Helgarpósturinn - 02.06.1988, Side 27

Helgarpósturinn - 02.06.1988, Side 27
ÍÞRÓTTIR EFTIR ÞÓRMUND BERGSSON M LANDSLEIK OG HÖLLINA HIMNESKU Það fer ekki á milli mála að við ís- lendingar vorum teknir í karphúsið á Laugardalsvelli á sunnudaginn er stjörnumprýtt lið ítala sýndi okkur hvernig á að leika árangursríka knattspyrnu. Þegar ég segi teknir í karphúsið á ég við leikinn sjálfan fyrir utan mörkin þrjú. Það að tapa fyrir ítölum með þremur mörkum — hefðu getað orðið fleiri — en að mínu mati ósköp eðlileg úrslit mið- að við aðstæður sem voru þessar: Áhugamenn gegn harðsnúnum at- vinnumönnum, ítalirnir að Ijúka keppnistímabilinu en við að byrja, ítalir þurftu stig við ekki. Allt þetta auk annars gerir þessi úrslit næsta eðlileg. Við skulum ekki gleyma því að við íslendingar erum peð í knattspyrnuheiminum og það þarf ótrúlega góða leiki af okkar hálfu til að standa uppí hárinu á sterkum þjóðum Evrópu. Til að draga ekki alveg kjarkinn úr okkar mönnum og þeirri starf- semi sem fram fer í kringum ÓL- landsliðið þá vil ég taka undir þau sjónarmið margra að ÓL-liðið sé nauðsynleg brú á milli 21 árs liðsins og A-landsliðsins. Við verðum einnig að hafa í huga að ÓL-liðið er að mestu skipað leikmönnum úr 1. deildinni hér á landi en þessir leik- menn fá gjarnan lítil tækifæri með A-landsliðinu vegna atvinnumann- anna sem nú fer þó óðum fækkandi. Talandi um atvinnumennina þá fer þeim einnig fækkandi á meginlandi Evrópu. Atli kominn heim, Ómar og Sævar á leiðinni og Lalli mættur á skerið. Þeir verða því aðeins fjórir, ef ég tel rétt, atvinnumennirnir á meginlandinu næsta vetur. Arnór, Ásgeir, Sigurður Grétarsson og Siggi Jóns í Englandi. Hvað verður um okkar leikmenn í Noregi og Dan- mörku skal ekki fullyrt hér. Auðvit- að kemur að því að fleiri leikmenn fara út í heim atvinnumennskunnar, en mér þykir líklegt að á næstu tveimur árum fari íslenskum leik- mönnum heldur fækkandi erlendis heldur en hitt. Síðan feta menn aftur í fótsporin. Hvort þetta þýðir að ís- lenskri knattspyrnu á alþjóðavett- vangi fari hnignandi veit ég ekki en víst er að leiðin getur ekki legið mikið niður á við. HÖLLIN HIMNESKA Jæja, þá er Jón Hjaltalín kominn með teikningar af obboðslega stóru íþróttahöllinni sem Þorsteinn og fé- lagar í ríkisstjórninni hafa samþykkt að byggja ef við fáum að halda HM í handknattleik árið ’93 eða '94. Engin smá höll enda á hún að taka eins mikið af áhorfendum og þrjár Laugardalshallir eða eins mikið og þeir sem sjá leiki í 1. deild í hand- knattleik samanlagt í heilan vetur. Nei, nú ýki ég reyndar nokkuð en vissulega verður þetta stór höll. Hvað á svo að gera við herlegheit- in? Reyndar er ég viss um að Islend- ingar fá ekki að halda HM í hand- knattleik vegna þess að formaður sænska sambandsins segir að Svíar ætli að halda keppnina. Það væri eftir öllu að liggja enn einu sinni fyrir þessum and... Svíum. Mér er reyndar svo mikið í mun að við fá- um þessa keppni bara til að klekkja á Svíum að ég gæti hugsað mér að kaupa fast sæti í höllinni góðu um aldur og ævi. Nei, enn ýki ég! Snú- um okkur þá að höllinni. Nú er ég reyndar ekki búinn að kynna mér vel hvaða hugmyndir eru á lofti um þessa höll en víst er að hún þarf