðnir verði að þessum viðskiptum tapi rétti sinum til húsnæðislána. • Ullarsamningur við sovétmenn hefur verið undirritaður. Samkvæmt honum er gert ráð fyrir sölu á um fjórðungi þeirra ullarvara er framleiðendur gerðu sér vonir um að selja til Sovétrikjanna á þessu ári. • Islendingar lögðu Júgóslafa i handbolta í seinni leik þjóð- anna á þriðjudagskvöldið með 24 mörkum gegn 20. Júgó- slafar eru handhafar bæði ólympíu- og heimsmeitaratign- ar í íþróttinni. Fyrri leik þjóðanna lauk með sigri Júgóslafa, 20—19. • Rúmlega tvitugur hommi lést úr eyðni í Reykjavik i sið- ustu viku. Hann er annar íslendingurinn sem fellur í valinn fyrir þessum sjúkdómi. • Borgardómur hefur staðfest lögbann borgarfógetans í Reykjavík á breytingar á lofti Kjarvalsstaða. Loftið, sem er hannað af Hannesi Kr. Davíðssyni, arkitekt hússins, hefur verið deiluefni myndlistarmanna og Hannesar um áraraðir. Hannes hefur neitað að breyta loftinu og hefur nú fengið staðfestingu borgardóms á rétti sínum til þess. • Ingólfur Margeirsson, fyrrverandi ritstjóri Helgarpósts- ins, hefur verið ráðinn ritstjóri Alþýðublaðsins i stað Árna Gunnarssonar, sem mun nú einbeita sér að kosningabar- áttu sinni fyrir Alþýðuflokkinn á Norðurlandi. • Trésmiðafélag Reykjavíkur hefur boðað verkfall þann 11. mars. • Félagar í Hinu íslenska kennarafélagi gengu til atkvæða um síðustu helgi um hvort félagið skyldi boða verkfall. Nið- urstöður kosninganna munu liggja fyrir um helgina. Ef til verkfalls kemur mun það liefjast 16. mars. • Þjóðhagsstofnun hefur sent frá sér nýja þjóðhagsspá. í henni er gert ráð fyrir 7% aukningu á kaupmætti heimil- anna, H—12% verðbólgu og 6,5% hagvexti á þessu ári. Andlát Pétur Ólafsson hagfræðingur, jafnan kenndur við ísafold, lést þann 17. febrúar á 75. aldursári. Einar Jónsson, bóndi og huglæknir á Einarsstöðum, varð bráðkvaddur þann 24. febrúar á 72. aldursári. BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐIN ÓS veitir eftirtalda þjónustu: tjöruþvott, djúphreinsun teppa og sœta, mótorþvoti mössum bónum og límum ó rendur. Opiö virka daga kl. 8—19. Opið laugardaga kl. 10-16. Bón- og þvottastöðin Ós, Langholtsvegi 109 Sími 688177 Bjóðum „rishæðina“ fyrir einkasamkvæmi Góðarveitingar í hlýlegu umhverfi og þjónusta í sérflokki. Verðið kemur þér á óvart Veitingahúsið A. HANSEN Vesturgötu 4, Hafnarfirði. Sími; 6511 30 (Hafið samband f tíma) Tökum hunda ígœslu til lengri eða skemmri dvalar Hundagæsluheimili Hundavinafélags íslands og Hundaræktarfélags íslands Arnarstöðum, Hraungerðishreppi 801 Selfoss — Símar: 99-1031 og 99-1030 HELGARPÓSTURINN 39

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.