Helgarpósturinn - 02.06.1988, Síða 28
KROSSGÁTA
„Margir íslendingar leagja
leið sína til ítalíu I suntarrrnnu.
ítalía er sem kunnugt er
stórmerkilegt og faílegt land.##
Sigmar B. Hauksson á sælkersíöu DV.
„Ég hef séð skýrslu Seðlabank-
ans og þar kemur fram að ekkert
óeðlilegt var við þessi viðskipti."
Stefán Pálsson bankastjóri
Búnaðarbankans um gjaldeyriskaup
bankanna dagana fyrir gengisfellingu.
„Mér finnst ríkisstjórnin eigin-
lega bara vera að reyna að fylla í
holurnar með þessu."
Jóhann Ágústsson bankastjóri
i Landsbankanum um bráðabirgðalögin
á bráðabirgðalögin.
„Ég hlýt að vera einfær um aö meta
mínar hugsanir sjálfur.“
Steingrimur Hermannsson utanríkisráðherra.
„Ég vil ekki fjölga fréttatímum en
ég vil efla fréttastofuna í það að
verða besta fréttastofa á landinu."
Ólafur Hauksson útvarpsstjóri
Stjörnunnar.
„Já, þakka þér fyrir, þeir eru allt
öðru vísi en aðrir og verða það von-
andi alltaf."
Guðmundur Árni Stefánsson bæjarstjóri
i Hafnarfirði um þegna sína.
„Það hefur enginn vont af þvi að
nota bílbelti og aka með ökuljósin."
Ómar Smári Ármannsson
lögregluvarðstjóri.
„Davíð (Oddsson) ætti ekki að fá
núll með gati frá Vegagerðinni."
Jónas Hallgrímsson framkvæmdastjóri
á Seyðisfirði.
„Ég bið til guðs um að ég verði
orðinn löglegur."
Lárus Guðmundsson knattspyrnumaður.
„Þaö viröist vera svo í þessu
þjóðfélagi að þeir einu sem mega
græða eru þeir sem versla með
peninga. En það gengur ekki
lengur."
Steingrimur Hermannsson
utanríkisráðherra.
„Aðal bölvaldurinn, þenslan og
grái fjármagnsmarkaðurinn fá að
leika lausum hala þrátt fyrir bráða-
birgðalögin."
Karvel Pálmason þingmaður
úr Alþýðuflokki.
„Ríkisstjórn landsins hefur ropað
um fastgengisstefnu og síðustu
dagar sýna hversu mikið mark er
tekiö á henni."
Steingrimur J. Sigfússon
þingmaður Alþýðubandalags.
„Þaö er eins og sé verið að leita
að einhverjum sökudólgi, en ég
held að hann sé ekki til."
Sólon Sigurðsson
aðstoðarbankastjóri Búnaðarbankans
um gjaldeyriskaupamálið.
STJÖRNUSPÁ
HELGINA 3.-5. JÚNÍ
nmmnnmmmmm
Þér tekst nú að Ijúka við verk, sem hvilt
hefur á þér um nokkurt skeið. Manneskja,
sem þér finnst mikilvæg í lífi þínu, vill hitta
þig í rólegheitum og ræða málin. Laugar-
dagurinn verður ánægjulegur og þér tekst
að fara áður óþekktar slóðir. Hugboð sem þú
færð um einhvern innan fjölskyldunnar
reynist rétt. Gefðu þér tíma til að hlusta á og
leiðbeina þeim sem til þín leitar.
NAUTIÐ (21/4-21/5]
Loks gefst þér næði til að ihuga framtíðina
og taka ákvarðanir varðandi hana. Mundu
að þú þarfnast þess að vera sjálfstæður! Ein-
hver sem hingað til virðist hafa verið sama
um þig, sýnir þér fullan stuðning í máli sem
er þér mikils virði. Haltu þig á heimaslóðum
og treystu á innsæi þitt.
TVÍBURARNIR (22/5-21/6)
Láttu ekki stoltið hindra þig í að tala við
persónu sem áður var mikilvæg í lífi þínu. Þú
átt í vændum skemmtilega helgi og ákvarð-
anirvarðandisumarfríiðverða teknar. Ástar-
málin taka nýja stefnu og þú verður að vera
ábyrgðarmeiri á því sviði en fram til þessa.
Eldri manneskja innan fjölskyldunnar ræður
þér heilt.