að geta þjónað mjög víðtæku hlutverki bæði á sviði íþrótta- og menningar- mála til að réttlæta byggingu henn- ar. Ekki væri forsvaranlegt að byggja 8000 manna höll bara til að klekkja á Svíum og hafa hana síðan tóma eftir það — og þó!! Þar sem ég þekki til erlendis , svo maður verði svolítið snobbaður eins og við ís- lendingar eigum að okkur, eru hallir gjarnan með skiptanlegu gólfi þann- ig að hægt er án verulegra erfið- leika að skipta um gólfefni og þann- ig nýta höllina til ýmissa nota. Þann- ig mæti hugsa hana sem skautahöll, körfuboltahöll, handknattleiksvöll, frjálsíþróttahöll, hestahring, fim- leikavöll og óperusvið auk þess sem hægt væri að halda þarna tónleika. Svona hús þarf að vera í fullri notk- un allt árið um kring til að fá sem mest útúr því. Hvort það myndu mæta átta þúsund manns á lands- leik í handknattleik er aldrei að vita en víst er að höllin stóra yrði senni- lega ansi tómleg á Reykjavíkurmót- inu í frjálsum íþróttum eða á fyrsta ísknattleiknum á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Látum þó ekki hug- fallast. Með tilkomu svona húss skapast möguleikar sem ekki eru fyrir hendi í dag. Hægt væri að fá topp-fólk úr t.d. frjálsíþróttaheim- inum til að keppa á innanhússmót- um (verst að okkar topp-fólk eru spjótkastarar!) og möguleiki væri á að fá hingað sterk lið til keppni eða sýninga í hinum ýmsu íþróttagrein- um. Mér, sem íþróttaunnanda, þætti mikill fengur í því að fá slíkt hús og þau mót sem hægt væri að halda i þessu húsi. Og mér sem menningar- unnanda (ef það orð á við) þætti gaman af þeim möguleikum sem þetta hús skapaði til menningar- starfsemi. En mér sem bæði íþrótta- og menningarmanni þætti gaman að sjá ýmislegt annað spretta úr jörðu áður eða lokiö einhverju því sem hálfnað er. SKALF JÖRÐ Á nýafstöðnu ársþingi HSÍ mun- aði litlu að stjórn sambandsins félli vegna þess að þingheimur sam- þykkti ekki reikninga sambandsins og lýsti þar með nánast vantrausti á forystuna. Þetta mál er svipað því og kom upp á þingi KSI í haust er hljóp í kekki á milli stjórnar KSI og forráðamanna félagana útaf Lottó- peningum. Nú virtist sem forráða- menn félagana væru ekki ánægðir með fjáraustur til landsliðsins í handknattleik og þá um leið með störf stjórnar. Þessi ágreiningur set- ur vissulega nokkurn blett á störf handknattleiksforystunnar en við skulum hafa í huga ( og þetta hef ég bent á áður) að forysta handknatt- leikssambandsins sem og forysta KSÍ er kjörin af félögunum sjálfum og eiga að lúta þeirra stjórn að mestu leyti. Félögin eru sambandið og sambandið er félögin. Rétt eins og Sambandið er kaupfélögin og kaupfélögin eru Sambandið nema stundum... Skyldi það vera eins hjá HSI og KSI að félögin eru þau stund- um en stundum ekki? Hugsanlegt er að félögin bæði í handknattleiknum og knattspyrnunni verði að skil- greina starfsemi sína og sérsam- band betur og taka upp meira að- hald á stjórnarmenn í HSÍ og KSÍ. Sennilega þarf það ekki og vissu- lega er einhver ágreiningur bara skoðanaskipti sem eru líflegu sam- bandi til góða. En hjá HSÍ skalf jörð og hver veit nema að hún eigi eftir að skjálfa meira!! HELGARPÓSTURINN 27

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.