Helgarpósturinn - 02.06.1988, Side 31

Helgarpósturinn - 02.06.1988, Side 31
og einnig vilja konurfá sömu tæki- færi og karlmennirnir. Stór hluti fólksins telur þó aö þaö sé miður heppilegt. Meira en helmingurtel- ur að það sé breyting til hins verra að æ fleiri börn skuli vera á dag- vistarheimilum, á meðan aðeins þriðjungur álítur að það sé breyt- ing til hins betra. Þá segir um helmingur að útivinnandi mæður sé breyting til hins verra. Hins vegar er ekkert sem bendir til að menn vilji fórna einhverju af lífs- gæðunum svo annað foreldrið geti verið heima. íhaldssemi hópsins kemurenn í Ijós þegar spurt er um afstöðu til barnauppeldis. Meira en helming- ur sögðust ala eða ætla að ala börn sín upp eins og þau voru sjálf alin upp. Fólk sem er í hjónabönd- um þar sem bæði maðurinn og konan vinna úti voru jafnvel meira fylgjandi uppeldisaðferðum sinna eigin foreldra heldur en þeir sem voru í hefðbundnu hjónabandi, þar sem aðeins eiginmaðurinn vinnur úti. En meira að segja þeir sem ætla að ala eigin börn upp á annan hátt, höfðu þó aðeins minniháttar athugasemdir við eigið uppeldi. Það helsta sem minnst var á, var að foreldrar þeirra höfðu verið of strangir, ekki mjög viðræðugóðir og lítt um- burðarlyndir. BJART FRAMUNDAN... Bjartsýni og ánægja virðast ríkj- andi hjá þátttakendum könnunar- innar, þeir eru ánægðir með vinn- una og fullir tiltrúar á framtíðar- velgengni sína. Undir yfirborðinu gætir hins vegar þó nokkurs kviða vegna efnahagslegrar afkomu. Aðeins tæpur þriðjungur að- spurðra töldu sig vera á grænni grein fjárhagslega, á meðan tæp- ur fimmtungur var á algerlega öndverðum meiði. Meðaltekjur hópsins reyndust vera um 1200 þúsund krónur á ári, en flestir töldu sig þurfa um 1600 þúsund krónur til að losna við fjárhags- áhyggjur. Þó svo að innan hópsins reynist vera síspreðandi uppar, gefa slíkar fjölmiðlalýsingar alls ekki rétta mynd af þessari kynslóð. Flestir eiga sér þá ósk heitasta að lifa þægilegu en fábreyttu lífi, eiga hús og bíl, og eitthvað til að leggja fyrir til ellinnar. Þeir eru þeirrar skoðunar að þeir þurfi að hafa meira fyrir hlutunum en kynslóð foreldra þeirra. Samt telur meiri- hlutinn að hann verði betur settur en foreldrarnir þegar þeirra aldri verður náð. ...EÐA HVAÐ? Þetta voru nokkrar helstu niður- stöðurnar úr könnun bandaríska tímaritsins Rolling Stone um lífs- viðhorf Bandaríkjamanna á aldrin- um 18—44 ára. Anægt með eigið líf, og bjartsýnt, þótt ekki sé það einhlítt þegar nánar er skoðað. Það er kannski eins og söguhetjan í lagi Randy Newman, „Líf mitt er gott", sem horfir sæll og glaður framhjá öllum vísbendingum um hið gagnstæða. FREITAPOSTUR Er vegurinn háll? Vertu því viðbúin/n að QJALDEYRISMÁL Viðskiptaráðunejrtið hefur loks upplýst um gjaldeyris- kaup bankanna þá þrjá daga sem 2,5 milljarðar af gjaldeyr- isforða landsmanna gekk út. Bankar og sparisjóðir keyptu vetrarlagi. hÉUMFERdar Mrað W gjaldeyri handa sjálfum sér fyrir milljarð króna dagana 9—LL maí. Ljóst er að hagnaður þeirra af gengisfellingunni sem fylgdi í kjölfarið nemur 100 milljónum. Ekki er talið að þessi kaup stangist á við gildandi reglur um gjaldeyrisvið- skipti en viðskiptaráðherra telur tor reglur þarfnast end- urskoðunar nú. Ekki hefur verið gei'ið upp hvað einstakir hankar keyptu mikinn gjaldeyri og ekki er víst að það verði gert. BRÁÐABIBQÐALÖQ Ný bráðabirgðalög voru gefin út á þriðjudag til að bæta úr göllum á þeim bráðahirgðalögum sem rikisstjórnin gaf út 20. maí. í nýju lögunum felast fyllri ákvæði um verðtrygg- ingu. Verðtrygging fjárskuldbindinga sem stofnað er til eft- ir 1. júlí og eru til skemmri tíma en tveggja ára er óheimil. Með fjárskuldbindingum er átt við sparifé og lánsfé. Seðla- bankanum er þó heimilt með samþykki viðskiptaráðherra að heimila innlánsstofnunum að ávaxta fé með verðtrygg- ingu til skemmri tíma en tveggja ára. HArSKIP Skiptaréttur hefur úrskurðað að hlutafjárútboð Hafskips hf. 1986 hafi verið ólöglegt og þeir sem gáfu loforð sitt fyrir hlutafé því ekki skuldbundnir af því. Úrskurðurinn byggð- ist aðallega á því að forráðamönnum Hafskips tókst ekki að ná þeirri hlutafjáraukningu sem stefnt var að og því væru skuldbindingar þeirra sem höfðu skrifað sig fyrir hlutafé fallnar niður. Nokkur atriði önnur studdu einnig þessa nið- urstöðu þó þau dygðu ekki