KRABBINN (22/6-20/71
Þú þarft að taka mikilvæga ákvörðun
þessa dagana. Hreinsaðu til í fjármálunum
áður en verra hlýst af óhirðunni. Þú færð
tækifæri til að telja aðra á þitt band og nýtur
þess að segja frá hugmyndum þínum. Laug-
ardagurinn verður óvenjulegur að því leyti
að þér tekst ekki að losna undan skyldu-
störfum. Forðastu vin sem reynir að telja þér
hughvad i afstöðu þinni.
LJÓN’O (21/7-23/81
Þú erTpinnar eigin gæfu smiður og verður
að Ijúka verkefni sem þú hefur tekið að þér.
Maki eða vinur býður fram hjálp sína, svo þú
skalt leggja stoltið á hilluna og þiggja þá að-
stoð. Hlustaðu meira en þú talar og taktu
engar mikilvægar ákvarðanir upp á eigin
spýtur. Leyfðu listrænum hæfileikum þin-
um að njóta sin.
MEYJAN (24/8-23/91
Vertu jákvæður gagnvart breytingum
sem eiga sér stað á vinnustað þinum um.
þessar mundir. Felldu ekki dóma fyrr en þú
hefur fengið tækifæri til að vega og meta
sjálfur. Taktu ekki meira að þér en þú ræður
við, jafnvel þótt ábyrgðartilfinningin segi þér
annað. Vertu hlutlaus því þú lítur ákveðið
fólk ekki raunsæjum augum þessa dagana.
VOGIN 124/9- 22/101
Lifið er fullt af skemmtilegheitum ef þú
bara manst að umgangast „rétta" fólkið. Or-
læti þitt vekur aðdáun fólks og þú færð gull-
hamra í ríkum mæli. Leið til að sættast við
gamlan vin býðst þér og þú skalt ekki hika
við að taka boðinu. Mikil óvissa rikir i kring-
um rómantíkina og þér finnst þú hafa gert
eitthvað rangt. Þú getur huggað þig við að
núverandi ástand varir ekki lengi.
SPORÐPREKINN (23/10—22/11
Notaðu frítímann til að hugleiða i fullri al-
vöru hvaða stefnu þú ert að taka. Aldrei slíku
vant finnurðu til einmanaleika, þrátt fyrir að
þú sért umkringdur fólki. Þér verður falið
ábyrgðarstarf sem þér tekst að leysa vel af
hendi. Eyddu ekki tíma í áhyggjur af litlu
hlutunum, líttu á heildina og leystu þannig
málin.
Peningamálin eru undir betri stjórn en i
langan tíma og þú ert í meira jafnvægi af
þeim sökum. Þú ert traustsins verður og
sýnir það þegar þú efnir löngu gefið loforð.
Einhver í valdastöðu færir þér mikilvæ^
skilaboð. Vertu jákvæður og varastu íhalds-
semi þegar ákveðið mál verður boriö undir
þig-
STEINGEITIN (22/12-21/V
Þú færð tækifæri til að laga peningamálin
og ef þú lítur fram á veginn í stað þess að
horfa stöðugt til baka geta fleiri en þau mál
lagast. Leitaðu nýrra leiða til að kynnast fólki
og málefnum. Einhver af gagnstæðu kyni
sýnir áhuga sinn í verki. Þú hittir aftur gaml-
an vin sem þú hefur saknað en hlustaðu á
ráðleggingar frá eldri konu áður en þú tekur
ákvarðanir.
VATNSBERINN (22/1—19/2]
Nú er komið að þér að ráQp ferðinni og þú
losnar undan áhrifavaldi ákveðinnar mann-
eskju. Breytinga er að vænta i kjölfar þessa
ef þú venur þig af hlédrægninni. Öryggisins
vegna skaltu fara að öllum nýjungum með
gát og framkvæma ekki fyrr en þú hefur
kynnt þér málin til fulls. Gleymdu ekki að
koma skoðunum þínum á framfæri.
FISKARNIR (20/2-20/31
Láttu ekki óþolinmæðina ná tökum á þér
þótt hlutirnir gangi ekki eins hratt fyrir sig og
þú óskar. Eihhver sem þú þekktir náið fyrir
löngu siðan kemur aftur inn í lif þitt og hefur
miklar breytingar á viðhorf þin. Mundu að
glaðlegt viðmót getur átt stóran þátt i að ýta
vandamálum á brott. Hjálpaðu öðrum til að
líta björtum augum til framtíðarinnar.