ein sér fyrir ógildingu. Skipta- réttur taldi að maður sem greitt hafði hlutafjáraukningu til Hafskips ætti forgangskröfu á þrotabúið. Úrskurðinum hef- ur verið áfrýjað til Hæstaréttar. PRÉTTAPUNKTAR • Samkvæmt úrskurði Hæstaréttar á Guðmundur L. Jó- hannesson, héraðsdómari í Hafnarfirði, ekki að vikja sæti í Svefneyjarmálinu svonefnda en það.snýst um meint kyn- ferðisafbrot gegn börnum. Guðmundur hafði sjálfur ákveð- ið að vikja úr dómarasæti vegna þess að móðir elns barn- anna hafði haft um hann ærumeiðandi ummæli. Hæstirétt- ur hafnaði þessu á þeim forsendum að þá gæti hver sem er gert dómara vanhæfan með fúkyrðum en slíkt gengi ekki. • Tekist hefur í Blóðbankanum að greina afbrigðilegan erfðavísi sem orsakar arfgenga heilablæðingu. Nú verður hægt að greina sjúkdóminn þegar á 7.—8. viku fósturskeiðs. Arfgeng heilablæðing er ríkjandi erfðasjúkdómur og hefur greinst í nokkrum ættum hér á landi. Sjúkdómurinn er banvænn og ólæknandi. • Á formannaráðstefnu ASÍ á mánudaginn var samþykkt ályktun þar sem segir að bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar séu „ósvífin árás á samningsrétt verkalýðsfélaganna". Kraf- ist var afnáms laganna og skorað á verkalýðsfélög að fylgja þeirri kröfu eftir. Koma þar m.a. til greina verkföll og yfir- vinnubönn. Forseti ASÍ, Ásmundur Stefánsson, hefur enn- fremur fengið heimild miðstjórnar alþýðusambandsins til þess að kæra bráðabirgðalögin til alþjóðavinnumálastofn- unarinnar en ísland er aðili að samþykktum hennar. • Islensks námsmanns hefur verið saknað í Bandaríkjun- um síðan 14. mars. Maðurinn stundaði nám við háskóla í Texas en fór til Kaleforníu í frí. Lögregla þar hefur leitað hans án árangurs og telur hann ekki vera lengur á því svæði. Hún telur jafnframt ekki ástæðu til að ætla að eitthvað al- varlegt hafi komið fyrir hann. • Meirihluti stjórnar fiskveiðasjóðs samþykkti á mánudag lánveitingar að upphæð 1250 milljónir króna til nýsmiði 12 fiskiskipa. Ágreiningur var í stjórninni um veitingu láns til smíði Haraldar Kristjánssonar HF en 3 af 7 stjórnarmönn- um töldu að með lánveitingunni gengi sjóðurinn gegn eigin úthlutunarreglum og tóku þvi ekki þátt í atkvæðagreiðslu um lánveitingu til 6 skipa. • Sovéska samvmnusambandið hefur ákveðið að kaupa 125.000 trefla af Álafossi til viðbótar því magni af ullarvör- um sem þegar hafði verið samið um sölu á. Álafoss gerir sér e nnig vonir um viðbótarsölu til sovésks ríkisfyrirtækis. • Banaslys varð er beinaflutningabíll frá Flateyri fór út af veginum ofarlega á Dagverðardal í Skutulsfirði. Ökumaður bifreiöarinnar lést en sonur hans sem var farþegi slappt lít- ið meiddur. Hinn látni hét Jón Guðjónsson og var 54 ára. • Alvarlegt umferðarslys varð á Arnarneshæðinni aðfara- nótt sunnudagsins og á mánudaginn lést ungur maður af völdum meiðsla er hann þá hlaut. Hann hét Erlingur Björnsson og var 22 ára. • Ragnar Halldórsson, sem verið hefur forstjóri íslenska álfélagsins var á aðalfundi þess kjörinn stjórnarformaður í stað Halldórs H. Jónssonar sem gaf ekki kost á sér til endur- kjörs. Ragnar mun einnig gegna starfi forstjóra þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn. Afkoma ÍSAL var góð á síðasta ári, hagnaður var tæplega 22 milljónir. • Einar Siguiósson, fyrrum útvarpsstjóri Bylgjunnar, hef- ur verið ráðinn fréttafulltrúi Flugleiða og tekur við því starfi af Boga Ágústssyni sem orðinn er fréttastjóri sjón- varpsms. • Portúgalir sigruðu íslendinga í landsleik í knattspyrnu á Laugardalsvellinum á mánudagskvöldið með þremur mörk- um gegn engu. Leikurinn var liður í undankeppni ólympíu- leikanna. KLIPPINGAR, PERMANENT, LITUN KREDITKORTAÞJÓNUSTA HARSNYRTISTOFAN Dóróthea Magnúsdóttir Torfi Geirmundsson Laugavegj 24 l|. hæð 101 Reykjavík, ®17144 ULTRA GLOSS Ekkert venjulegt bílabón heldur glerhörö lakkbrynja! VEIST ÞÚ MUNINN? . ULTRA GLOSS er elni bón- gljáinn, fáanlegur á islenskum Útsölustaðir. bensinsölum, sem þolir þvott með tjörueyði. Þar með rætlst draumur bónara, um aó glans og f rrrAA . „ . glæsilegt útlit geti enst mánuð- ICSSO/ STOOVOmQr. um saman. KÉRASIASE 'FRÁ L’ORÉAL PARÍS ATT ÞU í ERFIÐLEIKUM MEÐ HÁRIÐ. LEITAÐU RÁÐA HJÁ HÁRGREIÐSLU- MEISTARANUM. SPURÐU HANN UM KERASTASE. FÆST AÐEINS Á HÁRSNYRTISTOFUM. HELGARPÓSTURINN 31

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.